Morgunblaðið - 26.06.1996, Síða 2

Morgunblaðið - 26.06.1996, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR b i Dómsmálaráðherra kynnir skýrslu um átak í ávana- og fikniefnamálum | Launabæt- \ Stofnun Afbrota- og vímu- vamaráðs undirbúin ur greidd- ar 1 juli DÓMSMÁLARÁÐHERRA kynnti nýja skýrslu og tillögur um átak í ávana- og fíkniefnavömum fyrir ríkisstjórninni í gærmorgun. Skýrslan er unnin af verkefnis- stjórn dómsmálaráðuneytisins í ávana- og fíkniefnavömum og hef- ur að geyma lýsingar á þeim atrið- um sem verkefnisstjórnin telur að sé nauðsynlegt að taka á, og beinar tillögur til úrbóta. Tillögurnar em í átta liðum. Lagt er til að ríkisstjórnin marki nú þeg- ar samræmda stefnu í áfengis- og vímuefnavörnum og afbrotavörn- um. í framhaldi af þeirri stefnu- mörkun er lagt til að hafinn verði undirbúningur að stofnun Afbrota- og vímuvarnaráðs. Ennfremur er lagt til að lögreglan starfi mark- visst að því að virkja og vinna með foreldrum að áfengis- og fíkniefna- vörnum. Samvinna löggæslu og tollyfirvalda efld Ýmsar breytingar eru lagðar til á almennum hegningarlögum, lög- ræðislögum og áfengislögum. Gert er ráð fyrir að hraðað verði undir- búningi að staðfestingu fíkniefna- samnings Sameinuðu þjóðanna og að ávana- og fíkniefnadeild lögregl- unnar verði efld sem og samvinna löggæslu og tollyfirvalda. Að síð- ustu er lagt til að brotamenn sem jafnframt eru háðir neyslu ávana- og fíkniefna eigi kost á að ljúka síðustu vikum afplánunar í meðferð. Verkefnisstjórnina skipa þau Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlög- maður, verkefnisstjóri, Björgvin Stefánsson og Sigurður Orri Jóns- son framhaldsskólanemar, Erlendur Baldursson afbrotafræðingur, Jón Hákon Magnússon bæjarfulltrúi, Kristján I. Kristjánssop lögreglu- fulltrúi og Ómar Smári Armannsson aðstoðaryfírlögregluþjónn. Að sögn Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra mun ríkisstjóm- in fjalla um skýrsluna á næsta reglulega fundi sínum og taka ákvarðanir um hvemig unnið verður með einstakar tillögur í framhaldi af því. Ekki fleiri skýrslur „Auðvitað hefur verið fjallað um þessi mál lengi og margt af því sem þarna kemur fram hefur verið nefnt áður. Þetta er sett fram núna sem ákveðnar tillögur sem ég vona að verði unnt að hrinda í framkvæmd. Það sem máli skiptir nú er að það verði ekki fleiri skýrslur heldur framkvæmdir," segir Þorsteinn Pálsson ennfremur. Samþykkt að byggja sundlaugar í Grafarvogi BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær að hefja hönnun á sundlaugum við íþróttamiðstöðina í Grafarvogi. Um er að ræða 25 metra úti- laug fyrir almenning og sund- kennslu og 12,5 metra innilaug fyrir kennslu. Hætt hefur verið við að byggja kennslulaugar við ein- staka skóla í Grafarvogshverf- um, þar með talið Rimaskóla, en við endurskipulagningu í miðhverfi Borgahverfa við Spöng verður haldið opnum framtíðarmöguleika á 25 metra kennslulaug. Áætlaður heildarkostnaður við byggingu lauganna er á bil- inu 300 til 385 milljónir króna. « ... RIKISSTJORNIN samþykkti í gær tillögu Ingibjargar Pálmadóttur heilbrigðis- og tryggingaráðherra að reglugerð vegna greiðslu launa- uppbótar til þeirra sem fá greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins. Kostnaður ríkisins vegna þessara greiðslna er 260 milljónir og er það í samræmi við það sem gert var ráð fyrir í fjárlögum. Við endurskoðun kjarasamninga i nóvember sl. samþykkti ríkis- stjórnin að greiða láglaunabætur til þeirra sem fá greiðslur frá Tryggingastofnun líkt og verið hef- ur undanfarin ár. Greiðslurnar eru til þeirra sem hafa tekjur undir 80 þúsund krónum á fnánuði. Fyrsta júlí nk. verða greiddar lág- launabætur og geta þær hæstar numið 8.980 krónum. 