Morgunblaðið - 13.08.1996, Side 16

Morgunblaðið - 13.08.1996, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 URVERINU ERLENT MORGUNBLAÐIÐ SINDRIVE tekur olíu í Smugimni. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Tvö skip á landleið með fullfermi úr Smugunni VEIÐI DATT alveg niður í Smug- unni um hádegisbilið á sunnudag eftir mjög góða veiði þar í tæpa viku. Hitastig sjávar lækkaði nokk- uð og er það talin ástæða þess að fiskurinn hvarf. Skip hafa þó orðið vör við físk rétt innan landhelgislínu Noregs og því eru menn bjartsýnir á áframhaldandi veiði. Tvö skip hafa þegar fengið fullfermi og eru á landleið. Svo virðist sem fiskurinn hafí hopað út úr Smugunni með kaldari sjó en að sögn þeirra skipstjórnar- manna sem Morgunblaðið ræddi við í gær snerist vindur í Smugunni í fyrradag og við það kólnaði sjórinn um gráðu. Kristján Elíasson, stýri- maður á Sigli, sagði að líklega hafi þorskurinn ekki farið langt. „Það hafa nokkur skip farið suðvestur við línuna, inn í norsku lögsöguna, til að taka olíu og þar hafa verið bullandi lóð. Það er hinsvegar sama hvert er farið hérna inn I Smug- unni, hér er ekki neitt að sjá. Við hífðum eftir þrettán tíma tog og fengum um Vh tonn. En við erum Ýmist mokveiði eða algjör ör- deyða hjá íslensku skipunum langt frá því að vera svartsýnir, þetta getur gosið upp jafn skjótt og það hvarf,“ sagði Kristján. 50 tonn á 18 mínútum Kristján sagði að mokið síðustu daga hafi verið ævintýralegt og menn því undrandi yfir því að fisk- urinn hverfi svo skyndilega. „Menn voru að hífa hér 30-50 tonna hol fyrir hádegi á sunnudag en þegar átti að kasta eftir hádegið var allt horfíð. Fyrir helgi var dregið í mesta Iagi fjóra tíma á sólarhring og ann- ars legið í vinnslu. Lóðningarnar hér voru allt að 100 faðma þykkar og við fengum til dæmis 50 tonna hal eftir 18 mínútna tog. En nú sést hvergi arða. Þetta er stórund- arlegt," sagði Kristján. Þrjár vikur á reki Tveir togarar eru nú á leið úr Smugunni með fullfermi. Frystitog- arinn Klakkur SH er á heimleið en ísfisktogarinn Már SH frá Ólafsvík hélt á sunnudag áleiðis til Hull í Englandi með um 230 tonna afla. Már SH hefur verið í Smugunni í mánuð en hefur látið reka þangað til aflahrotan hófst í síðustu viku og fékk aflann á fímm dögum. Að sögn Stefáns Garðarsonar, fram- kvæmdastjóra Snæfellings hf., eru um 115 tonn aflans 2'h til 4 kílóa þorskur en um 70 tonn eru 4 kíló og yfír og aflaverðmætið í kringum 20 milljónir króna. Stefán segir að líklega fari Már SH aftur í Smug- una þar sem skipið hafi engin verk- efni innan landhelginnar það sem eftir er fiskveiðiársins. Nú eru 30 íslenskir togarar á veiðum í Smugunni en samkvæmt upplýsingum frá Tilkynningaskyld- unni munu 15 togarar vera á leið- inni þangað en reikna má með að í allt muni um 50 skip fara í Smuguna. Viðhaldinu sinnt NÚ ER góða veðrið og stillurn- ar ekki notaðar til sjóferða. Kvótinn er búinn. Bræðurnir Pálmi og Benedikt Héðinssynir á Húsavík nota því blíðuna til að dytta að bátnum sínum. Þeir, sem stunda grásleppuveiðar á vorin telja sig margir nauð- beygða til að vera á aflamarki, en ekki sóknardögum, þar sem alltaf kemur einhver þorskur í grásleppunetin. Blair sætir gagn- rýni flokksbræðra London. The Daily Telegraph. TONY Blair, leið- togi breska Verka- mannaflokksins, sætir nú æ harðari gagnrýni vinstri- afla innan flokks- ins. Tveir fyrrver- andi ráðherrar sökuðu hann á sunnudag um að hafa „afneitað grundvallarhugsjónum" flokksins og sögðu að hann gæti ekki haldið „hinum sanna Verkamannaflokki“ í fjötrum til frambúðar. Fjórum dögum áður hafði einn af forystumönnum flokksins, Clare Short, varað við því að „myrk öfl“ væru að ráðskast með Blair og knýja hann til að kasta hugsjónum flokks- ins fyrir róða. Peter Shore, fyrrver- andi umhverfismálaráðherra, og Roy Hattersley, fyrrverandi vara- leiðtogi flokksins, tóku undir þessa gagnrýni í viðtölum um helgina. Shore gagnrýndi Blair fyrir að gefa til kynna að Verkamannaflokk- urinn hefði ekki lengur hug á að jafna lífskjörin í landinu og bæta og auka þjónustu ríkisins. Hann sagði þetta grundvallaratriði í stefnu flokksins og sakaði Blair um uppgjöf með því að taka undir hug- myndir íhaldsflokksins um að minnka þurfí útgjöld ríkisins. „Að snúa við blaðinu á þeirri forsendu að andstaðan við hugsanlegar skattahækkanir sé svo mikil að ekki megi einu sinni minnast á þær og því þurfí að draga úr ríkisútgjöldun- um jafngildir í raun því að gefast upp áður en orrustan hefst.