Morgunblaðið - 04.06.1996, Page 34

Morgunblaðið - 04.06.1996, Page 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNl 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KNUD SALLING VILHJÁLMSSON + Knud Salling Vilhjálmsson fæddist 18. mai 1923 í Kaupmanna- höfn. Hann lést á Landspítalanum 26. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Gudrun og Willy A. Larsen. Willy fæddist 10. apríl 1900 og lifir hann son sinn. Willy og Gudrun ráku um árabil eigið veit- ingahús í miðborg Kaupmannahafnar. Bróðir Knuds er Mogens Sall- ing Larsen, kvensjúkdóma- læknir í Kaupmannahöfn. Kona hans er Anne-Lise, dr. í hjúkr- unarfræðum og prófessor við Odense Universitet. Fyrri kona Knuds var Elín Bryndís Bjarnadóttir og eignuð- ust þau tvær dætur, Anítu, fædda 2. jan- úar 1949 og Helen, fædda 21. mai 1950. Aníta er gift Þór Steinarssyni og eiga þau tvö börn, Stefán Þór og Sonju. Helen er gift Guðna Sig- urðssyni og eiga þau þijú böm, Bergþóru og tvíburana Omar og Ottar. Eftirlif- andi kona Knuds er Steinunn S. Jóns- dóttir. Stærstan hluta starfsævinnar rak hann eigið fyrirtæki er sinnti húsgagna- viðgerðum. Knud sinnti ýmsum félagsstörfum fyrir Dani hér á landi. Sat í stjórn Det danske selskab í Reykjavík um árabil og var formaður þess frá 1970 í mörg ár. 1973 veitti Margrét Kringlan 8-12, sími 568 6062 Skemmuvegur 32 1, sfmi 557 5777 Sendum í póstkröfu 2.490 Mod. 159 Litur: Svartur 2.490 Mod. 158 Litur: Svartur, be: Júní tilboð Fallegir sumarskór frá ^ T VlVALDI FINESTRA DEI.IA VIA PRINCIPALE 1. Mod. 161 Litur: Svartur Danadrottning honum orðu fyrir þessi störf. Útför Knuds fer fram frá Fossvogskirkju i dag og hefst athöfnin klukkan 15. Mig langar til að minnast í nokkr- um orðum tengdaföður míns Knud Salling. Kynni mín af honum hófust 1968 er leiðir mínar og Anítu dóttur hans lágu saman. Knud kom strax fyrir sem mikill heimsmaður og lífs- kúnstner. Á heimili hans og Sissu var ætíð gott að koma og dvelja jafnt í litlum sem stórum hópum. Haustið 1968 hélt ég utan til Kaup- mannahafnar til náms og kynntist þar foreldrum Knuds þeim Willy og Guðrúnu Larsen. Þau höfðu um árabil rekið veitingahús í hjarta Kaupmannahafnar og kunnu vel þá list Dana að láta fara vel um sína gesti. Það var auðséð að þaðan fékk Knud í arf hluta af lífsstíl sínum. Haustið 1977 snéri ég og fjöl- skylda mín aftur til íslands og urðu þá fleiri tækifæri til að ræða málin við Knud og Sissu. Knud hafði gam- an af ferðalögum og fóru þau hjón- in víða. í hugann koma eftirminni- legar frásagnir af ferðum m.a. til Mexíkó, Bandaríkjanna og St. Thomas fyrrum nýlendu Dana. Knud var mikið fyrir fagra hluti og kom iðulega með „gullmola" með sér úr ferðalögum erlendis. Knud var handlaginn og rak frá 1957 eigið verkstæði er sinnti hús- gagnaviðgerðum og gerði þar við allt frá litlum kistlum upp í stóra fiygla. Ég minnist þess að hafa komið þangað með kommóðu fagur- græna á lit. Þessa kommóðu höfð- um við Aníta keypt hjá skransala í Kaupmannahöfn og málað í stíl sjöunda áratugarins, en ekki hreifst Knud af litnum. Hann kom fljótt auga á að undir málningunni var góður viður. Hann tók því kommóð- una í gegn, fjarlægði málninguna, lagaði skúffubotna og slípaði og lakkaði. Þá var allt í einu komin fögur viðarkommóða úr eðalviði. Á heimili Knud og Sissu var gest- kvæmt og kom þar glöggt í ljós lífskúnstnerinn í Knud og að Sissa er listakokkur. Saman skópu þau gestum sínum ógleymanlegar upp- lifanir yfir góðum