Morgunblaðið - 26.06.1996, Síða 38

Morgunblaðið - 26.06.1996, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ 38 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996 YFIRLÝSING BAIMDALAGS ÍSLENSKRA LISTAMANNA Uppbygging íslenskrar kvikmyndagerðar - Framtíðarsýn - MORGUNBLAÐIÐ birtir hér í heild yfirlýsingu Bandalags ís- lenskra listamanna um uppbygg- ingu íslenskrar kvikmyndagerðar: Inngangnr Það eru tímamót í íslenskri kvik- myndagerð. Bernskuskeiðið er að baki og sá tími runninn upp að velja verður henni leið til fulls þroska. Ákvarðanir um þetta mega ekki dragast því að ýmsar þær stoðir, sem íslensk kvikmyndalist hefur hingað til byggt á, eru nú að bresta. Skýrasta dæmið um þetta eru breytt viðhorf ýmissa erlendra styrktarsjóða og fjárfesta í þá átt að stórminnka framlög til íslenskrar kvikmyndaframleiðslu vegna þess hversu lítið íslendingar sjálfir leggja af mörkum til við- komandi verkefna. Þá hafa á síð- ustu misserum margir af bestu kvikmyndagerðarmönnum þjóðar- innar flust búferlum til annarra landa þar sem þeirra bíða verkefni er mæta kröfum þeirra um listræn- an metnað og fagleg vinnubrögð. I þessum hópi eru m.a. kvikmynda- tökumenn, tónskáld, hljóðmenn, klipparar, leikmyndahönnuðir, leikstjórar og framleiðendur. Sjö íslenskar kvikmyndir í fullri lengd voru frumsýndar á síðasta ári og hafa þær aldrei verið fleiri. Á þessu ári verða þær hins vegar aðeins ein eða tvær. Þegar til lengri tíma er litið mun þeim fækka jafn- vel enn frekar. Að öllu óbreyttu verða því aðeins gerðar hér kvik- myndir að þær verði með ensku tali. Slík framleiðsla getur vart talist íslensk framleiðsla nema venjubundnum skilningi á því hug- taki sé umturnað. Kvikmyndagerð í sjónvarpi hef- ur aldrei náð þeim þroska sem væntingar stóðu til. Mest af því efni sem nú er framleitt er sundur- laust dægurefni af ódýrustu gerð og telst það til undantekninga að lagt sé í flóknari framieiðslu sem krefst meiri tíma og ijármagns. Fyrr á árum voru gerðar mark- verðar tilraunir til þess að búa til samfellt leikið efni til sýninga í sjónvarpi, en slíkt sést varla leng- ur. Fyrir bragðið hefur smám sam- an dregið úr metnaði manna til þess að gegnumsemja verk sín frá upphafi til enda og fínsmíða hvern þátt þess þannig að úr verði þrótt- mikil heild. Þetta gerist á sama tíma og þeim stöðvum fjölgar mjög, sem endurvarpa beint dag- skrám erlendra stöðva, og erlent menningar- og afþreyingarefni dembist yfir þjóðina af meiri krafti en nokkurn tímann fyrr hefur þekkst. Islenskir listamenn láta vöxt og viðgang íslenskrar kvikmynda- gerðar koma sér við og þeir hvorki vilja né geta setið hjá þegar hryn- ur undan þessari ungu listgrein með þeim hætti sem nú gerir. Það er um það að tefla hvort verki frumkvöðlanna verði haldið áfram og hvort íslensk hugsun og íslensk- ur veruleiki fái komist upp á þann kvika skjá þar sem nú í dag er hvað harðast barist um hollustu og athygli fólksins sem í landinu býr. Kvikmyndagerðarmenn hafa margsinnis, bæði í ræðu og riti, varað við þeirri þróun sem hér hefur verið lýst og bent á ýmsar leiðir til úrbóta. Því miður hefur fyrirhöfn þeirra lítinn árangur bor- ið hingað til. Það er því ekki að ófyrirsynju, að stærstu