Morgunblaðið - 13.08.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 35
og högum hæfði. Nærri níræður,
sjónlítill og fótafúinn líkami er eld-
sálinni oft lítt að skapi sem ferðafé-
lagi.
Halldóra var sem sé atorkumann-
eskja að hverju sem hún gekk. At-
hafnasemi var henni líka í blóð
borin. Hver stund notuð í hannyrð-
ir og lestur góðra bóka. Hún eignað-
ist góðan mann, hann Geir Zoéga,
tuttugu og tveggja ára gömul. Stóð
fyrir myndarheimili uppfrá þvi. Bjó
við góð efni, eignaðist þrjú mann-
vænleg börn og níu barnabörn.
Hafði góða heilsu fram til síðustu
ára, átti góða vini, gott skap og
naut fjölda góðra lífdaga.
Var það eitthvað fleira fyrir yð-
ur? Þannig var stundum spurt í
betri búðunum í gamla daga. Þann-
ig spyr forsjónin okkur öll að leiðar-
lokum. Þá er gæfan fólgin í því að
hafa lokið erindi sínu.
Sá, sem þetta ritar kynntist frú
Halldóru, eins og hún var nefnd í
minni Ijölskyldu, snemma á þeim
tveimur áratugum, sem við hjónin
höfum átt mikinn vinskap við Helgu
dóttur hennar og Ingimar flug-
stjóra. Þá var mest af ævistarfi
hennar að baki og skiljanlega eru
okkar kynni bundin við þetta tíma-
skeið. Allan þennan tíma var hún
mjög nálæg þeirra heimili og áttum
við því oft samverustundir þar,
bæði á Þinghólsbraut og í Króks-
fjarðarnesi.
Halldóra var kona hreinskilin í
orðræðu og blátt áfram. Maður
hefði ef til vill búist við, að við svona
fína dömu ræddu menn ekki ófína
hluti mannlífsins. En það var mis-
skilningur, hún ræddi hinar ýmsu
hliðar mannlífsins af næmleika og
skilningi og kveinkaði sér hvergi.
Hún hafði næmt skopskyn og frá-
sagnargáfu, sem hélt manni föngn-
um. Maður skynjaði að þarna fór
lífsreynd og víðförul kona, sem
kallaði ekki allt ömmu sína ef á
þurfti að halda.
Einu sinni stóð svo á að hún ætl-
aði suður úr Króksfjarðamesi. Hall-
dór var þá þar gestkomandi og ætl-
aði að fljúga suður. Halldóra falaði
sér far, sem var auðsótt, en henni
bent jafnframt á, að flugmaðurinn
væri nú ekki jafn traustur og
tengdasonurinn við veðurskilyrðin
þennan dag. Oo, það hefur þá farið
fé betra hnussaði í Halldóru og skip-
aði að bera pjönkur sínar um borð.
Helga spurði hana svo seinna að
því hversu henni hefði líkað túrinn.
Jú, sosum þokkalega, nema flug-
maðurinn flaug alltaf í einhverri
bölvaðri þoku svo maður sá ekkert
út. Hún hefði bara átt að vita hann
var að vanda sig við að koma
tengdamóður lærimeistarans
skammlaust heim til sín!
Það er ógleymanlegt að hafa
hlustað á þær tala saman eina
kvöldstund, Elísabetu Bjarnason og
Halldóru Zoéga, sem komu bara
tvær í matinn hjá okkur Steinunni.
Báðar formfastar hefðardömur,
sem höfðu ekki hizt fyrr. Þær
ávörpuðu því hvor aðra með frúar-
titlinum í hvert sinn allt kvöldið.
En gátu samt tekið duglega upp í
sig þegar kom að ýmsum atriðum
í mannlífinu. Og voru þá oftar en
ekki sammála. Betur lukkaðra sam-
kvæmi hefur líklega ekki enn verið
haldið á heimilinu né betur hlustað,
því þær voru báðar sjór af fróðleik,
sérstaklega um hagi og háttu eldri
kynslóðarinnar.
Það er margs að minnast eftir
svo löng kynni og góð af óvanda-
bundinni manneskju, sem maður
ósjálfrátt tengist vegna þess sem
sumir kalla charisma. Slíka útgeisl-
un hafði frú Halldóra. Virðuleg en
um leið glettin, alvarleg en stundum
háðsk, oft mild í dómum en um
leið hörð af sér og kjarkmikil. Fín
dama af gamla skólanum, sem vissi
samt fullvel, „að hjörtum mannanna
svipar saman, í Súdan og í Gríms-
nesjnu“.
