Morgunblaðið - 06.07.1996, Side 15

Morgunblaðið - 06.07.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUG ARDAGUR 6.JÚLÍ 1996 15 NEYTENDUR I hreinu tjaldi í útilegnna Á ÞESSUM árstíma er fólk að taka tjaldið úr geymslunni og fara með í viðgerð eða láta hreinsa það fyrir útileguna. Við hringdum í um 25 þvotta- hús og efnalaugar á höfuð- borgarsvæðinu og spurðum hvort hægt væri að koma með tjald í hreinsun en það voru aðeins átta þvottahús sem buðu þessa þjónustu. Nokkuð var um að ekki væru tekin stór tjöld í hreinsun og allur gangur á hvort innifalin væri vatnsvörn í verðinu. Sum fyrirtæki eru með grunngjald og síðan kilógjald en önnur með fast verð. Enginn saman- burður var gerðum á gæðum þjónustunnar heldur einungis spurt hvað kostaði að fá tjald hreinsað. Tjaldið hreinsað! Þvottahúsið Fönn Skeifunni 11, Rvk. Grunnverð 1.263 kr. og síðan 141 kr. á hvert kg. Vatnsvörn innifalin. Þvottahúsið Hraunbrún 40, Hafnarfj. Hreinsa tjöld upp að 5 manna. 420 kr. á hvert kg. Ekki vatnsvörn. Hreint og klárt Nýbýlavegi 26, Kóp. Grunnverð 1190 kr. og síðan 150 kr. á hvert kr. Vatnsvörn innifalin. Hraðhreinsunin Súðavogi 7, Rvk. Ekkert grunnverð en 340 kr. á hvert kg. Vatnsvörn innifalin. Efnalaugin Drífa i Hríngbraut 119, Rvk. Hreinsa tjöld upp að 6 manna. Verð 1.000 kr. og með vatnsvörn 1.500 kr. Stærri tjöld metin hverju sinni. Efnalaugin kjóll og hvítt Eiðistorgi 15, Seltjarnarn. Grunnverð 1.270 kr. og síðan 141 kr. á hvert kg. Vatnsvöm kostar 360 kr. Efnalaugin Mosfellsbæ Háholti 14, Mosfellsb. Hreinsar tjöld upp að 5 manna. Grunnverð 1.200 kr. og síðan 130 kr. á hvert kg. Vatnsvörn innifalin. Efnalaug Garðabæjar Garðatorgi 3, Garðabæ Hreinsar tjöld upp að 5 manna. Grunnverð 2.700 kr. Vatnsvörn 1.200 kr. Kennarar á námskeið í haust Neytendafræðsla í grunnskólana HEIMILISBÓKHALD, sparnaður, notkun greiðslukorta, neytendaráðg- jöf, áhrifamáttur auglýsinga, flokk- un sorps, matarinnkaup, vörumerk- ingar... í haust stendur kennurum til boða að fara á námskeið í neytenda- fræðslu þar sem kennt verður hvern- ig hægt er að flétta hana inn í nám barna og unglinga. Markmiðið er að nemendur geti sem neytendur þroskað með sér sjálfstæða hugsun, gagnrýnin viðhorf og góða undir- stöðuþekkingu á neytendamálum. í janúar 1995 fóru norrænir ráð- herrar neytendamála þess á leit að neytendamálasvið norrænu ráð- herranefndarinnar sæi um að útbúa verkáætlun á sviði neytendafræðslu í skólum. Nú er þeirri vinnu lokið og bæklingurinn Neytendafræðsla á Norðurlöndum kominn út undir rit- stjórn Þorláks Helgasonar. í honum eru viðmiðanir sem auka eiga sam- vinnu neytendasamtaka og stofnana við skóla og vera grunnur fyrir vinnu kennara í skólum, fyrir endurmennt- un kennara og útgáfu námsgagna. Anna Guðmundsdóttir og Bryn- hildur Briem, lektorar við heimilis- fræðideild Kennaraháskóla íslands, hafa hlotið styrk til að koma af stað neytendafræðslu fyrir kennaranema og þá kennara sem þegar eru starf- andi svo hægt sé að koma neytenda- fræðslu