Morgunblaðið - 27.07.1996, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996 39
FRÉTTIR
Heyannir
í Arbæ
HEYANNIR verða á Árbæjar-
safni sunnudaginn 28. júlí.
Túnið við Árbæinn verður
slegið með orfi og ljá eftir
hádegið. Þá verður rifjað, rak-
að, tekið saman og bundið í
bagga.
Gömul heyvinnutæki verða
til sýnis á túninu og dráttarvél
frá miðri öldinni við Reykhóla.
Ásamt þessu öllu verður hefð-
bundin dagskrá, svo sem roð-
skógerð, harmóníkuleikur og
lummubakstur í Árbænum. Þá
verða gullsmíði, hannyrðir og
netahnýtingar í safnhúsunum
og mjaltir við Árbæinn klukk-
an 17.
Laugardagurinn verður eins
og áður helgaður börnum og'
verður dagskrá fyrir þau frá
klukkan 14 til 15.
HEYANNIR í Árbæjarsafni.
Verðlaun í
slagorðakeppni
VERÐLAUN í slagorðasam-
keppni, sem Landsbankinn efndi
til í tilefni af 110 ára afmæli sínu
1. júlí sl., voru afhent í kaffisam-
sæti í aðalbanka fyrir skömmu.
Slagorðið, sem valið var úr á
fjórða þúsund tiilagna, er I for-
Veiðimót
barna og
unglinga í
Elliðaánum
STANGAVEIÐIFÉLAG Reykjavík-
ur endurtekur mánudaginn 29. júlí
kl. 15-21 veiðimót og kennslu fyrir
börn og unglinga í Elliðaánum. Slíkt
mót var fyrst haldið 15. ágúst í
fyrra.
Þátttaka er heimil öllum félags-
mönnum SVFR 16 ára og yngri og
er án endurgjalds. Vanir leiðsögu-
menn verða þátttakendum til að-
stoðar allan tímann.
Mæting er við veiðihús kl. 14.15,
þá fer fram skráning þátttakenda
og þeim verður skipt í hópa. Veið-
ar, kennsla og leiðsögn um Elliða-
árnar. Safnast saman við veiðihúsið
aftur, afli veginn og mældur og
boðið uppá léttar veitingar og viður-
kenningar afhentar.
-----» ♦ ♦----
Menning og
gleði á
Vopnafirði
DAGANA 28. júlí - 5. ágúst halda
Vopnfírðingar svokallað Vopna-
skak, með tilheyrandi menningar-
og skemmtistökki.
Aðaldagskráin stendur frá
fímmtudegi til sunnudags. Hljóm-
ustu til framtíðar. Á myndinni eru
verðlaunahafarnir ásamt Kjart-
ani Gunnarssyni formanni bank-
aráðs. Frá vinstri eru Halldóra
Ólafsdóttir, Kjartan, Ingibjörg
Hannesdóttir og Svala Öskars-
dóttir.
sveitirnar Sixties, Sóldögg og Sál-
in hans Jóns míns leika fyrir dansi
um verslunarmannahelgina, einn-
ig verða ýmsar uppákomur, svo
sem Stalla-Hú, Rjúpan, málverka-
og ljósmyndasýningar, dorg-
keppni, götuleikhús og útimarkað-
ir. Lifandi safndagur á Bustar-
felli, brandarakeppni, skemmti-
sigling, golfmót, sjóstangaveiði-
mót og skemmtiskokk, - að
ógleymdu sagna- og hagyrðinga-
kvöldi fímmtudagskvöldið 1. ág-
úst.
------» -» ♦-----
Leitað að
Subaru
LÖGREGLAN í Reykjavík leitar
enn Subaru 1800 bifreiðar, sem var
stolið af Borgarbílasölunni við
Grensásveg helgina 29.-30. júní.
Bíllinn er hvítur skutbíll, árgerð
1988 og er með skráningarnúmerið
R-66863.
Þeir sem kynnu að vita hvar bíll-
inn er nú eru beðnir um að hafa
samband við slysarannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík.
------♦ ♦ ♦------
LEIÐRÉTT
Rangt símanúmer
í FRÉTT um orlofsviku fyrir
krabbameinssjúk börn, sem birtist
í Morgunblaðinu í gær, misritaðist
annað símanúmerið, þar sem tekið
er á móti umsóknum. Rétta númer-
ið er 557-8897.
Skógardag-
ur í Hauka-
dalsskógi
HINN árlegi skógardagur í Hauka-
dalsskógi verður haldinn laugar-
daginn 27. júlí miili kl. 14 og 18.
