Morgunblaðið - 04.06.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1996 39
upp í blámann og inn í víðáttur him-
insins og liði aldrei betur. Andinn
væri alltaf frjáls.
Eg votta Elísabetu, eiginkonu
Guðmundar, sonum hans, Jðni Kol-
beini og Einari Viðari og systkinum
hans okkar dýpstu samúð.
Ragnhildur Bragadóttir,
Þeódóra A. Thoroddsen.
Síðasta ferðin er hafin. Guðmund-
ur tengdasonur minn hefur lagt í
sína hinztu för. Nú sé ég hann fyr-
ir mér siglandi á skútunni sinni,
hraustlegan, sólbrenndan, glaðan
og nú stefnir hann á ströndina
ókunnu.
Lífsstíll hans var ferðalög og sigl-
ingar um heimsins höf. Kaflinn þar
sem Jón Kolbeinn og Einar Viðar
komu til sögunnar er rétt nýhafínn.
Það er ekki nema ár síðan við vorum
saman að dást að nýfæddum syni.
Hvað allir voru glaðir og hamingju-
samir þá, grunlausir um sorgina sem
beið okkar.
Það var aðdáunarvert hversu auð-
velt honum var að annast syni síns
strax sem hvítvoðunga, enda var
Guðmundur mörgum góðum eigin-
leikum gæddur. Það var gott að fá
álit hans þegar spurningar vöknuðu
í fjölskyldunni hvort rétt væri tekið
á ýmsum málum. Þar fór góður
maður og réttsýnn - og með afbrigð-
um skemmtilegur. Við biðjum þess
að fá að sjá hans góðu eiginleika
birtast í sonum hans. Þetta hefur
verið erfiður tími frá því sjúkdómur-
inn greindist. Hann var aldrei sá
sami eftir það. Sjúkdómsstríðið var
strangt og baráttuviljinn ótrúlegur.
Eina ljúfa minningu á ég þó frá liðn-
um vetri. Guðmundur kemur ein-
hverra erinda, hámar í sig nýbakað-
ar vöfflur í eldhúsinu, sest smástund
við píanóið, en er svo farinn. Það
er margt ógert og tíminn naumur.
Magnús Ásgeirsson hefur þýtt
þetta þýzka ijóð svo fallega:
Margar leiðir
liggja um heim.
Einn er endir
á öllum þeim.
þótt heiman fylgi þér
hópur fríður,
áfangann hinzta
einn þú ríður.
Því er mest
um þá þekking vert.
allt hið þyngsta
er af einum gert.
Ég kveð tengdason minn með
sárum trega og bið þess að hann
megi fá ljúfan byr.
Jónína Einarsdóttir.
Guðmundur Thoroddsen mynd-
listarmaður lifði viðburðaríka ævi,
þótt stutt væri. Kynni okkar af hon-
um náðu ekki til margra ára né
daglegra samvista að jafnaði, en
hafa dugað til að vekja tómleika og
söknuð eftir góðum vini.
Eiginleikar hans til að skapa og
miðla voru slíkir, að hjá mér kallaði
viðskilnaður við hann ávallt fram
tilhlökkun eftir næsta tækifæri til
að hittast og spjalla eða sprella.
Guðmundur hafði af svo mörgu að
taka. Hann hafði mjög næman skiln-
ing og rómantíska sýn á umhverfí
sitt. Hann skóp forkunnarfögur
listaverk og hafði djúpa innsýn í list.
Hann hafði ferðast um hálfan hnött-
inn á seglskútu sinni. Hann hafði
farið yfir Sahara-eyðimörkina á vél-
hjóli. En mest naut hann líklega
samvista við íslenska náttúru og
eyddi löngum stundum við að lýsa
sérkennum hennar, enda starfaði
hann við fararstjórn franskra ferða-
manna um land sitt ísland.
í minningunni þykir mér eftirtekt-
arvert að rifja það upp hversu mynd-
rænar og ljóslifandi frásagnir hans
voru. Aldrei dró hann fram ljós-
myndir af ferðum sínum. Þess þurfti
hann ekki.
Á heimaslóðum naut hann þess
mikið í frístundum að fara í göngu-
ferðir um fáfarna dali Vestfjarða
með Jóni Kolbeini eldri syni þeirra
hjóna. Hann gekk þá gjarnan langar
gönguferðir með Jón á „háhesti" og
fór létt með enda hraustur vel. Þess-
ara stunda nutu þeir feðgar sýni-
lega. Á því eina ári og degi betur
sem hann og yngri sonur þeirra Ein-
ar Viðar áttu samleið, Iagði hann
einnig mikla rækt og alúð við upp-
eldi hans. Þrátt fyrir að fljótlega
eftir fæðingu Einars kæmi í ljós að
Guðmundur væri haldinn banvænum
sjúkdómi sem hjó skjótt skarð í lík-
amlega orku hans, bar hann dreng-
inn á höndum sér eftir því sem hann
mátti og að því er virtist oft af
meiri andlegri orku en líkamlegri.
