Morgunblaðið - 29.06.1996, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 31
Heitt í
kolunum
Undanfarnar vikur hafa birst á
laugardögum uppskriftir að grill-
réttum sem þeir Oskar Finnsson,
Ingvar Sigurðsson og Árni Þór Arn-
órsson matreiðslumenn á Argentínu
steikhúsi hafa verið að gefa hlust-
endum Bylgjunnar á laugardögum.
Þetta er í síðasta skipti í bili sem
þeir félagar gefa uppskriftir á grill-
ið.
Grillaðir smáréttir
Algengt er að fólk kjósi að bjóða
upp á smárétti ef bjóða á fólki heim
að kvöldiagi. Flesta smárétti má
vinna fyrirfram og geyma í kæli
þannig að það eigi bara eftir að
skella þeim á grillið og bera fram.
Sumir ná reyndar aldrei að bera
þá fram vegna þess að oft myndast
smáhópur af „sérfræðingum" við
grillið sem gerir matnum góð skil
áður en hann er borinn fram. Hér
koma nokkrar tillögur að smárétt-
unr. Grillaður humar á teini, Humar
í skel, risarækjur, grænmetisspjót,
beikonvafðar smápylsur, beikonvaf-
in hörpuskel, fylltur sveppahattur
með osti, smásamlokur með hvít-
laukssmjöri, brauð á teinum, smáp-
itsur, kjúklingaleggir, svínarif,
nautarif, lambakótilettur, reykt
svínasíða, maísstönglar, litlir tóm-
atar, BBQ kjúklingabringur á spjóti
o.fl. o.fl.
Grillaóir
sterkkryddaðir
kjúklingavængir
Ætlað sem smáréttur með öðru
800 gr kjúklingavængir
spicy season all
Nýmulinn svartur pipar
‘Atsk. rautt paprikuduft
‘/tdl matarolía
1 tsk. Soya sósa
ca. 4 dropar græn tabascosósa
Blandið saman olíunni, papriku-
duftinu, soyasósunni og tabasco
sósunni. Penslið kjúklingavængina
með olíublöndunni og setjið á grill-
ið, kryddið með spicy season all
kryddinu. Eldunin tekur u.þ.b. 10
mín. og þegar hún er hálfnuð er
svarti piparinn mulinn yfir úr kvörn.
BBQ svínarif
(spareribs)
2 kg svínarif
2 dl BBQ sósa
Skerið rifin í hentugar stærðir
t.d. 2 rifbein á hvetjum bita. Setjið
rifin í sjóðandi vatn í 5-10 mínútur
eftir kjötmagni á beinunum, takið
upp og látið vatnið leka af. Grillið
við snarpan hita. Kryddið og pensl-
ið með BBQ sósunni. ■
-----» » ♦----
Hagkaup leigir
húsdýra-
garðinn
BÆNDADÖGUNUM í Hagkaup er
að Ijúka þessa dagana og af því
tilefni hafa forsvarsmenn hjá Hag-
kaup leigt húsdýragarðinn á laugar-
dag og sunnudag. Þar verður mikið
um að vera, aðgangur er ókeypis
og börnin verða máluð, götuleikhús
verður á staðnum, leiktæki og ýmis-
legt fleira sem kætir ungu kynslóð-
ina. Þá verða Gulli gúrka og Tommi
tómatur í Húsdýragarðinum, Mac-
hintosh hjónin, Pez trúðurinn, Klói
kókómjólkurköttur, Frosties ljónið,
Basset lakkrískallinn óg ýmsir fleiri
sem lauma á góðgæti iianda gest-
um.
AÐSEIUDAR GREINAR • FORSETAKJÖR
Ekki Ólaf
Ragnar,
takk fyrir!
NU GET ég bara
ekki orða bundist
lengur. Ætlar fólk
virkilega að láta Ólaf
Ragnar plata sig al-
gjörlega upp úr skón-
um? Og hvaða fólk er
þetta eiginlega sem
ætlar að kjósa hann?
Það fólk hlýtur að
vera óskaplega fljótt
að gleyma eða þá veit
bara ekki betur. Ja,
ég veit að minnsta
kosti fyrir víst að stór
hluti þess fólks sem
hefur starfað með
honum og þekkir hann
og hans vinnubrögð
ætlar ekki að gefa honum sitt at-
kvæði. Hvers vegna ætli það sé?