Útför Halldóru Zoéga verður
gerð frá Dómkirkjunni hennar, þar
sem hún starfaði að safnaðarmálum
um árabil, þriðjudaginn 13. ágúst
kl. 13.30.
Við hjónin sendum eftirlifandi
ástvinum hennar kveðjur okkar.
Steinunn og Halldór Jónsson.
JÓN SIGURVIN
ÞORLEIFSSON
HULDA MARÍA
SÆMUNDSDÓTTIR
+ Jón Sigurvin
Þorleifsson
fæddist í Bolungar-
vlk 12. janúar 1911.
Hann andaðist á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 5. ágúst síð-
astliðinn. Hulda
María Sæmunds-
dóttir fæddist í
Reykjavík 4. júní
1914. Hún andaðist
á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 21.
júní siðastliðinn og
fór útför hennar
fram í kyrrþey frá
Neskirkju þann 24. júní. For-
eldrar Jóns voru Þorleifur Ás-
geirsson og Guðlaug Guðjóns-
dóttir. Foreldrar Huldu voru
Sæmundur Pálsson og Anna
Ágústa Einarsdóttir Sörensen.
Jón og Hulda giftu sig 14. maí
1938. Börn þeirra hjóna eru: 1)
Emilía, f. 1939, gift Duane And-
erson og eiga þau tvær dætur.
2) Jón Hákon, f. 1941, fráskilinn
og á hann sex börn. 3) Guðlaug,
f. 1942, fráskilin og á hún fjög-
ur börn. 4) Anna Ágústa, f.
1948, gift Guðlaugi Long, eiga
þau hvort um sig þijá syni frá
fyrra hjónabandi. 5) Haukur, f.
1952, í sambúð með Guðlaugu
Árnadóttur og eiga þau tvö
Mig langar til að kveðja hér með
örfáum orðum þau Jón og Huldu,
afa og ömmu unnusta míns. Það
rifjast upp fyrir mér þegar ég kom
fyrst á heimili þeirra, fyrir tæpum
níu árum. Við Jón Örn höfðum þá
verið saman nokkurn tíma og þótti
kominn tími til að kynna mig fyrir
afa og ömmu. Þau tóku vel á móti
mér eins og þeirra var von og vísa,
helltu upp á kaffi, drógu fram kon-
fektkassa og við spjölluðum um
heima og geima. Þau voru bæði
komin yfir sjötugt þegar ég kynnt-
ist fjölskyldunni, en voru við ágæta
heilsu bæði andlega og líkamlega.
Á þeim árum sem síðan hafa liðið
kynntist ég þessum ágætu hjónum
betur. Hulda var óskaplega elskuleg
kona sem geislaði af hlýju en hafði
engu að síður skoðanir á hlutunum.
Jón var kankvís og glettinn og gerði
oft góðlátlegt grín að sjálfum sér
og öðrum L góðum stundum.
Bæði fylgdust þau vel með barna-
börnum sínum varðandi nám þeirra,
störf og annað sem til stóð. Nú síð-
ast í janúar héldu þau mikla afmæl-
isveislu þegar Jón varð 85 ára gam-
all. Það var yndislegt að sjá hvern-
ig þau höfðu þroskast og elst sam-
an, þannig að ástin var ennþá til
staðar eftir margra áratuga hjóna-
band og alla þá lífsreynslu sem þau
höfðu gengið saman í gegn um.
Skömmu síðar varð ljóst að Hulda
var mikið veik og lést hún um miðj-
an júní. Jón lést síðan nú í ágúst-
byrjun og varð því ekki langt á
milli þeirra. Þau gengu þannig sam-
an í gegn um lífíð hafa nú fengið
hvíld eftir langa ævi.
Ég er þakklát fyrir að hafa feng-
ið að kynnast þeim Jóni og Huldu
og ég veit að fjölskylda þeirra á
dýrmætar minningar um þau sem
munu lifa áfram. Blessuð sé minn-
ing þeirra.
Anna Jóhannsdóttir.
