Morgunblaðið - 13.08.1996, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Þorkell
íslandsbanki hækkaði vexti í gær
Ekkert bendir
tilaðaðrir
bankar hækki
Margeir
Pétursson
Margeir hafði
sigur í Gausdal
Þröstur
níundi
stórmeist-
arínn
ÞRÖSTUR Þórhallsson, skákmaður,
náði að uppfylla síðasta skilyrðið til
að hljóta stórmeistaratign og verða
níundi stórmeistari íslands á árlegu
skákmóti í Gausdal í Noregi. Þröstur
varð sjötti með 6'/2 vinning af níu
og hefur þá náð 2500 skákstigum
sem skákmenn verða að hafa til að
verða stórmeistarar. Áður hafði
hann náð þremur áföngum að stór-
meistarat'itli.
Sjö Íslendingar tefldu á mótinu
og gekk flestum vel. Margeir Péturs-
son vann mótið eftir æsispennandi
lokaumferðir. Hann hlaut sjö vinn-
inga, eins og Svíinn Hillarp Persson,
en Margeir tefldi við sterkari and-
stæðinga og vann á stigum.
„Óhætt er að segja að þungu fargi
sé af mér létt,“ sagði Þröstur. „Eg
náði síðasta stórmeistaraáfanganum
í Gausdal í fyrra en samkvæmt regl-
um FIDE átti ég eftir að ná 2500
skákstigum. Það þýddi það að maður
þurfti hlaupa á milli móta til að safna
stigum." Þröstur kveðst hafa tekið
þátt í um tiu mótum frá áramótum.
„Mér hefur gengið vel í Gausdal og
það var skemmtilegt að ná titlinum
þar.“
Röð tuttugu efstu manna í hópi
50 þátttakenda réðst ekki fyrr en í
síðustu umferð. Helgi Ólafsson,
Þröstur, Jóhann Hjartarson og Helgi
Áss Grétarsson stórmeistarar náðu
allir 6'/2 vinningi og röðuðu sér í
3.-8. sæti ásamt Djurhuus frá Nor-
egi og Har-Zvi frá ísrael.
Hannes Hlífar Stefánsson, stór-
meistari, varð þrettándi með 5'/2
vinning. Torfi Leósson varð í 47.
sæti með ijóra vinninga.
í minningu Eikrem
Skákmótið var haldið í minningu
Norðmannsins Arnold Eikrem sem
lést fyrr á árinu. Hann hélt á annað
hundrað skákmóta og gerði Gausdal
að þekktum skákstað. Mótið var það
þriðja í röðinni af fimm í Norrænu
VISA-bikarkeppninni.
GYLTAN Skotta á svínabúinu
Smárahlíð í Hrunamanna-
hreppi gaut fyrir skömmu nítj-
án grísum í sínu fyrsta goti.
Þeir lifðu allir og enginn var
undir kílói að þyngd. Slíkur
fjöldi grísa í fyrsta goti er mjög
óvenjulegur og ekki síður að
allir skuli þeir vera stórir og
heilbrigðir. Nú hefur grísunum
að vísu fækkað um tvo. Annar
kramdist óvart undir móður
sinni í fyrradag, en Skotta er
um 150 kíló að þyngd.
Skotta er af norsku kyni sem
flutt var til landsins til kyn-
bóta. Amma hennar kom til
Hríseyjar ásamt níu stallsystr-
um sínum árið 1994. Þaðan
hafa komið svín til ýmissa
svínabænda sem hafa notað
þau til kynbóta á eldri stofnum.
I Smárahlíð er þessu öðruvísi
farið, því þar eru aðeins svín
af norska kyninu.
Nítján
grísir í
fyrsta goti
Smárahlíð er svokallað
stofnverndarbú og eigendurn-
ir, Jóhanna Sveinsdóttir og Jón
Ingi Jónsson, voru styrktir af
Svínaræktarfélagi íslands til
þess koma því upp fyrir tæpu
ári. Valur Þorvaldsson ráðu-
nautur segir að félagið hyggist
síðar flytja inn finnskan stofn
og blanda honum við þann
norska. Þannig er farið að í
nágrannalöndum okkar og með
góðum árangri því með blönd-
uninni næst það sem nefnt er
blendingsþróttur. Blending-
ÍSLANDSBANKI hf. hækkaði vexti
um 0,10-0,35% í gær í kjölfar
vaxtahækkana á íjármagnsmark-
aði. íslandsbanki hefur haft lægri
vexti en aðrir bankar síðan í júní
en með breytingunni hefur hann
fært sig nær þeim. Aðrir bankar
hækkuðu ekki vexti í gær og fátt
bendir til hækkunar á næstunni.
