Morgunblaðið - 26.06.1996, Qupperneq 22
ERLENT
22 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Væringar í Washington
í nýrri bók blaðamannsins Bobs Woodwards
segir meðal annars af varaforsetadraumum
Bobs Doles, ofsóknarkennd Bills Clintons
og handanheimsreynslu Hillary konu hans
BOB Dole, forsetaframbjóðandi
Repúblikanaflokksins í Bandaríkj-
unum, er byrjaður að leita dyrum
og dyngjum að frambærilegu vara-
forsetaefni, og hefur gert aðstoðar-
fólki sínu að finna mann sem ekki
yrði móðgun við íhaldsmenn í flokkn-
um. Á meðal þeirra 15 sem hafa
verið nefndir eru James Baker, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, og Ric-
hard Cheney og Donald Rumsfield,
sem báðir hafa gegnt embætti varn-
armálaráðherra.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri bók bandaríska blaða-
mannsins Bobs Woodwards, sem á
sínum tíma vann sér það til frægðar
og frama, ásamt samstarfsmanni
sínum, Carl Bernstein, að koma upp
um Watergate-hneykslið, sem leiddi
til afsagnar Richards Nixons, þáver-
andi forseta.
í blaðinu International Herald
Tribune var nú í byijun vikunnar
greint frá því helsta sem Woodward
fjallar um í bókinni, sem heitir „The
Choice", eða Kjörið.
Dole er sagður hafa helst viljað
fá Colin Powell, fyrrum forseta
bandaríska herráðsins, en síðan
komist að þeirri niðurstöðu, að Pow-
ell myndi vera ófáanlegur til starf-
ans. Dole mun hafa hrósað Bill Clin-
ton, forseta, fyrir valið á A1 Gore
sem varaforseta, en gagnrýnt Ge-
orge Bush, fyrrverandi forseta, fyr-
ir að hafa fengið Dan Quayle til
liðs við sig 1988.
Washington-liðið
í bók Woodwards er fjallað um
kapphlaup repúblikananna sem vildu
verða forsetaefni flokksins, og veru
Clintons í Hvíta húsinu undanfarið
eitt og hálft ár.
Meðal annars er greint frá ör-
væntingu forsetans og angri vegna
„svikara meðal starfsfólks míns“ og
í „Washington-liðinu,“ þegar hann
var að reyna að komast á réttan
kjöl eftir að repúblikanar sigruðu í
þingkosningunum 1994.
Þá segir af hörðum innanbúðará-
tökum í kosningaherferð Doles þeg-
ar hann barðist fyrir því að verða
forsetaefni flokksins, og ósætti hans
við þá íhaldsömustu í flokknum
Aðstoðarmenn Doles eru sagðir hafa
átt í hinu mesta basli vegna þess
að frambjóðandinn þeirra var með
öllu ófær um að tala við kjósendur
ef hann hafði ekki skrifaða ræðu
fyrir framan sig.
Fram kemur, að þegar verið var
að telja atkvæði í forkosningunum
í New Hampshire í febrúar sagði
Dole við aðstoðarfólk sitt, að myndi
hann hafna í þriðja sæti yrði hann
að hætta við framboð. Hann varð í
öðru sæti, á eftir Patrick Buchanan.
Woodward segir að hann hafí
bytjað vinnu við bókina skömmu
EVmRUDE
UTANBORÐSMÓTORAR
...og
þú ert fær
í flestan sjó
ÞQR HF
PEYKJAVlK - AKUREVRI
Reykjavík: Ármúla 11, s: 568-1500
Akureyri: Lónsbakka, s: 461-1070
Reuter.
BILL og Hillary Clinton.
fyrir þingkosningarnar 1994, og
hafi hann talað við mörg hundruð
manns vegna verksins. Hann hafi
alls átt 12 klukkustunda viðtöl við
Dole, en Clinton hafi ekki verið fáan-
legur til viðtals. Segist Woodward
hafa heitið flestum heimildamönnum
sínum að greina ekki frá nöfnum
þeirra, en tilvitnanir og samtöl sem
greint sé frá í bókinni séu komin frá
þeim sem hann talaði við, eða byggð
á minnisatriðum eða dagbókarfærsl-
um sem hafi verið skrifaðar strax
eftir viðtölin.
