Morgunblaðið - 29.06.1996, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 29.06.1996, Blaðsíða 68
MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVtK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Sverrir VLADIMIR Ashkenazy hljómsveitarstjómandi og Kornelía Brandkamp einleikari við komuna til landsins í gær. Hljómsveitin heldur tónleika í dag kl. 16 í Laugardalshöll. Ashkenazy kominn Stórri bruggverk- smiðju lokað Hald lagt á yfir tvö þús- und lítra LÖGREGLAN í Reykjavík lokaði í fyrrinótt bruggaðstöðu í austur- borginni og lagði hald á umtals- vert magn af landa í handhægum söluumbúðum. Alls var lagt hald á 514 lítra af landa og 1.590 lítra af gambra, auk tækja sem nothæf eru til umtalsverðrar framleiðslu. Úr þessum gambra hefði væntanlega mátt sjóða um 400 lítra af landa. Einn maður var handtekinn vegna málsins sem nú er í rann- sókn hjá ávana- og fíkniefnadeild lögreglunnar. -----» ♦ -»--- RLR varar við keðju- bréfamanni RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkis- ins varar við manni, sem dreift hefur keðjubréfi í póstkassa fjölbýl- ishúsa í Reykjavík. Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns hjá RLR hefur maðurinn skrifað keðjubréf með nöfnum fólks sem viðtakandinn á að senda 500 krónur til. Heimilis- föngin á listanum eru öll í fjölbýlis- húsum víða um bæinn þar sem hægt er að komast inn í fordyri með póstkössum en fólkið er hins vegar ekki búsett í þessum húsum. Undir þessum kringumstæðum eru umslög oft skilin eftir í þeirri von að einhver íbúa hússins þekki við- komandi og geti komið þeim til skila. Maðurinn virðist ætla að sæta lagi og sækja umslögin, sem ekki hafna í póstkassa til að ná úr þeim peningunum. Hörður segir keðjubréf ólögleg auk þess sem svik felast í því að plata fólk til að senda bréf og pen- inga til fólks sem ekki er til. Morgunblaðið/Þorkell Og svo þegar kartaflan er sprottin... NÝJAR íslenskar kartöflur eru komnar á markaðinn. Er það heilum mánuði fyrr en venjulega. Nýju kartöflurnar eru meðal annars seldar í verslunum Nóa- túns en þar var þessi mynd ein- mitt tekin í gærdag. HEIÐURSFORSETI Listahátíðar og stjórnandi þýsku sinfóníu- hljómsveitarinnar í Berlín, Vlad- imir Ashkenazy, lenti á Reykja- víkurflugvelli ásamt hljómsveit sinni og einleikara undir kvöldið í gær. Ashkenazy kvaðst aðspurður telja tónleikana vera vissan há- punkt á tónleikaferðalagi hljóm- sveitarinnar vegna þess að tón- leikarnir mörkuðu lokin á tónlei- katíð hljómsveitarinnar þetta starfsárið. „Það sem er þó mikil- vægara, er að hljóðfæraleikar- arnir eru fullir eftirvæntingar vegna tónleikanna. Það koma ekki svo margar hljómsveitir MIKLAR verðlækkanir hafa orðið á grænmeti hjá matvöruverslunum seinustu daga, og þannig hafa ís- lenskir tómatar, gúrkur og paprika lækkað á milli 10 og 50%. Sömuleið- is hafa innfluttir ávextir verið á til- boðsverði í verslunum. „Samkeppnin er mikil og má tala um verðstríð í því sambandi, og samkeppnin þroskar okkur kaup- menn og kemur neytendum til góða,“ segir Eiríkur Sigurðsson eig- andi 10/11 verslananna. Hagkvæmni með magninnkaupum Örn Kristjánsson sölustjóri Hag- kaups segir lækkunina hjá verslun- inni nema 30-40% í flestum vöru- flokkum þess grænmetis sem um ræðir. Verðlækkunin hafi valdið þeim viðbrögðum á markaðnum sem nú hafi komið í ljós. Hagkaup selur kílóið af íslenskum tómötum á 189 krónur, kílóið af agúrkum á hingað og þeir hafa hlakkað til íslandsfararinnar," sagði Ashk- enazy. Hljómsveitin heldur aftur utan að loknum tónleikunum en Ashk- enazy og Þórunn eiginkona hans munu hafa lengri viðdvöl á Is- landi. Blaðamaður náði einnig stuttu tali af Kornelíu Brandkamp flautuleikara við komuna, en hún mun leika einleik með hljómsveit- inni. Hún sagði aðspurð að Ashk- enazy hefði ekki gefið henni nein- ar fyrirframhugmyndir um Is- land en sagði að hann hefði þó sagt sér frá fossunum á Islandi. Verkið sem Kornelía mun flylja 149 krónur og kílóið af grænni papriku á 439 krónur en rauð er seld á 489 krónur kílóið. „Framboðið er talsvert mikið og við höfum undirbúið okkur vel og ætlum okkur að bjóða þessar vörur áfram á tilboði. Með magninnkaup- um náðum við hagstæðum kjörum, auk