Stuðningsmenn Ólafs hafa
haldið því fram að ýmsir aðilar séu
með skipulagða herferð gegn Ól-
afi og að þetta sé einungis róg-
burður sem sagt er um hann.
Sannleikurinn er sá að þetta er
ekki rógburður, heldur staðreynd-
ir. Og fólkið í landinu á fullan
rétt á að vita hvernig ferill Ólafs
Ragnars lítur út í raun og veru,
það á rétt á að sjá
fleiri hliðar en aðeins
þessa hvítþvegnu.
Ástæðan fyrir því að
annað eins hefur ekki
verið talað og ritað um
hina frambjóðendurna
er einfaldlega sú að
þeir hafa ekki eins
skrautlega og vafa-
sama fortíð og Ólafur
Ragnar. Hann hefur
til dæmis alveg tekið
hamskiptum þessa
síðustu mánuði og
greinilega unnið hörð-
um höndum að því að
breyta ímynd sinni.
Þessi stóryrti maður
hefur varla látið í sér heyra frá
áramótum en verið þess duglegri
að mæta í kirkjur og á íþróttasam-
komur.
Við viljum fá heiðarlegan og
einlægan einstakling sem forseta,
einhvern sem getur komið fram
við samlanda sína af kurteisi og
virðingu. Einhvernveginn sé ég
ekki Olaf Ragnar fyrir mér í þessu
samhengi. Hann var að minnsta
kosti ekki mjög kurteis við forsæt-
Lilja Guðlaug
Bolladóttir
isráðherra voran hér á dögunum
og ekki heyrðist mér hann bera
mikla virðingu fyrir honum held-
ur. Það er spurning við hvern þessi
fræga lýsing hans á forsætisráð-
herranum á best við. Svari nú
hver fyrir sig.
Eins og Olafs var von og vísa
féllu mjög svo stór orð á Alþingi
um forsvarsmenn Hafskips árið
1985. Þessi orð voru að mestu
leyti byggð á kjaftasögum og vafa-
samri fréttamennsku Helgarpósts-
ins. Ólafur gat ekki einu sinni lyft
upp símtólinu og hringt í æskufé-
laga sinn, sem var einn af stjórn-
endum Hafskips, (Ragnar Kjart-
ansson), til þess að fá hans hlið á
málinu áður en hann opnaði um-
ræður um málið á Alþingi. Þar bar
hann þennan fyrrum félaga sinn
og fleiri þungum sökum. Svona fer
Ólafur með vini sína! Og þó...
Mörður vinur fékk nú all blíðlegri
meðferð þegar fyrirtæki hans var
gefin eftir söluskattsskuld upp á
margar milljónir. Ólafur beitti þó
ekki sömu aðferð á öll fyrirtæki.
Onei. Stuttu eftir þennan vinar-
greiða sendi hann lögregluna á
nokkur fyrirtæki og lét loka þeim
vegna þeirra söluskattsskulda.
Þarna fer greinilega maður með
tvö, ef ekki fleiri, andlit. Ólafur,
var ekki Hafskipsmálið bara blásið
svona upp til þess að minna færi
fyrir þínu eigin svindli, eins og til
dæmis greiðanum góða við Mörð?
Fleiri dæmi er hægt að tína til
og hafa þau flest verið nefnd í
þeim ótal greinum sem hafa verið
birtar fyrir þessar kosningar. Ólaf-
ur kom til dæmis ekki alltaf heið-
arlega fram sem fjármálaráðherra,
ekki einu sinni þegar hann talaði
beint til þjóðarinnar um fjármála-
stöðu hennar.
Utanríkisstefna Ólafs er heldur
ekki beint í samræmi við skoðanir
og stefnu meginþorra þjóðarinnar.
Hann er á móti því að Island sé
í NATO, hann var á móti EFTA
á sínum tíma, hann var á móti því
að ísland færi í EES og hann er
ekki hlynntur því að ísland sæki
um aðild að Evrópusambandinu.
Hann vill ekki einu sinni skoða
þann möguleika. Hvert myndi
Ólafur teyma þjóðina næði hann
kjöri?