Þá orku skorti Guðmund sannarlega
aidrei og dugði hún honum vel við
að takast af bjartsýni og hugrekki
á við þær raunir sem hann sá sig
og rata í. Þeir sem með honum fylgd-
ust voru þó sem hríslur í saman-
burði við þá sterku stoð sem Elísa-
bet var honum allar stundir. Reisn
hennar og dug verður vart lýst með
orðum.
Tómleikinn sem brottför hans
veldur er ekki hvað sístur fyrir þær
stundir sem ég átti með honum í
hópi vina. Þar naut hann sín og þar
gaf hann svo ríkulega af sér að eng-
inn getur gleymt þeim stundum þeg-
ar hann lét gamminn geisa, eða
hlátri hans sem smitaði allt um
kring. Og þá mátti svila hans Jón
Sigurpálsson ekki vanta. Svo sam-
tvinnað var líf þeirra orðið allt frá
ungri æsku, um unglingsár, um tón-
listarlíf er þeir stofnuðu og léku
saman í vinsælli hljómsveit, um
myndlistarmenntun og síðar sem
svilar og búsettir hér á ísafirði. Þeg-
ar þeir lögðust á eitt við að skemmta
sér og öðrum með sprelli eða tónlist
áttu þeir heiminn allan. Þeir sem
einhvem tíma lentu í árlegri „kús-
kús“ veislu hjá þeim hjónum Guð-
mundi og Elísabetu gleyma því seint.
Þar elduðu þau arabískan mat, Guð-
mundur lék hlutverk sitt til fullnustu
og talaði að sjálfsögðu arabísku við
matarborðið.
Síðan hvarf Guðmundur um sinn
í ævintýraferðir sínar, hvort heldur
var í eiginlegri merkingu eða við
hugrenningar og listsköpun. Þá virt-
ist hann einrænn og dulur enda lagði
hann sömu orku í þá þætti lífs síns
sem aðra.
Ekki verður undan því vikist að
minnast á stórvirki sem Guðmundur
ýtti úr vör en entist ekki aldur til
að klára, þótt hann hefði nánast allt
fram á síðasta dag reynt að fylgja
því eftir. í Skipasmíðastöðinni hf. á
Isafirði stendur skrokkur af segl-
skútu sem Guðmundur hóf smíði á
fyrir um tveimur árum síðan, fljót-
lega eftir að hann hafði selt fyrri
skútu sína með þeim orðum að nú
væri tími til að yfírgefa skútulífíð.
Slík var bakterían að nú var á ný
hafíst handa um að hanna og smíða
skip sem líklega er stærsta segl-
skúta sem að öllu leyti er hönnuð
og smíðuð á íslandi, um 40 fet. Það
verk átti Guðmundur að vel stærst-
um hluta einn þó að tæknimenn
hefðu dregið hann að landi í ein-
staka verki. Starfsmenn hjá skipa-
smíðastöðinni sýndu smíðinni áhuga
og studdu Guðmund í verki.
Um þetta verkefni stofnaði hann
hlutafélag og hafði hann það að
markmiði að nýta sína þekkingu á
skútusiglingum til að lyfta ferða-
þjónustu á Vestfjörðum á hærra stig.
Hann hugðist og var reyndar búinn
að semja við erlendar ferðaskrifstof-
ur um sölu á ævintýraferðum þar
sem siglt yrði fyrir Vestfírði með
viðkomu á völdum stöðum. Það væri
óskandi að einhveijir eldhugar
fylgdu verki þessu eftir.
Guðmundur Thoroddsen lifði iífi
sínu á einhvern hátt mun meir en
aðrir menn virðast gera.
Það er gott fyrir okkur sem eftir
sitjum að Guðmundur helgaði líf sitt
að mestu listinni. Þau listaverk sem
hann skildi eftir sig lýsa svo mikilli
fegurð og næmi að allir sem þeirra
njóta geta skynjað hug hans til lífs-
ins. Hann var framúrskarandi lista-
maður enda hreinn og heill í hugs-
un. Isfirsk menning er fátækari eft-
ir fráfall hans.
Það er sárt að horfa á bak svo
góðum dreng, það er sárt að horfa
á systkini hans kveðja ástvin enn á
ný og það er sárt að horfa á tengda-
fjölskyldu og æskuvin hans, eigin-
konu og lítil börn skilin eftir sem í
tómi.
Við biðjum aðstandendum, vinum
okkar Jóni og Margréti, eiginkon-
unni Elísabetu, sonunum Jóni Kol-
beini og Einari Viðari allrar bless-
unar.
Gísli Jón og Anna Kristín.
