Morgunblaðið - 29.06.1996, Page 24
24 laugaRdagur 29. júní 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Bildt setur Bosníu- Létta skuldabyrði
Serbum úrslitakosti fátækra þjóða
Lyon, Belgrad. Reuter.
CARL Bildt, sem stýrir alþjóðlegu
uppbyggingarstarfi í Bosníu, sagði í
gær að þolinmæði ríkjanna sem að
því standa væri á þrotum og að grip-
ið yrði til aðgerða gegn Serbum, léti
Radovan Karadzie, „forseti" Bosníu-
Serba ekki af völdum á næstu dög-
i’.m. Bildt lét þessi ummæli falla á
l'undi sjö helstu iðnríkja heims, sem
haldinn er í Lyon í Frakklandi.
Bildt var ómyrkur í máli og sagði
það ljóst að ekki yrði lengur þolað
að Karadzic væri við völd án þess
að gripið yrði til aðgerða. Hann tiitók
Jeltsín
ofreyndi
sig
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKA sjónvarpið sýndi í
'jær myndir sem sagðar voru
teknar fyrr um daginn á fundi
Borísar Jeltsín Rússlandsforseta
með aðstoðarmönnum hans, til
að kveða niður
orðróm um al-
varleg veikindi
Jeltsíns, sem
fékk tvisvar
hjartaáfall í
fyrra.
Forsetinn
mætti ekki á
fund með fulltrú-
um bænda í gær-
inorgun, sendi Víktor Tsjerno-
inýrdín forsætisráðherra í stað-
inn. Tsjernomýrdín sagðisttelja
að Jeltsín hefði ofreynt sig í
kosningabaráttunni og skaðað
röddina. Talsmaður forsetans,
Sergej Mededev, staðfesti siðar
að Jeltsín væri raddlaus.
Forsetinn, sem er 65 ára, frest-
aði þrem kosningafundum i vik-
unni en hann hefur þótt sýna
mikið þrek undanfamar vikur
og mánuði, m.a. dansað rokk á
sviði á fundi með ungu fólki. Kom
krafturinn í forsetanum and-
stæðingum hans á óvart.
Keppinautur hans, hinn 52 ára
gamli Gennadí Zjúganov, hefur
einnig síðustu daga reynt að sýna
fram á æskuþrótt sinn með því
að dansa og leika blak fyrir fram
sjónvarpsvélarnar. Zjúganov
benti í gær á að Jeltsin hefði
verið fimm mánuði á sjúkrahúsi
í fyrra. „Þið vitið að menn geta
einfaldlega ekki verið við góða
heilsu á þessum aldri“.
þó ekki hveijar þær yrðu. „Ég held
að leiðtogarnir [Serba] í Belgrad og
Pale viti fullvel hvað við höfum á
pijónumum, uppfylli þeir ekki þau
skilyrði sem sett voru í Dayton-friðar-
samkomulaginu," sagði hann. Sendi-
fulltrúar og embættismenn hafa sagt
að stórveldin muni ræða möguleikann
á því að setja viðskiptabann að nýju
á Serba.
Mladic við hestaheilsu
Talsmenn hers Bosníu-Serba vís-
uðu í gær algerlega á bug fréttum
Moskvu, Khankala-herstöðinni. Reuter.
BROTTFLUTNINGUR rússneska
herliðsins frá Tsjetsjníju hófst í gær
með mikilli viðhöfn, lúðrasveitir léku
og yfirmenn viknuðu. Þess var vand-
lega gætt að fjölmiðlar, sem styðja
nær allir Borís Jeltsín forseta í kosn-
ingabaráttunni, fjölluðu ítarlega um
brottförina. Jeltsín hefur á kosninga-
fundum viðurkennt að innrásin í
héraðið hafí verið mistök en opinber
stefna stjórnvalda er sem fyrr að
fullt sjálfstæði Tsjetsjena sé útilok-
að.
„Ég óska ykkur til hamingju með
að hafa lokið herför ykkar með
sigri,“ sagði hershöfðinginn Vjatsj-
eslav Tíkomíróv, yfírmaður rúss-
neska herliðsins í héraðinu. Á rauð-
um borða stóð „Við höfum tryggt
um að yfírmaður herafla þeirra,
Ratko Mladic, hefði fengið heilablóð-
fall. Sýndi sjónvarp Bosníu-Serba
myndir af honum við góða heilsu þar
sem hann var viðstaddur hersýningu
í gær.
