Morgunblaðið - 13.08.1996, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Háskólinn
á Akureyri
Sigþór Pét-
ursson skip-
aður dósent í
efnafræði
MENNTAMÁLARÁÐHERRA,
Björn Bjarnason, hefur skipað
dr. Sigþór Pétursson dósent í
efnafræði við Háskólann á
Akureyri en sérstök dómnefnd
hafði áður dæmt hann hæfan
til starfsins.
Sigþór hefur starfað við
Háskólann á Akureyri frá 1990
og sem fastráðinn lektor frá
1992. Hann hefur haft veg og
vanda af uppbyggingu efna-
fræðikennslu við sjávarútvegs-
og kennaradeild skólans. Sig-
þór lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum að Laugar-
vatni 1965, B.Sc. prófi við
University of Edinburgh 1970
og doktorsprófi í efnafræði frá
University of Birmingham
1979.
Að loknu doktorsnámi
stundaði Sigþór rannsóknir við
Oxfordháskóla. Niðurstöður
fræðistarfa Sigþórs hafa birst
í skýrslum og vísindaritum en
auk þess hefur hann samið
kennslurit vegna efnafræði-
kennslu innan HA.
Guðrún Alda
sérfræðingur
á leikskóla-
braut
GUÐRÚN Alda Harðardóttir
hefur verið ráðin til að gegna
störfum sérfræðings við leik-
skólabraut kennaradeildar Há-
skólans á Akureyri.
Guðrún Alda er fædd árið
1955 í Reykjavík. Hún lauk
leikskólakennaraprófi frá Fóst-
urskóla íslands 1985 og hefur
einnig lokið framhaldsnámi í
stjórnun og uppeldisfræði við
sama skóla. Frá 1994 hefur
hún stundað meistaranám í
uppeldis- og kennslufræði við
Kennaraháskóla íslands.
Hún hefur starfað sem Ieik-
skólakennari, leikskólastjóri og
verkefnastjóri en frá árinu
1994 hefur hún gengt starfí
formanns Félags íslenskra
leikskólakennara.
Starf sérfræðings við leik-
skólabraut Háskólans á Akur-
eyri felur m.a. í sér stjórnun,
kennsiu og rannsóknir. Um
brautryðjendastarf er að ræða
þar sem leikskólakennaranám
er nýjung á háskólastigi.
(001 Hótel
Harpa
Akureyri
Gisting við allra
hæíi.
I>iá veluir:
Fjörið í miðbænum.
Friðsældina í
Kjarnaskógi
eða lága verðið á
gistiheimilinu
Gulu villunni
gegnt
sundlauginni.
Sími 461 1400.
Ljósmyndamaraþon 1 fimmta sinn
Dalvíkingur átti
bestu filmuna
LJÓSMYNDAMARAÞON var
haldið í fimmta sinn á Akureyri
sl. laugardag. Áhugaljósmynda-
klúbbur Akureyrar, A.L.K.A. stóð
fyrir keppninni í samvinu við
Kodak-umboðið Hans Petersen
hf. og Pedrómyndir á Akureyri,
auk nokkurra annarra fyrirtækja.
Að þessu sinni mættu 65 keppend-
ur til leiks og lék veðrið við þá á
meðan keppnin stóð yfir.
Aðalverðlaun keppninnar hlaut
Sigurður Gauti Hauksson frá Dal-
vík, Canon EOS 500 myndavél frá
Hans Petersen en hann átti bestu
filmuna (heildarlausnina) í keppn-
inni. Bestu mynd keppninnar „Göt-
ótt“ tók Anton Hansen og hlaut
hann Canon Prima mini myndavél
að Iaunum. Veitt voru verðlaun í
12 flokkum en besta filma keppn-
innar var þó undanskilin við val á
bestu mynd hvers flokks. Sigur-
vegarar í hverjum flokki hlutu að
iaunum Grímseyjarferð með Sæ-
fara og filmur frá Kodak.
780 myndir framkallaðar
og stækkaðar
Keppendur fengu 12 mynda
filmu við rásmark og þrjú verk-
efni. Á þriggja tíma fresti næstu
12 klst. mættu þeir síðan á ýmsum
stöðum víðs vegar um bæinn og
fengu fleiri viðfangsefni. Að 12
tímum liðnum og 12 myndum
teknum mættu allir keppendur í
mark á Ráðhústorgi og skiluðu
fiimunum.
Alls voru 780 myndir framkall-
aðar og stækkaðar um nóttina.