Listamaðurinn Guðmundur Thor-
oddsen var mikill rannsakandi ljóss-
ins. í verkum hans hin seinni ár
blika ólík efni mildu og beittu ljósi,
og með vatnslitum náði hann sömu
áhrifum: kvikir skýrir bjartir fletir
lýsa hver annan og allt sviðið. Þar
sem er ljós þar er líf hvort heldur
en í dökku hafdjúpi eða hlýrri birtu
vestfírskra fjalla. Og á hvítasunnu-
morgun var hann allur, horfinn í
annað ljós.
Horfinn er líka gleðimaðurinn og
mannvinurinn sem brá birtu á líf
allra sem honum kynntust. Horfinn
er líka eldhuginn sem starfrækti
metnaðarfullt gallerí norður undir
heimskautsbaug og ævintýramað-
urinn sem ók vélhjóli suður alla
Afríku og sigldi skútu yfir Atlants-
haf.
Elísabet Gunnarsdóttir á aðdáun
okkar allra fyrir þrautseigju sína
og dugnað þennan erfiða vetur
meðan stríðið hefur staðið. Og ung-
ir synir, Jón Kolbeinn og Einar
Viðar, sem alltof skammt nutu föð-
ur síns, eiga vini í hans vinum.
Jón Þór Jóhannsson.
• Fleiri minningargreinar um
Guðmund Thoroddsen bíða birt-
ingar ogmunu birtast í blaðinu
næstu daga.í blaðinu næstu daga.
skólar/námskeið
handavinna
tungumál
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna við Burda. Sparið og saumið
fðtin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Sigríður Pétursd., s. 551 7356.
■ Alþjóðlegir pennavinir
Pennavinaþjónusta á ensku, þýzku,
frönsku, spænsku og portúgölsku.
Sniðug þjónusta. Fáið upplýsingar hjá:
International Pen Friends,
pósthólf 4276, 124 Reykjavík,
sími 881 8181.
ATVIN N U A UGL YSINGA R
Barngóð kona
óskast frá 1. september til að gæta systkina
í Garðabæ alla virka daga frá kl. 14-17.
Börnin eru 6 og 8 ára gömul.
Upplýsingar í síma 565 6675.
Sölustjóri
Stórt bifreiðaumboð óskar eftir að ráða sölu-
stjóra nýrra bíla.
Umsækjandi þarf að hafa reynslu í sölu-
mennsku og góða kunnáttu í enskri tungu.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir
15. júní, merktar: „Sölustjóri - 4281.“
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum umsóknum verður svarað.
Sérkennari
óskast til afleysinga í eitt ár við Æfingaskóla
KHI (Vi staða).
Einnig vantar umsjónarkennara til afleysinga
í 5. bekk frá 1. september til 1. desember
1996 (2/3 staða).
Umsóknarfrestur er til 11. júní.
Upplýsingar veita skólastjórnendur
í síma 563 3950.
Skólastýra.
MÝRDALSHREPPUR
. Mýrarbraut 13, 870 Vík í Mýrda
Kennarar
Mýrdalshreppur auglýsir lausa stöðu sér-
kennara við Víkurskóla, Vík í Mýrdal, næsta
skólaár. Heil staða í afleysingu til eins árs.
Einnig stöðu almenns kennara.
Upplýsingar gefa skólastjóri í símum
487 1242/487 1124 og sveitarstjóri í síma
487 1210.
Framtíðarstarf
- prjónamaður
Við leitum eftirframtíðarstarfsmanni í prjóna-
deild fyrirtækisins. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi einhverja reynslu af prjónavélum
en ekki nauðsynlegt.
Um er að ræða skemmtilegt og krefjandi
starf.
Miklir framtíðarmöguleikarfyrir réttan aðila.
Upplýsingar veitir Baldur á staðnum og í síma
451 2453 milli klukkan 16.00 og 18.00.
Umsóknarfrestur er til 8. júní.
Drífa ehf. er traust fyrirtæki í örum vexti sem stofnaö var árið 1973 og
er einn af leiðandi prjónavöruframleiðendum landsins.
Hjá fyrirtækinu starfa í dag um 35 manns.
Drífa ehf.,
Höfðabraut 6, Hvammstanga.
Rafrún ehf.
óskar að ráða rafvirkja eða rafvirkjanema
til starfa sem fyrst.
Upplýsingar í símum 564 1012 og 557 3687.
Sjöundi himinn ehf.
auglýsingastofa
Engjateigi 19
105 Reykjavík
Sími 5811616
Himinn
auolYsinqastofa
Grafískan
hönnuð
vantar
Góð laun í boði
skemmtileg aðstaða og
spennandi verkefni!
.
Okkur vantar góöan, áhugasaman hönnuö
með haldgóöa reynslu í framtíðarstarf.
Góð tölvukunnátta og létt lund æskileg.
Vilt þú vera í Sjöunda himni?
Upplýsingar í síma 581 1616
athugið að farið verður með allar fyrirspurnir
og umsöknir sem algjört trúnaðarmál