áleiðis til nemenda í grunn- skólum landsins. „Það er ljóst að full þörf er á neytendafræðslu í skólana og núna er hún helst kennd í tengslum við heimilisfræði en æskilegt er að hún komi inn á fleiri svið síðar,“ segir Brynhildur Briem. Neytendafræðsla verður sem sagt ekki sjálfstæð námsgrein heldur á að flétta hana inn í önnur fög í skólum. Börn hafa áhrif á útgjöld heimila Brynhildur segir mikiivægt að undirbúa börn og unglinga sem neyt- endur í samfélagi sem tekur stöðug- um breytingum og þar skiptir neyt- endafræðsla í skólum miklu máli. „Til að geta ráðið við eigin fjármál er nauðsynlegt að geta gert fjár- hagsáætlun, þekkja áhrif auglýs- inga, hafa vitneskju um matvæli, fatn- að og svo framvegis. Böm og ungling- ar hafa áhrif á útgjöld og neyslu heim- ila, vöruúrval hefur margfaldast og það verður sífellt erfíðara að hafa yfirsýn yfir markaðinn. Aukin áhersla er á auglýsingar og neytendur þurfa að geta metið og tekið sjálfstæða afstöðu við vöruval." Hún segir að stefnt sé að því að þroska með nemendum greinandi og gagnrýnin viðhorf til neytendamála með áherslu á gæði, verð, þjónustu, auðlindir og umhverfi. Kennarar á námskeið í haust „Við byijum á því að vera í haust með námskeið á vegum kennslumið- stöðvar Kennaraháskólans. Um er að ræða almenna neytendafræðslu fyrir kennara en þeir verða einnig látnir vinna verkefni sem í framtíð- inni munu síðan liggja í gagnabanka í kennslumiðstöðinni. Þá geta kenn- arar komið þangað með nemendur sína í einskonar vinnustofu og látið þá vinna þessi verkefni. Við munum einnig kaupa nokkuð af bókuin og bæklingum um neytendamál sem munu þá einnig liggja frammi í kennslumiðstöðinni. Sængur og kodda á ekki að ryksjúga DÓRA Georgsdóttir í Sængurfatagerðinni hafði samband við okkur hér á neytendasíðunni og vildi vara fólk við að gera tilraunir til að ryksjúga kodda og sæng- ur. „Eg hef orðið var við að fólk er að setja sængur í stóra plastpoka blása síðan lofti í þá og ryksjúga uppúr þeim með þessum stóru nýju ryk- sugum. „Fólk ætti hinsvegar að forðast þessa aðferð því hætta er á að verið fari að leka. Vilji fólk fá loft í sæng- ina sína eða kodda er eina ráðið að viðra í léttu og góðu veðri. Morgunblaðið/sverrir Lesendur spyrja Ný þjónusta við lesendur HVAR er hægt að fá gert við tjöld og er rapsolía hagstæð fyrir þá sem eru með háa blóð- fítu? Lesendum er bent á að framvegis geta þeir haft sam- band við Neytendasíðuna séu þeir með spurningar sem varða neytendamál. Svörin munu síðan birtast hér á síðunum við tækifæri líkt og í þetta skipti. Síminn er 5691225. Tjaldið í viðgerð Lesandi á höfuðborgar- svæðinu hringdi fyrir nokkru og var að spyijast fyrir um hvort einhveijir tækju að sér að gera við tjöld. Við höfðum upp á þremur fyrirtækjum sem taka að sér viðgerðir á tjöldum en þau kunna að vera fleiri. Að sögn Sesselju Bjarkar Barðdal hjá Seglagerðinni Ægi þurfa viðskiptavinir að bíða í sjö til tíu daga eftir tjaldi úr viðgerð og verðið fer auðvit- að eftir því hversu mikið