Morgunblaðið - 26.06.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996 15
AKUREYRI
NEMENDUR í Sumarlistaskóla
Arnar Inga á Akureyri hafa síð-
ustu ár farið til Hríseyjar og
málað þar í sameiningu eina
stóra mynd á vegg gamla salt-
hússins, en veggurinn er bútaður
Málað í
Hrísey
Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson
niður í bil og taka krakkarnir
eitt slíkt fyrir í einu. Nokkrar
myndir prýða vegginn þegar og
í vikunni unnu núverandi nem-
endur Sumarlistaskólans að sinni
mynd.
Skipulag Háskólans á Akureyri
Tillaga arkitekta-
stofanna Kíms o g
Glámu talin best
TILLAGA Arkitekastofanna
Kíms og Glámu um hönnun og
skipulag Háskólans á Akureyri
var metin best af starfshópi sem
menntamálaráðherra skipaði til
að ú'alla um framkvæmdir háskól-
ans. Arkitektasamkeppni um
hönnun og skipulag Háskólans á
Akureyri lauk með því að tvær
tillögur voru metnar jafn góðar
til útfærslu.
Arkitektarnir sem unnu í sam-
keppninnni eru Ólafur Tr. Mat-
hiesen, Árni Kjartansson, Sigbjörn
Kjartansson, Jóhannes Þórðarson
og Sigurður Halldórsson.
Samningur um
fjármögnun mikilvægur
Næsta skref er að vinna að
áætlun fyrir fyrirhugaðar bygg-
ingarframkvæmdir. Þorsteinn
Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri, telur mikilvægt að í kjöl-
farið verði gerður samningur milli
Háskólans á Akureyri og ráðherra
menntamála og fjármála um fjár-
mögnun byggingarframkvæmda
við Háskólann á Akureyri á hinu
nýja háskólasvæði. Þýðingarmikið
sé að unnið verði eftir heildar-
skipulagi framkvæmda þar sem
samfella og stígandi í verkinu
verði tryggður.
Háskólinn er nú til húsa á sex
stöðum og skapast af því mikið
óhagræði og aukakostnaður. Telur
háskólarektor mikilvægt að
kennsla nemenda geti sem fyrst
hafist í húsnæði á Sólborg og að
miðlæg þjónustu, s.s. bókasafn,
byggist upp samhliða.
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Lengi von á sopa
KETTIRNIR Patti, Snotra og
Nebbi bíða eftir því að mjaltir
hefjist. Þeir leita skjóls hjá
Hörpu, hún amast ekki við þeim
Atvinnuhorfur
skólafólks
Fleiri
strákar án
atvinnu
SAMKVÆMT könnum á at-
vinnuhorfum skólafólks sem
forsvarsmenn Akureyrar-
bæjar létu gera höfðu 71
nemandi eldri en 16 ára ekki
fengið atvinnu um miðjan
júní. Þar af voru 52 karlar
og 19 konur. Langflestír
voru á aldrinum 17 til 18
ára.
Karl Jörundsson starfs-
mannastjóri Akureyrarbæjar
sagði að niðurstaðan yrði lögð
fyrir fund bæjarráðs á morg-
un, fimmtudag og myndi það
væntanlega taka ákvörðun
um framhaldið. Á síðasta ári
var atvinnulausu skólafólki
boðin vinna hjá bænum í 6
vikur.
Karl sagði að um álíka
stóran hóp atvinnulauss
skólafólks væri að ræða nú
og var á liðnu ári.
og úr henni er lengi von á sopa,
en Harpa er besta kýrin í fjósinu
á Tréstöðum í Glæsibæjar-
hreppi.
Atkvæðagreiðsla
utan kjörfundar
Rúmlega
700 hafa
kosið
ALLS höfðu 712 manns kosið utan-
kjörstaðar hjá sýslumanni á Akur-
eyri í gær, en eftir því sem liðið
hefur á vikuna hefur vaxandi fjöldi
fólks lagt leið sína til að kjósa utar.
kjörfundar.
Guðjón Björnsson fulltrúi hjá
sýslumanni sagði að byrjað væri að
bjóða fólki sem dvelst á stofnunum
að kjósa, þegar hefur verið kosið á
hjúkrunarheimilinu Seli, Kristnes-
spítala og Skjaldarvík. í dag verður
kosið í Dalbæ á Dalvík og fangels-
inu og loks á Dvalarheimilinu Hlíð
og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri á morgun.
„Þetta er á svipuðu róli og vant
er, en vanalega hafa kosið hér á
milli ellefu og tólf hundruð manns,“
sagði Guðjón.
Opið er á sýslumannsskrifstof-
unni frá kl. 9-15, 15 til 17 og 20
til 22 út vikuna og á kjördag frá kl.
9 til 21.
sumartilboð/
fallegustu bílarnir nú meö meiri búnaði
Honda Civic 5 dyra 90 hestöfl
traustur fjölskyldubíll
1.384.000.-
staögreitt á götuna
innifaliö umfram staöalbúnaö
- álfelgur
- vindskeið
- þjófavörn
- samlitir stuðarar
Honda Civic 3ja dyra 90 hestöfl
glæsilegur sportbílI
1.399.000.
staagreitt á götuna
innifalið umfram staðalbúnað
- álfelgur
- þjófavörn
- geislaspilari
- 150 w hátalarar
Honda Accord 1.8i 115 hestöfl
uppfyllir kröfur vandlátra
1.749.000.-
staögreitt á götuna
innifalið umfram staöalbúnað
- álfelgur
- vindskeið
- þjófavörn
Umboðsaðilar Honda
á Akureyri: Höldur hf„ Tryggvabraut 12, S: 461 3000
á Egilsstöðum: Bíla- og Búvélasalan ehf., Miðási 19, S: 471 2011
í Keflavik: Bílasalur Suðurnesja., Grófinni 8, S: 421 1200
iyj
HONDA
VATNAGARÐAR 24
S: 568 9900