Dómnefnd sem skipuð var þeim
Gunnari Hilmarssyni, Birni Gísla-
syni og Jónasi Viðari Sveinssyni,
hóf störf að morgni sunnudags
og lágu niðurstöður hennar fyrir
þegar sýning á öllum myndum
keppninnar var opnuð utandyra
um miðjan dag. Þá er sýning með
öllum myndum keppninnar opin
í Dynheimum í dag þriðjudag og
á morgun miðvikudag milli 15 og BESTA mynd keppninnar „Götótt“ sem Anton Hansen tók.
20 og er aðgangur okeypis.
KEPPENDUR í ljósmyndamaraþoninu voru 65 en hér sést hópurinn sem hlaut verðlaun að þessu
sinni. Veitt voru verðlaun fyrir bestu myndina í 12 flokkum og af þeim myndum besta mynd keppn-
innar. Aðalverðlaunin voru hins vegar veitt fyrir bestu heildarlausnina á einni filmu.
Trébryggja lengd
í Grímsey
Viðlegu-
pláss eykst
Grímsey. Morgunblaðið.
NÚ ER unnið við að lengja aðra
trébryggjuna af tveimur í höfninni
í Grímsey.
Guðlaugur Einarsson skipasmiður
frá Fáskrúðsfirði er verktaki og
vinnur Guðmundur sonur hans með
honum við þetta verkefni auk þess
sem Sigurður Ingi Bjarnason í
Grímsey leggur til mannskap og
tæki.
Þessa dagana er verið að dýpka
höfnina og vonast Guðlaugur til að
því verði lokið um helgina. Ef allt
gengur samkvæmt áætlun og veður
verður hagstætt ætti verkinu að
vera lokið um miðjan september. Þá
verður bryggjan orðin 40 metra löng
og við það eykst viðlegupláss fyrir
bátana nokkuð.
Morgunblaðið/Hólmfríður
Morgunblaðið/Kristján
Akureyrarbær fær
„Ljóð dagsins“
ÞRÁINN Karlsson leikari, sem hlaut starfslaun bæjar-
listamanns Akureyrar á liðnu ári, lauk timabilinu með
því að færa menningarmálanefnd bæjarins skúlptúr
er nefndin kom saman til fyrsta fundar síns eftir sumar-
leyfi. Skúlptúrinn nefnir hann „Ljóð dagsins“ en hann
er unninn úr steinsteypu, stáli og timbri. Jakob Björns-
son, bæjarstjóri, veitti skúlptúrnum viðtöku.
Þráinn sagði að það ár er hann hefði verið bæjarlista-
maður hefði verið afar lærdómsríkt og gott. Hann
hefði komið víða við, en einkum fengist við myndgerð.
„Eg kem heilsuhraustur undan vetri, rétt eins og veð-
hlaupahestur og hlakka til að fara að hlaupa,“ sagði
hann, en liann hefur þegar hafið störf hjá Leikfélagi
Akureyrar. Þráinn leikstýrir fyrsta verkefni vetrarins,
Sigrúnu Ástrósu, en Sunna Borg fer með hlutverk
hennar.
Grímsey
Sjómaður
klemmdist á
fingrum
UNGUR sjómaður á snurvoðabát í
Grímsey klemmdist á fjórum fingr-
um hægri handar við vinnu sína sl.
sunnudag. Maðurinn varð undir vír
með Qóra fingur og lenti inn á
tromlu er verið var að jafna vírana
fyrir snurvoðina. Við óhappið datt
maðurinn með öxlina á öryggisgrind
og við það losnaði hann af troml-
unni.
Maðurinn var mikið bólginn og
átti auk þess erfítt með að hreyfa
einn fingur. Hann fór með ferjunni
Sæfara til Akureyrar í gær til að
leita sér lækninga. Mildi þykir að
ekki fór verr en átakið á vírinn var
ekki mikið þar sem aðeins var verið
að jafna þá án snurvoðarinnar og
einnig þótti heppilegt að maðurinn
skildi detta á öryggisgrindina við
óhappið.
-----» -------
Unglingsstúlka
slasaðist er hún
féll af hestbaki
UNGLINGSSTÚLKA slasaðist er
hún féll af hestbaki við bæinn Leyn-
ing í Eyjafjarðarsveit um miðjan dag
í gær. Stúlkan kvartaði um höfuð-
verk og hlaut auk þess einhveijar
skrámur. Hún var flutt með sjúkra-
bifreið á slysadeild í'jórðungssjúkra-
hússins á Akureyri.
Stúlkan var með hjálm og segir
Árni Jóhannesson læknir á slysa-
deild að hjálmurinn verði ekki not-
aður aftur, þar sem hann hafi brotn-
að við slysið en jafnframt komið í
veg fyrir frekari meiðsli stúlkunnar.
Stúlkan fékk þó vægan heilahristing
en líður vel eftir atvikum og taldi
Árni að hún yrði útskrifuð fljótiega.