Morgunblaðið - 29.06.1996, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 29.06.1996, Qupperneq 56
56 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens 2? ( Þess/ \ 1 HLAOPEGU rtffÖG / \ /f&ESSANO// l ©1996 Tribune Media Services, In All Rights Reserved. !f ^l/Jr . l>Þ-J / Ir&T^ Grettir 5Tf23UKA STRjdJlíA STKjOKA STRjOKA STRJOKA \ Tommi og Jenni flttu tiL /npAdLu) Bo-n^ búð'ino?J?oct- (''fer/vi e/íif perircócK, > suesJcjtJ- tcirsuberia.? /V buíinaut 0[bctraUa.,.SueskiubaX- 'ibgur! ftann eriscit!,-^ Ferdinand ÉG ÞORI ekki að líta á einkunna- Hérna, Magga... lítt þú á það og Vá! Þakka þér fyrir, Magga... spjaldið mitt... segðu mér fréttirnar... BRÉF • FORSETAKJÖR Hver borgaði ferðalögin? A Spurning til Olafs Ragnars Frá Þórdísi Guðbjartsdóttur: FERÐALÖG Ólafs Ragnars Gríms- sonar á friðarfundi um allan heim, sem hann þreytist svo seint á að lýsa fyrir alþjóð, hljóta að hafa kostað mikla peninga. Venjulegir launþegar sem eiga þess sjaldan kost að ferð- ast út um heim eiga erfitt með að skilja hvaðan allur farareyririnn hef- ur borist Ólafi Ragnari. Hann var lengstum óbreyttur þingmaður. Hvaðart komu þá allir ferðapening- arnir, Ólafur? Væntanlega svarar þú spurning- unni skjótt og vel hér í Velvakanda. Flýtir þér að svara áður en þjóðin tekur afdrifaríka ákvörðun um næsta forseta íslenska lýðveldisins. Og þú svarar henni þá væntanlega á þá leið að þingmannasamtökin alþjóð- legu hafi borgað brúsann. En hvern- ig bárust allir þessir peningar til al- þjóðlegu þingmannasamtakanna? Hér skal ekki leitt að því getum að þessir ferðapeningar hafi borist eftir annarlegum ieiðum til friðar- samtakanna. En margt skrýtið hefur komið í ijós við bráðnun jámtjalds- ins. Meðal annars hefur komið í ljós við athugun leyndarskjala sovésku og austurþýsku leyniþjónustunnar að þar studdu menn með miklum fiármunum alls kyns „friðarhreyfing- ar“ á Vesturlöndum. Marmiðið var að veikja varnir og samstöðu vest- rænna ríkja. Því miður tók banda- ríska leyniþjónustan - þegar kalda- stríðið stóð sem hæst - þátt í fiár- mögnun ýmissa samtaka sem höfðu á sér friðsamlegt yfirbragð. Baráttan um heimsyfirráðin var og er kannski enn býsna hörð. Ýmsir miður þjóðhollir einstakl- ingar tóku þátt í hinum ljóta leik sovésku leyniþjónustunnar - vafalít- ið stundum án þess að kanna eða hugsa út í hvaðan peningamir komu. Menn verða ætíð að njóta sannmæl- is. En enn og aftur skal varpað til þín spumingunni, Ólafur Ragnar Grímsson, því miklu varðar að for- seti íslands sé flekklaus sonur sinnar þjóðar en ekki fyrmm erindreki afla sem kusu að starfa í skjóli myrkurs. Spurningin er einföld: Hvaðan komu ferðapeningarnir? ÞÓRDÍS GUÐBJARTSDÓTTIR, skrifstofumaður. Hvers konar forseta? Frá Eydísi Aðalbjörnsdóttur og Þorkeli Loga Steinsen: í LJÓSI þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað undanfarið, um jafnrétti kynjanna með vísun til forsetaemb- ættis, langar okkur til að koma eftir- farandi á framfæri. Við erum þrítug, fi'ögurra barna foreldrar. Við reynum að spjara okkur sem hjón, foreldrar og úti á vinnumarkaði. Okkar fyrirmyndir eru Pétur og Inga Asta, hjón, sem Eydís kynntist á unglingsaldri á ísafirði og við höfum haldið sam- bandi við síðan. Milli Ingu Astu og Péturs er jafnræði. Samband þeirra byggist á hlýju og gagnkvæmri virð- ingu, sem kristallast í uppeldi á son- um þeirra, sem nú eru 17 ára, 13 ára og 9 ára. Þau hafa náð því að vera samstiga í lífinu, hvort sem er í vinnu eða heimilislífi. Pétur hefur sterka og hlýja nærveru, er gott leiðtogaefni án sjálfumgleði eða hroka. Fyrirmyndin verður ekki búin til, manneskjan dæmist af verkum sínum. Það er og verður ekkert leynt eða hulið í kringum Pétur eða hans störf. Við stöndum frammi fyrir ein- stæðu tækifæri til að fá fóik á Bessa- staði, sem mun vinna okkur íslend- ingum mikið gagn og verða fulltrúar fyrir okkur öll. Við vitum að þau munu hafa jafnrétti, heiðarleika, trú- mennsku og framsýni að leiðarljósi. Við trúum því einlæglega að forseti íslands eigi að vera fyrirmynd, við trúum því einnig að eiginleikar manneskjunnar af hvoru kyninu sem hún er, eigi að ráða vali kjósenda. Þess vegna er val okkar auðvelt, við viljum Pétur og Ingu Ástu á Bessastaði. EYDÍS AÐALBJÖRNSDÓTTIR, ÞORKELL LOGI STEINSEN, Fáikagötu 18, 107 Reykjavík. Kosninga- rétturinn er dýrmætur Frá Friðrik Weishappel Jónssyni: BARÁTTAN fyrir forsetakosning- arnar virðist vera farin að stjórnast af einhverju allt öðru en því hvern fólk telur vera besta frambjóðand- ann. Kosningar sem einkennast af slíku eru ekkert annað en skrípaleik- ur. Sá sem lætur skoðanakannanir eða álit annarra hafa áhrif á það hvað hann kýs er að selja sannfær- ingu sína. Slíkur maður getur varla haft mikla sjálfsvirðingu. Pétur Hafstein hefur sagt í sjón- varpsauglýsingum að atkvæðisrétt- urinn sé dýrmætur og að það skipti máli hvemig hann sé notaður. Eg tek hann á orðinu og ætla að kjósa Guðrúnu Agnarsdóttur, enda kýs ég samkvæmt minni sannfæringu og læt ekki stjórnast af neinu öðru. Vonandi gera allir slíkt hið sama. FRIÐRIK WEISHAPPEL JÓNSSON, Ingólfsstræti 10, Reykjavík. Forsetafram- boðsvísur Frá Óskari Þórðarsyni: „Megum við fá meira að heyra?‘f um máttlaust níð sem ekki gagnar. Getið þið ekki fundið fleira fáránlegt um Ólaf Ragnar? Einar Oddur lýsti yfir stuðningi við Pétur Hafstein, einn fárra þing- manna: Flateyraijarlinn er kominn á kreik og kýs að standa með Pétri. Og segir kannski þó von hans sé veik: „Það var ekki annar betri." Eftir lestur níðgreinar um Ólaf Ragnar Grímsson í DV 3. júní 1996 eftir Hannes Hólmstein Gissurar- son, varð til hjá mér þessi staka: Enn hefur bæst í fjandaflokkinn, það fer að verða af slíku nóg. Ekki er Hannes Hólmsteinn sokkinn í hálfu kafi marar hann þó. ÓSKARÞÓRÐARSON, Blesugróf 8, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.