Þar mun margt verða til
skemmtunar fyrir almenning en
auk þess er þessi dagur hugsaður
til þess að fólk geti komið og kynnt
sér allt það starf sem fram hefur
farið þar á vegum Skógræktar rík-
isins síðustu ár.
Boðið verður upp á fræðslu-
göngur þar sem ýmsir menn innan
skógræktargeirans verða með
ýmsan fróðleik. Einnig verður ein
lengri ganga þar sem fólk getur
séð stærri hluta af skóginum og
eins mun verða farin sérstök skóg-
arferð fyrir börnin. Allar göngurn-
ar munu fara og skoðá skógargrisj-
un sem verða mun í gangi allan
daginn.
Ymislegt mun verða til sýnis á
planinu á Miðhlíðarholti m.a. af-
rakstur skógarhnífasamkeppninn-
ar, handverksmenn munu vinna
úr íslenskum við, skógarverkfæra-
sýning og síðan verður boðið upp
á grillpylsur, gos, kaffi o.fl.
Haukadalskirkja verður opin og
við hana verður einnig hestaleiga
fyrir börnin.
-----♦ » ♦-----
Athugasemd
frá Lög-
heimtunni
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd:
„Okkur hefur borist til eyrna
að þess gæti manna á meðal að
nafni Lögheimtunnar og Lögþings
sé ruglað saman. Þykir af því til-
efni rétt að taka fram að engin
tengsl eru, eða hafa nokkurn tíma
verið, milli Lögheimtunnar og
Lögþings. Ruglingur í tali manna
virðist stafa af líku heiti félag-
anna.
Lögheimtan er elst sérstakra
innheimtufyrirtækja, stofnuð
1980. Innheimtufyrirtæki sem síð-
an voru stofnuð völdu mörg keim-
lík nöfn sem byija á Lög...
Lögheimtan hefur skrifstofu á
Laugavegi 97. Undirritaðir eru
eigendur stofunnar og hafa allir
full lögmannsréttindi og eru aðilar
að Lögmannafélagi íslands.
Reykjavík 25. júlí 1996,
Ásgeir Thoroddsen,
Bjarni Þór Óskarsson,
Tómas Jónsson,
Sveinn Andri Sveinsson,
Gunnar Thoroddsen.
Stjórnsýslukæra til ráðherra
Kæra synjun á
vínveitingaleyfi
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA, Páli
Péturssyhi, hefur borist stjórn-
sýslukæra frá Hrafnkeli Ásgeirs-
syni hæstaréttarlögmanni fyrir
hönd Þorvaldar Ásgeirssonar, Við-
ars Halldórssonar, Lilju Matthías-
dóttur og Strandgötu 30 ehf. vegna
samþykktar bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar frá 16. apríl sl. Þá var felld
með 8 atkvæðum gegn 3 tillaga
um að veita Þorvaldi Ásgeirssyni
vínveitingaleyfi til bráðabirgða í
sex mánuði fyrir veitingahúsið
Strandgötu 30 með því skilyrði að
almennur aðgangur að veitinga-
staðnum verði takmarkaður við 20
ára aldur.
Þess er krafist að félagsmála-
ráðherra mæli með því við lög-
reglustjóra að Þorvaldi Ásgéirssyni
verði veitt umbeðið leyfi. Til vara
er þess krafíst að ómerkt verði
samþykkt bæjarstjórnar og fyrir
hana lagt að afgreiða málið að
nýju og taka þá tillit til jafnræðis-
reglunnar sem lögfest er í 11. grein
stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Til
þrautavara er þess krafist að ráð-
herra lýsi yfir því að samþykkt
bæjarstjórnar sé ólögleg og and-
stæð stjórnsýslulögum.
Mistök við lóðarúthlutun
Forsaga málsins er sú að hús-
eigninni Strandgötu 30, sem áður
var kvikmyndahús, var breytt í
dans- og skemmtihús og leyfí feng-
in frá Hafnarfjarðarbæ og lögreglu-
yfírvöldum, þ.m.t. vínveitingaleyfí.
Reksturinn gekk ekki upp og var
rekstraraðili tekinn til gjaldþrota-
skipta.
Eftir úthlutun lóðar til Miðbæjar
hf. í Hafnarfírði komu í ljós þau
mistök embættismanna Hafnar-
fjarðarbæjar að hluti lóðarinnar,
sem ætluð var fyrir verslunarmið-
stöðina við Fjarðargötu 13-15,
reyndist vera hluti lóðar Strandgötu
30. Svo fór að Miðbær Hafnarfjarð-
ar keypti Strandgötu 30 af þrotabúi
Kvikmyndahúss Hafnarfjarðar hf.
