Morgunblaðið - 29.06.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.06.1996, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Lagersölur og markaðir í útlöndum Hagkvæm innkaup með sem minnstri fyrirhöfn ir dagblaðinu II Messagero, þar sem rakið er hvað á seyði sé í borg- inni. En þar eru líka yfir- Það er ekki gefið að allt sé ódýrara í útlöndum, en með því að hafa aug- un hjá sér má gera góð kaup. Sigrún Davíðs- dóttir miðlar hér nokkr- um góðum ráðum. SÁ tími er liðinn, ef hann hefur þá einhvern tímann verið til, að allt sé ódýrt eða ódýrara í útlönd- um. En með aukinni fjölbreytni í verslunarháttum er hægt að ganga að ódýrum vörum, ef maður veit hvar á að leita. Fyrsta reglan er að þar sem út- lendingar versla fyrst og fremst þar er verðið örugglega ekki sérlega hagstætt, nema í undantekningar- tilfellum. Heimamenn vita hvar á að bera niður, auk þess sem þeir hafa tilfinningu fyrir verðlagi og vita hvað er dýrt og hvað er ódýrt. Það vita ferðamenn ekki. Bestu kaupin má oftast gera þar sem flest er fólkið, sem þýðir að stórborgir eru oft góðar til inn- kaupa, en þar eru • hverfin mjög misjöfn og því sjálfsagt að spyijast fýrir. Mér hefur komið langsamlega best að kaupa góðar ferðabækur, til dæmis Rough Guide eða Time Ouf-bækurnar. Þar í eru sérstakir kaflar um innkaup og einmitt með góðum leiðbeiningum um hvar sé að finna ódýrar vörur. Einnig eru oft góðir listar yfir ólíkar gerðir búða í bæklingum, sem kynna það sem um er að vera í menningarlíf- inu. Fatakaup Hvað föt varðar eru það einkum tvær tegundir búða, sem mér þykja áhugaverðar. Það eru annars vegar búðir, sem selja umframlager góðra merkja eða úr góðum búðum, hins vegar búðir sem selja notuð gæða- föt. Fyrmefndu búðirnar heita oft ö/scounf-eitthvað, en kallast outlet á ensku. Slíkar búðir er að finna þar sem markaðurinn er nógu stór. Danmörk er til dæmis tæplega nógu stórt land til að verulega góðir fata- markaðir séu þar, en þeir eru farn- ir að stinga upp kollinum. í Comp- any’s Kældershop á Frederiks- berggade 24 eru seldar vörur frá InWear, Part Two, French Connection og Cottonfield með 50-80 prósent afslætti. í Auto- meter á Gammel Kongevej 42 á Friðriksbergi eru seldar vör- ur frá Petroleum, sem er firna vinsælt pijónavöru- merki og gallabuxur frá Diesel og Levi’s. Chevign- on á Ny Dstergade 12, sem er hluti af Strikinu, selur vörur frá samnefndu merki með 30-50 prósent afslætti. Esprit Outlett- en á Norrebrogade 106 selur vörur frá samnefndu merki með 30-60 prósent afslætti. Allar þessar búðir eru þokkalega mið- svæðis. Bandaríkin eru heimaland lagerbúðanna og þar er auðvit- | að mýgrútur af þeim. í New York gerist það iðulega að ein- hveijir leigi húsnæði við eða í grennd helstu verslunargatnanna til að selja lager, sem komist hefur verið yfir á góðu verði. Þær útsölur eru þá gjarnan auglýstar á auglýs- ingaskiltum á gangstéttum, eða miðum dreift til vegfarenda. Þar getur verið um uppgrip að ræða og þeir sem koma oft til New York gætu kannski haft áhuga á að ger- ast áskrifendur að fréttabréfi, sem auglýsir sérstaklega svona skyndi- sölur. Notuð föt af fyrirsætum Róm er sérlega áhugaverð versl- unarborg fyrir þá sem hafa áhuga á góðum fötum, en góðu fötin þar eru ekki sérlega ódýr meðan þau eru á fullu verði. Ut frá Via del Corso Vittorio Emanuele, sem gengur út frá Piazza del popolo, liggja fínu og dýru göturnar, en þar inn á milli eru líka lagerbúðir. Á hveijum föstudegi kemur út í Róm, Mílanó ojg kannski fleiri af stærri borgum Italíu bæklingur, sem fylg- Tómatar á útsölu FRAMBOÐ af íslenskum tómötum er að ná hámarki og verðið breyt- ist jafnvel nokkrum sinnum á dag. Kolbeinn Ágústsson hjá Sölufé- lagi garðyrkjumanna segist ekki vita hversu lengi þessi verðlækkun standi en bendir á að bæði agúrk- ur og paprikur hafi líka lækkað að undanfömu. Kílóið af