er að tjaldinu en taxtinn við viðgerðina er 2.300 krónur á klukkustund. Hjá Sportleigunni þurfa viðskiptavinir að bíða i nokkra daga eftir að fá gert við tjald, segir Guðrún Axelsdóttir. „Við lítum á viðgerðirn- ar sem sjálfsagða þjónustu við viðskiptavini okkar og það er mjög misjafnt hversu mikið kostar að lagfæra tjöld. Algengustu viðgerðirnar kosta yfirleitt á bilinu 1.500-3.000 krónur. Hjá Söðlasmíðaverkstæði Þorvalds og Jóhanns er gert við tjöld og að sögn Jóhanns Þorvaldssonar er mismunandi hvað slík þjónusta kostar. Hann tekur sem dæmi að al- gengt sé að rennilásar á tjöld- um gefi sig og slík viðgerð kosti á bilinu 2.500 til 3.000 krónur og lásinn er þá innifal- inn. Ef rifnar útúr súlugötum á tjaldi kostar sú viðgerð á bilinu 2.000-2.500 krónur. Yfirleitt þarf fólk að bíða 4 til 5 daga eftir tjaldinu úr viðgerð yfír há sumartímann. Rapsolía með fjölómettaðar fitusýrur Ekki er langt síðan rapsolía fór að sjást í hillum matvöru- verslana hérlendis og margir vita hreinlega ekki hvernig hana á að meðhöndla. En hvers konar olía er þetta? „Um þessar mundir er mik- ill áhugi á rapsolíu. Sam- kvæmt hollenskri rannsókn sem birtist í The American Journal of Clinical Nutrition í júní árið 1995 má búast við að rapsolía hafí meiri áhrif til lækkunar á kólesteróli en flestar olíur og nálgist áhrif sólblómaolíu en hún er sú olía sem hefur hvað mest áhrif til lækkunar á kólesteróli," segir Hólmfríður Þorgeirsdóttir hjá Manneldisráði íslands. Hún segir að kostir rapsol- íunnar séu þeir að hún hafí betri steikingareiginleika en sólblómaolían þar sem hún innihaldi meira af einómettuð- um fitusýrum og minna af fjölómettuðum fítusýrum en sólblómaolían. Hvað samanburð á fitusýru- samsetningu ólífuolíu og raps- olíu snertir þá inniheldur raps- olían meira af fjölómettuðum fítusýrum en ólífuolían en minna af mettuðum og ein- ómettuðum fitusýrum. Hólmfríður segir að ekki saki að rapsolían sé ódýrari en ólífuolía. NYTT Nýjar kryddtegundir frá Pottagöldrum Morgunblaðið/Sverrir FIMM kryddtegundir hafa bæst í hópinn hjá Pottagöldrum. Eðalsteik- og grillkrydd er nafnið á kryddi sem hentar á kjöt, fisk, humar, grænmeti og jafnvel pasta- rétti. Þá er einnig komið á markaðinn frá Pottagöldrum svokallað eðal kjúklingakrydd. Þegar kryddteg- undirnar eru nefndar eðal fyrir framan heitið sjálft er skýringin sú að svokölluðu eðalsalti hefur verið bætt í kryddið. Taaza Masala er nýtt krydd sem hentar í grænmetisrétti svo og pott- rétti með lamba- eða svínakjöti, kjúklingum og í salatsósur. Baharat er persneskt krydd sem er tilvalið á svína- eða kjúklinga- kjöt. Kryddið er gott á svokallað Kebab, þá er kryddinu bætt út í lamba, nauta- eða svínahakkið, hyeiti og eggi hrært saman við. Saltað og piprað og sett á grillið. Líka gott í grænmetisrétti. Að lokum má geta þess að fnnmta kryddið kemur frá Glúms- stöðum í Fljótsdal, svokallað Birki- salt. Pottagaldrar sjá nú um að markaðssetja það.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.