Morgunblaðið - 04.07.1996, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Golli
ARNFINNUR R. Einarsson við eitt verka sinna.
Amfinnur í
Nýlistasafninu
NÚ STENDUR yfir sýning á verkum
Arnfínns R. Einarssonar í Nýlista-
safninu, en þar sýna einnig finnska
listakonan Marianna Utinen og Hol-
lendingarnir Ingrid Dekker og Gé
Karen van der Sterren.
Arnfinnur sýnir á neðri hæð ný-
listasafnsins, bæði í forsal og í
gryfju. Leiðarstef verkanna í forsal
er, eins og segir í sýningarskrá,
„eyðiiegging sem leiðir til sköpunar
og aftur eyðileggingar og sköpun-
ar ..." „Hversdaglegir hlutir eru
notaðir sem hráefni og umbreytt
með myndbands- og tölvutækni og
gefið nýtt líf, einhvers konar endur-
vinnsla og má segja að aliar mynd-
irnar séu ákveðin skref úr þróunar-
ferli umbreytingarinnar, með inn-
komu nýrra þátta.“ í forsal eru
fimm myndir og segir Arnfinnur
að hann klippi út augnablik í endur-
sköpuninni. „Þetta er eins og að
taka kvikmynd og klippa út há-
punktana úr henni. Ég lít á þetta
sem hráefni, rétt eins og þegar
maður finnur stein í náttúrunni og
formar hann með ákveðnum hætti,“
segir Arnfinnur.
Þessi nýja tækni er annarri tækni
betri í því að varðveita áhugaverð
skref úr þróunarferlinu að mati
Arnfinns. „Þarna fæst ég við bæði
anda og efni um leið og ég tek ljós-
myndir af augnablikum endursköp-
unarinnar," segir Arnfinnur.
í gryfjunni getur að líta fjóra sjón-
varpsskjái tengda myndbandstækj-
um, en viðfangsefni Arnfinns með
þeirri aðferð er formrænt gildi hreyf-
ingarinnar. „Hreyfingin er aðalefni-
viður verksins og með því að hreyfa
myndbandstökuvélina þá er hægt
að varðveita hreyfínguna án þess
að hluturinn sem hreyfist sjáist. Ég
nota hljóðgervil til að undirstrika
formið en í heild má segja að ég sé
að búa til skúlptúra úr hreyfingu,"
segir Amfinnur. í sjónvarpsskjáun-
um eru annars vegar óreglulegar
hreyfingar og hins vegar reglulegar
hreyfingar, en þessum efniviði er
raðað saman á nokkra vegi. „Þetta
eru eingöngu formræn fyrirbæri en
ekki fígúratív og þetta er mjög
áhugavert því hreyfingin lifir bara í
tíma og minnir mig á eitthvað and-
legt og efnislaust," segir Amfínnur.
Marianna Utinen er ein þekktasta
listakonan í Finnlandi af yngri kyn-
slóðinni. Á efri hæðinni í Nýlistasafn-
inu era verk eftir hana, bæði hljóð-
verk og ljósmyndir auk málverka.
Þess má geta að Listasafn Íslands
hefur keypt tvær veggmyndir og eina
ljósmynd eftir Utinen.
Sýningu listamannanna í Nýlista-
safninu lýkur á sunnudag.
TONLIST
Tó n I e i ka r
PULP
Tónleikar bresku hljómsveitarinnar
Pulp í Laugardalshöll 2. júlí. Einnig
léku átónleikunum íslensku hljóm-
sveitimar Botnleðja, Funkstrasse,
Spoon og SSSól. Áhorfendur voru
nokkuð á fimmta þúsund.
LOKAPUNKT Listahátíðar í
Reykjavík setti breska poppsveitin
Pulp í Laugardalshoil á þriðjudag.
Margir höfðu spáð því að þeir tón-
leikar myndu fara illa, þvi tvennir
popptónleikar höfðu þegar farið
fram með stuttu millibili; David
Bowie lék 20. júní og Björk Guð-
mundsdóttir 21. Það var þó öðru
nær, því aðsókn var afskaplega
góð. Stemmningin í höllinni var líka
geysimikil og greinilegt að allir
skemmtu sér hið besta.
Leiðtogi Pulp, Jarvis Cocker, er
meðal annars frægur fyrir að vera
meinhæðinn og hnyttinn í tilsvöram
og textar hans skipa miklu máli í
lögum Pulp, meginmáli á köflum.