Fyrr í gær hafði Befa-fréttastofan
í Belgrad eftir bosnísk-serbneskum
heimildarmönnum að Mladic hefði
fengið heilablóðfall í síðustu viku og
væri í iífshættu. Sáralítið hefur sést
til hans undanfarna mánuði en hann
er eftirlýstur af stríðsglæpadómstól
Sameinuðu þjóðanna.
einingu Rússlands", herþyrlur
~ sveimuðu yfir borginni í brennandi
sumarhitanum. Nokkur hundruð
liðsmenn vélaherfylkis troðfylitu lest
á brautarstöð í Khankala-herbæki-
stöð Rússa í Grosní og ásamt þeim
var fjöldi skriðdreka og brynvarinna
vagna sendur burt. Alls er talið að
Rússar hafí 80.000 manna lið í
Tsjetsjníju en opinberlega er sagt
að þeir séu 48.000.
„Þið gerðuð engin mistök“
Vjatsjeslav Míkhaílov, ráðherra
þjóðernisminnihluta, ávarpaði her-
mennina. „Ég hef séð þjáningarnar
í augum mæðra ykkar, eiginkvenna
og systra. Vonandi fýrirgefa þær
okkur, mönnunum sem ef til vill
LEIÐTOGÁR sjö helstu iðnríkja
heims ákváðu á fundi sínum í
Lyon í Frakklandi í gær að
koma skuldsettum þróunarríkj-
um til hjálpar. Hvöttu þeir ríki
sem aðild eiga að svonefndum
Parísarklúbbi að létta enn frek-
ar á greiðslubyrði lánanna.
Einnig ákváðu þeir að kanna
leiðir til að auka fjárhagsaðstoð
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF)
við fátæku ríkin. Mistókst leið-
togunum þó, vegna mikillar
andstöðu Þjóðverja, að ná sam-
gerðu mistök. En þið gerðuð engin
mistök. Þið hafið sýnt Rússlandi
tryggð," sagði ráðherrann og var
Tíkomírov greinilega hrærður vegna
þessara orða, virtist að því að kom-
inn að tárfella.
Stefnt er að því að liðið verði allt
á brott frá Kákasushéraðinu 1. sept-
ember en sumir embættismenn í
Kreml hafa látið hafa eftir sér að
nokkurt lið verði ef til vill áfram á
staðnum. Samkvæmt friðarsamn-
ingum á að efna til frjálsra kosninga
og afvopnunar sem merkir í huga
ráðamanna Rússa að uppreisnar-
menn afhendi þeim vopn sín.
Hermennirnir sögðust ánægðir
með vera á heimleið en töldu ólík-
legt að átökunum lyki að fullu í bráð.
komulagi um tillögu sem fól í
sér að IMF seldi hluta gullforða
síns til þess að fjármagna fjár-
hagsaðstoð af því tagi. Sögðu
þeir í yfirlýsingu frá fundinum,
að nota mætti eigin varasjóði
IMF í þessu skyni og lögðu til
að notkun varasjóðanna yrði
endurskoðuð. Leiðtogafundin-
um lauk í gær en myndin var
tekin er þjónar bera þeim einn
fjögurra rétta í kvöldverði leið-
toganna í garði ráðhússins í
Lyon.
Reúter
Flestir voru harðorðir um stjórn-
málamennina sem sent hefðu þá til
héraðsins. „Þetta hefur frá upphafi
verið fáránlegt stríð", sagði einn
hermannanna, Alexei Maslenníkov
frá Rjazan. Hann sagðist einvörð-
ungu hafa gengið í herinn til að
geta séð fyrir konu og börnum en
nú þakkaði hann Guði fyrir að geta
snúið heim.
Allt að tiu manns fórust er spreng-
ing tætti í sundur strætisvagn í
bænum Naltsík í Kákasushéraðinu
Kabardíno-Balkaríu, skammt frá
Tsjetsjníju, í gær. Tass-fréttastofan
hafði eftir heimildarmönnum á
staðnum að um tilræði hefði verið
að ræða en ekki var sagt hveijir
hefðu verið að verki.
