Morgunblaðið - 04.06.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1996 7
Góð ávöxtun hjá
Kaupþingi
10
i H*®sssb0» SKSKSKS;
Með því að kaupa Einingabréf eða
Skammtímabréf velur þú einfalda og
þægilega leið til þess að ávaxta
sparifé þitt og nærð æskilegri
áhættudreifingu án mikils
tilkostnaðar. Bréfin getur þú geymt í
vörslu Kaupþings hf. án endurgjalds.
Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum
okkar og hjá sparisjóðunum.
Nafnávöxtun 29. maí 1996 á ársgrundvelli
Frá áramótum Síðustu 12 mánuði
Skammtímabréf 10,1% 8,7%
Einingabréf 1 9,9% 9,4%
Einingabréf 2 10,0% 9,7%
Einingabréf 5 14,7% 20,0%
Einingabréf 6 16,8% 31,4%
Einingabréf 10 5,0% 15,5%
Skammtímabréf eru ávöxtuð að stærstum hluta í skammtímaverðbréfum
útgefnum af ríkissjóði og fjármálastofnunum. Meðallíftími bréfa er stuttur og með þeim
hætti er reynt að tryggja jafna ávöxtun. Mismunur á kaup- og sölugengi er enginn 30
dögum eftir kaup.
Einingabréf 1 er innlendur skuldabréfasjóður sem fjárfestir í mörgum mismunandi
verðbréfaflokkum. Þannig næst jafnari ávöxtun en í öðrum verðbréfasjóðum Kaupþings
hf. Mismunur á kaup- og sölugengi er 0,5%.
Einingabréf 2 er eignarskattsfrjáls verðbréfasjóður sem fjárfestir eingöngu í ríkis-
tryggðum verðbréfum. Mismunur á kaup-og sölugengi er 0,5%.
Einingabréf 5 er alþjóðlegur skuldabréfasjóður sem fjárfestir á erlendum verð-
bréfamörkuðum. Lágmarkskaup eru 10 milljónir. Mismunur á kaup-og sölugengi er 1,5%.
Einingabréf 6 er alþjóðlegur hlutabréfasjóður sem fjárfestir í hlutabréfum traustra
og þekktra hlutafélaga. Mismunur á kaup- og sölugengi er 3,0%.
Einingabréf 7 er nýr skammtímasjóður hjá Kaupþingi hf. sem fjárfestir aðallega í
skammtímaverðbréfum útgefnum af ríkissjóði og fjármálastofnunum. Lágmarkskaup eru
500.000 krónur. Einingabréf 7 henta þeim sem þurfa að ávaxta fé í mjög skamman tíma.
Mismunur á kaup- og sölugengi er enginn 3 virkum dögum eftir kaup.
Einingabréf 10 er eignarskattsfrjáls sjóður sem fjárfestir aðallega í bréfum sem Rík-
issjóður íslands gefur út í erlendri mynt eða sem eru með erlendri gengisviðmiðun. Ein-
ingabréf 10 eru góð vörn gegn gengisfeilingu krónunnar. Mismunur á kaup- og
sölugengi er 2%.
KAUPÞING HF
Ármúla 13A • 108 Reykjavík
Sími 515 1500