Morgunblaðið - 04.06.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.06.1996, Blaðsíða 20
 20 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins samþykkja að auka hlut Evrópu Samkomulagið tal- ið efla stöðu NATO Reuter WARREN Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, (t.v.) ræðir við Javier Solana, framkvæmdastjóra NATO, í Berlín í gær. SAMKOMULAG utanríkisráðherra ríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) á fundi þeirra í Beriín í gær um að gera hlut Evrópuríkja í banda- laginu meiri þykir sögulegt og er sagt tryggja að NATO verði mikil- vægasta varnarbandalag Evrópu langt fram á næstu öld. „Getnaðurinn hefur verið erfiður, fæðingin verður sársaukafull, en þetta er vissulega sögulegur dagur,“ sagði ónefndur stjórnarerindreki eft- ir að ráðherrarnir höfðu gengið frá samkomulaginu. Það hefur í för með sér að NATO mun ekki lengur ein- skorðast við hið hefðbundna varnar- hlutverk, sem það var stofnað til að gegna í upphafi kalda stríðsins, held- ur starfa í samræmi við breytta stöðu mála í Evrópu. Mun þá verða hægt að beita NATO til friðargæslu eins og nú er til dæmis gert í Bosníu og einnig bregðast við hættuástandi, sem kynni að skapast í Evrópu. Sveigjanlegra og pólitískara bandalag Með þessu samkomulagi verður bandalagið í raun sveigjanlegra og um leið pólitískara því að í stað þess að bregðast við áreiti gæti þurft að meta stöðu utan bandaiagsríkis og ákveða hvort grípa eigi til aðgerða. Áhersla var lögð á að mikilvægi tengslanna yfir Atlantshafið, en um leið gert ráð fyrir uppbyggingu evr- ópskrar stoðar varnarsamstarfsins. „Þetta samkomulag er mikilvægt að því leytinu til að allar aðgerðir, sem verður farið í á vegum þessara landa verða undir stjórn Átlants- hafsbandalagsins en ekki annarra stofnana," sagði Halldór Ásgríms- son, utanríkisráðherra íslands, sem sat fundinn í Berlín. „Það er hins vegar ljóst að einstök ríki geta farið út í aðgerðir, til dæmis án þátttöku Bandaríkjanna, en það verður þá fyrst undir stjórn Atlantshafsbanda- lagsins. Það var líka mikilvægt á þessum fundi að hér staðfestu Bandaríkjamenn skuldbindingar sín- ar í öryggismálum Evrópu og tengsl- in yfir Atlantshafið munu halda áfram, sem skiptir mjög miklu máli.“ Eina trúverðuga aflið „NATO heldur áfram að vera eina trúverðuga aflið hvað varðar hernað- araðgerðir og aðrar aðgerð- ir . . . og það er ekki lengur um- deilt að NATO starfi utan [banda- lagsríkjanna],“ sagði Malcolm Rif- kind, utanríkisráðherra Bretlands. Rifkind sagði að þetta samkomu- lag sýndi að áróður Frakka fyrir því að Vestur-Evrópusambandið (VES) verði þungamiðja sjálfstæðs fram- lags Evrópuríkjanna til varnarsam- starfsins hefði ekki staðist tímans tönn. Hlut VES yrði í hóf stillt og því bæri að fagna. Dudley Smith, forseti þingmanna- samkomu VES, sem kom saman í París í gær, sagði samkomulag Ber- línarfundarins sýndi hins vegar að VES nyti aukinnar viðurkenningar og gegndi stærra hlutverki en áður. Samkvæmt samkomulaginu munu Evrópuríki nú geta notað her- gögn NATO til aðgerða án þess að Bandaríkjamenn eigi hlut að máli. Ekki hefur verið gengið frá því hvernig þessar breytingar verða í framkvæmd og var hernaðarsér- fræðingum var falið að ganga frá þeirri hlið mála. Þess má þó geta að Michael Poitillo, varnarmálaráð- herra Bretlands, mæltist til þess í París að hersveitir, sem notaðar yrðu til sérevrópskra aðgerða, mundu æfa