málsverði og fag- urskreyttu borði. Það var ætíð hugsað um stíl þegar gestum var boðið í heimsókn. Ég vil ljúka þessum orðum með fyrsta erindi úr sálmi eftir Jakob Knudsen sem sungin var yfir mold- um Guðrúnar móður Knuds. Se, nu stiger solen af havets skod, luft og bolge blusser í brand, í glod; hvilken salig jubel, skent alt er tyst, medens lyset lander pá verdens kyst. Ég veit að algóður Guð mun geyma þig. Ég vil biðja góðan Guð að styrkja Ruslastaukar úr stáli: gulir, grænir og bláir. Botnlosun. i . akta ehf. Sími: 568 5005 umboðs- og heildverslun Myndsíml: 588 9262 P.0.B0X: 8064 -128 Rvk. Sissu, Anítu og Helen og aðra ætt- ingja og vini í sorg þeirra. Þór Steinarsson. Okkur barnabörnin langar til þess að minnast í fáum orðum afa okkar, sem yfirgaf þennan heim svo skyndilega. Maður áttar sig ein- hvernveginn ekki á því að hann sé farinn því það er svo stutt síðan að við vorum í Mávahlíðinni hjá afa og Sissu og allt var í himnalagi. Við eigum öll mjög góðar minning- ar um afa okkar. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn í Máva- hlíðina, skoða í fískabúrið, spila öll spilin sem þau áttu, borða góðan mat og síðast en ekki síst að vera með afa og Sissu sem voru alltaf svo lífsglöð og hamingjusöm. Hann afi átti eigið verkstæði þar sem hann fékkst við endurbætur á göml- um húsgögnum. Okkur barnabörn- unum fannst mjög spennandi að fá að hjálpa til á verkstæðinu, svara í símann, fá sandpappír og hjálpa honum að pússa ýmis húsgögn. Jólaboðin í Mávahlíð voru ekki af lakara taginu, borðin svignuðu und- an glæsilegum dönskum jólamat af bestu gerð sem hann og Sissa höfðu útbúið í sameiningu. Við vorum alla tíð mjög náin afa okkar og gátum alltaf talað við hann, það er því mjög skrítið að hann skuli ekki vera meðal okkar lengur. En við vitum að honum líður vel þar sem hann er í dag og biðjum við guð að veita Sissu styrk á svo erfíðri stund. Hinsta kveðja. Barnabörnin. Mig langar í fáeinum orðum að minnast tengdaföður míns sem lést í Landspítalanum sunnudaginn 26. maí síðastliðinn eftir nokkurra klukkustunda legu. Nú þegar vorið er búið að vera svona sólríkt og gott, garðarnir all- ir að komast í blóma og við hlökkum öll til sumarsins þá kemur þessi dapri dagur svo óvænt. Tengdapabbi er kallaður burt frá okkur. Fyrir nokkrum dögum var ég að hjálpa Knud við að koma gosbrunninum í gang í garðinum hans. Við löbbuðum um garðinn og röbbuðum saman um blómin og til- veruna i siðasta sinn. Þegar ég kom fyrst í Mávahlíð til Sissu og Knud þá var eins og maður væri ekki lengur á íslandi. Allir töluðu dönsku eins og innfæddir og ég skildi ekki orð. Þetta var samt mjög skemmti- legt og framandi fyrir sveitapiltinn mig að koma þarna. Ég skildi þó fljótlega að Knud var mjög spaug- samur og skemmtilegur karl og hafði þennan danska húmor með- fæddan. Knud bauð okkur Helen út til Danmerkur í gullbrúðkaup foreldra sinna í febrúar 1972 og kynnti þar með tengdasoninn. Ég var þá nokkuð síðhærður og skeggj- aður eins og stællinn var þá. Tengdapabbi og tengdaafi höfðu sama húmorinn. Þeir voru nokkuð vissir á því að Helen hefði fundið mig í dýragarðinum. Knud vann alla tíð við húsgagna- Bhmutstofa Friðfúms SuðurlandsbrautlO 108 Reykjavík • Sími 5531099 Opið öll kvöld til kl. 22 - cinnig um hclgar. Skreylingar fyrír öll tilcfni. Gjafavörur. viðgerðir og var hann mjög virtur fagmaður í því starfi. Hann var snillingur í að laga illa farin hús- gögn. Hann tók oft mjög erfið verk- efni að sér, húsgögn sem voru bæði mjög gömul og illa farin. Þess- um hlutum skilaði Knud með glæsi- legu handbragði sem lifir hann. Knud var mikill gleðimaður og naut þess að vera innan um fólk, hann var alltaf mjög snyrtilegur og vel til fara og lifði fyrir góðan mat og góðan drykk. