Morgunblaðið - 06.07.1996, Síða 10

Morgunblaðið - 06.07.1996, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjölmargir gestir eru samankomnir á fjórðungsmóti sunnlenskra hestamanna á Gaddstaðafiötum ÁSTMAR Arnarson var mætt- ur til að fylgjast með Kraka sínum. HJÖRDÍS Rut Jónsdóttir og Skjóni. HÁKON Pétursson, Halla Fróðadóttir og tíkin Hera úr Mosfellsdalnum. TÓMAS Örn Snorrason: „Það kemur mót eftir þetta mót.“ MJ 'ótsgestir voru ekki orðn- ir mjög margir en búist er við 5-7000 manns á svæðið um helgina. Vel virtist fara um áhorfendur í brekkunni. Morgunblaðið tók nokkra þeirra tali. Uppi í brekku stendur spek- ingslegur maður með hatt. Hann fylgist af mikilli einbeitingu með dómunum sem lesnir eru upp í hátalarakerfið og færir einkunn- ir inn í bók. Hann segist heita Ástmar Arnarson og vera kom- inn til þess að fylgjast með gæð- ingnum sinum, honum Kraka, í keppninni. Mótin að breytast Ástmar segir að hestamanna- mótin séu að breytast, hér áður fyrr hafi fólk komið á mót til að horfa á kappreiðar og hafa gam- an af, þó að það væri ekki endi- lega sjálft í hestamennsku. Nú sé mikill meirihluti mótsgesta fólk sem virkilega stundi hesta- mennskuna; tamningamenn, knapar, hrossaræktarmenn og aðrir sem á einhvem hátt tengj- ast hestunum eða keppendum. Ung stúlka með reiðhjálm og písk stendur og heldur í skjóttan hest. Hún virðist dáiítið óróleg. Skyldi hún vera að fara að keppa? „Jú, ég keppi í unglinga- flokki núna eftir smástund," seg- Gæðingar og gott veður Það var ijómablíða og góð stemmning á fjórðungsmóti sunn- lenskra hestamanna á Gaddstaðaflötum þegar Margrét Svein- bjömsdóttir kom þar við á fímmtudaginn, á öðrum degi mótsins. Þar stóð þá yfir forkeppni í A- og B-flokki gæðinga og keppni í bama- og unglingaflokkum. ir stúlkan, sem heitir Hjördis Rut Jónsdóttir og keppir á Skjóna fyrir hestamannafélagið Sindra í Vík í Mýrdal. Hún viðurkennir fúslega að það sé smátitringur í sér fyrir keppnina. Hjördís Rut ætlar að gista í tjaldi á flötunum allt mótið. Hún segist hafa verið á hestbaki síðan hún var smástelpa. Landsmótsígildi Hún er heimilisleg stemmning- in í brekkunni þar sem þau hjón- in Guðmundur Einarsson og Katrin Engström em búin að koma sér fyrir í tjaldstólum með teppi, ásamt dótturinni Ástu Rún og félaga þeirra Sven Hultin frá Svíþjóð. TIL SÖLU - FÍFURIMI 7 - OPIÐ HUS Vel skipulögð 120 fm efri sérhæð ásamt bílskúr. 3 svefn herb., stofa, eldhús og bað. Þvottahús á hæðinni. Ræktuð lóð. Verð 10,4 m. áhv. langtímaián kr. 5,2 m. Þröstur og Þuríður sýna íbúðina um helgina frá kl. 13 - 18. Verið Velkomin. RSALIR hf. )Fasteignasala Lágmúla 5, sími 533 -4200. 5521150-5521370 Til sýnis og sölu - meðal annarra eigna: Eins og ný við Bergstaðastræti Glæsileg 4ra herb. íb. á 1. hæð í þriggja hæða sleinhúsi, um 100 fm. Mikið stofurými. Ágaet sameign. Mjög gott verð. Á vinsælum stað í Garðabæ Nýleg og góð íb. á 3. hæð og í risi, rúmir 104 fm. Allt sér. 40 ára húsnæðislán kr. 5,1 millj. 