Morgunblaðið - 12.03.1996, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
ATKVÆÐI greidd um ályktunina á fundinum á Selfossi.
Fjölmennur fundur á Selfossi um réttindamál
opinberra starfsmanna
Krafist viðræðna um
réttindi og réttarstöðu
Selfossi - „Ég þykist vita að gul-
rótin fræga sé hol að innan," sagði
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arafélags íslands, á fjölmennum
fundi opinberra starfsmanna á Hót-
el Selfossi um lífeyris- og starfsétt-
indamál. „Já og örugglega ormétin
líka,“ sagði einn fundarmanna þeg-
ar Eiríkur lét þessi orð falla um
ávinning, sem settur er fram í ný-
framkomnu frumvarpi ríkisstjóm-
arinnar um lífeyrismál, fyrir
greiðslum síðustu tíu starfsárin og
nefnd hefur verið gulrótin í fmm-
varpinu.
Eiríkur gagnrýndi fmmvarpið
harðlega og útskýrði fyrir fundar-
mönnum hveijar skerðingar fmm-
varpið hefði í för með sér fyrir þá
sem þegar em komnir á lífeyri og
þá sem væm að ávinna sér lífeyris-
réttindi. Yrði fmmvarpið að lögum
þýddi það 8% lækkun lífeyris hjá
venjulegum launamanni og 20 -
30% lækkun hjá yfirmönnum.
Viðmiðun við eftirmann hyrfí, einn-
ig 95 ára reglan og fólk greiddi í
sjóðinn alla starfsævina.
Hann sagði fmmvarpið hafa
breyst frá fyrstu útgáfu og í stað
þess að skerða áunnin réttindi
myndu réttindi sem fólk ætti eftir
að ávinna sér skerðast um 30%.
Einnig gagnrýndi hann harðlega
þann lið fmmvarpsins að fólk áynni
sér mestu réttindin til eftirlauna á
aldrinum 60-70 ára. Fyrir ríkið sem
vinnuveitanda gæti reynst freist-
andi að segja fólki upp áður en það
kæmist á þann aldur.
Eiríkur gagnrýndi eins og aðrir
fmmmælendur á fundinum það
ráðslag ríkisstjórnarinnar að leggja
fmmvörpin fram án alls samráðs.
Hann sagði það alveg á hreinu að
KÍ myndi aldrei samþykkja að
kjarasamningur þeirra flyttist yfir
til sveitarfélaganna. Það hefði verið
háð því skilyrði að réttindi þeirra
skertust ekki. Nú væri verið að
breyta réttindunum. Fyrirspurn um
það hvers vegna reglum um lífeyris-
mál væri breytt svaraði hann svo
og vitnaði í Bangsímon: „Það er svo
erfitt að vita hvernig býflugurnar
hugsa."
Tímasprengja inn
í alla samninga
Ögmundur Jónasson gagnrýndi
harðlega fram komin frumvörp rík-
isstjórnarinnar um lífeyris- og
starfsréttindamál. „Réttindi manna
eru tekin burtu með einu penna-
striki. Þessi framkoma ríkisins
gengi ekki hjá vinnuveitanda á al-
mennum vinnumarkaði," sagði Ög-
mundur. Hann sagði að opinberir
starfsmenn krefðust þess að frum-
vörpin yrðu dregin til baka en menn
væru tilbúnir að opna kjarasamn-
ingana og gera frumvörpin að lið í
þeim. „Með þessum frumvörpum
er verið að setja tímasprengju inn
í alla samninga. Menn láta þetta
ekki yfír sig ganga. Við erum að
sá til samstöðu og viljum uppskera
sigur,“ sagði Ögmundur Jónasson,
foiroaður BSRB.
í lok fundarins var samþykkt
ályktun þar sem mótmælt er harð-
lega harkalegri aðför ríkisstjómar
íslands að kjara- og réttindamálum
opinberra starfsmanna eins og hún
birtist í frumvarpi til laga um lífeyr-
issjóð starfsmanna ríkisins og í
frumvarpi um samskiptareglur á
vinnumarkaði.