„Sjáðu þessa bjána“
I bók Woodwards er fjallað um
persónuleg samskipti Clintons og
Doles, og meðal annars greint frá
því hvernig Dole hafí reynt að bæta
fyrir að hafa atyrt Clinton daginn
sem móðir forsetans dó úr krabba-
meini 1994. Er Clinton sagður hafa
orðið bálvondur út í Dole, sem lagði
fram kröfu um að óháður aðili yrði
fenginn til að rannsaka Whitewater-
málið, sama dag og forsetinn missti
móður sína. Mun Clinton hafa þótt
þetta athæfi Doles ófyrirgefanlegt.
Woodward segist hafa minnst á
þetta þegar hann ræddi við Dole í
apríl. Hafi Dole fyrst ekki viljað trúa
því að hann hefði atyrt forsetann
undir þessum kringumstæðum. Síð-
ar hafi Dole skrifað Clinton afsökun-
arbeiðni, þar sem sagði: „Þetta bréf
skrifa ég ekki sem öldungadeildar-
þingmaður eða forsetaframbjóðandi,
heldur sem einstaklingur, alinn upp
við að maður skyldi ætíð vera kurt-
eis.“
Fram kemur í bók Woodwards,
að Clinton ber virðingu fyrir þing-
manninum Dole, og taldi hann besta
forsetaefni Repúblikanaflokksins.
„Sjáðu þessa bjána sem eru í fram-
boði hjá þeim,“ mun forsetinn hafa
sagt við fréttafulltrúa sinn, Michael
McCurry, fyrr á þessu ári. „Dole er
eini maðurinn sem hefur einhverja
hæfileika í starfið."
Samtöl við Eleanor
Woodward greinir frá því, að á
meðan öllu þessu fór fram hafi for-
setafrúin, Hillary Rodham Clinton,
átt í persónulegu basli vegna þess
að henni hafi fundist almenningur
hafa hafnað henni, og verið komin
í hana uppgjöf. Hún hafí kynnst
náið Jean Houston, einum af stjórn-
endum Hugarrannsóknarstofnun-
arinnar, þar sem rannsökuð er „sál-
ræn reynsla og útvíkkuð meðvit-
und.“ Segir Woodward að Hillary
og Houston hafi hist reglulega í
Hvíta húsinum, og hafí fundir þeirra
orðið forsetafrúnni nokkur hugfró.
Houston er lýst sem „trúaðri á
anda, dulræn og söguleg tengsl við
fortíðina og aðra heima." Áður hafi
hún tíðkað að leiða fólk í trans, dá-
leitt það og gert tilraunir með of-
skynjunarlyfið LSD. Ilún hafí þó
ekki beitt þessum meðulum á fund-
unum með forsetafrúnni.
Lýst er fundi þeirra í Hvíta hús-
inu, þar sem Houston hvatti Hillary
BOB Dole.
til þess að hefja ímyndað samtal við
fyrrum forsetafrú, Eleanor Roose-
velt. Með augun lokuð hafi Hillary
byijað að tala við frú Roosevelt, og
hafði síðan hlutverkaskipti og svar-
aði eins og hún ímyndaði sér að frú
Roosevelt hefði svarað.
Hillary mun líka hafa með þessum
hætti sett sig í hlutverk Mahatmas
Gandhis, en þegar Houston hafi
stungið upp á ímynduðu samtali við
Jesú Krist, á þennan hátt, hafi Hill-
ary ekki litist á blikuna, og þótt það
of persónulegt.
Hillary hefur greint frá því, að
hún hafí „stundum“ átt „ímyndaðar
samræður við frú Roosevelt til þess
að reyna að átta mig á hvað hún
hefði gert í mínum sporum.“ Frétta-
stofa Reuters greinir frá því, að á
mánudaginn hafi forsetafrúin brugð-
ist við fullyrðingum Woodwards.