1. ágúst verð- ur greidd uppbót á orlof og getur hún hæst orðið 7.483 krónum. í desember verður greiddur launaauki og getur hann hæstur orðið 8.980 krónum. í desember verður einnig greidd desemberuppbót og getur hún hæst numið 11.224 krónum. I \ I Uppsagnir heilsu- gæslulækna Bjartsýni um lausn Morgunblaðið/Ásdí9 Try g'gingagj ald samræmt á þremur árum Gert ráð fyrir að gjald- þrepið verði 5,5% Mörg handtök Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI í gær var samþykkt að tillögu íjármálaráð- herra að árétta fyrri ákvörðun í bréfi til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að samræma álagningu trygginga- gjalds milli atvinnugreina. Verður gjaldið samræmt í áföngum á næstu þremur árum og að loknum aðlögunartíma á að vera eitt og hið sama gjaldhlutfall fyrir altar viðkom- andi atvinnugreinar. Samkvæmt upplýsingum Friðriks Sophussonar fjármáiaráðherra má gera ráð fyrir að samræmda gjaldið verði 5,5% ef ríkið ætlar að halda núverandi tekjum af gjaldinu en lægra gjaldþrepið er í dag 3,55% og hærra þrepið 6,85%. Ríkisstyrkir að mati ESA Eftirlitsstofnunin hefur gert at- hugasemdir við að mismunandi álagning tryggingargjalds eftir at- vinnugreinum geti talist ríkisstyrkir til þeirra atvinnugreina sem greiða lægra tryggingagjald. Fjármálaráð- herra ætlar að láta útbúa lagafrum- varp á næstu mánuðum um þessar breytingar og leggja það fyrir Al- þingi á haustþingi. í bréfi ríkisstjórnarinnar til ESA segir að breytingamar verði gerðar í þremur áföngum á næstu þremur árum. Á aðlögunartímanum verði tekið upp almennt samræmt gjald- þrep sem taki þá til verulegs hluta af gjaldstofninum og gildi fyrir mest- an hluta framleiðsluiðnaðar og þjón- ustu. í fyrsta áfanga verði dregið verulega úr mismun hærra og lægra gjaldsins og þau aðlöguð samræmdu gjaldi í framhaldi af því. Eftir upp- töku samræmda gjaldþrepsins verði tímabundið lægra og hærra gjaldþrep aðallega fyrir atvinnugreinar, sem ekki falla undir almenn ákvæði EES- samningsins, ýmsa þjónustu og opin- bera starfsemi. HANDTÖKIN eru mörg við sjósóknina þó ekki sé um stór- útgerð að ræða. Á myndinni dyttar Björn Guðjónsson að netum við Ægisíðuna. INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð- is- og tryggingaráðherra kynnti í ríkisstjórninni í gær þær tillögur sem liggja fyrir um lausn deilu ríkis- ins og heilsugæslulækna _umJ)PP- byggingu heilsugæslunnar. Hún ræddi við lækna um málið í gær og sagði eftir fundinn að hún teldi góðar líkur á samkomulagi. „Það hefur verið unnið mjög ötul- lega að lausn málsins á .undánförn- um vikum því það liggur á að ljúka því. Það liggja fyrir titlögur sem ég vona að geti stuðlað að lausn þess,“ sagði Ingibjörg. Fulltrúar heilbrigðisráðuneytis- ins og lækna munu hittast að nýju á morgun og halda viðræðum áfram. Læknar ætla að ræða stöðu málsins í sínum hópi í dag. Um 90% af öllum heilsugæslu- læknum á landinu hafa sagt upp störfum og eiga uppsagnirnar að taka gildi 1. ágúst nk. Þrumur og eldingar í Kelduhverfi ÞRUMUR og eldingar röskuðu ró Keldhverfinga í gær og rafmagn fór af um tíma. Þrumuveðrið stóð óvenjulengi, eða í um rúman hálf- tíma, að sögn Björgvins Árnason- ar í Kelduhverfi. „Þetta voru svo sem ekki neinar náttúruhamfarir, en við erum óvön þrumum og eld- ingum hér. Þessu fylgdi mikið vatnsveður og vegir urðu vel vatnsósa," sagði Björgvin Árna- Færri fomleifa- rannsóknir en í fyrra í sumar fara fram fornleifa- rannsóknir á a.m.k. Qórum stöð- um á landinu. Að sögn Vilhjálms Arnar Vilhjálmssonar fornleifa- fræðings verða rannsóknir nú færri en síðasta sumar, en þá var óvenju mikið um að vera í foraleifarannsóknum á íslandi. Nú stendur yfir uppgröftur við Bessastaði, en rannsóknir hófust þar árið 1987 og hefur Sigurður Bergsteinsson forn- leifafræðingur umsjón með framkvæmdunum. Rannsókn- um við suðurenda forsetabú- staðarins er lokið, en eins og kunnugt er fundust þar m.a. langeldur og silfurpeningur frá fyrstu öldum íslandsbyggðar. Nú standa yfir rannsóknir við norður- og vesturenda forseta- bústaðarins, og gert er ráð fyr- ir að þeim ljúki í sumar. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur mun halda áfram rannsóknum á Hofstöð- um í Garðabæ. Þar hófst upp- gröftur fyrir tveimur árum og mun honum líklega Ijúka í sum- ar. Elsta byggðarlagið á Hof- stöðum er frá fyrstu tíð land námsaldar og þar fannst í fyrra bronsnæla frá 10. öld. Bandaríski fræðimaðurinn Kevin Smith er við rannsóknir að Hálsi í Reykholtsdalshreppi í Borgarfirði. Hann mun ljúka rannsókn sem hann hóf fyrir fimm árum síðan. Þar er um að ræða uppgröft á býli sem er líklega frá fyrri hluta miðalda, þar sem hugsanlega hefur verið búið fram á 13. öld. Auk þess standa yfir um- fangsminni rannsóknir við Nes- stofu á SeKjarnarnesi á vegum Foraleifastofnunar íslands og hugsanlega hefjast rannsóknir í Laxárdal í Skaftafellssýslu síð- ar í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.