með öðrum hersveitum NATO og yrði ekki stíað frá þeim. Best væri að „velja golfkylfurnar úr golfpokan- um eftir þörfum". Halldór Ásgrímsson kvaðst telja niðurstöðu Berlínarfundarins hag- stæða íslendingum. „Það er mikilvægt fyrir okkur Islendinga að samstarfið yfir Atl- antshafið skuli halda áfram og að sjálfsögðu er það einnig mikilvægt fyrir okkur að varðveita frið í Evr- ópu. Það skiptir meginmáli að stofn- un, sem við höfum átt aðild að frá upphafi, skuli skila þessum árangri og við skulum vera þátttakendur í því,“ sagði Halldór. „Eg tel að þetta tryggi mun betur frið í okkar heims- hluta og eins skiptir stækkun banda- lagsins máli fyrir okkur og sú sam- vinna, sem á sér stað við Eystrasalts- ríkin og Mið- og A-Evrópuríkin.“ I yfirlýsingu ráðherrafundarins er sérstaklega minnst á stækkun NATO, en það mál verður sennilega ofarlega á baugi þegar Jevgení Prímakov, utanríkis ráðherra Rúss- lands, hittir ráðherrana. Norðurlönd nefna Eystrasaltsríkin Ráðherrar Norðurlandanna þriggja í NATO tóku þátt í umræð- unni um stækkun NATO. „Við höfum allir minnst á Eystra- saltsríkin hér í dag,“ sagði Halldór. „Það er hins vegar engin launung að það er mjög víðtæk skoðun hér að Mið-Evrópuríkin sú lengra komin í að aðlaga sín mál að starfsemi Atlantshafsbandalagsins, en það hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvaða ríki fái inngöngu, en það liggur alveg ljóst fyrir að Eystra- saltsríkin eru meðal þeirra ríkja, sem eru viðræður við um inngöngu í bandalagið." Netanyahu hvetur araba til „friðar með öryg-gi“ Bandaríkin kunna að endurskoða stefnuna Jerúsalem. Reuter. Reuter BENJAMIN Netanyahu skálar við félaga sína í stjórn Likud bandalagsins á fyrsta fundi þess eftir kosningasigurinn. „FRIÐUR með öryggi" voru ein- kunnarorð sigurræðu Benjamins Netanyahu, nýkjörins forsætisráð- herra Israels á sunnudag. Hörð við- brögð hafa verið við ræðunni, Warr- en Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á sunnudags- kvöld að vera kynni að Bandaríkja- menn yrðu að endurskoða stefnu sína í málefnum Mið-Austurlanda í ljósi úrslita kosninganna I ísrael, en það væri þó enn of snemmt að segja til um það. Heimildarmenn innan Likud segja að Netanyahu vonist til þess að geta kynnt ríkis- stjóm sína þann 17. þessa mánaðar. í ræðunni hvatti Netanyahu araba til þess að „taka þátt í friðar- hringnum". Sagði hann væntanlega stjórn sína hyggjast halda áfram viðræðum við alla nágranna sína til að ná „stöðugum friði, raunveru- legum friði, friði með öryggi“. Hef- ur hann átt fundi með sendiherra Egyptalands til að leggja drög að fundi hans og Hosni Mubaraks Egyptalandsforseta. Palestínumenn hafa gagnrýnt ræðu Netanyahus, og segja hann hafa af ásettu ráði sleppt því að minnast á Frelsissamtök Palestínu- manna, PLO, heldur látið sér nægja að tala um Palestínumenn. Með því virði hann að vettugi viðurkenningu fráfarandi ríkisstjómar á því að PLO fari með umboð fyrir palest- ínsku þjóðina. I ræðu sinni minntist Netanyahu stuttlega á stöðu Jerúsalem og ít- rekaði yfirlýsingar um að henni yrði aldrei skipt. Fögnuðu stuðn- ingsmenn hans ákaflega, söngluðu gælunafn hans „Bibi“ og kölluðu hann „Konung ísraels". Bandaríkjamenn bíða og sjá Christopher lét orð sín um mögu- leika á breyttri stefnu falla eftir að hann hafði rætt við Netanyahu í síma. Fullvissaði forsætisráðherr- ann Christopher um að hann myndi vinna að friði í Mið-Austurlöndum. „Við