Gaf Hillary út ýtarlega yfirlýsingu
sem fréttaskýrendur telja vera tilraun
til að koma í veg fyrir að upplýs-
ingarnar, um þessar ímynduðu sam-
ræður við frægt, látið fólk, verði
hafðar til marks um að forsetafrúin
hafi undarlegar trúarskoðanir og
skringilega skapgerð. í yfírlýsingunni
segir, að þessar ímynduðu samræður
hafi einungis verið æfingar fyrir hug-
ann, og ekki andleg reynsla. Er orðið
„ekki“ undirstrikað í yfirlýsingunni.
Ekki í fótspor Nancy
Löngum hefur verið vitað að Hill-
ary finnst hún eiga margt sameigin-
legt með frú Roosevelt, sem var
áberandi og umdeild forsetafrú frá
1933 til 1945. í yfírlýsingunni segir
Hillary, að Houston, sem við aðra
konu hafði umsjón með samræðum
Hillary við frú Roosevelt, hafi hjálp-
að henni við undirbúning ferðar til
Suður-Asíu í fyrra og við að skrifa
bók um vandann við að ala upp börn.
Hillary er í mun að vera ekki álit-
in sporgöngukona fyrrum forset-
afrúar, Nancy Reagan, sem oft leit-
aði ráða hjá stjörnuspekingum þann
tíma sem maður hennar sat á for-
setastóli. Varð grínistum tíðrætt um
Naney, og varð hún að athlægi með-
al margra stjórnmálamanna.
Sprengjur
áttí að nota
bráðlega
VOPN sem írska iögreglan
lagði hald á er hún fann leyni-
lega sprengjuverksmiðju írska
lýðveldishersins IRA, átti að
nota „bráðlega" að sögn Johns
Brutons forsætisráðherra ír-
lands. Hann sagði það mat
lögreglu að tugir sprengja sem
voru í smíðum, þar sem nýrri
tækni var beitt, hefði senn átt
að nota. Bruton ítrekaði áskor-
anir til Sinn Fein, stjórnmála-
arms IRA, að segja skilið við
ofbeldi og stuðla að nýju
vopnahléi IRA í átökunum um
yfirráð á Norður-írlandi.
Sjö sleppt í
Nígeríu
YFIRVÖLD í Nígeríu létu í gær
lausan ritstjóra vikuritsins
TELL sem handtekinn var í
desember og haldið hefur verið
síðan án þess að ákæra væri
nokkru sinni gefín út. Hafa þá
sjö pólitískir fangar verið látnir
lausir á tveimur dögum en ní-
gerísk stjórnvöld freista þess
að koma aftur á eðlilegu sam-
bandi við ríki breska samveldis-
ins. Voru Nígeríumenn reknir
úr því tímabundið vegna
ástands mannréttindamála.
Jiddískt dag-
blað hættir
SÍÐASTA dagblaðið sem gefíð
er út á jiddísku, hinu gamla
tungumáli austur-evrópskra
gyðinga, Unzer Wort, lagði
upp laupana í París í gær.
Ástæðan er mikill útgáfu-
kostnaður og dugði ekki til
þótt margir sjálfboðaliðar
legðu blaðinu lið undir það síð-
asta. Undanfarin ár hafði út-
gáfan dregist saman og út-
gáfudögum fækkað.
Fresta af-
mælishátíð
drottningar
LANDSTJÓRNIN í Hong
Kong hefur ákveðið að fresta
hátíðahöldum vegna afmælis
Elísabetar Bretadrottningar á
næsta ári til 30. júní en þann
dag lýkur 150 ára yfirráðum
Breta þar. Drottningin fæddist
í apríl en afmælis hennar er
jafnan minnst um miðjan júní.
Bar afmælishátíðina upp á 17.
júní á þessu ári.
Itreka and-
stöðu við
kjarnorku-
bann
INDVERJAR ítrekuðu í gær
andstöðu sína við bann við til-
raunum með kjamorkuvopn.
Sögðust þeir ekki myndu láta
þrýsting á alþjóðavettvangi
knýja sig til stefnubreytingar,
að sögn Mulayams Singhs
vamarmálaráðherra. Hann
sagði nýtt samkomulag um
bann við kjarnorkutilraunum
tryggja nokkmm ríkjum kjam-
orkuvamir og um leið útiloka
önnur sem væri ósanngjamt.