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að vera sam- ferða Knud þennan tíma í mann- heimum og óska þess að honum líði vel þar sem hann er núna. Megi góður guð styrkja og vernda Sissu í þessari miklu sorg. Blessuð sé minning hans. Guðni Sigurðsson. Góðan vin skal nú kveðja þótt orð séu of fátækleg til að minnast vinar á borð við Knud sem átti gnótt af hlýju og traustri vináttu. Hans lokaferð hófst skyndilega og lauk eftir fáar klukkustundir og kom fréttin um missi vinar óvænt og því erfitt að skilja að þessi lífs- glaði vinur væri horfinn úr okkar hópi. En eins og ávallt er um góðan dreng þá lifir hann í íjölmörgum minningum um ánægjulegar sam- verustundir sem ylja og verma minningaflóru okkar. Knud var fæddur í Danmörku og varði æsku- og unglingsárunum þar en til Islands kom hann sem ungur maður og lifði og starfaði hér. Hann var mikill íslendingur í lund og unni landi og þjóð og hér eignaðist hann marga góða vini. En hann var einnig trúr föðurlandi sínu Danmörku og hélt lifandi tengslum við ættmenn sína og vini, sem hann heimsótti oft og minntist iðulega með hlýjum orðum. Knud var ákaflega verklaginn maður og rak í fjöldamörg ár starf- semi sem annaðist viðgerðir og endurvinnslu á gömlum húsmunum en slíkt starf krefst mikillar natni og vandvirkni. Til hans leituðu margir með ættargripi og forna muni til þess að endurnýja þá og gæða lífíi að nýju. Hann var þekkt- ur fyrir snyrtimennsku og ná- kvæmni í öllum störfum og hann hafði unun af að föndra við gamla muni sem tímans tönn hafði nagað og að breyta ásýnd þeirra í upp- runalegt horf. Knud var mikið glæsimenni í sjón og framkomu og allt sem hann tók sér fyrir hendur, hvort heldur það var stórt eða smátt, fékk á sig fág- að yfirbragð. Honum var sérstak- lega lagið að skapa umhverfi og viðmót og öllum leið vel í návist hans enda er minning af samvistum við hann ánægjuleg og varanleg. Við mótun á þessu fágaða og hlý- lega umhverfi naut Knud vissulega mikils stuðnings frá Sissu eigin- konu sinni en þau hjónin voru ákaf- lega samrýnd og samtaka og kunnu þá list framar öðrum að sinna vinum sínum. Knud var einkar hlýr maður og skemmtilega glettinn. Hann var vinur vina sinna og vildi öllum gott gera. Hann var gestrisinn með af- brigðum og heimili hans var vandað og glæsilegur rammi um þá hlýju og tryggð sem var svo ríkuleg í fari hans. Hann var mikill fagur- keri og naut þess að skapa glæsi- lega umgerð við samvistir með vin- um og allt heimilið bar þess vott að húsráðendur voru listrænir enda sérhver hlutur valinn af stakri vand- virkni svo hann féll vel að heildar- svip umhverfisins. Það var gott að njóta samvista við Knud og Sissu og þær stundir fyrnast seint enda með þeim hætti að þær mótast sterklega í minninguna. Við erum þakklát fyrir þá minn- ingu sem Knud hefur skilið eftir við burtför sína til nýrra heima. Söknuð- ur og eftirsjá er að góðum vini. Sissa hefur misst kæran lífsförunaut og dætur hans sjá á eftir föður sínum. Megi guð styrkja ástvini hans í sorg þeirra og minningin um góðan sam- ferðamann kveikja þeim og vinum hans gleði í framtíðinni. Guðbjörg og Steinar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.