verðum að komast að því hver viðhorf hans eru. Hann mun þróa stefnu sína eftir því sem á líður og þangað til getum við ekki breytt stefnu okkar. Það væri of snemmt," sagði Christopher. Hann hafði áður lýst því yfir í samtali við CBS-sjónvarpsstöðina að hann teldi bandarísku stjórnina verða að „aðlaga stefnu sina núver- andi ástandi". Sagði Christopher að enn hefði engin breyting orðið á þeirri stefnu Bandaríkjanna að landnám gyðinga á hemumdu svæðunum stæði í vegi fyrir friði. Stjórnarmyndun Likud og Verkamannaflokksins ólíkleg Nýkjörið þing kemur saman þann 17. júní nk. og segja heimildarmenn innan Likud-bandalagsins að Net- anyahu vonist til þess að þá liggi fyrir málefnasamningur og ráð- herralisti nýrrar ríkisstjómar. Stjórnmálaskýrendur segja að hans bíði ekki erfitt verk, þar sem tiltölulega auðvelt verði að fá flokka heittrúarmanna til að styðja stjórn- ina. Þó að Netanyahu muni án efa efna loforð sitt að kanna möguleika á stjórn með Verkamannaflokkn- um, sé afar ólíklegt að af slíkri stjórn verði. Slóvakía á ekki aðildina vísa Brussel. Reuter. HANS van den Broek, sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði í gær að ríki þau er sótt hefðu um aðild að sambandinu mættu ekki ganga út frá því sem vísu að fá aðild óháð því hversu vel hefði verið staðið að undirbúningi aðildar. Van den Broek lýstu þessu yfir á fundi sameiginlegrar þingmanna- nefndar Evrópusambandsins og Sló- vakíu. Slóvakía er eitt níu fyrrum kommúnistaríkja, sem hefur hug á ESB-aðild, og sagði van den Broek að Slóvakar hefðu dregist aftur úr hvað undirbúning varðar. „Slóvakar verða að hraða umbót- um ef þeir hafa hug á því að ger- ast fullgildir aðilar að Evrópusam- bandinu," sagði van den Broek og lýsti jafnframt yfír áhyggjum af stöðu minnihlutahópa í landinu. Hann sagði að auka yrði vernd minnihlutahópa og flýta efnahags- JL^ÍÉL EVRÓPA^ legum umbótum og einkavæðingu. „Fulltrúar Slóvakíu biðja okkur oft um að sýna því skilning að lýð- ræðið sé ungt í ríki þeirra. Slóvakía er hins vegar ekki eina unga lýðræð- isríkið ... og lög af þessu tagi stuðla ekki að því að auka traust né held- ur treysta þau hinar viðkvæmu ræt- ur lýðræðisins," sagði hann. Van den Broek, sem einnig átti fund með Josef Kalman, forsætis- ráðherra Slóvakíu, í gær, sagði að það væru alvarleg mistök ef Slóvak- ía eða eitthvert annað ríki teldi sig geta gengið að aðild vísri þó svo að ríkið væri ekki undir aðild búið. > Aætlun um upp- rætingu kúariðu Luxemborg. Reuter. DOUGLAS Hogg, landbúnaðarráð- herra Bretlands, lagði í gær fram umfangsmikla áætlun um að upp- ræta kúariðu í landinu. Meðal ann- ars verður það talið glæpsamlegt athæfi að nota kjöt- eða beinamjöl í dýrafóður. Verður allt mjöl af þessu tagi gert upptækt á næstu tveimur mánuðum. ekki settar í sóttkví, heldur slátrað. Hogg kvaðst vona, að áætlunin dygði til að bann við útflutningi breskra nautgripaafurða yrði af- numið en talið er, að einni milljón nautgripa verði slátrað á fyrsta ári aðgerðanna gegn kúariðunni. Auk þess verður eftirlit með starfsemi sláturhúsa stórhert. Hogg sagði, að eini munurinn á þessari áætlun og þeirri, sem evr- ópsk dýralæknisyfírvöld höfnuðu fyrir hálfum mánuði, væri sá, að nú væru grunsamlegar skepnur Kúariðutilfellin voru flest á árinu 1992, 36.681, en vonast er til, að þau verði ekki nema um 8.000 á þessu ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.