Morgunblaðið - 10.05.1996, Qupperneq 56
JtewdM
-setur brag á sérhvern dag!
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SlMl B69 1100, SÍMBKÉF 669 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 86
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Umferðarslysin kosta
16,2—18,8 milljarða á ári
KOSTNAÐUR samfélagsins vegna
umferðarslysa á íslandi er samtals
á bilinu 16,2-18,8 milljörðum
króna, samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar Hagfræðistofnunar
Háskóla Islands. Þar af nemur ein-
staklingsbundið slysatjón af völd-
um umferðarslysa 13-16 milljörð-
um króna, og eignatjón og annar
beinn slysakostnaður sem endur-
speglast ekki í einkakostnaði nem-
Landa
fiski úr
hjólabáti
BÓNDINN á Vatnsskarðshólum
í Dyrhólahverfi í Mýrdal hefur
keypt sér stóran hjólabát í þeim
tilgangi að landa afla tveggja
krókabáta sem hann gerir út.
Einnig er til athugunar að
kaupa fisk af trillum og keyra
á land enda er bóndinn búinn
að koma sér upp fiskvinnslu.
Þorsteinn Gunnarsson bóndi
á Vatnsskarðshólum gerir út
tvo krókaleyfisbáta og er búinn
að koma sér upp saltfiskvinnslu
í útihúsum á bænum. Trillurnar
eru gjarnan að veiðum fyrir
^iitan Vík en vegna hafnleysisins
hafa þær þurft áð landa í Þor-
lákshöfn. Hann keypti stóran
hjólabát í vetur til þess að geta
ekið með aflann á land í Dyr-
hólahverfi. Trillurnar geta síð-
an legið við ból.
Báturinn er 14 metrar að
lengd og 4,5 metrar þar sem
hann er breiðastur. Gengur
hann 11-12 mílur og getur borið
15 tonn. Er það þrisvar sinnum
meiri burðargeta en hjá hjóla-
bátunum sem fyrir eru í land-
inu.
ur rúmum 3 milljörðum króna. Til
þessa hefur verið talið að kostnað-
urinn sé á bilinu 6-8 milljarðar
króna á ári.
Þetta kom fram í erindi sem
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar
HI, flutti á Umferðarþingi sem
haldið var í gær.
Hann benti á að þessar tölur
bentu eindregið til þess að fyllsta
Þorsteinn segir að hjóla-
báturinn hafi staðist allar kröf-
ur Siglingamálastofnunar og
fengið skráningu þar. Tolla-
reglur hafi hins vegar flokkað
bátinn sem bifreið og tollayfir-
völd gert kröfu um vörugjöld í
samræmi við þær, þó að bíllinn
hefði aldrei fengist skráður sem
bíll til aksturs á vegum lands-
ástæða sé til að skoða umferðar-
slys sem alvarlegt efnahagsvanda-
mál. Þannig blasi t.d. við að áhrif
gæða umferðarmannvirkja á tíðni
og umfang umferðarslysa geti haft
mikil áhrif á reiknaða þjóðhagslega
arðsemi þeirra, og því kunni vel
að vera að umferðarmannvirki sem
ekki virðist þjóðhagslega arðbær
þegar hefðbundnar arðsemisað-
ferðir séu notaðar reynist vera það
ins. Þorsteinn segir að með að-
stoð Árna Johnsens alþingis-
manns hafi tollareglugerð feng-
ist breytt þannig að hjólabátur-
inn fengi eðlilega tollmeðferð
og Iauk henni í gær.
Krókabátar frá Vestmanna-
eyjum, Þorlákshöfn og víðar
hafa oft verið við veiðar á mið-
unum fyrir utan Mýrdal og seg-
þegar slysaáhrifin eru tekin með í
reikninginn.
„Þær upphæðir sem hér um
ræðir eru af þeirri stærðargráðu
að ljóst er að framkvæmdaaðilar
ættu að taka tillit til slysahættu
við áætlunargerð í vegamálum og
við hönnun og smíði umferðar-
mannvirkja," sagði Tryggvi.
■ SIysakostnaður/6
ist Þorsteinn hafa fengið fyrir-
spurn frá Vestmannaeyjum um
löndun í bátinn. Þá kæmi til
greina að nýta hann til siglinga
með ferðafólk.
Hjólabáturinn á Vatnsskarðs-
hólum heitir að sjálfsögðu
Skaftfellingur, eftir frægum
uppskipunarbáti Skaftfellinga.
Breytingar á kjör-
stöðum í Reykjavík
Líklega
kosið í
Ráðhúsi og
á Kjarvals-
stöðum
ALLAR líkur eru á að breyt-
ingar verði gerðar á nokkrum
kjörstöðum í Reykjavík við
forsetakosningarnar 29. júní.
Ekki verði kosið í Miðbæjar-
skólanum, Austurbæjarskól-
anum og Sjómannaskólanum,
eins og verið hefur undanfarin
ár, þar sem aðstaðan þar þyk-
ir ekki nægilega góð.
Að sögn Jóns G. Kristjáns-
sonar, sem er settur skrif-
stofustjóri Reykjavíkurborg-
ar, verður væntanlega kosið
í Tjarnarsal Ráðhússins í stað
Miðbæjarskólans og stefnt er
að því að færa kjördeildir sem
verið hafa {Austurbæjarskól-
anum og Sjómannaskólanum
á Kjarvalsstaði.