lista- mannasamtök þjóðarinnar, Banda- lag íslenskra listamanna, skuli senda frá sér yfirlýsingu um eina ákveðna listgrein með þeim hætti sem nú er gert og leggja fram til- lögur um úrbætur, sem gætu leitt hana frá yfirvofandi hruni til öflug- rar uppbyggingar. Sú leið hefur hér verið valin að leggja fram hugmyndir um sem flesta þætti málsins frekar en að eyða löngum texta í að útfæra ein- stakar þeirra í smáatriðum. Með því móti fæst betri yfirsýn en ann- ars fengist og minni líkur á að umræðan snúist upp í karp um lít- ilsverða hluti. Mikilvægast er að stefnan sé skýr og aðferðirnar ljós- ar, - hitt kemur á eftir. Stjórn Bandalagsins stendur ein- huga að þessu plaggi og leggur það fram til kynningar í þeirri trú að efni þess verði tilefni málefna- legra umræðna um framtíðarskip- an íslenskrar kvikmyndagerðar og hvernig á því sviði megi snúa ör- væntingarfullu undanhaldi í þróttmikla sókn. Það er skoðun stjórnarinnar1 að aldrei hafi það verið mikilvægara en einmitt nú að stutt sé með öllum tiltækum ráðum við framgang íslenskrar listmenningar og henni tryggðar leiðir til áframhaldandi þroska og endurnýjunar. í þessu efni gegnir kvikmyndalistin lykilhlutverki. í henni sameinast hugur og hönd listamanna úr ólíkum greinum og hún býr jafnframt yfir meira afli en flest annað til þess að móta þankagang og almenn viðhorf fólks. Það mun vissulega kosta þjóðina nokkra peninga að framkvæma þær tillögur um uppbyggingu kvik- myndagerðar sem hér eru settar fram. Þær upphæðir eru hins vegar smáar þegar litið er til þess að í húfi er forræðið yfir kvikmynda- gerð í landinu og varnir um menn- ingarlegt sjálfstæði þjóðarinnar. íslenskir listamenn telja að fólk verði að vakna til vitundar um það, að það getur aldrei orðið okkar fámennu þjóð fyrirhafnarlaust að halda eigin litum í hinni alþjóðlegu menningarsambræðslu og að sjálfs- virðing okkar er undir því komin hvort okkur tekst að stand^ á eigin fótum í því menningarpólitíska haf- róti sem framundan er. Sjálfstæð kvikmyndagerð, sprottin úr okkar eigin umhverfí og af okkar eigin hugsunum, er ein mikilvægasta for- senda þess að vel takist. Úttekt Listsköpun í nútímasamfélagi byggist á atvinnumennsku. Lista- menn búa yfir sérþekkingu og hafa langa þjálfun að baki í sinni grein. Samkeppnin er hörð og þeg- ar dæmt er á milli manna er spurt um árangur en ekki aðstæður. Á íslandi hefur atvinnumennska í listum átt erfitt uppdráttar. Ein skýringin er sú að flutningur fólks í þéttbýli á sér styttri sögu hér en í nálægum menningarlöndum. Önnur skýring er að hér hefur það verið almennt viðhorf, að listmennr ing sé munaður sem óþarfi sé að eyða í peningum. Með auknum samgangi við aðrar þjóðir er mönn- um þó smám saman að skiljast, að hér verða breytingar að verða á og að níska í menningarmálum getur orðið þjóðir.ni dýrkeypt. Framlög ríkissjóðs til listrænnar starfsemi í landinu hefur á síðustu árum numið um 0,8%-0,9% af út- gjöldum, og hefur þróunin frekar verið í átt til lægri hlutfallstölunn- ar. Reykjavíkurborg leggur um það bil 1,8-2,0% af útgjöldum sínum til þessa málaflokks, en um þetta hlutfall hjá öðrum sveitarfélögum er ekki vitað. Allt bendir þó til þess að þar sé það enn lægra. Af óbeinum