Morgunblaðið - 24.04.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 24.04.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996 43 I DAG Árnað heilla í7rkÁRA afmæli. í gær, I Vfþriðjudaginn 23. apríl, varð Agnar Jónsson, Vallholti 17, Akranesi sjö- tugur. Hann tekur á móti gestum á heimiii dóttur sinnar og tengdasonar Jör- undarholti 1 C á laugardag- inn 27. apríl eftir kl. 15. /? JVÁRA afmæli. Á OV/morgun, fimmtudag- inn 25. apríl, verður Valdís Ólafsdóttir, Björtuhlíð 9, Mosfellsbæ, sextug. Hún tekur á móti gestum á heim- ili sínu eftir kl. 15 á afmæl- isdaginn. Ljósmyndarinn Lára Long. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 6. apríl í Háteigs- kirkju af séra Pálma Matt- híassyni Soffía Guðmunds- dóttir og Guðmundur K. Guðmundsson. Heimili þeirra er í Amamessmára 22, Kópavogi. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson ÞÓTT Mike Lawrence sé tvofaldur heimsmeistari er hann fyrst og fremst kunn- ur sem höfundur ágætra bridsbóka. Sem slíkur er hann sífellt með augun opin fyrir óvenjulegri spila- mennsku. Lawrence sat í sæti suðurs í spili dagsins. Hann var sagnhafi í fjórum spöðum og hafði lítið fyrir því að sópa saman tíu slög- um. En vestur hafði líka misst af fágætu varnar- færi. Og það var sú hlið á spilinu sem vakti athygli Lawrences: Austur gefur: allir á hættu: Norður ♦ D4 0 10752 ♦ 10843 ♦ 1093 Vestur Austur ♦ K6 ♦ G1098 V D9864 IIIIH * KG3 ♦ K9752 111111 ♦ ÁDG ♦ 4 ♦ K82 Suður ♦ Á7532 ▼ Á ♦ 6 ♦ ÁDG765 Vestur Norður Austur Suður 1 grand 2 lauf 2 hjöitu Pass Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: Hjartafjarki. Lawrence spilaði strax spaða að drottningunni í öðmm slag og vestur fór upp með kónginn. Vestur spilaði hjarta áfram, sem Lawrence trompaði, fór inn í borð á spaðadrottningu og svínaði tvívegis fyrir lauf- kóng. Tók loks spaðaás og spilaði frílaufum. Vömin fékk tvo slagi á tromp og einn á tígul. Hvað gat vestur gert? Hann gat látið lítinn spaða í öðmm siag! Lawrence hefði þá fengið slaginn á drottn- ingu blinds, en nú var sá mikilvægi munur á, að vest- ur átti tromp eftir til að stinga í síðara laufið. Vömin fengi þá þrjá trompslagi, eða tvo á spaða og einn á lauf. INDVERSK kona, búsett í Danmörku, á fertugsaldri. Getur ekki áhugamála: Helene Christensen, Hejreskovalle 2B 2TV, 3050 Humlebæk, Denmark. TUTTUGU og níu ára sænskur karlmaður vill skrifast á við 18-30 ára konur: Pontus Tollesson, Bergsviigen 8, S-457 30 Tanumshede, Sverige. TUTTUGU og sjö ára jap- önsk kona í Kanada með Með morgunkaffinu NÚ verðið þið að ákveða ykkur. I síðustu viku var ég óskabam en nú kallið þið mig skíthæl. ... og ef þú slítur keðjuna keyrir strætisvagn yfir þig í Breiðholtinu . . . * Ast er ... tvennt afðllu. TM Rea U.S. Pat. Off. — alí rights reserved (c) 1896 Lo* AngalmTlmM Syndicate VANDI minn snýst um þau gífurlegu áhrif sem ég hef á konur ... COSPER HAFÐU ekki áhyggjur þótt þú verðir gjaldþrota. Ég kem til með að elska þig næstum jafn mikið og áður. pennavinir áhuga á bréfaskriftum, vídeói, bókmenntum, ferða- lögum, ljósmyndun, teikn- ingu o.fl.: Ayako Yamamoto, P.O. Box 20186, Grantham Post Office, St. Catharines, ON L2M 7W7, Canada. NÍTJÁN ára þýsk stúlka með rnargvísleg áhugamál auk íslandsáhuga: Silvia Eckert, Auf der Korke 30, D-32760 Detmold, Germany. SAUTJÁN ára bandarísk stúlka með áhuga á ljóðlist, útivist, kvikmyndum, tón- list O.Á.: Jenny Harp, 5134 E. 69th St., Indianapolis, IN 46220, U.S.A. TUTTUGU og fjögurra ára Ghanastúlka með áhuga á matseld, biblíufræðum, ferðalögum, tónlist o.fl.: Yvonne Smith, P.O. Box 897, Cape Coast, Castle Road, Ghana. STJÖRNUSPÁ cftir Frances Drake NAUT Afmælisbarn dagsins: Þú hefurgóða forustu- hæfileika, sem gagnast þér vel í viðskiptum. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Láttu ekki neikvæðan ná- unga spilla góðu skapi þínu í dag. Þú kemur miklu í verk, og í kvöld gefst tækifæri til skemmtunar. Naut (20. apríl - 20. maí) Vertu vel á verði svo þú særir ekki vin með vanhugs- uðum orðum í dag. Þú átt í mörgu að snúast, og þarft að hvíla þig í kvöld. Tvíburar (21.maí-20.júnl) Þú gerir hagstæð innkaup í dag, og átt góðar stundir með vinnufélögum. í kvöld þarft þú að leysa smá vanda- mál fjölskyldunnar. Krábbi (21. júní — 22. júlí) Þú finnur það sem þú leitar að 1 innkaupaferð dagsins. Eitthvað kemur þér ánægju- lega á óvart þegar þú ferð út með ástvini. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) <ef Vinur er eitthvað miður sín í dag, en samband ástvina er mjög gott, og þeirra bíður sérlega ánægjuleg skemmt- un í kvöld. Meyja (23. ágúst - 22. september) 31 Vinnudagurinn verður lang- ur þar sem þú glímir við áhugavert verkefni. Með ein- beitingu fínnur þú réttu lausnina. V^g (23. sept. - 22. október) Þú ert með athyglisverðar hugmyndir varðandi vinn- una, sem þú ættir að kynna fyrir ráðamönnum. Slakaðu á með ástvini í kvöld. Sporðdreki (23. okt. -21. nóvember) ®)S8 Bjartsýni ríkir hjá þér í dag, og þú átt auðvelt með að koma hugmyndum þínum á framfæri. Ferðalag er á næstu grösum. Bogmaóur (22. nóv. - 21. désember) Þú ættir ekki að taka þátt í deilum, sem upp geta komið 1 vinnunni 1 dag. Láttu lítið á þér bera, og slakaðu á heima í kvöld. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú vinnur að spennandi verk- efni í dag, en í kvöld þarft þú að taka mikilvæga ákvörðun varðandi fjármálin. Hugsaðu málið vel. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Þótt einhver geri þér gramt í geði í vinnunni í dag, ættir þú að varast allar deilur. Vinur gerir þér góðan greiða í kvöld. Fiskar (19. febrúar-20. mars) Þú hlýtur verðskuldað lof í vinnunni i dag, en eitthvað fer úrskeiðis í einkamálun- um. Þú ert nokkuð eirðarlaus þegar kvöldar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.