„Þar sem réttindamál opinberra
starfsmanna eru óijúfanlegur hluti
kjarasamninga þeirra lítur fundur-
inn svo á að verði frumvörp þessi
að lögum hafi öllum stoðum verið
kippt undan þeim kjarasamningum
sem nú eru í gildi.
Fundurinn krefst þess að frum-
vörpin verði þegar dregin til baka
og þess í stað hafnar sameiginlegar
viðræður samtaka opinberra starfs-
manna og ríkisvalds um framtíðar-
skipan á réttindum og réttarstöðu
ríkisstarfsmanna."
Heillaráð á
Austurlandi
Egilsstöðum - Atvinnuþróunarfé-
lag Austurlands og útibú Lands-
banka Islands á Austurlandi hafa
ákveðið að standa saman að hug-
myndasamkeppni fyrir ungt fólk
á Austurlandi sem fætt er á árun-
um 1970-1980. Keppnin ber yfir-
skriftina „Heillaráð" og tilgangur-
inn með henni er að hvetja ungt
fólk til að afla sér þekkingar á
atvinnurekstri og taka þátt í at-
vinnuþróun á Austurlandi.
Leitað er eftir hugmyndum að
nýjum fyrirtækjum, nýsköpun í
starfandi fyrirtækjum eða þróun á
vöru og/eða þjónustu sem þegar
er fyrir hendi. Verðlaunaðar verða
þijár bestu hugmyndirnar og eru
það peningaverðlaun að upphæð
kr. 50.000,-, kr. 30.000,- og kr.
20.000,-.
Mælst er til að hugmyndir séu
settar fram í formi viðskiptaáætl-
unar og leggur Landsbanki Is-
lands til upplýsingabækling um
gerð slíkra áætlana. Það er ekki
skilyrði að fullkomin viðskiptaá-
ætlun sé gerð heldur gengur að
koma hugmynd á framfæri á ann-
an hátt ef óskað er. Verkefnis-
stjóri keppninnar er Hrefna
Hjálmarsdóttir.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
VALKYRJAN, minnisvarði um veru flugdeildar
bandaríska flotans á Keflavíkurflugvelli.
Flugvél breytt
í minnisvarða
Vogum - Flugdeild bandaríska
flotans á Keflavíkurflugvelli hefur
sett upp gamla skipa- og kafbáta-
eftirlitsflugvél sem minnisvarða
um starfsemi deildarinnar hér á
landi. Þetta er þriðja flugvélin sem
varnarliðið setur upp sem minnis-
varða um veru sína hér á landi.
Friðþór Eydal, blaðafulltrúi
varnarliðsins, segir flugvélina vera
P-3A Orion skipa- og kafbátaeftir-
litsflugvél sem kom frá Bermúda
en eftir að herstöð sem var þar
var lögð niður fyrir tveimur árum
voru engin verkefni fyrir vélina.
Þá stóð til að farga henni en það
tókst að fá hana hingað.
Að sögn Friðþórs er Orion-vélin
táknræn fyrir starfsemi flugdeildar
flotans sem hefur starfað á Kefla-
víkurflugvelli frá því árið 1951.
Að auki hafði flugdeildin talsverða
starfsemi hér á landi á stríðsárun-
um með góðum árangri og var
starfsemin þá einkum með Cata-
lina-flugbátum í Fossvogi og
Reykjavík.
Flugvélin hefur verið nefnd Val-
kyija, sem er sama nafn og skipa-
og kafbátaeftirlitsvél varnarliðsins
ber, og vélin einnig að öðru leyti
færð í sama búning og vél hersins.
Sorpurðun á Vesturlandi
Unnið að um-
hverfismati
fyrir þrjár jarðir
SAMTÖK sveitarfélaga í Vestur-
landskjördæmi eru að láta vinna
umhverfismat vegna sorpurðunar á
vegum væntanlegs Sorpsamlags
Vesturlands. Verkfræðistofa Sigurð-
ur Thoroddsen er að meta aðstæður
fyrir urðun á þremur jörðum sem
til greina koma, Jörfa, Fíflholtum
og Brennistöðum.