framlögum má helst nefna að hluti af rekstrartekjum Ríkisútvarpsins rennur til dag- skrárgerðar, sem byggir á störfum atvinnufólks í listum, og úr Menn- ingarsjóði útvarpsstöðva, sem fær tekjur sínar af auglýsingum í ljós- vakamiðlum, eru veittir styrkir til innlendrar dagskrárgerðar og til reksturs Sinfóníuhljómsveitar ís- lands. í nágrannalöndunum tíðkast það að listalífið sé látið njóta arðsemi af ýmsum happaspilum og get- raunum sem löggildingar þarf við. Svo er ekki á Islandi. Þá er þátt- töku einkafyrirtækja í einstökum verkefnum þröng takmörk sett vegna þess hversu flest þeirra eru lítil og vegna skattreglna sem lítt umbuna slíku samstarfi. Kvikmyndagerð byggir á því að í landinu sé öflug atvinnumennska, jafnt í greininni sjálfri sem í öðrum þeim greinum sem henni tengjast, s.s. í leiklist og tónlist. Það er með mismunandi hætti hvernig það fé, sem ríkissjóður og Reykjavíkur- borg leggja til listrænnar starf- semi, skiptist á milli listgreina. Leiklistin fær stærstan hluta af framlögum ríkisins, eða um 380 milljónir króna skv. fjárlögum fyrir 1996z og úr borgarsjóði er áætlað að renni um 150 milljónir til leik- listar á þessu ári. Þessi framlög ríkisins og borgarinnar skapa for- sendur fyrir rekstri atvinnuleik- húsa í landinu, en án þeirra væri allt leiklistarlíf í landinu í skötulíki. Með svipuðum hætti er^ starf- semi Sinfóníuhljómsveitar Islands sá grunnur sem tónlistarlífið í land- inu hvílir á. Hljómsveitinni eru ætlaðar um 150 milljónir frá ríki og borg á þessu ári auk framlags frá Menningarsjóði útvarpsstöðva.3 Skáld og rithöfundar fá aðallega stuðning við listsköpun sína í formi starfslauna úr Launasjóði rithöf- unda, og með sama hætti fá mynd- listarmenn úr Myndlistarsjóði. Framlög ríkissjóðs til kvik- myndamála felast í ijárveitingum til Kvikmyndasjóðs og Kvikmynda- safns. Kvikmyndasafninu eru ætl- aðar á þessu ári 8 milljónir króna og Kvikmyndasjóði 93 milljónir. Af framlaginu til Kvikmyndasjóðs má ætla að u.þ.b. 60 milljónir fari beint í framleiðslu kvikmynda. Reykjavíkurborg lætur lítið sem ekkert fé renna til kvikmyndamála óg önnur bæjarfélög ekki neitt. Menningarsjóður útvarpsstöðva tekur þátt í fjármögnun á dag- skrárgerð fyrir sjónvarp, og er áætlað að sjóðurinn veiti til þess um 53 milljónum á þessu ári. Tölum um kostnað Ríkisút- varpsins vegna innlendrar dag- skrárgerðar ber ekki saman og fara þær eftir þeim forsendum sem gengið er út frá hverju sinni. Ráð- stöfunarfé Innlendrar dagskrár- deildar Sjónvarpsins nam um 200 milljónum árið 1994, sem jafngild- ir um 10% af heildarveltu Ríkisút- varpsins það ár. Heildarkostnaður við dagskrárgerð deildarinnar (þ.e. ráðstöfunarfé IDD plús ógjald- færður innri kostnaður Sjónvarps) skv. útreikningum hagdeildar RUV nam um 400 milljónum króna, sem er sama upphæð og heildarkostn- aður vegna Fréttadeildar Sjón- varps. Af þessum tölum má ráða að innlend dagskrárgerð, önnur en íþróttir og fréttir, hefur mjög tak- markað vægi innan þeirrar stofn- unar, sem þó byggir tilverurétt sinn ekki síst á því að halda slíkri starfsemi úti. Tölur liggja ekki á lausu um það hversu stór hluti þessarar upphæð- ar hafi runnið til framleiðslu fullbú- inna sjónvarpsmynda