íslandsbanki hækkaði innláns-
vexti á almennum sparisjóðsbókum,
tékkareikningum og öðrum óbundn-
um reikningúm um 0,15%, í 0,65%
á sparisjóðsbókum og 0,30% á
tékkareikningum. Þá hækkuðu
vextir á vísitölubundnum reikning-
um bankans um 0,25% og ber 12
mánaða bundinn reikningur 3,25%
vexti eftir breytinguna.
Hækkun útlánsvaxta er á bilinu
0,10%-0,35%. Vextir á yfirdráttar-
lán einstaklinga hækka mest, um
0,35% eða í 14%. Vextir á yfirdrátt-
arlán fyrirtækja hækka um 0,20%,
í 13,75%. Kjörvextir víxla og
skuldabréfa hækka í 8,5%.
Sigurveig Jónsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi íslandsbanka, segir að
meginorsök hækkunarinnar sé sú
vaxtahækkun, sem hafi orðið á pen-
ingamarkaði að undanförnu. „Við
lækkuðum vextina í júní og höfum
því verið með lægri vexti en aðrir
arnir eru þó ekki ætlaðir til
undaneldis og því verður að
geyma hreinræktaðan stofn
einhvers staðar. Nú eru undan-
eldissvín sótt í Hrísey, en síðar,
þegar finnski stofninn kemur
til landsins, verður sá norski
aðeins varðveittur í Smárahlíð.
Guðmundur Bjarnason land-
búnaðarráðherra og Guðni
Ágústsson alþingismaður,
komu í kynnisferð í Smárahlíð
í gær og ræddu við Jóhönnu
og Jón Inga. Þau láta vel af
nýja stofninum og segja að
svínin séu fljótari að stækka
en þau íslensku og verði fitu-
minni. Ýmsar sögur hafa geng-
ið af grimmd norsku svínanna
en Jón Ingi sagði það fjar-
stæðu. Til að sanna mál sitt
gekk hann í stíuna til Skottu
og setti varirnar í stút. Skotta
kyssti hann að bragði ástúð-
lega.
bankar í tvo mánuði. Við hækkum
nú til samræmis við aðra vegna
vaxtahækkana á peningamarkaði."
Grænmeti áhrifavaldur
Siguijón Þ. Árnason, forstöðu-
maður hagfræðideildar Búnaðar-
bankans, segist ekki gera ráð fyrir
að bankinn hækki vexti á næst-
unni. „Ekkert hefur verið rætt um
vaxtahækkun hjá okkur þrátt fyrir
að vextir óverðtryggðra bréfa hafi
verið að þokast upp á við á mark-
aði. Hins vegar er 0,6% hækkun
neysluverðsvísitölunnar nokkuð
mikil og meiri en maður átti von
á. Þegar betur er að gáð sést hins
vegar að mikil hækkun á kartöflum
og grænmeti er þarna stór áhrifa-
valdur og þessir þættir gætu geng-
ið til baka. Það er óheppilegt að svo
sveiflukenndir liðir séu innifaldir í
verðbólguútreikningum og það
veldur óþarfa óróa á fjármagns-
markaðnum," segir Siguijón.
Ólafur Örn Ingólfsson, forstöðu-
maður fjárreiðudeildar Landsbank-
ans, segir að ekkert bendi til vaxta-
breytinga hjá Landsbankanum á
næstunni. „Umhverfið er nokkuð
stöðugt og lausaljárstaðan er góð.
Ef hún versnaði eða hækkun yrði
á peningamarkaði myndum við
hreyfa okkur. Ýmislegt bendir til
þess að langtímavextir lækki en
þenslutal gæti leitt til að skamm-
tímavextir hækkuðu."
