Morgunblaðið - 29.06.1996, Page 8
8 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÉG er bara að æfa mig fyrir djobbið frú forseti . . .
Prestastefna um skipun presta í embætti
Æviráðning innan kirkju
en skipaðir tímabundið
Fjallað var um skipun
presta í embætti sam-
kvæmt nýjum lögum
um opinbera starfs-
menn á Prestastefnu
sem lauk á fimmtudag.
FLESTIR sem til máls tóku voru
andvígir því að æviráðning presta
væri afnumin en virtust sjá þá leið
færa að myndað yrði embættisveit-
ingakerfi sem skipaði menn til þjón-
ustu innan kirkjunnar almennt.
Prestar yrðu æviráðnir hjá kirkj-
unni en skipaðir tímabundið af
sóknamefndum. Með þessu móti
gæti orðið hreyfmg á prestum milli
sókna.
Baldur Kristjánsson, biskupsrit-
ari, minnti á að Alþingi hefði nýlega
samþykkt lög um réttindi og skyld-
ur starfsmanna ríkisins. „Það sem
snýr að okkur í þessum efnum er
það að prestar verða embættismenn
áfram en lögin gera ráð fyrir að
embættismenn séu aðeins skipaðir
til fimm ára í senn. Það er alveg
Ijóst að þetta hefur veruleg áhrif á
okkar embættisgjörð," sagði Bald-
ur.
Hann sagði að lögin gerðu ekki
ráð fyrir þeirri sérstöðu að prestar
væru kosnir til embættis og í öllu
falli þyrfti Alþingi að setja reglur
um það hvernig farið yrði með ráðn-
ingamál presta að loknum fimm ára
starfstíma. Baldur sagði að kirkju-
ráð hefði mótmælt þessum lögum
og bent á að breytingarnar hefðu
verið gerðar án samráðs við kirkj-
una.
Baldur viðraði þá skoðun sína
að rétt væri að prestar væru aðeins
skipaðir tímabundið. Það myndi
auka hreyfingu innan kirkjunnar.
„Það gæti þó verið eðlilegt að prest-
ar yrðu með einhverjum hætti ævi-
ráðnar innan kirkjunnar en ekki
endilega æviráðnir þjónar ríkisins,"
sagði Baldur.
Gegn guðfræði kirkjunnar
Geir Waage, formaður Prestafé-
lags íslands, sagði að kirkjulegar
stofnanir hlytu að móta kirkjusiðina
áður en Alþingi tæki af skarið um
svo róttæka breytingu sem lögin
fela í sér.
„Að mínu viti stendur einkum
tvennt gegn því að fímm ára ráðn-
ing sóknarpresta verði lögleidd til
frambúðar án nokkurra hliðarráð-
stafana. í fyrsta lagi gengur þetta
fyrirkomulag beinlinis gegn guð-
fræði kirkjunnar og þar með gegn
allri grundvallarskipan sem verið
hefur. Æviráðningin og traustur
umbúnaður í prestaköllunum sjálf-
um hefur verið til þess að tryggja
frelsi í boðún fagnaðarerindisins.
Um leið brjóta lögin alla hefð í sam-
skiptum ríkis og kirkju en kirkjan
hefur kennt að allir menn skuli
hlýða ríkisvaldinu á meðan það set-
ur sig ekki á móti frelsi fagnaðarer-
indisins. í öðru lagi er hið kirkju-
lega embætti sett í uppnám. Ég tel
að ákvæði frumvarpsins um fimm
ára ráðningartíma presta raska svo
kirkjuskipaninni að því verði ekki
unað. Því hef ég lagt það til að
lögin verði ekki til frambúðar látin
taka til sóknarprestsembætta þjóð-
kirkjunnar. Reynist ekki unnt að
koma við breytingu á lögunum tel
ég að umsvifalaust þurfi að und-
irbúa löggjöf um breytt fyrirkomu-
lag á sambandi ríkis og kirkju svo
unnt verði að tryggja kirkjunni
þann umbúnað sem tryggt geti
frelsi boðunar fagnaðarerindisins
með tryggum hætti,“ sagði Geir.