eða kvik- mynda né heldur hversu stór var hlutur leikins efnis. Af þeim sjón- varpsdagskrám sem birst hafa landsmönnum má hins vegar ætla að hlutur þessa efnis sé aðeins lít- ið brot af heildarfjárhæðinni, lík- lega ekki meir en 10%. Sé miðað við það hlutfall hefur framlag Ríkisútvarpsins til kvik- myndagerðar/sjónvarpsmyn- dagerðar árið 1994 verið á bilinu 20-40 milljónir eftir því við hvorn stofninn er miðað. Ekki eru neinar vísbendingar um að Ríkisútvarpið hafi aukið hlut sinn hvað þetta varðar síðan þá. Þessar tölur benda til þess, að framlög þjóðarinnar til íslenskrar kvikmyndagerðar (hvort sem er fyrir skjá eða tjald) sé um það bil 130-150 milljónir króna. I þeim felast bæði bein framlög (s.s. úr Kvikmyndasjóði) og óbein (Menn- ingarsjóður útvarpsstöðva, Ríkis- útvarpið). Útreikningarnir bera aftur á móti ekki í sér þann bein- harða arð sem þjóðarbúið fær af kvikmyndagerðinni í formi skatta, erlendra fjárfestinga og almennrar landkynningar, en fullyrða má að hann sé engu minni en hin opin- beru framlög. Ábyrgð og skyldur hinna svo- kölluðu „ftjálsu sjónvarpsstöðva“ á íslandi eru engar hvað varðar framleiðslu á íslensku efni. Víða erlendis eru strangar reglur varð- andi hlutfall t.d. innlends leikins efnis af heildarútsendingartíma slíkra stöðva (sbr. t.d. TV-4 í Sví- þjóð, sem ber skylda til að sýna 40 klukkustundir af sænsku leiknu efni á ári). Ef einhveijar álíka regl- ur giltu hér myndu óbein framlög til kvikmyndagerðar að sjálfsögðu hækka, en eins og nú er statt eru framlög þessara stöðva ekki telj- andi, þrátt fyrir mikla veltu og góða afkomu. Kvikmyndagerð er dýr listgrein. Hún krefst mikilla íjárfestinga í þekkingu, tæknibúnaði og þjálfun lista- og tæknimanna. Þessar fjár- festingar tapast að miklu leyti sé ekki samfella í rekstri fyrirtækj- anna auk þess sem öll kynning og markaðssetning verður miklu erf- iðari en ella. Þó að kvikmyndagerð sé dýr hafa íslendingar yfirleitt rekið hana fyrir mjög lítið fé. Fjárfest- ingar í tæknibúnaði, þjálfun og þekkingu hafa verið litlar og ekki nýst sem skyldi. Framleiðslufyrir- tækin eru flest hver agnarsmá og því mjög viðkvæm fyrir minnstu skakkaföllum. Óvissa í fjármögnun eykur kvöl framleiðendanna enn frekar, og oftar en ekki þurfa þeir að leggja allt, sitt undir til þess að fleyta verkefnum sínum áfram. Þá er það yfirleitt tilviljunum háð hvernig ijármögnun tekst og hve- nær verkefni berast mönnum í hendur. Þetta gerir fólki erfitt að halda sér í nauðsynlegri þjálfun og kunnátta glatast. Þegar nú við bætist, að erlendir sjóðir og fjárfestar hafa minni vilja en fyrr til þess að setja fé í gerð íslenskra kvikmynda, er eðlilegt að menn spytji sig hvort einhver framtíð sé í íslenskri kvikmynda- gerð. Þeirri spurningu höfum við ekki efni á að svara öðruvísi en með beinum aðgerðum. I því sambandi er rétt að minna á að í dag eru flestar evrópskar kvikmyndir og stór hluti sjónvarps- efnis framleitt í samvinnu margra fyrirtækja, sem geta verið ólík að gerð og langt á milli þeirra landa þar sem þau starfa. Yfirleitt kemur slíkt þó ekki að sök svo framarlega sem hver getur treyst öðrum. Traustið byggir á því, að viðkom- andi fyrirtæki geti staðið við skuld- bindingar