Morgunblaðið - 10.05.1996, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.05.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996 13 Morgunbladið/Margrét Þóra VEGURINN yfir Oxnadalsheiði lokaðist í gær þegar aurskriða féll úr gili ofan hans og yfir veginn. Morgunblaðið/Margrét Þóra Göngubrú yfir Glerárstíflu FYRIRHUGAÐ er að byggja göngubrú yfir Glerárstíflu en hún verður þýðingarmikill hlekkur í göngustígakerfi bæjarins og mun tengja megin- göngustíg sem gerður hefur verið frá Gerðahverfi um Klettaborgir að Sólborg, göngu- stígum í Hlíðarhverfi norðan Glerárstíflunnar. Framkvæmdastjórn Akur- eyrarbæjar hefur beint þeim til- mælum til veitustjómar að Raf- veita Akureyrar taki þátt í kostn- aði við brúargerðina og sjái um hönnun og byggingu brúarinnar yfir stíflumannvirkið, en stíflan tengist mjög sögu Rafveitu Akureyrar. Hún var reist árið 1921 og ári síðar var fyrsta raf- stöðin á Akureyri tekin í notkun, en hún var í Glerárgili. Göngubrúin kom til umræðu á fundi bæjarstjórnar í vikunni og þá nefndi Guðmundur Stef- ánsson, Framsóknarflokki, m.a. að taka þyrfti til hendi í Gler- árgilinu, stöðvarhúsin gömiu, aðveitustokkurinn og fleiri mannvirki á svæðinu væru að hruni komin. Þetta væri gott útivistarsvæði þannig að gera þyrfti gangskör að því að hreinsa þar upp, setja upp merk- ingar og upplýsingar um þá starfsemi sem þar hefði verið. AKUREYRI ÖFLUG hjólaskófla var send á vettvang og gekk vel að hreinsa aurinn af veginum. Aurskriða lokaði veginum yfir Oxnadalsheiði Tuttugu metra breið skriða yfir veginn UM TUTTUGU metra breið aur- skriða féll yfir þjóðveginn, Skaga- fjarðarmegin við Giljareiti á Öxna- dalsheiði snemma í gærmorgun. Skriðan var um einn metri á þykkt þar sem hún var þykkust. Vegurinn lokaðist í um tvo klukkutíma af þessum sökum. Gísli Felixson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Sauðárkróki, sagði að tilkynnt hefði verið um aurskriðuna skömmu fyrir kl. 7 í gærmorgun og var þá þegar send á staðinn öflug hjólaskófla til að hreinsa veginn, en nokkrir bílar biðu beggja vegna skriðunnar sem lokaði veginum. Hreinsun gekk vel „Það gekk vel að hreinsa og veg- urinn var opnaður aftur um hálf- níu,“ sagði Gísli en í leiðinni var hreinsað frá ræsum á svæðinu sem voru að lokast en nokkrar smáspýj- ur féllu úr hlíðinni og fóru inn í vegrásirnar. Enn er klaki í jörðu í fjallinu, en skriðan hefur farið af stað þegar þurr jarðvegurinn í kring mettaðist. Töluverð rigning var á þessum slóð- um í fyrrinótt og fram eftir morgni, en um hádegi hafði stytt upp og hitinn kominn í 13 gráður. Kjörís opnar sölu- og dreifíngastöð Harmað ef krabba- meinsleit leggst af FUNDUR sem haldinn var í Félagi íslenskra hjúkrunarfræð- inga, Norðausturlandsdeild, ný- lega harmar að niðurskurður á fjármagni til heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri leiði af sér að leggja þurfi niður krabba- meinsleit á vegum stöðvarinnar. „Forvamarstarfið er mjög mikil- vægt og hefur skilað góðum árangri í bættri heilsu kvenna. Forvamarstarf sparar fé og er þjóðfélagslega hagkvæmt," seg- ir í ályktun fundarins. Skorað er á heilbrigðisyfirvöld að sjá til þess að krabbameinsleit verði áfram í óbreyttri mynd við heil- sugæslustöðina á Akureyri. Sýningin Orðspor BIRNA Kristjánsdóttir opnar sýningu í Galieríi AllraHanda á morgun, laugardaginn 11. maí, kl. 15. Verkin á sýningunni em unn- in með blandaðri tækni og er yfirskrift hennar Orðspor. Þau endurspegla hugsanir um landið, hverfulleika tímans og spor mannanna í náttúmnni, en spor- in em fest á filmu með hefð- bundinni ísaumstækni. Birna hefur haldið fjórar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Mælt með lyfja- búð í Sunnuhlíð BÆJARRÁÐ Akureyrar mælir með því að Bergþóri Haraldssyni lyfjafræðingi verði veitt lyfsölu- leyfi fyrir lyfjabúð í verslunarm- iðstöðinni Sunnuhlíð í Glerár- hverfí. Gert er ráð fyrir að KEA verði rekstraraðili lyfjabúðarinn- ar en Bergþór faglegur foretöðu- maður. KJÖRÍS hefur opnað sölu- og dreif- ingastöð á Akureyri og mun með því auka þjónustu við viðskiptavini sína á Norðurlandi. Vignir Vignisson veitir sölu- og dreifingamiðstöðinni forstöðu, en hún er til húsa í Glerárgötu 32, við Hvannavelli. Kassagerð Reykjavíkur keypti húsið af Heildsölu Valdemars Baldvinssonar í vetur og sagði Vignir að Kjörís hefði hluta af húsinu undir sína starfsemi, en þar verður skrif- stofa, kæliaðstaða auk frystigáma. „Breytingin er í aðalatriðum sú að við færum okkur frá umboðssölu yfir í beina sölu á svæðinu,“ sagði Vignir en nýja stöðin mun sjá um dreifingu á Norðurlandi, frá Hvammstanga að Raufarhöfn. Viðtökur eru þegar mjög góðar, en Kjörísbúðir eru margar á svæðinu, m.a. Shell nesti, Síða, Nýja nætursal- an, Turninn, Borgarsalan, Videóver og Videóland. Á Dalvík er Olísskálinn og Ásvideó með Kjörísbú, Shell í Ól- afsfírði, Bílaleigan á Húsavík, Bláfell á Sauðárkróki, Blönduskálinn á Blönduósi og Kántríbær á Skaga- strönd. I sumar mun Kjörís brydda upp á þeirri nýjung að selja ís við sundlaugina á Akureyri. I tilefni þess að fyrirtækið hefur opnað sölu- og dreifíngastöð verður fólk frá því við Hrísalund kl. 11 á morgun, laugardag, þar sem gefnir verða frostpinnar og kubbaspil en kl. 14 færa þeir sig niður á Ráðhústorg þar sem hægt verður að næla sér í frostpinna, en þrír frystibílar verða á torginu. Til sölu Hafnarstræti 96, (París) Akureyri Glæsilegt hús í miðbænum. Hugsanlegt er að selja einnig klæðaverslun Sigurðar Guðmundssonar og Blómabúðina Laufás. Fasteignasalan ehf., Gránufélagsgötu 4, Akureyri. Opið alla virka daga frá kl. 10—12 og 13—17. Sími 462 1878, myndriti 461 1878.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.