Morgunblaðið - 04.06.1996, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Guðjón A. Kristjánsson formaður Farmanna- og fiskimannasambands íslands j
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MINNINGARGUÐSÞJÓNUSTA var í Hallgrímskirkju að morgni sjómannadagsins og hr. Ólafur
Skúlason, biskup Islands, predikaði. Meðal viðstaddra voru frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Ís-
lands, og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra.
MINNINGARÖLDUR sjó-
mannadagsins voru vígðar í
Fossvogskirkjugarði á
sunnudagsmorguninn.
SVEINN Daníel Arnarson
hlaut afreksverðlaun. Hann
bjargaði félaga sínum sem tók
út af Þorsteini GK í febrúar.
Strandveiðiflotinn
fái aukna hlutdeild
GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, sagði í ræðu á hátíðardag-
skrá vegna sjómannadagsins í
Reykjavík, að í ljósi aukinna veiða
á karfa, rækju, síld og þorski utan
lögsögu sé orðið raunhæft að strand-
veiðiflotinn sem aflar hráefnis fyrir
landvinnsluna fái aukna hlutdeild í
aflaheimildum. „Ég tel það líka
ákveðið réttlætismál að þannig verði
staðið að málum og það leiguliða-
kerfi sem útgerð og sjómenn á vert-
íðar- og ísfiskskipunum hafa mátt
búa við verði aflagt,“ sagði Guðjón.
Hann sagði þetta þýða að auka
þyrfti afla áðurnefndra skipagerða
meira en þeirra, sem nú þegar hafa
meiri verkefni en þau komast yfir
að veiða, ef nýta eigi alla möguleika
til veiða utan lögsögu.
„Þetta á ekki að gera með því að
banna veiðar togara innan lögsögu
eins og áköfustu öfgamenn leggja
til og nefna þá ýmist 50-200 sjómíl-
ur. Þetta á að gera með sömu að-
ferð og notuð var þegar sjómenn og
útgerðir voru skertir vegna sértekna
af veiðum innan lögsögu þegar
kvótakerfið var sett á. Við þá skerð-
ingu hafa menn mátt búa nú í rú-
man áratug og sama var uppi þegar
úthafsrækjan var sett inn í kvóta-
kerfíð, þá urðu menn að velja hvort
þeir vildu rækju og afsöluðu sér þá
botnfiski. Þess vegna verða þeir sem
nú fá tryggðan aðgang að umsömd-
um afla, t.d. úr úthafskarfa og síld,
að láta til baka dálítið af heimildum
innan lögsögu,“ sagði Guðjón.
Afnema Ieigu- og sölukerfi
á óveiddum afla
Hann sagði að afnema þyrfti
leigu- og sölukerfi á óveiddum afla
og tryggja að sá afli sem ekki veið-
ist komi þá til endurúthlutunar til
þeirra skipa sem vantar verkefni.
„Verði þetta hvort tveggja gert
tel ég að ná megi mun betri sátt
um það stjórnunarkerfi fiskveið-
anna, „kvótakerfið", en nú er.
Reyndar má segja að alls engin sátt
sé um núverandi kvótakerfi meðan
leigu- og sölukerfíð er við lýði. Það
sýna best tvö allsherjarverkföll á
fiskiskipaflotanum síðastliðin 3 ár,“
sagði Guðjón A. Kristjánsson.
Ábyrg nýtingarstefna
borgar sig
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra gerði ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar um heildarafla á
næsta fiskveiðiári að umtalsefni í
ræðu á sjómannadaginn og sagði
að tekist hefði að snúa vörn í sókn
með því að þorskveiðiheimildir verða
auknar á næsta ári.
Hann sagði fiskimiðin umhverfis
landið vera sameign þjóðarinnar og
hlutverk stjórnvalda að sjá svo um
að þau séu nýtt af skynsemi og með
fyrirhyggju. „Stundarrekstrarvandi
eða jafnvel græðgi má ekki ráða
nýtingarstefnunni. Þar verða lang-
tímamarkmið um hámarksafrakstur
á grundvelli sjálfbærrar nýtingar að
sitja í fyrirrúmi,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði ekki hafa verið vanda-
laust að fylgja þessari stefnu fram
og í hávaðasamri hagsmunatog-
streitu og kapphlaupi margra stjórn-
málamanna um stundarvinsældir
hefði mikilli orku og miklu afli verið
eytt í þeim tilgangi að sveigja af
leið, en allar þær tilraunir hefðu
mistekist. Flestir forystumenn sjó-
manna og útvegsmanna hefðu með
ábyrgum hætti stutt stjórnvöld í erf-
iðum ákvörðunum og án þess væri
óvíst að árangur hefði náðst.
„Við hina sem barist hafa á móti
vil ég aðeins segja þetta. Reynslan
hefur kennt okkur Islendingum og
öðrum þjóðum að ábyrg nýtingar-
stefna borgar sig. 0g það verður
enginn minni maður af því að læra
af þeirri reynslu,“ sagði hann.
Skoðanakönnun Gallups um fylgi forsetaframbjóðenda
Olafur Ragnar með 46,9%
en hefur tapað þriðjungi
ÓLAFUR Ragnar Grímsson nýtur
fylgis 46,9% þeirra sem afstöðu tóku
í skoðanakönnun Gallups. Næstur
kemur Pétur Kr. Hafstein með 25,3%
fylgi, þá Guðrún Pétursdóttir með
12,7%, Guðrún Agnarsdóttir með
11,2% og Ástþór Magnússon er í
fimmta sæti með 4% fylgi.