“ Ottast íhaldsflokkinn meira íhaldsflokkurinn notfærir sér ummæli Clare Short í auglýsinga- herferð þar sem Blair er sýndur með rauð og djöfulleg augu. Undir myndinni er vígorðið „Nýr Verka- mannaflokkur, ný hætta" ásamt til- vitnunum í Short um „myrku öflin“ á bak við Blair. Ný viðhorfskönnun Gallup bendir þó til þess að breskir kjósendur telji það mun meira áhyggjuefni að Ihaldsflokkurinn vinni sigur í næstu þingkosningunum en Verkamanna- flokkurinn. í könnuninni kemur m.a. fram að þeir sem ætla að kjósa Verkamanna- flokkinn óttast mest að verðbólgan aukist og skattar hækki komist flokkurinn til valda. 46% aðspurðra sögðust óttast að undir stjóm Verka- mannaflokksins myndu Bretar afsala sér of miklum völdum til Evrópusam- bandsins. Jafn margir óttuðust hins vegar að Bretland yrði „of einangrað pg áhrifalítið í Evrópu" undir stjórn Ihaldsflokksins. Varnarmálanefnd sænska þingsins Svíþjóð gangi í sam- tök evrópskra her- gagnaframleiðenda VARNARMALANEFND sænska þingsins leggur til að Svíþjóð sækist eftir aðild að samtökum vestur-evr- ópska hergagnaframleiðenda, WEAG (Western European Arma- ments Group), sem eru nátengd Atlantshafsbandalaginu (NATO) og Vestur-Evrópusambandsinu (VES). Svenska Dagbladet greindi frá þessu I gær. í skýrslu varnarmálanefndarinn- ar um sænsk öryggismái, sem gerð var opinber í gær, er sérstakur kafli um framtíð sænska hergagnaiðnað- arins. Þar kemur fram að verði hann ekki lagaður að hergagnaiðnaði að- ildarríkja NATO og VES hið snar- asta, muni samkeppnisstaða hans versna og sænsk hergagnafram- leiðsla eigi á hættu að einangrast. Aðiid að WEAG sé því eftirsóknar- verð. Markmið WEAG eru að þróa sameiginleg evrópsk vopnakerfi, mæta samkeppni frá Bandaríkjun- um og auka útflutning. Að sögn SvD hefur sænska ríkis- stjórnin haft áhyggjur af stöðu her- gagnaiðnaðarins og þeirri staðreynd að sænskum hergagnaframleiðend- um hefur gengið illa að koma á samstarfí við fyrirtæki í öðrum Evr- .*★★★* EVRÓPA** ópuríkjum. Blaðið segir sænska her- gagnaframleiðendur lengi hafa ósk- að eftir aðild að WEAG, en málið hafi verið viðkvæmt vegna tenging- ar samtakanna við NATO og VES. Samhæfing við heri NATO Innan ramma Friðarsamstarfs NATO, sem Svíþjóð tekur þátt í, er að þróast vísir að samstarfi og sam- ráði um hergagnaframleiðslu. Að sögn SvD hefur reynslan af heræf- ingum friðarsamstarfsríkjanna og af þátttöku Svía í friðargæzluiiðinu í Bosníu sýnt, að mikilvægt sé að tryggja samhæfíngu herafla Sví- þjóðar og NATO-ríkjanna. „Talið er að það verði æ erfiðara að standa utan viss samstarfs við hemaðar- bandalögin VES og NATO, jafnvel þótt þing og ríkisstjórn vilji ekki ræða beina aðild,“ segir í frétt Svenska Dagbladet. Finnland og nágrannaríkin ESB styrkir sam- starf yfir landamæri EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur veitt 63 milljónum ECU, eða um 5,3 milljörðum króna, til að efla sam- starf finnskra landamærahéraða við byggðir handan landamæranna í Noregi, Svíþjóð, Rússlandi og Eist- landi. Styrkjunum er ætlað að bæta lífskjör á svæðunum, sem um ræð- ir, efla efnahags- og félagslega þróun og hvetja til viðskipta og samstarfs fyrirtækja beggja vegna landamæranna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins. Þetta er í fyrsta sinn sem Evrópu- sambandið styrkir landamæraverk- efni þar sem Eistland og Rússland eru samstarfsaðilar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.