í kaupsamningi kemur fram að um
þjónustu- og veitingahús er að ræða
svo og að húseignin þarfnist tölu-
verðra lagfæringa.
Töldu að leyfi yrðu auðfengin
Þorvaldur, Viðar og Lilja keyptu
húseignina af Miðbæ Hafnarfjarðar
hf. og stofnuðu einkahlutafélagið
Strandgötu 30. Kaupin voru gerð
með vitund og vilja bæjaryfirvalda
í Hafnarfírði, sem höfnuðu for-
kaupsrétti. í kærunni kemur fram
að hinir nýju eigendur hafí talið að
vínveitingaleyfí og rekstrarleyfi
yrðu auðfengin. Húsið var lagfært
og í það keypt húsgögn og innrétt-
ingar. Hluthafar lögðu sjálfír fram
fé og ábyrgðir vegna þessa. „Fram-
kvæmdirnar fóru fram með vitund
hinna ýmsu embættismanna Hafn-
arfjarðarbæjar,“ segir í kærunni.
Þá segir að á tímabilinu frá 7.
nóvember 1995 til 12. júlí, þegar
kæran er dagsett, hafí bæjarstjórn
Hafnarfjarðar mælt með vínveit-
ingaleyfum í níu tilvikum. Auk þess
eru taldir upp 5 staðir í Hafnarfírði
sem hafi vínveitingaleyfi. Þá kemur
fram að til lausnar málinu hafi
Hafnarfjarðarbæ verið boðið með
bréfí 24. apríl sl. að kaupa fasteign-
ina Strandgötu 30 en því boði hafi
verið hafnað.
Jafnræðis ekki gætt
Lögmaður kærenda heldur því
fram að samræmis og jafnræðis í
lagalegu tilliti hafi ekki verið gætt
við umsóknina. Henni hafí verið
hafnað án rökstuðnings og án þess
að einstakir bæjarfulltrúar hafí gert
grein fyrir atkvæðum sínum. Um-
bjóðendur lögmannsins séu þeir
einu á umræddu tímabili sem hafi
fengið synjun.
Smfl auglýsingor
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14
í umsjón unglinga.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagsferð 28. júlí
kl. 10.30: Selvogsgatan. Forn
leið á milli Hafnarfjarðar og Sel
vogs. Verð 800/900.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MORKINNI 6 - SlMI 568-2533
Dagsferðir
Ferðafélagsins:
Sunnudagur 28. júlí kl. 8.00:
1) Þórsmörk - dagsferð - verð
kr. 2.700.
2) Hveravellir - dagsferð -
verð kr. 2.700.
3) Kl. 13.00 - Hrútagjá - Fjallið
eina. Ekið áleiðis Krýsuvíkur-
veg, framhjá Vatnsskarði.
Gengið á Fjalfið eina (223 m)
og áfram að Hrútagjá.
Verð kr. 1.200.
Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin, og
Mörkinni 6.
Ferðafélag fslands.
Þingvellir - þjóðgarður
Laugardagur 27. júll
kl. 13.30 Skógarkot
Gönguferð að hinu gamla býli í
Þingvallahrauni. Hugað að nátt-
úru og búsetusögu. Ferðin hefst
við þjónustumiöstöð og tekur í
kringum þrjár og hálfa klst.
Takið með ykkur skjólfatnað
og verið vel búin til fótana.
16.00 Þinghelgi
Gengið um hinn forna þingstað,
Lögberg, Lögréttu og upp í Al-
mannagjá. Stiklað á stóru i sölu
þinghalds á Þingvöllum. Ferðin
hefst við Flosagjá (Peningagjá)
og tekur eina og hálfa klst.
Sunnudagur 28. júli
kl. 13.00 Barnastund
Helgistund fyrir börn. Söngur,
leikir og náttúruskoðun.
Hefst við Þingvallakirkju og
stendur i tæpa klukkustund.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta í
Þingvallakirkju.
Kl. 15.05 Þinghelgarganga.
Rölt um hinn forna þingstað og
næsta nágrenni Þingvallabæjar.
Hefst við kirkju að lokinni messu
og tekur um Vh klst.
Allar nánari upplýsingar um dag-
skrá þjóðgarðsins fást I þjón-
ustumiðstöð, sími 482 2660.