Morgunblaðið - 10.05.1996, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ
20 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996_____________________________
ERLEIMT
ALBANÍA var lengi lokaðasta
land Evrópu en stökkbreyting
hefur átt sér stað í þeim efnum
eftir að þjóðin varpaði af sér
45 ára oki kommúnismans. Soga
Albanir fijálsræðið í sig, jafnvel
hraðar en margar grannþjóð-
irnar. Eitt birtingarform þess
má sjá hér en myndin var tekin
af blokk í bænum Lezha, 64 km
norður af höfuðborginni Tir-
ana. Þær eru fáar íbúðirnar í
húsinu sem ekki eru tengdar
gervihnattasjónvarpi.
Bandaríkjamenn hóta Kínverjum viðskiptaþvingunum
Kínveijar hóta
gagnaðgerðum
Peking, Tókíó. Reuter.
VIÐSKIPTASTRÍÐ kann að vera
í uppsiglingu milli Kína og Banda-
ríkjanna. Kínveijar sögðust í gær
myndu áskilja sér rétt til þess að
beita öllum tiltækum gagnráðstöf-
unum refsuðu stjórnvöld í Was-
hington þeim fyrir að uppfylla
ekki ákvæði viðskiptasamkomu-
lags ríkjanna frá í febrúar í fyrra
um ólögmæta hugverkanotkun.
Bandarísk stjórnvöld sögðust í
fyrradag myndu birta lista 15.
maí yfir kínverskar innflutnings-
vörur, að verðmæti þriggja millj-
arða dollara, jafnvirði 180 millj-
arða króna. Myndu þessar vörur
sæta hömlum tækju Kínveijar sig
ekki verulega á við að framfylgja
ákvæði samkomulagsins frá í fyrra
um að uppræta umfangsmikla
ólögmæta fjölföldun á bandarískri
tónlist, kvikmyndum og tölvufor-
ritum.
Kínveijar svöruðu í gær og hót-
uðu hefndum ef Bandaríkin gripu
til viðskiptaþvingana.
Ólíklegt er að Evrópusambandið
(ESB) grípi til samúðaraðgerða
gegn Kínveijum. Sir Leon Brittan,
sem fer með viðskiptamál í fram-
kvæmdastjórn ESB, sagði deilu
Bandaríkjamanna og Kínveija
vera sambandinu nánast óviðkom-
andi. Sambandið hefði á sínum
tíma gert samskonar samninga við
Kínveija og Bandaríkjamenn
gerðu í febrúar í fyrra. Vissulega
hefði ESB áhyggjur af meintum
brotum á birtingar- og höfunda-
rétti. Mikilvægara væri þó að
hjálpa Kínveijum við að fram-
fylgja ákvæðum samkomulagsins.
Clinton vongóður
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagðist í gær vongóður um að tak-
ast myndi að leysa deiluna við
Kínveija fyrir 15. maí. Að því
væri unnið hörðum höndum og
sagðist hann ekki sjá fyrir sér við-
skiptastríð.
Samkeppni um flugfarþega fær á sig nýja mynd
---------V - ■—-------
Lúxussalemi í
japönskum þotum
Tókíó. Reuter.
HÖRÐ samkeppni japanskra flug-
félaga tekur á sig ýmsar myndir
en það nýjasta í þeim efnum þykir
jafnframt til marks um að nú hafi
ofdekrun flugfélaganna við vænt-
anlega farþega náð hámarki.
Flugfélagið Japan Airlines
(JAL) sagðist í gær myndu auka
á þægindi farþega frá og með júlí
er ný salerni verða tekin í notkun
í Boeing 747-400 þotum félagsins.
Komið verður fyrir mun stærra
og þægilegra klósetti á saleminu,
tónlist liðast þar úr hljómpípum
og gylltir kranar prýða handlaug-
ar. Speglar verða á þremur veggj-
um og aukinheldur verður gluggi
á klefanum svo menn geti notið
útsýnis er þeir ganga örna sinna.
Salernisherbergið nýja er 50%
rýmra en þau gömlu og er ekki
af ódýrari gerðinni. Hvert þeirra
kostar félagið 10 milljónir jena,
jafnvirði 6,4 milljóna króna.
Nýju salernin verða fyrst um
sinn í fjórum Boeing-breiðþotum
sem JAL-félagið notar á helstu
alþjóðaleiðum sínum. Fyrst um
sinn verða þau einvörðungu fyrir
farþega á fyrsta farrými en áform
eru um að síðar verði lúxussalerni
einnig á hinum tveimur farrýmun-
um, kaupsýsluklassa og almenn-
ingi.