Uppistaða textanna er fornar ástir
sem Cocker skoðar með írónískum
trega; til að mynda íjallaði fyrsta
uppklappslag tónleikanna, Disco
2000, um ástarsamband sem aldrei
komst af stað en vekur ljúfsárar
minningar þegar söguhetjurnar
hafa búið sér líf hvor í sínu lagi og
ekkert sem sameinar lengur nema
minningarnar. Þriðja lag tónleik-
anna fjallaði einnig um ástina á
Fornar
ástir
meinhæðinn hátt og það vakti mikla
hrifingu þegar Jarvis Cocker kynnti
lagið á bjagaðri íslensku; „manstu
fyrsta skiptið" spurði hann og ung-
mennin ærðust.
Eftirminnilegur er flutningur
hljómsveitarinnar á laginu Sorted
for E’s & Wizz, þar sem Cocker
tekur reifmenninguna og fylgifisk
hennar, dópneysluna, og dregur
sundur og saman í háði, ekki síst
draumóra um að dópið muni auka
fegurð og hamingju og skapa
bræðralag á jörðu; þegar rennur af
reifgestinum kemst hann að því að
hann er einn -og verr staddur en
fyrir vímuna.
Gamalgróin stéttaskipting og
fordómar fá einnig til tevatnsins,
eins og glöggt má heyra í vinsæl-
asta lagi hljómsveitarinnar, Comra-
on People, sem segir frá miðstéttar-
stúlku sem langar að deila kjörum
með alþýðunni um stund sér til
skemmtunar. Þá ætlaði allt af göfl-
um að ganga í Höllinni, allir tón-
leikagestir virtust kunna textann
út í æsar og sungu með af kappi
samtímis því að þeir stukku upp
og niður í takt við tónlistina. Nokk-
uð datt stemmningin niður þegar
hljómsveitin flutti lög af eldri plöt-
um, eða lög af nýjustu plötu sinni
sem ekki hafa náð almennum vin-
sældum. Gleði gesta var hinsvegar
hamslaus þegar þekktari lög komu,
eins og Sorted for E’s & Wizz,
áðurnefnt fyrsta skipti, Disco 2000
o.fl.
Hljóðfæraskipan Pulp er óvenju-
leg meðal annars fyrir fiðluleik, en
einnig eru hljómborð notuð á óvenju-
legan hátt ýmist til að gefa tívolí-
stemmningu, eða reifstuð, eða
'kirkjuorgelblæ, eða herma eftir
geimskipum í lendingu. Tónlistin er
grípandi popp, á köflum með sér-
kennilegum hljómagangi eða takt-
skiptingum; sum laganna frumstæð
og stundum ber andinn efnið ofur-
liði, en önnur bráðgrípandi og undir-
strika textann meistaralega. Lík-
lega var besta lag tónleikanna Bar
Italia, síðasta lagið, sem sagði enn
frá einmanaleikanum; eins konar
existentíalísk úttekt á lífinu og til-
brigði við fornar ástir - maðurinn
er alltaf einn
Framkvæmd tónleikanna var öll
til fyrirmyndar og sómi af. Eina sem
skyggði á var sá orðrómur sem
gekk ljósum logum að hljómsveitin
Blur myndi troða upp á tónleikun-
um, sem hver sá þó í hendi sér að
væri útilokað. Fjölmiðlar ýttu nokk-
uð undir þennan orðróm og ekki
bætti úr þegar hljómsveitarmeðlimir
Pulp tóku sjálfir undir í viðtölum.
Kannski hafði þetta eitthvað að
segja um aðsóknina, en víst var
enginn svikinn af tónleikum Pulp
þó hvergi sæist þar Blur-liði.
Árni Matthíasson
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Sumartónleikar í Skálholtskirkju 1996 að hefjast
Jónas og Hildigunnur
staðartónskáld
Ingólfsdóttir leika só-
nötur fyrir fiðlu og
sembal. Bachsveitin í
Skálholti flytur kant-
ötur Bachs ásamt ein-
söngvurum og frum-
flutt verður ný messa.
Erlendir gestir
Erlendir gestir
sækja Skálholtskirkju
jafnframt heim, þeirra
á meðal hollenski
fiðluleikarinn Jaap
Schröder, blokk-
flautuleikarinn
Marijke Miessen og Hildigunnur Jónas
semballeikarinn Glen Rúnarsdóttir Tómasson
FYRSTA tónleikahelgi sumarsins á
vegum tónlistarhátíðarinnar Sum-
artónleikar í Skálholtskirkju hefst
laugardaginn 6. júlí næstkomandi.