Slæmt aðgengi
fyrir fatlaða
Jón sagði að ástæður þessa
væru m.a. þær að samtök
fatlaðra hefðu kvartað undan
aðgengi á ýmsum kjörstöðum.
Einnig þætti aðgengi mjög
slæmt í Laugarnesskóla og
Laugalækjarskóla en ekki
hefði enn fundist húsnæði
sem gæti komið í stað þeirra,
þannig að hugsanlega verður
áfram kosið á þessum tveimur
stöðum í forsetakosningun-
um, að sögn Jóns.
Talning á
Kjarvalsstöðum
Stefnt er að því að talning
atkvæða og aðsetur yfirkjör-
stjórnar verði á Kjarvalsstöð-
um en við alþingiskosningarn-
ar á seinasta ári fór talning
fram í Ráðhúsinu. Að sögn
Jóns færi talningin þá fram í
Austursal Kjarvalsstaða en
kjörklefar yrðu í Vestursal og
í anddyri hússins.
Þessi mál eru enn til skoð-
unar hjá Reykjavíkurborg og
hafa endanlegar ákvarðanir
ekki verið teknar, að sögn
Jóns.
Utgerðarmaður í Mýrdalnum hefur keypt nýjan Skaftfelling
SKAFTFELLINGUR í Hafnarfirði í gær.
Morgunblaðið/Rax
Framkvæmt fyrir átta milljarða króna á Keflavíkurflugvelli í ár og næsta ár
Ný verkefni
fyrir milljarð
Nám í iðju-
þjálfunl997
HÁSKÓLARÁÐ samþykkti í gær að
leggja til við stjómvöld að tekið verði
upp nám í iðjuþjálfun við Háskóla
íslands haustið 1997. Um yrði að
ræða ijögurra ára nám sem lyki með
B.Sc. prófí. Er lagt til að teknir verði
inn 15 nemendur á ári.
Iðjuþjálfar hafa til þessa þurft að
sækja menntun sína til útianda. Að
sögn Þórðar Kristinssonar, kennslu-
~stjóra HÍ, vantar enn fé til að unnt
verði að koma námsbrautinni á lagg-
irnar en undirbúningur hefur staðið
yfir í talsverðan tíma og liggja fyrir
drög að námskrá.
Kennslukostnaður er gróflega
áætlaður rúmar fimm m.kr. á fyrsta
ári en árlegur kostnaður verði að
jágmarki 18 m.kr. þegar kennsla
- 'Wður hafín að fullu.
ÁRIN 1996 og 1997 gætu orðið
með mestu ’framkvæmdaárum í
vamarstöðinni á Keflavíkurflug-
velli, miðað við þá fjármuni, sem
ætlunin er að lagðir verði í fram-
kvæmdir þar. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins stefnir í að
framkvæmt verði fyrir um 60
milljónir dollara, eða fjóra millj-
arða króna, hvort ár um sig. Það
er álíka og þegar umsvif í varnar-
framkvæmdum voru einna mest í
lok síðasta áratugar og upphafi
þessa.
Þessar tölur eru ekki nákvæm-
ar, þar sem fjárveitingar geta
flutzt á milli ára. Af þessu fé,
samtals um 120 milljónum dollara,
kemur mest úr ríkissjóði Banda-
ríkjanna og munu viðkomandi
verkefni því ekki verða boðin út á
almennum markaði. Aðlögunar-
tími íslenzkra aðalverktaka og
Keflavíkurverktaka, sem enn sitja
að öllum verkefnum sem Banda-
ríkin greiða, rennur ekki endan-
lega út fyrr en árið 2004.
Ný verkefni
á síðustu vikum
Um tuttugu milljónir dollara,
eða rúmlega 1,3 milljarðar, koma
úr Mannvirkjasjóði Atlantshafs-
bandalagsins og munu renna til
endurbóta á flugskýli fyrir Orion-
kafbátaleitarflugvélar varnarliðs-
ins.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafa Bandaríkjamenn
ákveðið á síðustu vikum að veita
hátt í 20 milljónir dollara, eða
rúman milljarð króna, til nýrra
verkefna. Þar á meðal er endurnýj-
un á íbúðum fyrir einhleypa varn-
arliðsmenn og tilflutningur á elds-
neytistönkum. Þessar óvæntu fjár-
veitingar hafa_ komið tii eftir að
samkomulag íslands og Banda-
ríkjanna um framkvæmd varnar-
samningsins til næstu fimm ára
var undirritað.
Árið 1989 var framkvæmt fyrir
um 57 milljónir dollara í varnar-
stöðinni og árin 1990 og 1991
runnu um 65 milljónir dollara til
framkvæmda á Keflavíkurflugvelli
hvort árið um sig. Eftir það hafa
fjárveitingar hins vegar minnkað
niður í um 35 til 40 milljónir doll-
ara á ári, bæði vegna þess að um
skeið var nánast tekið fyrir fjár-
veitingar frá Mannvirkjasjóði
NATO vegna ágreinings um fyrir-
komulag verktöku og vegna þess
að Bandaríkjamenn drógu saman
í útgjöldum sínum.