Keppinautar taka við sér
Helstu keppinautar JAL, All
Nippon Airways (ANA) og Japan
Air System (JAS), sögðu að far-
þegar JAL væru ekki þeir einu sem
njóta myndu aukinna salernisþæg-
inda. Lúxussalemi yrðu einnig á
fyrsta farrými í nýjum Boeing-777
flugvélum ANA, sem er stærsta
félagið í innanlandsflugi í Japan.
Stórir speglar yrðu á veggjum og
handlaugar úr marmaralíki.
JAS er þriðja stærsta flugfélag
Japans og tók það nýverið upp á
að bjóða upp á sérstök kvennasal-
erni í vélum sínum. „Farþegar
hafa tekið þessu nýmæli mjög vel.
Þegar við tókum þessi salerni í
notkun um miðjan mars mynduð-
ust langar biðraðir við þau,“ sagði
talsmaður JAS. „Andlitslyfting
hvers salernis kostaði aðeins um
40.000 jen [25 þúsund krónur] og
hugmyndin hitti í mark,“ bætti
hann við.
Á síðasta áratug átti sér stað
mikið æði í Japan er þarlendar
stórverslanir hófu hörku kapp-
hlaup um viðskiptavini með því að
gera salerni sín sem glæsilegust
úr garði.
Framkvæmdastjórn ESB leggur til að dregið verði úr útflutningsbanni
Andstaða í Þýskalandi
við að aflétta banninu
Bonn. Keutcr.
ÓLÍKLEGT er að Þýskaland sam-
þykki tillögu framkvæmdastjómar
Evrópusambandsins (ESB), sem
lögð var fram á miðvikudag, um
að aflétta útflutningsbanni á
breskum nautgripaafurðum, sam-
kvæmt heimildum innan þýsku
stjómarinnar.
„Bretar hafa ekki fundið ásætt-
anlega lausn í baráttunni gegn
kúariðu,“ sagði heimildarmaður
Reuters-fréttastofunnar. „Við
sjáum ekki fram á hvemig Þýska-
land eigi að geta fallist á að bann-
inu verði aflétt fyrr en að Bretar
hafa lagt fram sannfærandi áætl-
un.“
Taldi hann líklegt að afstaða
annarra ESB-ríkja yrði svipuð.
Framkvæmdastjómin lagði á
miðvikudag fram tillögu um að
útflutningur á einstaka nautgripa-
afurðum yrði leyfður og verður
hún lögð fyrir dýralæknanefnd
sambandsins í næstu viku.
Þýski heimildarmaðurinn sagði
tillögu framkvæmdastjórnarinnar
hafa verið lagðar fram í „kurteisis-
skyni“. „Þetta var það minnsta
sem hún gat gert en það er ekki
þar með sagt að hún verði sam-
þykkt.“ Embættismenn hjá fram-
kvæmdastjóminni létu sömuleiðis
í ljós efasemdir um að tillagan
næði fram að ganga.
Einn aðstoðarmanna Johns
Majors, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði að Major hefði ritað
Jacques Santer, forseta fram-
kvæmdastjórnarinnar, bréf þar
sem að hann ræðir hugsanlega
möguleika til lausnar á deilunni.
Leggur hann m.a. til að haldinn
verði sérstakur leiðtogafundur um
málið.
Samtök breskra bænda fögnuðu
tillögu framkvæmdastjórnarinnar
en ítrekuðu jafnframt andstöðu
sína við bannið í heild. „Bannið
var óþarft,“ sagði talsmaður sam-
takanna.
Reuter
Samstarf ESB og Kína
KÍNA og Evrópusambandið und-
irrituðu í vikunni samning um
aukin viðskipti og samstarf. Evr-
ópusambandið mun meðal annars
veita Kínverjum fræðslu um
vernd hugverkaréttinda og að-
stoða þá við endurbætur í mjólk-
uriðnaði, svo dæmi séu nefnd.
Hér skála Sir Leon Brittan, sem
fer með utanríkisviðskipti í fram-
kvæmdastjórn ESB, og Li Lanq-
ing, varaforsætisráðherra Kína,
fyrir samningnum. Aðild Kína
að Heimsviðskiptastofnuninni
(WTO) bar á góma í heimsókn
Brittans og sagði hann ESB
styðja að Kina fengi inngöngu í
stofnunina eins fljótt og auðið
væri, en það yrði þá að uppfylla
nauðsynleg skilyrði. Talsmenn
kinverskra stjórnvalda sökuðu
vestræn ríki hins vegar um að
gera alltof strangar kröfur til
Kínverja.