sínar, en til þess að svo megi vera verður reksturinn að vera öruggur og starfsumhverfið í jafnvægi. Þessar forsendur eru því miður ekki fyrir hendi á ís- landi og því verður að breyta. Tillögur 1) Kvikmyndasjóður íslands Kvikmyndasjóður íslands verði efldur með beinum framlögum úr ríkissjóði. Þetta verði gert í áföng- um á fjórum árum og bætist 70 milljónir við hann á ári. Um alda- mótin gætu árleg framlög sjóðsins til kvikmyndagerðar þannig numið um 380 milljónum króna. Við þessa upphæð bætast framlög einkafyr- irtækja, sem fengju skattaafslátt í samræmi við framlög sín. Hlutverk sjóðsins verði breytt þannig að hann hefði þann eina tilgang að leggja fé til sjálfrar framleiðslunnar. Með því móti gæti Kvikmyndasjóður á hvetju ári orðið aflvaki framleiðslu 7 til 8 leikinna kvikmynda í fullri lengd auk nokkurra smærri verkefna. Þátttaka Islands í erlendu kvik- myndasamstarfi svo sem í Nor- ræna Film og TV Fonden, Media- áætluninni og Eurimages verði fjármögnuð beint af ráðuneyti, en ekki tekin af fé til kvikmyndafram- leiðslu 2) Kvikmyndasjóður Reykja- víkur Reykjavíkurborg taki þátt í kvikmyndasköpun í landinu með árlegum framlögum í sérstakan sjóð, Kvikmyndasjóð Reykjavíkur. Stofnað yrði til sjóðsins í áföngum á fjórum árum með árlegri viðbót sem næmi 30 milljónum króna. í fullri stærð rynnu þannig til sjóðs- ins 120 milljónir á ári. Hlutverk sjóðsins yrði það helst að styrkja nýsköpun í kvikmynda- gerð og verk þeirra sem eru að ýta úr vör í fyrsta sinn. Kvik- myndasjóður Reykjavíkur legði með þessum hætti sérstaka rækt við rótina sem allt annað vex upp af. Hluti af tekjum Kvikmyndasjóðs Reykjavíkur væri látinn renna til reksturs sérstaks sýningarhúss, sem hefði það hlutverk að auka á fjölbreytni þeirra kvikmynda sem í boði eru og sýna mvndir ís- lenskra höfunda. 3) Sjónvarpssjóður/dagskrár- sjóður Sjónvarpssjóður taki við því hlutverki Menningarsjóðs útvarps- stöðva að efla gerð heimildar- mynda og gerð leikins sjónvarps- efnis. Sjóðurinn fái tekjur sínar af sérstöku gjaldi sem lagt yrði á brúttóveltu allra sjónvarpsstöðva (þar með töldum endurvarpsstöðv- um fyrir erlent sjónvarpsefni). Sé miðað við 5% gjald af núverandi brúttóveltu má ætla að til sjóðsins renni á bilinu 200-250 milljónir á ári. Auk þess fengi sjóðurinn tekj- ur af sérstöku leyfisgjaldi (auð- lindagjaldi) sem yrði innheimt fyrir afnot af sjónvarpsrásum. í þessum sjóði eins og í öðrum sjóðum er mikilvægt að fengið sé fólk til þess að úthluta framlögun- um, sem hafi meiri þekkingu og innsýn en aðrir á viðkomandi sviði. 4) Höfundasjóður Settar verði fyrir því heimildir í lögum að hægt verði að inn- heimta fast krónugjald af útleigð- um myndkassettum og diskum hjá myndbandaleigum og öðrum þeim er leigja út kvikmyndir og mynd- efni. Féð, sem þannig aflaðist, yrði látið renna í sérstakan sjóð, Höf- undasjóð, sem hefði þann sérstaka tilgang að efla handritagerð og tónsköpun fyrir íslenskar kvik- myndir, hvort sem þær eru ætlaðar fyrir kvikmyndahús eða sjónvarp. Stjórn sjóðsins yrði í höndum höf- unda og framleiðenda en undir eftirliti menntamálaráðuneytisins. 5) Starfslaun Listasjóður, sem fellur undir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.