Könnunin var gerð 24. maí til 2.
júní, að hvítasunnudegi undanskild-
um. Úrtak var 2.200 manns, 18-75
ára og var svarhlutfall rúmlega 70%.
Allir frambjóðendur hafa bætt við
fylgi sitt nema Ólafur Ragnar, enda
hefur óákveðnum og þeim sem neita
að svara fækkað um 20 prósentu-
stig, eru nú 17,8% en voru tæplega
38% í síðustu könnun. Fylgi Ólafs
Ragnars hefur minnkað um þriðjung
frá síðustu könnun, en hann hefur
þó lang mest fylgi.
Afsögnin breytti
ekki fylgi
Þar sem tilkynning Jóns Steinars
Gunnlaugssonar um afsögn, sem
formaður yfirkjörstjórnar í Reykja-
vík, kom fram þremur dögum eftir
að könnun Gallups hófst var athugað
hvort fylgi Ólafs Ragnars hefði
breyst, en ekki fundust þess nokkur
merki. Þá er þess getið sérstaklega,
að könnunin hafí verið gerð á því
tímabili er DV gerði síðustu könnun
sína, en allan tímann sem hún stóð
hafi Guðrún Pétursdóttir haft heldur
meira fylgi en Guðrún Agnarsdóttir,
andstætt niðurstöðu DV.
Fylgi frambjóðenda eftir kyni og
stjórnmálaskoðun kjósenda er mis-
jafnt, eins og fram kemur í meðfylgj-
andi töflu.
Alls Kynjaskipt Skipt eftir stjórnmálaskoðunum
Frambjóðandi Fylgi Karlar Konur A B D G V
Ólafur Ragnar Grímss. 46,9% 53,5% 40,3% 43,6% 65,6% 25,3% 85,2% 11,8%
Pétur Kr. Hafstein 25,3% 24,5% 26,1% 12,7% 16,0% 51,1% 1,3% 5,9%
Guðrún Pétursdóttir 12,7% 8,6% 16,8% 21,8% 8,6% 14,0% 3,9% 20,6%
Guðrún Agnarsdóttir 11,2% 7,8% 14,6% 13,6% 9,2% 6,2% 7,1% 61,8%
Ástþór Magnússon 4,0% 5,7% 2,2% 8,2% 0,6% 3,5% 2,6% 0,0%
Samtals 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100%
ÝMIS skemmtiatriði voru á Reykjavíkurhöfn á sjómannadaginn,
Þrír á Reykjaneshrygg á sjómannadag
Tekið á málinu
af fullri hörku
JÓNAS Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, segir að
það komi líklega í ljós í dag til hvaða
aðgerða verður gripið gagnvart út-
gerðunum Ögurvík hf. og Granda
hf. sem voru með skip við veiðar á
Reykjaneshrygg á sjómannadaginn,
sem er lögbundinn frídagur sjó-
manna. Sævar Gunnarsson, formað-
ur Sjómannasambands íslands, segir
að tekið verði á málinu af fullri hörku
með þátttöku Sjómannasambandsins
ef því verði að skipta.
Gísli Jón Hermannsson hjá Ögur-
vík hf., sem gerir út Frera og Vigra
sem voru á Reykjaneshrygg á sjó-
mannadaginn, sagði í samtali við
Morgunblaðið að engin lög hefðu
verið brotin. Skriflegt samkomulag
væri við áhöfn Vigra um veiðar á
sjómannadaginn, en samkvæmt lög-
unum væri heimilt að veiða á sjó-
mannadaginn ef mikilvægir hags-
munir væru í húfí og samkomulag
tækist þar um milli útgerðar og
skipshafnar.
Telja sig vera í fullum rétti
Þá væru veiðar einnig heimilar
ef um væri að ræða skip sem ætlaði
að sigla með aflann á erlendan mark-
að og sagði Gísli Jón að ekki væri
ólíklegt að Freri yrði látinn sigla
með aflann.
„Við teljum okkur vera í rétti en
ég er ekkert að segja hvernig verður
úr skorið. Þegar tveir deila um lög
og lesa þau hver með sínu hugarf-
ari þá á dómari eftir að koma í
þetta,“ sagði Gísli Jón.
Andlát
SÉRA PÉTUR Þ.
INGJALDSSON
SÉRA Pétur Þórður
Ingjaldsson, fyrrverandi
prófastur Húnvetninga,
er látinn. Hann lést á
86. aldursári, þann 1.
júní sl.
Pétur er fæddur á
Rauðará við Reykjavík
28. jahúar árið 1911.
Hann varð stúdent í
Reykjavík árið 1933 og
lauk guðfræðinámi frá
Háskóla íslands árið
1938. Kennaraprófi frá
Kennaraskólanum lauk
hann árið 1939.
laust var þar. Prófastur
yfir Húnavatnssýslu
varð séra Pétur 1. nóv-
ember árið 1968. Hann
var prófdómari í
Kvennaskólanum á
Blönduósi frá 1948.
Séra Pétur lét af störf-
um árið 1981. Hann rit-
aði fjölmargar greinar
og flutti fyrirlestra.
Séra Pétur kvæntist
eftirlifandi eiginkonu
sinni, Dómhildi Jóns-
dóttur húsmæðrakenn-
ara, 14. júlí 1956. Þau
Honum var veitt Hö-
skuldsstaðarprestakall árið 1941.
Með því gegndi hann aukaþjónustu
í nágrannaprestaköllum þegar prest-
eignuðust tvo syni.
Útför séra Péturs fer fram frá
Hólaneskirkju á Skagaströnd laug-
ardaginn 8. júní kl. 14.
I
I
4