Morgunblaðið - 04.06.1996, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1996 37
MAREL KRISTINN
MAGNÚSSON
+ Marel Kristinn
Magnússon var
fæddur í Kolholts-
helli í Flóa 8. febr-
úar 1902. Hann lést
á Landspitalanum
24. mai síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Magnús Þor-
steinsson bóndi í
Kolholtshelli í Flóa,
seinna járnsmiður í
Reykjavík, f. 25.9.
1857, d. 8.10. 1942
og kona hans Sig-
ríður Magnúsdótt-
ir, f. 18.8. 1861, d.
3.8. 1941.
Hinn 9. júní 1928 kvæntist
Marel eftirlifandi eiginkonu
sini Guðbjörgu Pálsdóttur, f.
22. febrúar 1907. Foreldrar
hennar voru Páll Stefánsson
sjómaður og Ólöf Jónsdóttir.
Börn Marels og Guðbjargar
eru: 1) Erna Dóra, f. 3. janúar
1933, húsmóðir í Reykjavík,
maki Alfreð Júlíusson vélstjóri.
2) Guðmar, f. 30. maí 1945,
sölufulltrúi í Reykjavík, maki
Pálína Jónmundsdóttir.
Útför Marels fer fram frá
Kirkju Óháða safnaðarins í dag
og hefst athöfnin klukkan
15.00.
Erfidrykkjur
Glæsileg kafíi-
hlaðborð, failegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
IIÓTEL LÖFTLLIIIIIi
Magnússonar, afa eig-
inkonu minnar.
Kynni okkar hófust
fyrir rúmum tuttugu
árum. Marel var þá
hættur störfum en hann
var um árabil bifreiðar-
stjóri á Vörubílastöðinni
Þrótti.
Fyrir mig sem ungan
mann var mjög lær-
dómsríkt að kynnast
Marel, sem hafði mjög
ákveðnar skoðanir á
mönnum og málefnum,
bar virðingu fyrir hinni
vinnandi stétt og kenndi
manni að bera virðingu
fyrir vinnunni hveiju nafni sem hún
nefndist. Með Marel er genginn einn
af þeirri kynslóð sem tók þátt í upp-
byggingu þess velferðarkerfis sem
við yngra fólkið búum við í dag.
Marel var mjög sérstæður og eftir-
minnilegur persónuleiki. Þrátt fyrir
að annar fótur hans væri styttri lét
hann aldrei deigan síga heldur fór
allra sinna ferða þar til Elli kerling
kom honum í hjólastól síðustu árin.
Hann lét aldrei bugast og tók þátt
í öllum mannfagnaði innan fjölskyld-
unnar glaður og reifur. Þótt mörgum
fyndist hann kannski hijúfur á yfir-
borðinu sló þar undir hlýtt og gott
hjarta og réttsýni hans og heiðarleika
var við brugðið. Marel var einstak-
lega bamgóður maður. Hann hafði
yndi af bömum og þau hændust
mikið að honum. Hann fylgdist vel
með öllum sínum afkomendum og
þeirra skylduliði og spurðist fyrir um
alla fram á síðasta dag.
Og nú er komið að leiðarlokum.
Þær em margar hetjurnar. í hvers-
dagslífinu og Marel var ein af þeim.
Þetta fólk vann hörðum höndum að
uppbyggingu íslensks þjóðfélags og
yngri kynslóðinni ber að minnast
þeirra með virðingu og þökk. Fjöl-
skyldan kveður nú Marel - föður,
afa og langafa - og við yljum okkur
við allar góðu minningamar sem
tengjast honum. Guðbjörgu ömmu
vottum við okkar dýpstu samúð en
hún sér nú á bak sínum góða eigin-
manni. Biessuð sé minning Marels
Kristins Magnússonar.
Agúst Victorsson.
Mig langar til að minnast afa míns
með nokkmm orðum. Hann átti
langa ævi og var 94 ára þegar hann
lést eftir tveggja vikna sjúkralegu.
Hann og amma höfðu verið gift í
67 ár. Það eru forréttindi að eiga
afa fram á fimmtugsaldur. Minning-
arnar um hann rifjast upp á slíkum
stundum og þær fyrstu tengjast stóra
vörubílnum hans, en afi var vörubíl-
stjóri frá því er ég man eftir mér
og þar til hann var rúmlega stjötug-
ur. Hann stundaði vinnu sína hjá
vörubílastöðinni Þrótti.
Þegar við systurnar vomm krakk-
ar dvöldum við og mamma flestalla
sunnudaga á heimili ömmu og afa
því pabbi var til sjós og alltaf var
jafn notalegt að koma þangað.
Ósjaldan ók afi okkur á Reo vörabíln-
um sínum heim þegar kvölda tók.