Sorp er brennt við opinn eld víð-
ast hvar í kjördæminu. „Farið er að
gera strangari kröfur um eyðingu
sorps og ekki er undan því vikist
að koma þessum málum í viðunandi
horf,“ segir Björn Arnaldsson bæjar-
fulltrúi i Snæfellsbæ, formaður Sam-
taka sveitarfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi. Hann segir að vissulega verði
dýrt að koma upp urðunarstað en
það sé orðið brýnt því flest sveitarfé-
lögin séu komin í vandræði með sor-
peyðingu. Hagkvæmt sé að vinna
þessi mál í félagi og segist Björn
ekki vita annað en öll sveitarfélög á
Vesturlandi muni gerast aðilar að
Sorpsamlaginu.
Rekstur urðunarstaðar
boðinn út
í upphafi mun Sorpsamlagið ein-
ungis koma upþ og reka urðunarstað
og reiknar Björn með að sú starf-
semi verði boðin út. Sveitarfélögin
munu áfram sjá um sorphirðu hvert
á sínu svæði, koma þar upp gáma-
völlum til flokkunar og annast flutn-
ing sorps á urðunarstað. Segir Björn
hugsanlegt að síðar sjái sveitarfélög-
in sér hag í því að reka stærri hluta
starfseminnar í félagi en það hafi
enn ekki verið rætt.
Vonast er til að unnt verði að
auglýsa umhverfismat í vor enda
segir Björn Arnaldsson að áhersla
sé lögð á að koma upp urðunarstað
á árinu.
Sveitarstjórnarkosningar á norðanverðum Vestfjörðum
Kristinn Jón leiðir lista
framsóknarmanna
ísafirði - Á sameiginlegum fundi
framsóknarfélaganna á norðan-
verðum Vestfjörðum sem haldinn
var að Holti í Önundarfirði á
laugardag var eftirfarandi fram-
boðslisti félaganna fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar sem
ísafirði - Óháðir, Kvennalisti og
Alþýðubandalag hafa ákveðið að
bjóða fram sameiginlegan lista
til sveitarstjórnar í hinu nýja
sveitarfélagi á norðanverðum
Vestfjörðum. Ákvörðun þess efn-
is var tekin á fundi flokkanna
þriggja sem haldinn var á laugar-
dag.
fram fara 11. maí nk. samþykkt-
ur.
1. Kristinn Jón Jónsson,
ísafirði, 2. Bergþóra Annasdóttir,
Þingeyri, 3. Jón Reynir Sigur-
vinsson, ísafirði, 4. Ásvaldur
Magnússon, Tröð, Önundarfirði,
Kosin hefur verið þriggja
manna uppstillingarnefnd til að
gera tillögu að framboðslista og
verður tillaga nefndarinnar kynnt
á fundi sem haldinn verður að
Núpi í Dýrafirði á laugardaginn
kemur. Fundurinn, sem hefst kl.
13, er opinn öllu stuðningsfólki
framboðsins.
5. Inga Ólafsdóttir, ísafirði, 6.
Jón Reynir Sigurðsson, Þingeyri,
7. Þorvaldur H. Þórðarson, Stað,
Súgandafirði, 8. Sigurður Haf-
berg, Flateyri, 9. Jón Skúlason,
Gemlufalli, Dýrafirði, 10. Svan-
laug Guðnadóttir, ísafirði, 11.
Elías Oddsson, ísafirði, 12. Ólaf-
ur K. Skúlason, Þingeyri, 13.
Guðni Jóhannesson, ísafirði, 14.
Ásvaldur Guðmundsson, Núpi,
Dýrafirði, 15. Sigríður Magnús-
dóttir, Kirkjubóli, Valþjófsdal,
Önundarfirðij 16. Guðríður Sig-
urðardóttir, Isafirði, 17. Kristján
Grétar Schmidt, Suðureyri, 18.
Magnús Reynir Guðmund’sson,
ísafirði, 19. Lárus Hagalínsson,
Suðureyri, 20. Gunnlaugur
Finnsson, Hvilft, Önundarfirði,
21. Guðmundur Ingvarsson,
Þingeyri, 22. Jóhann Júlíusson,
ísafirði.
Þrír flokkar
saman um lista