Rússar hefja brottfhitn-
ing liðs frá Tsjetsjníju
Vladímír Zhírínovskí lýsir óbeint yfir stuðningi við Jeltsín í seinni umferðinni
Kjörsókn ræður úrslitum
Moskvu. The Daily Telegraph, Reuter.
KJÓSENDUR í Rússlandi segjast í
könnunum flestir ætla að fara á
kjörstað í síðari umferð forseta-
kosninganna á miðvikudag en sér-
fræðingar benda á að margir svari
meira af kurteisi en sannfæringu,
margir Rússar séu haldnir miklum
stjórnmálaleiða. Nánustu sam-
starfsmenn Borís Jeltsíns forseta,
sem sigraði kommúnistann Gennadí
Zjúgánov naumlega ! fyrri umferð-
inni, óttast nú fyrst og fremst að
dræmari kjörsókn í síðari umferð
geti fært Zjúganov sigur.
Jeltsín hefur tryggt sér stuðning
frambjóðandans sem varð í öðru
sæti, Alexanders Lebeds, og um-
bótasinninn Grígorí Javlínskí hefur
heitið stuðningj en gegn skilyrðum.
í gær lýsti þjóðemissinninn Vlad-
ímír Zhírínovskí með óbeinum hætti
yfír stuðningi við forsetann. Zhír-
ínovskí varð fimmti í fyrri umferð,
hlaut 5,7% atkvæða. Hann hvatti í
gær kjósendur til að styðja ekki
Zjúganov en gekk ekki svo langt
að biðja þá beinlínis að kjósa Jelts-
ín. „Við styðjum ekki stefnu núver-
andi forseta en kommúnistaflokk-
urinn er enn hættulegri".
Kjörsókn undir 60%?
Stjómmálaskýrendur eru sam-
mála um að kommúnistar eigi sér
mun traustari stuðningshóp en for-
setinn sem hefur engan stjómmála-
flokk á bak við sig. Kjörsókn í fyrri
umferðinni var tæp 70% en kosn-
ingaleiðinn fer vaxandi enda voru
þingkosningar í desember sl. Hátt-
settur félagi í baráttunefnd Jeltsíns
vegna endurkjörsins, Vjatsjeslav
Níkonov, sagði í gær að yrði kjör-
sókn undir 60% gæti svo farið að
hann tapaði í seinni umferðinni.
„Verði kjörsókn 60% virðist sem
sigurlíkur [beggja frambjóðenda]
séu jafnar," sagði hann.
Zjúganov hefur fordæmt mis-
notkun Jeltsíns á ríkisfjölmiðlunum
sem reyna vart að leyna hlutdrægni
sinni, þeir hampa stöðugt Jeltsín
og annaðhvort hundsa forsetaefni
kommúnista eða gera lítið úr hon-
um. í fyrri umferðinni var sama
upp á teningnum í kosningabarátt-
unni, Jeltsín var eitt sinn samtímis
á skjá allra þriggja sjónvarpsstöðv-
anna að sögn þreytts kjósanda sem
reyndi að skipta um rásir. „Við
förum í rúmið með Jeltsín á kvöld-
in og vöknum með honum á morgn-
ana,“ segir Zjúganov.
Hann segir ennfremur að rekinn
sé hræðsluáróður gegn sér með
sýningum á myndum í sjónvarpi frá
Stalínstímanum. Þar eru rifjaðar
upp grimmdin og hörmungarnar
sem almenningur varð að sætta sig
við í tíð kommúnista, fortíð sem
þeir vilja sem minnst fjalla um.
„Ég er hundleið á öllum smettun-
um þeirra á skjánum en ég geri ráð
fyrir að við verðum að kjósa Jeltsín
aftur,“ sagði 48 ára gömul kona, í
Pétursborg, Tamara, sem er búin
að fá nóg af áróðrinum. Þar í borg
var forsetinn lang-öflugastur í fyrri
umferðinni.
Annar kjósandi, Alexander Hels-
ing, sem rekur brauðgerð, sagði
fólk orðið leitt á að kjósa en hann
myndi mæta og kjósa forsetann.
„Það er ekki margt sem mér líkar
í stefnu Jeltsíns en hann er skárri
kostur af tveim vondum“.