Morgunblaðið - 26.06.1996, Síða 16

Morgunblaðið - 26.06.1996, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ í hvernig tjald- ferðalag færirðu ef pu ynmr 44 milljonir í Víkingalottóinu? V I K I N G A rwm Til mikils að vinna! Alla miðvikudaga fyrir kl. 16.00. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson MILLI fimmtíu og sextíu bændur af Héraði mættu á fund um sauðfjárræktina í Golfskálanum á Ekkjufelli. Hærra verð fyrir og eftir hefðbundna sláturtíð Vaðbrekku, Jökuldal. - Gerður hefur verið samningur milli Hag- kaupa og bænda í Vestur-Húna- vatnssýslu um slátrun frá 1. júlí til desember og hækkað verð frá 1. júlí sem fari lækkandi fram í lok ágúst en hækki aftur frá október til desember. Lógað verður 200 lömbum á viku uppí þennan samn- ing. Kom þetta fram á fundi Félags sauðfjárbænda á Héraði og Búnað- arsambands Austurlands með sauðfjárbændum. Aðalumræðuefni fundarins var að frá 1. júli er ekki lengur hægt að selja greiðslumark milli bænda og rætt var í framhaldi af því hver staða sauðfjárbænda væri. Á fund- inum höfðu framsögu Sigurgeir Þorgeirsson og Hákon Sigurgríms- son frá Bændasamtökum Islands og Aðalsteinn Jónsson og Lárus Sigurðsson búnaðarþingsfulltrúar. Aðalsteinn fór yfir forsögu máls- ins, það er gerð búvörusamnings og framkvæmd hans til þessa. Fram kom í máli Aðalsteins að útflutningshlutfall verði um 20% í haust. Sagði hann einnig frá að gerður hafi verið samningur milli Hagkaupa og bænda í Vestur- Húnavatnssýslu um slátrun frá 1. júlí til desember og hækkað verð frá 1. júlí sem fari lækkandi fram í lok ágúst en hækki aftur frá októ- ber til desember. Lógað verður 200 lömbum á viku uppí þennan samn- ing. Sagði Aðalsteinn einnig frá hliðstæðum samningi á Suðurlandi. Ekki nógu gott skipulag Fram kom í máli Sigurgeirs Þor- geirssonar að ekki sé nægilega gott skipulag á lógun fjár til út- flutnings, nú er til dæmis allt dilka- kjöt að verða búið hjá útflutnings- sláturhúsunum. Þar af leiðandi er ekki til kjöt nú til að flytja út þótt markaður sé fyrir hendi, þar sem búið sé að selja hluta af kjöti út- flutningssláturhúsanna á innan- landsmarkaði. Það dilkakjöt, sem enn er eftir í landinu, sé frá slátur- húsum er ekki hafa útflutnings- leyfi og þar af leiðandi ekki hægt að flytja það út. Sigurgeir sagði ennfremur frá því að birgðastaða dilkakjöts væri miklu betri en hann hafi þorað að vona fyrir ári, en þá voru eftir um það bil 2.600 tonn en nú er útlit fyrir að aðeins verði eftir 600 tonn þegar sláturtíð hefst í haust. Þess vegna sagði hann allar líkur á að búvörusamningurinn gengi upp þótt hann þyrði ekki að leggja höf- uðið undir. Sigurgeir sagði nokkra mögu- leika á að selja dilkakjöt út sem væri einstaklingsmerkt; það er hægt að rekja það til ákveðins framleiðanda, en stefnt er að að allt vistrænt vottað kjöt verði ein- staklingsmerkt. Fram kom að bráðabirgðaniður- staða úr sauðíjártalningu í vor segi að sauðfé í landinu hafi fækkað um 7% í fyrrahaust. Sigurgeir ít- rekaði að endingu að fækka þyrfti sláturhúsum og auka samstarf og samnýtingu þeirra er eftir verða. Hákon Sigurgrímsson sagði frá möguleikum sauðfjárbænda til að gera samninga um lækkun ásetn- ingshlutfalls, það er þeir haldi bein- greiðslum en snúi sér að öðrum verkefnum, aðallega umhverfis- verkefnum og ferðaþjónustu, einn- ig kemur til greina nám og starfs- þjálfun. Nýr verkaskiptasamningur Lárus Sigurðsson fór yfir verka- skiptasamning milli Bændasam- taka íslands og Landssamtaka sauðfjárbænda, þar sem fram kem- ur að Landssamtök sauðfjárbænda munu í framtíðinni sjá um málefni sauðfjárræktarinnar að mestu leyti. Hvatti Lárus sauðfjárbændur til að standa vel saman um málefni sauðfjárræktarinnar og forvinna mál er sauðfjárræktina varða innan raða sauðfjárbænda áður en þau væru lögð fyrir Bændasamtök Is- lands, eins og víða tíðkaðist í hinum búgreinafélögunum hér á landi. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir Stærsta terta á Austurlandi Egilsstöðum - Héraðsbúar og ferðafólk gæddi sér á stærstu tertu sem sést hefur á Austur- landi nú um helgina. Tertan var 13,8 m að lengd og var bökuð í tilefni af því að Stöð 2 og Bylgj- an voru með beina útsendingu frá Egilsstöðum um helgina. Það var Guðmundur Paul Jónsson, bakari í Brauðgerð KHB, og hans aðstoðarfólk sem sá um bakstur- inn. Um 440 egg fóru í kökuna, um 701 af ijóma og 45 kg af marsípani. Peningagjöf til bóka- safnsins á Flateyri Flateyri - Nýverið afhenti einn af íbúum Flateyrar, Ragnheiður Erla Hauksdóttir, veglega pen- ingagjöf sem á að renna til bóka- safn Grunnskólans á Flateyri. Gjöfin er til minningar um mann hennar, Þórð Júlíusson, sem fórst í snjóflóðinu haustið 1995. Einnig hefur hún í hyggju að láta skrautskrifa skjal til handa skól- anum og kirkjunni. Þar að auki á að búa til minningarkort sem skólinn á að nota til fjáröflunar vegna bókakaupa. Björn Hafberg skólastjóri veitti gjöfinni viðtöku og þakkaði fyrir hlýjan hug gef- anda. Það kom fram í samtali við Ragnheiði að hún flutti í burtu strax eftir flóðið. Þetta er í fyrsta skipti eftir flóð sem hún kemur til Flateyrar. Hún hefði ekki tfeyst sér til þess en komist síðan að því að hún yrði að horfast í augu við orðinn hlut. Nú hefði hún séð þetta og vissulega liði sér illa en hún væri samt fegin að hafa komið. Hún væri sátt og sér liði vel hérna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.