Guðfræðileg rök sem
skálkaskjól
Séra Halldór Reynisson kvaðst
andvígur æviráðningu presta og
sagði starfsbræður sína of bundna
af því að gæta hagsmuna sinna sem
presta. Hann kvaðst telja þau rök
að frelsi til boðunar fagnaðarerind-
isins væri stefnt í hættu með tíma-
bundinni skipan sóknarpresta vera
skálkaskjól í þessari hagsmuna-
gæslu. Halldór gerði það að tillögu
sinni að æðstu embættismenn kirkj-
unnar, þ.á m. biskupar, ættu einnig
að fá tímabundna skipun í embætti
sín.
Séra Auður Eir tók undir þetta
sjónarmið Halldórs en benti á þá
leið að prestar yrðu æviráðnir innan
kirkjunnar en skipaðir tímabundið
í hvert prestakall. Séra Gunnar
Björnsson kvaðst lítast illa á það
skipulag að prestar yrðu skipaðir
til fárra ára i senn og spurði hvern-
ig ætti að standa að endurkjöri
þeirra að fimm árunum liðnum.
Hann sagði að með nýju lögunum
hefði löggjafarvaldið farið inn á hið
andlega valdsvið kirkjunnar.
Afburðanemandi frá Háskólanum
9,5 í aðaleinkunn í
Raunvísindadeild
Erlendur Smári
Þorsteinsson
Erlendur Smári Þor-
steinsson er tuttugu
og fimm ára gam-
all og hefur útskrifast
bæði úr stærðfræði og
tölvunarfræði frá Háskóla
ísland. í ágústlok heldur
hann til Bandarikjanna í
nám við Carnegie Mellon
University í Pittsburgh i
Pennsylvaníu, en hann
fékk styrk frá þeim skóla
fyrir háum skólagjöldum,
húsnæði og fæði í þrjú ár.
Auk þess fékk hann fjóra
aðra styrki eða frá Fulbrig-
htstofnuninni, American
Scandinavian Foundation,
Námsmannalínu Búnaðar-
bankans og Félagsstofnun
stúdenta.
- Hver var aðalein-
kunnin í greinunum tveim-
ur?
„Ég fékk 9,04 í stærð-
fræði sem er fjórða hæsta ein-
kunn í stærðfræðiskori Háskól-
ans frá 1972 og 11 hæsta í Raun-
vísindadeild. Lokaeinkunn í tölv-
unarfræðinni var 9,5 sem er sú
hæsta sem gefin hefur verið í
tölvunarfræðiskor og hæsta
lokaeinkunnin í Raunvísindadeild
frá 1972.
Lokaritgerðin í tölvunarfræð-
inni var um dulmálsfræði, en hún
verður mikið notuð á næstu árum
meðal annars til rafrænna undir-
skrifta og til að koma í veg fyrir
fölsun þeirra, og einnig til að
útiloka að fleiri en seljandi geti
notað krítarkortanúmer kaup-
anda í tölvunetsviðskiptum. Rit-
gerðin verður notuð sem hliðsjón-
arrit við kennslu í dulmálsfræð-
um við Háskóla íslands."
- Hvernig fer maður að því
að vera svona góður námsmaður?
„í mínum huga er hægt að
flokka marga námsmenn á eftir-
farandi hátt: 1) Námsmenn sem
eru mjög klárir og þurfa lítið að
hafa fyrir náminu. Þeir eru hins-
vegar fáir. 2) Námsmenn sem
vinna mikið og uppskera góðan
árangur. 3) Námsmenn sem
leggja óhemju mikið á sig en
virðast ekki ná árangri þrátt fyr-
ir góðar gáfur. E.t.v. kunna þeir
ekki að skipuleggja tíma sinn.
4) Námsmenn sem ekki eru til-
búnir að leggja það á sig sem
þarf til að ná tilskildum árangri.
Ég tel mig tilheyra flokki tvö.