í boði verða tónleikar fímm helgar
í júlí- og ágústmánuði og verður
tónleikahaldið með svipuðu sniði og
undanfarin ár, þ.e.a.s. tónleikar era
á laugardögum kl. 15 og kl. 17 og
eru aðrir tónleikamir endurteknir á
sunnudögum kl. 15. Messa er kl.
17 sunnudaga með þátttöku tónlist-
arfólksins. Erindi tengd tónleika-
haldinu verða flutt í Skálholtsskóla
á laugardögum kl. 14. Aðgangur
er ókeypis.
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
leggja nú af stað inn í nýjan áratug
tónlistarhalds með spennandi dag-
skrá eftir vel heppnaða 20 ára af-
mælishátíð síðasta árs, að sögn
Arngeirs Heiðars Haukssonar,
framkvæmdastjóra hátíðarinnar.
Sem áður eru meginviðfangsefnin
barokktónlist á upprunaleg hljóð-
færi og frumflutningur á nýrri ís-
lenskri tónlist. Staðartónskáldin era
tvö, þau Hildigunnur Rúnarsdóttir
og Jónas Tómasson, og flytjendur
tónlistarinnar fjölmargir, innlendir
sem erlendir.
Sönghópurinn Hljómeyki heldur
hátíðartónleika í tilefni 10 ára sam-
starfs við Sumartónleika í Skál-
holtskirkju. Bryndís Halla Gylfa-
dóttir leikur einleiksverk fyrir selló
og Svava Bernharðsdóttir og Helga
Wilson frá Þýskalandi,
semballeikarinn William Heiles frá
Bandaríkjunum og harðangurfiðlu-
leikari frá Noregi, Alf Tveit. Dag-
skráin verður annars sem hér segir:
1. helgi, 6. og 7. júlí. Kári Bjarna-
son flytur erindi: Af skrifuðum
skræðum er fátt að frétta. Um
kvæðabók sr. Ólafs Jónssonar á
Söndum (1560-1627). Svava Bern-
harðsdóttir og Helga Ingólfsdóttir
leika sónötur fyrir fiðlu og sembal
BWV 1015-1017 eftir J. S. Bach.
Bryndís Halla Gylfadóttir leikur
einleiksverk fyrir selló eftir J.S.
Bach og B. Britten.
2. helgi, 13. og 14. júlí. Sr. Krist-
ján Valur Ingólfsson flytur erindi
um samspil trúar og tónlistar.
Sönghópurinn Hljómeyki heldur
hátíðartónleika í tilefni 10 ára sam-
starfs við Sumartónleika í Skál-
holtskirkju.
Flutt verða verk eftir J.S. Bach,
B. Britten, F. Mendelsohn og Jón
Nordal. Frumflutningur tónverks-
ins Þrír Davíðssálmar eftir Hildi-
gunni Rúnarsdóttur fyrir kór og
orgel. Hljómeyki og Douglas A.
Brotchie flytja. Stjórnandi: Bern-
harður Wilkinson.
3. helgi, 27. og 28. júlí. Hans
Jóhannsson flytur erindi um þróun
strokhljóðfæra frá endurreisnar-
tíma fram á okkar daga. Jaap
Schröder leikur einleiksverk fyrir
fiðlu eftir J.S. Bach og H.I.F. Bi-
ber. Margrét Bóasdóttir sópran,
Ólafur Kjartan Sigurðsson bassa-
baríton og Bachsveitin í Skálholti
flytja kantötur BWV 32 og 58 eftir
J.S. Bach undir stjórn Jaaps
Schröders.
4. helgi, 3., 4. og 5. ágúst. Versl-
unarmannahelgin. Jónas Tómas-
son flytur forspjall um messu sína.
Frumflutningur messu eftir Jónas
Tómasson fyrir sópran, fimm
karlaraddir og barokkhljóðfæri.
Margrét Bóasdóttir, Voces Thules
og Bachsveitin í Skálholti flytja
verk undir stjórn Gunnsteins Ólafs-
sonar. William Heiles semballeikari
leikur fyrra hefti Das Wohltem-
perierte Klavier eftir J.S. Bach og
Alf Tveit, harðangursfiðluleikari
flytur norræn kirkjuverk og tón-
verk frá Telemark. Voces Thules-
hópurinn syngur tíðasöng í Skál-
holtskirkju.
5. helgi, 10. og 11. ágúst Glen
Wilson flytur erindi: Endurfundir
Bachs og Buxtehude í Liibeck og
Skálholti. Glen Wilson leikur semb-
alvérk eftir D. Buxtehude. Marijke
Miessen og Glen Wilson leika só-
nötu BWV 1017 fyrir blokkflautu
og sembal og tríósónötur BWV 525
og 527 eftir J. S. Bach.