tómötum var á 125 krónur í Bónus í gær. „Tómatar geta lækkað fyrirvara- laust, þetta fer eftir markaðnum “, sagði Jón Ásgeir Jóhannesson í Bónus. í Hagkaupi voru tómatarnir á 189 krónur kílóið í gærmorgun, hjá 10-11 búðunum á 148 krónur, hjá Nóatúni á 187 krónur en allir höfðu þann fyrirvara að um frek- ari lækkun yrði kannski að ræða. lit yfir búðir og af því að ítalir tala líka um „shopp- ing“, þarf ekki sérstaka ítölsku- kunnáttu til að komast í gegnum bæklinginn og finna ódýru búðirn- ar, sem þar eru taldar upp. Notuð föt þeirra sem nenna ekki að eiga dýru fötin sín lengi eru víða seld í sérstökum búðum, sem sér- hæfa sig í notuðum gæðafötum. Líkt og með lagerbúðir er fyrst og fremst markaður fyrir slík föt í stór- borgum og þeirra er því helst að leita þar. Á 5th Avenue á móts við 79 og 81 götu eru nokkrar slíkar búðir. í Kaupmannahöfn liggja nokkrar í litlum hliðargötum frá Strikinu, ekki langt frá Ráðhústorg- inu. Hvað varðar aðrar vörur eins og rafmagnstæki, búsáhöld, bækur eða geisladiska er best að slá slíkum búðum upp í ferðabókum eða bækl- ingum. Fyrir þá sem leita að ein- hveiju skrýtnu og skemmtilegu eru ? markaðir ótæmandi uppspretta, en athugið að bæði áðurnefndar gerðir búða og markaðir breytast ört og aldrei er hægt að ganga að neinu vísu þar. Undirbúningur Þó hér séu tíndar til einstakar borgir, má nota sömu leiðbeiningar um aðrar borgir. Að lokum minni ég á að símaskrár eru alls staðar mikil uppspretta fróðleiks og það getur borgað sig að nota lungann úr einu kvöldi til að kynna sér gulu síðurnar og það sem þar er að finna af skrám yfir allar mögulegar og ómögulegar gerðir búða. En af því ég hef ekki mik- ið úthald í búðarráp og þreytist ógurlega í stór- um vöruhúsum vil ég heldur kynna mér vel hvert áhugavert er að fara í búðarleið- angra, hugleiða hvað mig langar að skoða og líta þá í kringum mig á völdum stöðum í hæfilegan stuttan tíma, frekar en að ramba bara eitthvað og skoða og skoða. Tímanum til undirbún- ings búðarferða er vel varið og árangurinn þá vænlegri, fi| ekki síst fyrir þá sem langar að gera eitthvað annað. En athugið að í Evrópu eru ýms- ar afsláttarbúðir og búðir með not- uð föt, sem taka ekki greiðslukort, en þá er ekkert annað en að tappa af kortinu í nálægum bönkum. í sumum þessara búða er aukinheld- ur hægt að fá felldan niður sölu- skatt fyrir þá sem fara úr landi. HAFI lesendur rekist á skemmtilega markaði, lag- ersölur, fornverslanir eða sérstakar verslanir í útlönd- um væri vel þegið ef þeir hefðu samband við okkur hér á neytendasíðunni. Þess- um upplýsingum væri síðan hægt að miðia áfram til les- enda sem margir hverjir eru á faraldsfæti í sumar og kunna eflaust að meta slíka vitneskju. Síminn hjá neyt- endasíðunni er 5691225. Ný 10-11 verslun í Austurstræti 41 GRÓÐRARSTÖÐIN 3( )%afsl áttur • Lii ngerðisbirid 60-80 sm. m iiilW Opnunartímar: ’ Virka daga kl. 9-21 ’ Um helgar kl. 9-18 stjörnijgróp ih, sími m nm, faxssj 2228 Sumarblóm og Qölærar plöntur Sa;kið surnarið til okkar í GÆR var opnuð í Austurstræti 17 ný 10-11 verslun. Verslunin er á 450 fermetra gólffleti og síðan verða ávextir og grænmeti á sér- stökum útimarkaði þ.e.a.s. þegar veður leyfir. Ýmis opnunartilboð verða í versl- uninni í tilefni opnunarinnar, jarð- arbetjabakkinn með 200 grömmum kostar 89 krónur en tæplega 400 grömm af blábeijum kosta 198 krónur. Þá er nautakjöt á tilboðs- verði, nautahakk UNl fer úr 885 krónum í 689 krónur, nautahrygg- vöðvi kostar 1.295 krónur kílóið og kíló af nautagúllasi er á 998 krónur svo dæmi séu nefnd. Verslunin býður upp á sömu vöru og aðrar 10-11 búðirnar en bryddað verður upp á þeirri nýjung að vera með úrval léttra tilbúinna rétta og viðskiptavinir geta fengið örbylgju- rétti hitaða á staðnum og setta síð- an í álpoka. Morgunblaðið/Golli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.