Afi var barngóður og hændust
barnabörnin og langafabörnin því að
honum. „Hann er frábær,“ hefur
sonur minn ósjaldan sagt þegar
Malla langafa hefur borið á góma.
Afi var vinnusamur, heiðarlegur og
ósérhlífinn maður. Hann bar ekki
tilfinningar sínar á borð en hafði
áhuga á öllu og öllum í kringum sig
og mjög ákveðnar skoðanir á stjórn-
málum sem og öðru. Eitt af því síð-
asta sem við töluðum um voru for-
setakosningarnar sem fram undan
em en um þær vorum við ekki alveg
sammála.
Ég mun ávallt minnast hans með
hlýju. Elsku amma, ég veit að miss-
irinn er mikill og bið guð að styrkja
þig í sorginni. Blessuð sé minning
hans.
Guðbjörg.
Mig langar að setja fáein orð á
blað til að minnast Marels Kristins
t
FJÓLA JÓNSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
lést 18. maí sl.
Útför hennar hefur farið fram.
Systkinin.
t
Kær bróðir okkar,
JÓN ÞORKELSSON
frá Arnórsstöðum,
andaðist á öldrunardeild Egilsstaða-
spítala 29. maí.
Útför hans verður gerð frá Egilsstaða-
kirkju miðvikudaginn 5. júní kl. 14.00.
Jarösett verður í Hofteigskirkjugarði.
Systkinin frá Arnórsstöðum.
t
Frændi minn og bróðir okkar,
GUÐJÓN GÍSLASON
frá Vík, Grindavík,
Hrafnistu,
Reykjavik,
er látinn.
Fyrir hönd systkina og annarra vanda-
manna,
Erla Jónsdóttir.
t
Ástkær móðir mín, amma okkar og langamma,
ELÍSABET GÍSLADÓTTIR,
Unufelli 50,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 5. júní
kl. 13.30.
Ingibjörg Axeldóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafað-
ir, afi og langafi,
MAREL KRISTINN MAGNÚSSON,
Furugerði 1,
Reykjavík,
sem lést í Landspítalanum föstudaginn
24. mai sl., verður jarðsunginn frá kirkju
Óháða safnaðarins í dag, þriöjudaginn
4. júní, kl. 15.00.
Guðbjörg Pálsdóttir,
Erna Dóra Marelsdóttir, Alfreð Júliusson,
Guðmar Marelsson, Pálína Jónmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÍVAR GUÐMUNDSSON,
veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í dag, þriðjudaginn 4. júní, kl. 15.
Blóm og kransar eru afþakkaöir, en
þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á Minningarsjóð Skjóls.
Barbara Guðmundsson,
Bryan og Lorry ívarsson,
Bruce og Lee Ann ívarsson,
Pétur og Kathleen ívarsson
og barnabörn.
t
Móðir okkar,
INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
handmenntakennari,
Hæðargarði 29,
lést í Borgarspítalanum þann 1. júni.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Aðalheiður, Erla Björg
og Berglind Jóhannsdætur.
t
Ástkær eiginkona min, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
KATRÍN GÍSLADÓTTIR,
Snælandi 7,
er lést 27. maí sl., verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju á morgun, miðvikudaginn
5. júní, kl. 13.30.
Guðmundur Pálsson,
Arnbjörg Handeland, Dag Handeland,
Páll Guðmundsson, Steinunn Hákonardóttir,
Anna Guðmundsdóttir, Óskar Þór Þráinsson,
Þórhalla Guðmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og systir,
ÞORGERÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR
GARNES,
Fjellgata 52, Álasundi,
Noregi,
lést á heimili sínu 29. maí.
Útförin fer fram í Álasundi miðvikudag-
inn 5. júní.
Knut O. Garnes,
Oscar Johan Garnes, Tone Garnes,
Solveig Ragnheiður Sanne, Per Olav Sanne
og barnabörn,
Ari Brynjólfsson, Sigrún Brynjólfsdóttir,
Áslaug Brynjóifsdóttir, Helga Brynjólfsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir,
SVAVAR GUÐBRANDSSON
rafvirki,
Espigerði 4,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum aðfaranótt
sunnudagsins 2. júní.
Ragnhildur Óskarsdóttir,
Svavar Geir Svavarsson.
t
Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
KRISTÍN ELlN ÞÓRARINSDÓTTIR,
Hæðargarði 35,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í
dag, þriðjudaginn 4. júní, kl. 13.30.
Ólafur Á. Jóhannesson,
Jón Helgi Hjartarson,
Halldóra Ólafsdóttir,
Helga Ólafsdóttir, Magnús Jónsson,
Ólafur Jón Magnússon,
Kristfn Sigrún Magnúsdóttir.