Morgunblaðið - 13.08.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.08.1996, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Margar sýningarnar tengjast einn- ig húsum og sögu bæjarins með ólíkum hætti þó. Hér fá jafnt leik- ir sem lærðir að sýna og má sjá þar verk áhugamanna sem og vel þekktra listamanna. Sá kostur er valinn hér að leiða lesandann um sýningarnar „húsavís". Elst hús- anna er gamla verslunarhús Gránufélagsins frá 1874. Reyndar stendur aðeins grunnurinn eftir úti á Vestdalseyrinni. Þar hefur Inga Jónsdóttir komið verki sínu „Window Shopping" fyrir í einni gluggatóttinni. Það er unnið upp úr þeim nýju verslunarháttum sem sjást í síauknum mæli á alnetinu. Skjámyndir verslana sem starf- ræktar eru á ainetinu hafa verið ljósritaðar yfir á glærur og þær síðan settar upp í gluggaramma. Hægt er að horfa gegnum skjáinn um leið og sést inn í gamlan grunn Gránufélagshússins sem jafnframt var einn af gninnsteinum nútíma- verslunar á íslandi. Sýningar í netaverkstæði og tækniminjasafni í Angró, bryggjuhúsi sem fram- kvæmdamaðurinn Ottó Wathne lét reisa árið 1881, má sjá litskyggnu- verk sem höfundur verksins, Diet- er Roth, færði svo rausnarlega Seyðisfjarðarkaupstað að gjöf í tilefni aldarafmælis kaupstaðarins í fyrra. Verkinu fylgdu sýningar- vélar, ýmis gögn varðandi tilurð verksins og sérsmíðaður kassi utan um allt saman. Litskyggn- urnar eru af öllum húsum á Seyð- isfirði. Annars vegar af húsunum öllum í desember 1988 og hins vegar um sumarið 1995. Fimm sýningarvélar eru notaðar samtím- is til þess að varpa myndunum á veggi inni í sýningarsalnum. Sýn- ingarsalurinn hýsti áður netaverk- stæði og tilheyrir reyndar neta- gerðinni Fjarðameti sem notar hann undir starfsemi sína annars. Stólar eru fyrir gesti til þess að tylla sér meðan þeir horfa á mynd- irnar og eiga möguleika á að sjá þær breytingar sem hafa orðið á sjö árum auk þess sem hægt er að bera saman árstíðimar. Dieter hefur útbúið upplysingar um tilurð verksins og framkvæmd sem Iiggja frammi. Verkið unnu annars þeir Björn Roth og Eggert Einars- son, en Björn sá um uppsetningu þess. Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson í RÚSTUNUM á Vestdalseyri, þar sem Gránufélagið stundaði verslun fyrir síðustu aldamót, hefur Inga Jónsdóttir komið fyrir verki sínu „Window Shopping". Margt „á Seyði“ á Seyðisfirði Hjá Tækniminjasafni Austur- lands í gömlu símstöðinni á Seyðis- firði hafa þau Þóra Guðmunds- dóttir og Martin Samtleben sett upp sérsýningu sem nefnist „Hús- in í bænum, þróun byggðar á Seyð- isfirði 1850-1950.“ Þar er þróun byggðar í Seyðisfirði rakin í máli og myndum og húsin í brennidepli. Gáfu hús til menningarsatrafsemi Hjónin Karólína Þorsteinsdóttir og Garðar Eymundsson gáfu á þessu ári stórt og gæsilegt hús, Skaftfell, undir menningarstarf- semi á Seyðisfirði. Starfsemin í Skaftfelli hófst þar með sýningu bóklistarforlagsins og gallerísins Boekie Woekie í Amsterdam sem DIETER Roth sér víða stað „á Seyði“. Þessar myndir eru á sýn- ingu hans á