Ég vann við byggingu Blöndu-
virkjunar í þrjú sumar og þegar
einn yfirmaður minn frétti að ég
væri að hefja nám í Háskólanum
gaf hann mér ráð sem ég fór
eftir. Hann ráðlagði mér að taka
námið sem vinnu, vakna klukkan
átta, nota hálftíma í hádegismat
og fara í kaffi klukkan fjögur,
en vinna þess á milli.
Ég þurfti að vinna ansi mikið
í stærðfræðinni og vinnuvikan
var um 70 klukkustundir með
fyrirlestrum, lestri, verkefnum
og öðru. Tölvunarfræðin er öðru-
vísi byggð upp og má segja að
ég hafi verið í 80 prósenta vinnu
við hana síðasta árið
með 70% vinnu hjá
Raunvísindastofnun.
Gott skipulag og agi
eru aðalatriði ásamt
hæfileikum ef ætlunin
er að ná góðum árangri í námi.
Ég þakka líka uppeldinu fyrir
árangurinn, en ég fékk bókar-
uppeldi og hvatningu hjá foreldr-
um mínum, og svo má að vissu
leyti segja að stærðfræðin sé í
ættinni, því móðurbróðir minn,
Halldór Halldórsson, er stærð-
fræðingur og líka Erlendur
Steinþórsson frændi minn sem
► Erlendur Smári Þorsteins-
son er fæddur árið 1971 á
Blönduósi. Foreldrar hans eru
Þorsteinn H. Gunnarsson bóndi
á Reykjum og Inga Þórunn
Halldórsdóttir aðstoðarskóla-
stjóri Húnavallaskóla. Erlendur
varð stúdent 1991 frá Mennta-
skólanum á Akureyri og út-
skrifaðist með BS-gráðu í
stærðfræði frá Háskóla íslands
1995. í sumar útskrifaðist hann
aftur, nú með gráðu í tölvunar-
fræðum. Unnusta Erlends er
Sonja Björg Guðfinnsdóttir.
starfar hjá NASA í Bandaríkjun-
um.“
- Hvaða störf stundaðirþú hjá
Raunvísindastofnun?
„Kristján Jónasson prófessor
fékk styrk til að vinna tvö verk-
efni síðasta árið mitt við Háskól-
ann og réð mig fyrst sem aðstoð-
armann við að gera skipulag um
hvernig lágmarka mætti olíu-
eyðslu fraktflutningaskipa með
tilliti til veðurs. Þetta verkefni
var lagt til hliðar eftir snjóflóðið
á Flateyri, og ég var ráðinn að-
stoðarmaður við að meta endur-
komutíma snjóflóða, en fleiri
unnu að því, til dæmis Veðurstof-
an. Einnig kenndi ég þennan
vetur í stærðfræðiskorinni og var
með dæmatíma, og ritstýrði
Framsýn, blaði tölvunarfræði-
nema.“
- Hvar vinnur þú á sumrin?
„Eftir þijú sumur hjá Hagvirki
og Fossvirki við byggingu
Blönduvirkjunar vann ég þar þijú
sumur sem leiðsögumaður en
fjórða sumarið vann ég á tölvu-
deild Landsvirkjunar við forritun.
Núna í sumar starfa ég hjá Frið-
riki Skúlasyni við vírusvarnarfor-
ritið eða að gera nýjan gagna-
grunn og breyta þeim gamla.“
- Hvað ertu svo að fara að
læra í Pittsburgh?
„Ég fer í doktorsnám sem tek-
ur 4 til 5 ár og er það aðgerðar-
greining (operation reserch) sem
er sett upp sem millideildarnám
í tölvufræði, stærð-
fræði og verkfræði. En
það snýst um að leysa
stór vandamál úr dag-
lega lífinu eins og
skipulagningu flug-
leiða, gera leiðarkerfi fyrir al-
menningsvagna o.fl. Verkefnin
eru sett á stærðfræðilegt form
og markmiðið að finna bestu
lausnina sem tölvur eru ef til
vill margar vikur að finna. Nám-
ið felst líka í að koma niðurstöð-
unum á skiljanlegt form fyrir
leikmenn eða til að kaupendur
þess skilji það.“
Fékk fjóra
styrki auk
skólastyrks