Verðbólguspá óbreytt
Davíð Björnsson, deildarstjóri hjá
Landsbréfum, telur að hækkun
neysluverðsvísitölunnar muni hafa
lítil áhrif á skammtímamarkaði og
að þau muni fljótt fjara út. „Búast
má við að verðbólgan verði hærri
en hún hefur verið til mánaðamóta
en síðan benda spár til að hún hald-
ist lág út árið. Þessi tíðindi eru ekki
til þess fallin að menn taki stórar
dýfur. Ávöxtunarkrafa ríkisbréfa
hækkaði nokkuð á föstudaginn í
kjölfar hækkunar á vísitölunni og
tilhneigingar gætti í þá átt að losa
sig við óverðtryggðar skuldbinding-
ar. Að öðru leyti gefa þessar hrær-
ingar ekki tilefni til mikilla breyt-
inga. Mikið fé er bundið á skamm-
tímamarkaði og líkur eru á að eitt-
hvað af þvi losni og leiti yfir á lang-
tímamarkað. Það gæti leitt til vaxta-
lækkana þar þegar líður á haustið.“
Þröstur
Þórhallsson
I
!
Hvaða heímíJistæki eru tii á heimilinu?
Er til á heimilinu
Var keypt á Ætla að
98,7'
98,7
93,9
92,8 -1
82,5%
s.l. 12 mán. kaupa. nýtt
■ 4,0%
n-^5,1% D 1.5%
4,2% . 2, 4%
Mi 3,4% JÚOÍ >
H1,5% ]0,6l
p4% l2,( %
Eldavél
ísskápur
Þvottavél
Bakarofn
Hrærivél
Örbylgjuofn
Eldhúsvifta
Frystikista
Gasgrill
Uppþvottavél
Þurrkari
Matvinnsluvél
0 20 40 60 80 100% 0 5%
NEYSLUKÖNNUN FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR 1996. Úrtak 1.200 manns, 882 svöruðu.
ÞÝÐI neyzlukönnunarinnar, þ.e. sá hópur þjóðarinnar sem úrtakið var tekið úr.eru allir Islendinaar
á aldrinum 14-80 ára. Þetta eru 185.173 einstaklingar, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu ísl.
Hvert prósentustig í könnuninni samsvarar því um 1.850 manns. Taka verður tillit til skekkjumarka,
sem eru á niðurstöðum (könnun sem þessari, þegar prósentustig eru umreiknuö í mannfjölda.
Morgunblaðið/Júlíus
Á eðalvögmim um landið
ÞÝSKI auðkýfíngurinn Hasso
Schutzendorf er væntanlegur til ís-
lands í lok ágúst, og mun hann taka
með sér tvo eðalvagna tit að ferðast
á um landið.
Hasso kemur til íslands 21. ágúst
nk., ásamt eiginkonu sinni og einum
lífverði. Að sögn Sigurðar S. Bjarna-
sonar, sem rekur bílaleiguna Hasso-
ísland, hefur Hasso átt við veikindi
að stríða í lungum og kemur hingað
til lands í þeim tilgangi að njóta hins
hreina og tæra íslenska iofts.
Hasso áformar að keyra hringinn
í kringum landið og mun koma með
tvo eðalvagna með sér í því skyni.
„Hasso var búinn að ákveða að koma
með Rolls Royce bifreið með blæju,
en spurði mig svo hvort það rigndi
ekki stundum á íslandi á þessum
árstíma," sagði Sigurður. „Þegar ég
sagði honum að það kæmi fyrir, lét
hann líka panta pláss fyrir bifreið
af gerðinni Mercedes Benz 600 S,
sem eru dýrustu bílarnir sem fyrir-
tækið framleiðir. Það ætti því ekki
að koma að sök þó það rigndi á ferða-
laginu um landið."
2 menn á kili
TVEIR menn björguðust þegar
skútu, sem þeir sigldu fyrir utan
Kópavogshöfn, hvolfdi síðdegis í
gær. Slökkviliðið á Reykjavíkur-
flugvelli og Hjálparsveit skáta í
Kópavogi sendu báta á staðinn.
Þá voru mennirnir á kili og tókst
ekki að rétta skútuna við vegna
þess að belgsegl hennar var fullt
af sjó. Þeir fengu aðstoð kafara
frá Slökkviliðinu í Reykjavík til
að koma skútunni á réttan kjöl
og sigldu síðan sjálfir til hafnar.