Hótel Snæfelli. EINN Sýningarsalurinn hýsti áður netaverkstæði og tilheyrir reyndar netagerðinni Fjarðarneti. FRÁ Safnarasýningunni í Seyðisfjarðarskóla. FRÁ sýningu á verkum Stórvals að Vesturvegi 8. SÝNING Boekie Woeki er haldin í nýju menningarhúsi Seyðfirð- inga, Skaftfelli. ANNAÐ árið í röð bjóða Seyðfírðingar til sýn- inga undir samheitinu „á Seyði“. Sýnt er á sjö mismunandi stöðum og eru allir sýningarstað- irnir eldri hús bæjarins. Pétur Kristjánsson segir, að sá kostur fylgi því sýningarrápi um bæinn að möguleiki gefst til þess að skoða innviði húsa sem ekki eru endilega aðgengileg að öllujöfnu. heldur um leið upp á tíu ára af- mæli sitt. Sýningarsvæðið er bjart og rúmgott og sýningin að sama skapi tilkomumikil og innihalds- rík. Þar gefur að líta myndverk, bókverk og ýmislegt fleira eftir marga listamenn; Dieter Roth, Björn Roth, Kristján Guðmunds- son, Rúnu Þorkelsdóttir, Henri- ette Van Egten, Jan Foss, Cornel- ia Hoedeman, svo einhverjir séu nefndir. Á Hótel Snæfelli er sýning Diet- er Roth. Þar er röð úr 20 myndum sem gerðar eru út frá 5 tússpenna- teikningum. Gengið var út frá þeim fimm fyrirmyndum þegar gerð voru A4 afrit sem hann síðan vann áfram með tússpennum. Síð- an voru gerð afrit af öllum 10 myndunum á stærðinni A3, fjögur afrit af hverri. Á þeim afritum var síðan aftur unnið lítillega með tús- spennum. Við Vesturveg stendur gamla sýslumannshúsið, bjálkahús frá upphafi aldarinnar sem blasir við þegar komið er í bæinn. Þar eru sýningar tvær. Annars vegar eru þar myndir Stefáns V. Jónssonar Stórvals frá Möðrudal sem eru aðallega landslagsmyndir. Hins vegar er Halldór Ásgeirsson þar með sýningu, bæði á myndverkum og svo hraungrýtisverkum sínum sem vakið hafa mikla athygli. Heimamenn sýna í skólahúsinu Seyðisíjarðarskóli er glæsilegt timburhús frá aldamótatímanum. Þar eru sýningar heimamanna og kennir þar margra grasa. Aðal- heiður Davíðsdóttir sýnir blóma- myndir og kort sem hún hefur unnið úr þurrkuðum blómum á handgerðan pappír. Svava Sófus- dóttir sýnir hina vönduðu glermuni sem hún gerir. Garðar Eymunds- son sýnir málverk, aðallega lands- lagsmyndir. Ásgeir Emilsson, Geiri, sýnir ýmiss konar fíngerða ramma, stóla og öskubakka sem hann framleiður úr tómum öldós- um, sígarettupökkum og fleira og skreytir eftir sínu höfði. Þar má sjá árangur hinna ýmsu safnara í bænum sem sýna hin margvísleg- ustu söfn sín. Þar vekur hergagna- safn Jóhanns Sveinbjörnssonar mesta athygli og hefur fengið heil- an sal út af fyrir sig. Þó eru söfn- in allrar athygli verð. Ljósmyndasýningin kom mér sérstaklega á óvart. Hana unnu þrír ungir menn, Haukur Óskars- son, Daníel Björnsson og Birkir Bjömsson. Þar eru hendur í aðal- hlutverki og fannst mér sérstak- lega hrífandi að sjá hversu mikið má segja um manneskjuna og breytileika hennar með ekki fleiri myndum en þarna eru. Sýningarn- ar verða opnar daglega til 25. ágúst nema á Tækniminjasafninu sem verður opið alla daga nema mánudaga til 31. ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.