Morgunblaðið - 24.04.1996, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftirmál ítölsku kosninganna snúast um stj órnarmy ndun og sigur „góðmennskunnaru
Hveijir töpuðu
og hverjir unnu?
Róm. Morgunblaðið.
AF HVERJU sigraði Romano
Prodi og Ólífubandalagið og af
hveiju tapaði hægri vængurinn
spyrja ítalskir fjölmiðlar í kjölfar
þingkosninganna á sunnudag.
Athyglin beinist að baráttuaðferð
Prodis, andstæðingarnir höfðu
„góðmennsku" hans að háði og
spotti í upphafi, einnig djörfu en
töpuðu tafli Gianfranco Finis, leið-
toga nýfasista. En þótt Prodi hafi
unnið kosningarnar, bíður hans
nú enn erfiðara verkefni, sem er
að mynda stjórn án gömlu kerfis-
karlanna. Og þótt Lamberto Dini
forsætisráðherra hafi skipað sér
undir merki Ólífuhreyfingarinnar
hefur hann augastað á miðflokk-
unum og hugsanlegu samstarfi á
hægrivængnum.
Góðmennskan sigraði
í upphafi kosningabaráttunnar
máttu Prodi og félagar þola að
vera púaðir niður af flokksmönn-
um Silvio Berlusconis og Finis og
fúkyrðum rigndi yfir þá. í staðinn
fyrir að láta hart mæta hörðu,
hélt Prodi fast í að svara ekki í
sömu mynt, heldur með rökum,
líka þegar hæðst var að góð-
mennsku hans. A sunnudaginn
verðlaunuðu kjósendur svo Ólífu-
hreyfinguna fyrir ábyrga efna-
hagsstefnu og tal um bætt skóla-
kerfí og átak í atvinnumálum ungs
fólks á Suður-Ítalíu, þar sem at-
vinnuleysi er allt að 30 prósentum.
Tveggja prósenta fylgisaukn-
ing Þjóðarbandalags Finis var
langt frá vonum hans. Andstaða
Finis kom i veg fyrir að Ales-
sandro Maccanico myndaði þjóð-
stjórn í febrúar til að breyta kosn-
ingafyrirkomulagi ög fleiru. Fini
vonaðist til að nýfasistaflokkur
hans yrði stærri en flokkur Ber-
lusconis og hann yrði þá leiðtogi
hægrivængsins. Fini egndi því
Berlusconi til að ganga til kosn-
inga og vægi flokks hans hrakti
Berlusconi líka lengra til hægri.
Þessu tafli tapaði Fini á sunnu-
daginn og Berlusconi fór einnig
illa út úr þessu upphlaupi. Margir
sjá Fini nú í öðru ljósi, því slag-
orð hans voru léttvæg_ gagnvart
málefnalegri umræðu Ólífuhreyf-
ingarinnar. í umræðuþætti í
fyrrakvöld ráðlagði Prodi honum
Reuter
ROMANO Prodi, sem senni-
lega verður næsti forsætis-
ráðherra Ítalíu, á blaða-
mannafundi í Róm í gær.
Hann sagði á fundinum að
sigur Ólífuhreyfingarinnar í
kosningunum á sunnudag
hefði verið nægilega stór til
að tryggja næstu stjórn í
sessi út komandi kjörtímabil.
að losa sig við öfgaöflin í flokkn-
um, eins og hann hefur leitast
við, en spumingin er hvað þá verð-
ur eftir. í prósentum talið er Fini
sigurvegari, en stjórnmálalega
stendur hann í jaðrinum í stað
þess að sitja í ráðherrastóli í stjórn
Maccanicos.
Glíma Prodis við
kerfiskarlana
Prodi fékk kjósendur með sér í
fyrstu umferð, en sú næsta er
stjórnarmyndun og í henni kemur
í ljós hvort honum tekst að mynda
stjórn án gömlu kerfiskarlanna.
Gangi það ekki missir tal hans um
nýja tíma marks, en takist honum
að mynda trúverðuga stjórn með
hæfum mönnum hefur hann stigið
fyrstu skrefin í áttina að traustari
stjórn en ítalir hafa áður þekkt.
Dini gekk til liðs við Ólífuhreyf-
inguna, en hann talar stöðugt um
samstarf á mið- og hægrivængn-
um, svo óljóst er hversu dyggur
liðsmaður Ólífuhreyfingarinnar
hann verður, þótt hann muni vís-
ast sitja í næstu stjórn, sem bygg-
ir á efnahagsstefnu hans. Hvenær
sem næstu kosningar verða freist-
ar hans sennilega að stofna evr-
ópskan hægriflokk.
Reuter
Díana sætir
gagnrýni
Hryllingur blóðvalla
Kambódíu skráður
Tonle Bati, Kambódíu. The Daily Telegraph.
ENN eru að koma fram nýjar vís-
bendingar um ódæðisverkin, sem
Rauðu khmerarnir frömdu á blóðvöll-
um Kambódíu í nafni maóisma fyrir
tveimur áratugum. Innfæddir hafa
vitað hvar fiöldagrafimar er að finna,
en nú vinna sérfræðingar að því að
skrá þær og safna gögnum til að
nota í ákæru á hendur Pol Pot, leið-
toga Rauðu khmeranna.
Milli 10og20 þúsund
fjöldagrafir
„Fyrst héldum við að um nokkur
hundruð grafir væri að ræða, svo
nokkur þúsund, en nú teljum við að
þær séu á milli tíu og tuttugu þús-
und,“ sagði Craig Etcheson, sem
stjórnar rannsókninni á þjóðarmorð-
inu í Kambódíu á vegum Yale-
háskóla í Bandaríkjunum.