þess sem við erura að bjóða fyrsta flokks vöru,“ segir Örn. Hann segir viðbrögð viðskiptavina hafa verið mjög góð og salan margfald- ast í umræddum vöruflokkum. „Á fimmtudagsmorgun lækkuð- um við tómata og undirbjuggum það vel. Kilóið af tómötum kostaði í fyrstu 198 krónur en síðan enduð- um við í 148 krónum kílóið og höld- um því. Við lækkuðum appelsínu- gula og rauða papriku um 300 krón- ur, úr á milli 700-800 krónur í 489 krónur kílóið, og sömuleiðis lækkaði græn paprika. Þetta stafar af hag- kvæmum innkaupum, enda rétti uppskerutíminn, og við viljum láta er eftir Þorkel Sigurbjörnsson tónskáld og nefnist „Columbine", sem var ein af leikpersónum commedia dell’arte hefðarinnár á Ítalíu á 17. og 18. öld. „Þorkatli hefur tekist mjög vel að koma Kólumbínu til skila í tónum og hann nálgast hana af næmni. Fyrsti kafli verksins er afskap- lega fallegur," sagði Kornelía. Tónleikarnir hefjast í dag klukkan 16 og á efnisskránni er „Columbine" fyrir flautu og strengjasveit sem fyrr gat, sin- fónía nr. 3 eftir Mendelsohn og þriðja sinfónía Beethovens, sem gengur einnig undir heitinu „Hetjusinfónían". viðskiptavinina njóta þess. Því mið- ur eru hins vegar mörg fyrirtæki sem taka mismuninn sjálf, og þar á meðal ákveðnir stórir aðilar. Við fylgjumst mjög vel með verðbreyt- ingum á markaðinum og erum til- búnir í slaginn áfram," segir Eirík- ur. Eiríkur segir að mikillar sölu- aukningar hafi orðið vart í verslun- um 10/11 í kjölfar tilboðsverðs á grænmeti, og þannig hafi salan á papriku í gær verið tífalt meiri en vanalegt er og einnig hafi söluaukn- ing á tómötum verið mikil. Hann nefnir einnig verð á ávöxtum sem sé hagstætt, svo sem á innfluttum jarðarberjum þar sem hver pakki kosti 89 krónur. Svipuðu máli gegni um bláber, og séu þessir ávextir fluttir inn flugleiðis í miklu magni. Komin harka í málið Sigurður Teitsspn framkvæmda- stjóri verslana KA, sem eru ellefu Ritur á ísafirði Vinnsla liggur niðri VINNSLA hefur legið niðri hjá rækjuverksmiðjunni Rit hf. á ísafirði frá því á miðvikudag. Á milli 30 og 40 heilsdagsstörf eru hjá fyrirtækinu. Ekki liggur fyrir hvenær vinna hefst aftur. Rækjuverksmiðjan Ritur hf. hef- ur tekið þátt í viðræðum um sam- einingu fimm sjávarútvegsfyrir- tækja á ísafirði og Þingeyri. Birgð- ir hafa safnast fyrir auk þess sem þrengt hefur að fyrirtækinu vegna aðgerða viðskiptabanka þess sem krafðist lækkunar afurðalána, eins og komið hefur fram. Rækjuverk- smiðjan Básafell hf. gerði tilboð í öll hlutabréfin í Rit og hyggst leggja fyrirtækið með sér inn í sameinað fyrirtæki. Kaupin eru enn ófrágeng- in en 68% hluthafa hafa samþykkt tilboð Básafells. Samverkandi ástæður Halldór Jónsson, framkvæmda- stjóri Rits hf., segir að fyrirtækið sé orðið hráefnislaust og þess vegna hafi vinnsla stöðvast, meðal annars vegna þess að togarinn Framnes, aðalhráefnisöflunartækið, væri í breytingum. Vegna birgðastöðunn- ar hafi ekki þótt ástæða til að leggja mikið á sig til að kaupa hráefni dýru verði á markaði. Halldór seg- ist ekki geta fullyrt um það hvenær vinnsla hefjist aftur en vonast til að það verði fljótlega. Áðspurður um áhrif aðgerða ís- landsbanka segir Halldór að þær hafi vissulega samverkar.di áhrif á stöðuna. talsins á Suðurlandi, segir að fyrir- tækið hafi farið fram á verðlækkun frá Sölufélagi garðyrkjumanna, sem er þeirra helsti birgir. „Við svörum lækkunum eins og við getum og ef þess þarf fylgjum við frekari tilboðum. Við horfum grannt á markaðinn, könnum sam- keppnisaðila oft á dag og erum reiðubúnir til verðbreytinga með litlum fyrirvara. Mér sýnist vera komin talsverð harka í málið, þann- ig að ég á alveg eins von á frekari þróun í þessa veru,“ segir hann. Sigurður Markússon verslunar- stjóri KÁ á Selfossi segir tómata selda á 199 krónur en hafi áður verið á 249 krónur, sem er 20% verðlækkun, gúrkur eru á 149 krón- ur kílóið en voru á 296 krónur, sem er 50% verðlækkun. Paprika er seld á 499 krónur kílóið og hefur lækk- að um allt að 38%. Hann segir jafn- framt lagða mikla áherslu á ódýra, suðræna ávexti. Verðstríð hjá matvöruverslunum á Suðvesturlandi Innlent grænmeti lækkar um allt að 50%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.