5 ára lán kr. 1,1 millj, Laus fljótl. Vinsamleg- ast leitiö nánari uppl. Lyfta - stór bílskúr - gott verð Nljög góð 4ra herb. íbúð 110,1 fm á efstu hæð í lyftuhúsi við Álfta- hóla. Agæt sameign. Frábært útsýni. Skipti æskileg á góðri 2ja-3ja herb. Ib. ekki í úthverfi. Vinsamlegast leitið nánari uppl. Sérþvottahús - ágæt sameign - bílhýsi Mjög góð 4ra herb. (b. á 1. hæð, 100,7 fm á besta stað við Dalsel. Parket, Sameign eins og ný. Gott bíihýsi. Vinsamlegast leitið nénari uppl. 2ja herb. ódýrar fbúðir við: Meistaravelli (sólr(k), Hraunbæ (langt(malán), Njálsgötu (eins og ný), Barónsstig (eins og ný), Rofabæ (góð kjör), Barðavog (mjög gott verð). Vinsamlegast leitið nánari uppl. Opiðídag kl. 10-14. Fjöldi fjársterkra kaupenda. Margskonar eignaskipti. ALMENNA FASTEIGNASALAN UBeiVE6IUS. 552 1151-552 1371 Sú stutta sefur vært, er orðin þreytt eftir daginn. Hvelí rödd kynnisins í hátalarakerflnu virð- ist ekki raska ró hennar. Guðmundur segir þetta fjórð- ungsmót vera landsmótsígildi. „Hér eru hestar í hæsta gæða- flokki, vantar bara aðeins fleira fólk,“ segir hann. Sven Hultin segist eiga einn íslenskan hest, en hann hefur í mörg ár unnið með íslenska hesta á hestaleigu og reiðskóla í Norð- ur-Svíþjóð. „Hann er hérna hjá okkur í sex vikna „vinnufríi", segir Katrin og brosir út í ann- að. „Fríið“ er greinilega aðeins að nafninu til ef marka má tón- inn í röddinni. Veit ekki hesta sinna tal Næst hittum við fyrir ungt par með hund. Skötuhjúin segjast heita Halla Fróðadóttir og Há- lOgl láko egis að h spurður varla vita hvað hann á mörg hross. „Þau eru allt of mörg, kannski svona 30 stykki?“ Hann keppir á fjórðungsmót- inu og hefur reyndar verið á mótum út um allan heim, og seg- ist hafa nóg að gera í hesta- mennskunni. Faglegar sýningar og góðir hestar Uppi í brekku situr ungur maður í sólstól. Hann er með hægri fótinn í gifsi og fremst á tánni situr sérhönnuð og iitrík prjónahúfa. Tómas Örn Snorra- son heitir maðurinn. Hann átti að keppa og sýna á mótinu en var svo óheppinn að detta af baki fyrir nokkru og fótbrotna. „En það kemur mót eftir þetta mót,“ segir hann bjartsýnn. Tómas er með tamningastöð í Landeyjunum ásamt félaga sín- um. Hann hefur einnig unnið við tamningar í Þýskalandi og tók þátt i heimsmeistaramóti is- lenskra hesta á siðasta ári, svo óhætt er að segja að hann sé atvinnumaður í faginu. Tómas er ánægður með mótið; „Hér er góð stemmning, mjög góðir hestar, faglegar sýningar og gott veður.“ Kaupir 5-40 hesta á ári Neðar úr brekkunni heyrist norrænn tónn. Þar eru þau Anne Sofie Nielsen og Birgitte Krabbe frá Danmörku og Rune Svensén frá Noregi. Þau segjast vera komin hingað til lands gagngert til að fara á fjórðungsmótið og skoða hesta. Birgitte er þegar búin að festa kaup á trippi og Rune segist kaupa á bilinu 5 til 40 hesta á ári. Hann og kona hans, sem var væntanieg á mótið í gær, hafa atvinnu af því að selja og temja íslenska hesta á búgarði sinum í Kristianssand í Noregi, Anne Sofie hefur oft komið til Islands, hefur unnið hér og á ís- lenskan kærasta. Hún er líka atvinnumanneskja í bransanum. Birgitte er á góðri leið með að verða það iíka, því hún er nýbúin að fá dómarararéttindi. Sjálf á hún einn hest í Danmörku og er nýbúin að festa kaup á trippi hér á landi. ÁSTA Rún Guðmundsdóttir (sofandi), foreldrar hennar Katrin Engström og Guð- mundur Einarsson og félagi þeirra Sven Hultin. ÁHUGINN leynir sér ekki í andlitum mótsgesta. Til sölu: Hús með mikla möguleika, séríbúð í kjallara, tvöf. bflskúr, gróðurhús o.fl. Verið velkomin. Uppl.sími fyrir þá sem ekki geta komið i ofangr. tíma 551-4305, Morgunblaðið/Arni Sæborg ANNE Sofie Nielsen og Birgitte Krabbe frá Danmörku og Norð- maðurinn Rune Svensen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.