Morgunblaðið - 24.04.1996, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.04.1996, Blaðsíða 5
Fjöldi báta MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996 5 ío.ooö £ Krókabátar á aflahámarki Áætlun veiði sóknardagabáta skv. frumvarpinu Umframveiði sóknardagabáta Á fiskveiðiárinu 1995-96 áttu krókabátar möguleika að velja milli tveggja kerfa. Annars vegar afla- hámark (kvóta) og hins vegar sóknar- daga. Þeir krókabátar sem eru á aflahámarki munu ekki fara fram úr veiðiheimildum sínum sem eru 14.730 tonn. a§!____ 96/97 spS 97/98 spá Samkvæmt frumvarpinu munu krókabátar sem sækja eftir sóknar- dagakerfi eiga möguleika á veiða ótakmarkað magn innan 84 sóknardaga. Þetta fvrirkomulag mun leiða til þess aó sóknardaga- bátarnir munu fara fram úr þeim mörkum sem gert er ráð fyrir. Á yfirstandandi fiskveiðiári er gert ráð fyrir að sóknardagabátarnir veiði 6.803 tonn en raunin verður sú að þeir munu veiða rúm 15.000 tonn samkvæmt áætlun Fiskistofu. Gatið" í samkomulaginu um veiðar krókabáta Niðurstaóan af þessu kerfi verður sú aó krókabátar á sóknardögum munu fara langt fram úr þeim áætlunum sem gert er ráð fyrir og það mun koma niður á aflamarksskipum en ekki krókabátum. Við jafnstöóuaflann 155.000 tonn hefur kvóti annarra báta en krókabáta sífellt farið minnkandi og mun gera það áfram miðað við þetta nýja samkomulag. Á fimm ára tímabili mun aflamark annarra en krókabáta falla um fjórðung. 00 n.>0 Þannig sést nú þegar að þetta kerfi mun ekki ná að halda veiði sóknardagabátanna innan þeirra marka sem gert er ráð fyrir. En þetta er ekki eina hættan í kerfinu. í dag er það þannig að af þeim 677 krókabátum sem völdu sóknardaga eru 276 bátar sem hafa veiðireynslu sem er innan við fimm tonn á ári. Þessir bátar eru í raun „tómstundatrillur" en ekki raunveruleg atvinnutæki. Þrátt fyrir það fá þeir að veiða óhindraó í 84 daga á ári. Það sem mun gerast er aó þeir sem hafa fengið úthlutað aflahámarki (kvóta) munu selja kvóta sinn fyrir stórfé, kaupa trillu með sóknarmarki og breyta henni i aflmikla, nýtisku „ofurtrillu" sem fær að sækja óhindrað innan sóknardaga. Ef litið er til baka og skoðuð reynsla af veiði krókabáta á sóknardögum kemur í Ljós aó á undanförnum árum hafa þeir ætið farið Langt fram úr þeim viómiðunum sem settar hafa verið samkvæmt lögum um stjórn fiskveióa. í raun má því segja að með gatinu í frumvarpinu um veiðar krókabáta sé fundinn nýr veiðistofn fyrir krókaleyfisbáta þar sem þeir munu, ólíkt öðrum, fá að veiða ótakmarkað innan sóknardagakerfisins. A meðan hefðbundnir vertíðarbátar liggja bundnir við bryggju eða kaupa kvóta á uppsprengdu verði munu krókabátarnir fara í „Gatið". Útvegsmannafélag Reykjavíkur 20.000 15.000 ■ I( ll 1991 1992 1993 1994 1995 ■ Umframafti Hlutdeild krókabáta krókabáta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.