Nýlegar rannsóknir benda til þess
að Rauðu khmerarnir hafi myrt 1,5
milljónir manna og fómarlömb þeirra
séu enn fleiri þegar þeir, sem sultu
í hel og létust af sjúkdómum, er tald-
ir með.
Búddamusterið Wat Sophy Kok-
kork, skammt frá Tonle Bati-vatni,
er um klukkutíma akstur suður af
Phnom Penh. Þar hefur fundist blóð-
völlur þar sem nokkur hundruð og
jafnvel nokkur þúsund fórnarlömb
ógnarstjórnarinnar liggja grafín, en
ofanjarðar eru kýr á beit og börn
að leik.
Musterið er 30 m hátt og var því
breytt í fangelsi khmeranna, sem
bönnuðu búddisma og myrtu munka
rétt eins og alla þá, sem höfðu há-
skólamenntun, höfðu gengið í herinn,
orðið fyrir „erlendum áhrifum" eða
gengu með gleraugu, sem þótti bera
því vitni að „hættulegur hugsuður"
væri á ferð.
í hofinu voru „óvinir byltingarinn-
ar“ hlekkjaðir á höndum og fótum
og látnir dúsa þar allan sólarhring-
inn.
Það var ekki fyrr en fangarnir
þóttu hafa játað til fulls eftir harka-
legar pyntingar að þeir voru dregnir
út með bundið fyrir augu, Iátnir
kijúpa við grafir, sem þeir höfðu
grafið, og myrtir með höfuðhöggi
þannig að þeir féllu í grafirnar.
Á yfirráðasvæði „slátrarans“
Tonli Bati var á yfirráðasvæði eins
illræmdasta herforingja Rauðu
khmeranna, Tas Moks, sem kallaður
var „slátrarinn". Hann er enn á lífi
og berst í frumskóginum líkt og
margir þeirra, sem bera ábyrgð á
fjöldamorðunum.
Mok er 72 ára gamall og er þriðji
valdamesti maðurinn í liði khmer-
anna. Hann stjórnar norðurhluta
Anlong Veng. Pol Pot og aðrir gaml-
ir khmerar fela sig í frumskóginum
meðfram landamærum Tælands.
BRESKU æsifregnablöðin beindu
spjótum að Díönu prinsessu í gær
fyrir að hafa fylgst með þriggja
stunda hjartaskurðaðgerð, sem
læknirinn Magdi Yacoub annaðist
á sjö ára dreng frá Kamerún á
Harefield-sjúkrahúsinu í fyrra-
dag. Var hún m.a. sökuð um að
hafa gengið einum of langt í aug-
lýsingamennsku og umhyggju-
semi væru takmörk sett.
Blaðið Daily Mirror sagði hana
þjást af hegðunarvandamáli og
hún væri haldin þráhyggju gagn-
vart alnæmissjúklingum og dauð-
vona fólki. Díana sagði áhuga
sinn á því að fylgjast sjálf með
aðgerðinni stafa af væntum-
þykkju í garð barna.
Díana kvaðst oft hafa fylgst með
læknisaðgerðum, í síðustu viku
hefði hún t.d. verið viðstödd er
brjóst var numið brott með
skurðaðgerð á sjúkrahúsi.
Ástæða gagnrýninnar á Díönu
er talin sú, að SKY-sjónvarps-
stöðin tók myndir af henni og
ræddi við hana í skurðstofu
Yacoubs.
García Márquez
hafnar kröfu mann-
ræningja
Vill ekki
verða
forseti
Bogota. Reuter.
NOBELSSKÁLDIÐ Gabriel Garc-
ía Márquez hafnaði á mánudags-
kvöld kröfu mannræningja, sem
eru með bróður Cesars Gaviria,
fyrrverandi forseta Kólumbíu, í
haldi, um að skáldið settist í for-
setastól. Gæti
Márques með því
tryggt lausn
gíslsins.
Mannræningj-
arnir kalla sig
„Reisn fyrir Kól-
umbíu“ og settu
kröfu sína fram
í orðsendingu um
helgina. Þeir
rændu Juan Car-
los Gaviria 2. apríl til að knýja
Ernesto Samper forseta til afsagn-
ar.
Yrði „versti forsetinn"
García Márquez, höfundur bók-
arinnar „Hundrað ára einsemd",
hafnaði kröfunni án umhugsunar
og kvaðst meðal annars telja að
hann yrði „versti forseti" í sögu
Kólumbíu.
í opinberri yfirlýsingu Gareía
Márquez sagði einnig að „enginn
með snefil af viti tæki minnstu
ákvörðun undir þrýstingi mann-
ræningja“.
Svo vill til að næsta bók skálds-
ins, sem kemur út í maí, er heim-
ildarit og fjallar um mannrán í
Kólumbíu þar sem tíðni glæpa er
einna mest í heiminum.
„Reisn fyrir Kólumbíu" krafðist
þess í síðustu viku að Cesar Gavir-
ia, sem nú veitir Samtökum Amer-
íkuríkja (OAS) forystu, segði af
sér og sneri aftur til Kólumbíu til
að bola Samper frá völdum. Gavir-
ia hafnaði þeirri kröfu.
Samper er undir miklum þrýst-
ingi vegna ásakana um að hann
hafi þegið milljónir dollara frá
kókaínbarónum Kólumbíu og not-
að féð til að fjármagna kosninga-
baráttu sína árið 1994.
García
Márquez