Nú skulum við segja sem svo
að aðeins væru þrír í framboði
núna; Guðrún Agnarsdóttir, Pétur
Hafstein og Guðrún Pétursdóttir.
(Athugið að þetta er aðeins dæmi.)
Auðvitað myndi okkur öllum lítast
betur á einn einstaklinginn frekar
en annan eins og gengur og ger-
ist. En ég er viss um að ekkert
okkar myndi harma það ógurlega
þó okkar kandidat kæmist ekki
að. Þessar þrjár manneskjur eru
allar toppmanneskjur, með fyrir-
myndar feril á bakinu og myndu
vafalaust allar standa sig vel í
þessu embætti. En því miður er
staðan ekki svona í dag. Við sem
viljum alls ekki fá Ólaf Ragnar
sem næsta forseta, okkur getur
ekki staðið á sama. Hann er ekki
maður sem við getum borið virð-
ingu fyrir. Aldrei! Ég vil ekki þurfa
að skammast mín fyrir forseta
minn en það myndi ég svo sannar-
lega gera yrði Ólafur Ragnar
Grímsson forseti. Ég hef ekki
meira um þetta að segja.
LILJA GUÐLAUG
BOLLADÓTTIR
Höfundur er nemi.
Svart á hvítu
FYRRVERANDI formaður Al-
þýðubandalagsins, Ólafur Ragnar
Grímsson, er stjórnmálamaður
sem hefur einskis svifist til að
koma sér áfram og koma höggi á
andstæðinga sína. Hann hefur
jafnframt hyglað vinum sínum
mjög á kostnað almennings. Ág-
ætt dæmi um þetta er meðferð
hans á máli útgáfufyrirtækisins
Svarts á hvítu annars vegar og
Þýzk-íslenzka hins vegar þegar
hann var fjármálaráðherra. Fjöldi
félagshyggjumanna átti hlutabréf
í Svörtu á hvítu og hafði mikla
hagsmuni af því að fyrirtækið
færi ekki í gjaldþrot. Þeirra á
meðal voru fyrrum kosningastjóri
Ólafs í innanflokksátökum í Al-
þýðubandalaginu, Björn Jónasson,
og Mörður Árnason, sem Ólafur
réð til sín sem fjölmiðlafulltrúa í
fjármálaráðuneytið. Þess má geta
að Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, er bróðir fyrrnefnds Björns
og var Ögmundur einn helsti við-
semjandi Ólafs á þessum tíma, en
fjölskylda þeirra átti mikið undir
því að fyrirtækið færi ekki illa.
Óðru máli gegnir um fyrirtækið
Þýzk-íslenzka. Þar voru ekki
innanborðs vinir fjármálaráðherr-
ans enda fékk fyrirtækið að kenna
á þeirri óvild sem Ólafur hefur
almennt sýnt í garð fyrirtækja.
Verðlaust veð
Svarts á hvítu
Þegar Svart á hvítu rambaði á
barmi gjaldþrots skömmu eftir að
Ólafur Ragnar settist í stól fjár-
málaráðherra reyndi hann að
bjarga fyrirtækinu með því að taka
tölvutækan gagnagrunn sem veð
upp í söluskatts- og launaskuldir.
Ólafur mat þennan gagnagrunn
vina sinna á 24 milljónir króna en
hann seldist síðar á 100.000 krón-
ur. Skattgreiðendur sátu eftir með
sárt ennið en vinir Ólafs hafa
eflaust ekki stutt hann af minni
ákafa vegna þessarar greiðvikni
hans.
Umdeild söluskattsskuld
Þýzk-íslenzka
Deilt var um það í málaferlum
Þýzk-íslenzka og ríkisins hvort
fyrirtækinu bæri að greiða ríkinu
söluskatt sem það hafði ekki inn-
heimt. Fyrirtækið hafði samið við
tollstjóra um að krafan yrði tekin
fyrir í fógetarétti með lögtaks-
beiðni í þeim tilgangi að því gæf-
ist færi á að halda uppi vörnum
fyrir dómi. Þrátt fyrir þennan
samning lét Ólafur fjármálaráð-
herra lögregluna loka fyrirtækinu
fyrirvaralaust og neitaði að taka
við bankatryggingu fyrir meintri
skuld. Neyddust forsvarsmenn
fyrirtækisins því til að greiða alla
upphæðina þegar í stað til að fá
fyrirtækið opnað að nýju. Lyktir
málsins urðu þær að þýzk-íslenska
var dæmt til að greiða hina um-
deildu söluskattsskuld. Lokunar-
aðgerðir þær sem Ólafur Ragnar
hafði farið út í af svo miklum ofsa
voru hins vegar dæmdar ólögmæt-
ar og þurfti ríkissjóður meira að
segja að greiða skaðabætur vegna
þeirra.
Ólafur
verður aldrei
sameiningartákn
Hér að ofan sést svart á hvítu
hvernig Ólafur Ragnar hefur mis-
munað fólki og fyrirtækjum eftir
því hvort um vini hans hefur verið
að ræða eða ekki. Maður sem
hyglar vinum sínum en fer með
offorsi gegn öðrum er ekki líkleg-
ur til að geta orðið sameiningar-
tákn þjóðar. Stór hluti þjóðarinnar
hefur með einum eða öðrum hætti
orðið fyrir barðinu á Ólafi Ragn-
ari. Stór hluti þjóðarinnar mun
aldrei geta sætt sig við Ólaf Ragn-
ar á forsetastóli.
RÚNAR FREYR GÍSLASON
Höfundur er leiklistarnemi.
NÚ STENDUR sem
hæst barátta milli
þeirra sem hafa slegið
eign sinni á landið og
sjóinn — og okkar
hinna sem fátt eigum
nema það sem við öfl-
um dag frá degi. Þessi
barátta er um æðsta
embætti þjóðarinnar,
sem hinir vammlausu
vilja að við hin trúum
að sé gjörsamlega
valdalaust. En valda-
laust er það ekki.
Jafnvel á hugsjóna-
lausri öld gæti rödd
þeirrar manneskju,
sem á Bessastöðum býr — og þjóð-
in elskar — opnað steinhjörtun og
sameinað þjóðina að einu marki.
í gegnum myrkar aldir þegar
erlent vald bjó á Bessastöðum,
horfði þrautpínd alþýða þangað
og vænti griða, uppreistar af kon-
ungsvaldinu, þegar innlendir höfð-
ingjar gengu á þess litla rétt.
Þjóðin væntir þess að með for-
seta íslands fremstan megi hún
upprétt ganga til framtíðar.
I þessu greinarkorni ætla ég
sannarlega ekki að róa á borði
með einum frambjóðanda, því að
liver verður að hugsa og álykta
fyrir sig, en lítil sönn dæmisaga
úr íslenskri sveit ætti varla að
skaða.
Árið 1952 þegar baráttan um
forsetastólinn stóð að mestu milli
séra Bjarna og Ásgeirs Ásgeirs-
sonar var ég í sveit austur í Hvol-
hreppi. Á bænum var tvíbýli og
var gagnkvæm virðing milli heim-
ilanna. Rótgróið íhaldsfólk bjó á
öðrum jarðarpartinum, en fram-
sóknarfólk á hinum. Vikurnar fyr-
ir kosningardag sniðgengu hús-
bændurnir hvorn annan og töluð-
ust varla við nema brýna nauðsyn
bæri til. Að kosning-
um afstöðnum gekk
lífið á bænum sinn
vanagang og ríkti
sama vinsemd og virð-
ing og áður. Ekkert
hafði skeð. Þetta þótti
mér skrýtið, drengn-
um. Seinna skildi ég
að þarna fóru tveir
sómamenn í skap-
stærra lagi, sem vildu
fyrir hvern mun forð-
ast stór orð og erjur,
sem hefðu getað sært
og ekki gróið um heilt.
Þroska og mennt
þessara bændahöfð-
ingja mættum við öll tileinka okk-
ur og jafnvel þau okkar sem lög-
lærð eru. Ég hvet þjóðina til þess
að láta ekki óhróður og áróður
fanta spilla dómgreind sinni, þegar
valinn er einn úr hópi þessa sóma-
fólks til að gegna ástsælustu og
mestu virðingarstöðu þjóðarinnar
og jafnframt hinni valdamestu.
JÓHANNES EIRÍKSSON
Höfundur er leigubílsstjóri.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvdli
og Rábhústorginu
-kjarni málsins!
Dæmisaga
um drengskap
Jóhannes
Eiríksson