Við bræðurnir viljum hér kveðja
með nokkrum orðum móðurafa
okkar og móðurömmu, þau Jón og
börn saman og hún tvö börn fyr-
ir. 6) Helga, f. 1952, og á hún tvö
börn. Jón útskrifaðist frá stýri-
mannaskólanum 1934 og var til
sjós sem skipsljóri og stýrimaður
fram til 1953. Þá hóf hann störf
hjá Lýsi hf. sem verkstjóri og
starfaði þar uns hann lét af störf-
um sökum aldurs. Hulda María
var heimavinnandi og annaðist
börn og barnabörn. Eftir að börn-
in voru vaxin úr grasi starfaði
hún þjá Lýsi hf. um nokkurt
skeið. Þau hófu búskap sinn á
Vesturgötunni en bjuggu lengst
af á Grandavegi.
Útför Jóns fer fram frá Nes-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13:30.
Huldu. Hulda amma lést fyrr í
sumar, og Jón afi féll frá nú í
ágústbyijun. Afi og amma bjuggu
lengst af sínum búskap í íbúð á
Grandavegi, en afi var verkstjóri
hjá Lýsi hf. og því stutt að fara í
vinnuna. Fyrir nokkrum árum
fluttu þau sig um set á Grandaveg-
inum í þjónustuíbúð fyrir aldraða
sem þá var nýbúið að byggja, rétt
hinum megin við götuna. Við eig-
um góðar minningar frá gamla
húsinu á Grandavegi og heimili
ömmu og afa þar. Þau voru hlý
og góð, en héldu líka aga á okkur
strákunum þegar við vorum í heim-
sókn eða pössun og voru mátulega
ströng við guttana sína. Það þýddi
lítið annað þegar þrír orkumiklir
strákar voru á ferð. Afi hafði alla
tíð gaman af að spila alvöru spil
eins og bridds og vist, en hafði
alltaf þolinmæði til að kenna okkur
ýmislegt hagnýtt í spilamennsk-
unni. Amma var hlý og góð, átti
huggunarorð ef einhveijar skrám-
ur hlutust i hita leiksins úti eða
inni, og stundum mola eða köku -
og plástur, ef eitthvað sá á harð-
jöxlunum.
Amma og afi höfðu gaman af
að vera með sinni stóru fjölskyldu,
en börnin og barnabörnin með fjöl-
skyldum sínum skiptu tugum, þegar
haldnar voru stærri veislur. Amma
hélt fyrir nokkrum árum upp á átt-
ræðisafmæli sitt og nú í janúar
hélt afi upp á 85 ára afmæli sitt
með mikilli veislu. Þau voru þá
bæði við ágætis heilsu, miðað við
aldur og nutu veislunnar og sam-
vista við stórfjölskyldu og vini á
þessari hátíðarstund.
Við erum þakklátir fyrir að hafa
fengið að hafa afa og ömmu hjá
okkur svona lengi og kynnast þeim
fram á fullorðinsár okkar. Við mun-
um eigum dýrmætar minningar um
þau, sem munu lifa með okkur
áfram, eftir að við kveðjum þau nú
með hryggð í hjarta.
Blessuð sé minning þeirra.
Jón Örn, Ólafur Már og
Pétur Orri Brynjarssynir
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Hitvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar
um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sln en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okk-
ur samúð og hlýhug við andlát og útför
VIKTORÍU MARKÚSDÓTTUR,
Háteigsvegi 8,
Reykjavík,
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Ósk Árnadóttir, Bjarni Geirsson,
Svanhvít Árnadóttir, Garðar Jóhannsson,
Fjóla Kristín Árnadóttir, Kalman le Sage de Fontenay
og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR ÖLDU JÓNSDÓTTUR,
Öldutúni 10,
Hafnarfirði.
Guðjón Frímannsson,
Helga Guðjónsdóttir, Grímur Jón Grimsson,
Reynir Ómar Guðjónsson, Vilborg Stefánsdóttir,
Þorbjörg Guðjónsdóttir, Gunnar Guðjónsson,
Frímann Elvar Guðjónsson, Guðrún Lilja Rúnarsdóttir,
Guðbjörn Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát eiginmanns míns, föður okkar,
bróður, mágs og afa,
JÓHANNS BJARMA SÍMONARSONAR
fyrrv. skrifstofustjóra,
Klettaborg 4,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækn-
ingadeildar Fjórðungssjúkrahúss
Akureyrar.
Freygerður Magnúsdóttir,
Þorleifur Jóhannsson, Olga Ellen Einarsdóttir,
Símon Jón Jóhannsson, Hallfríður Helgadóttir,
Gfgja Símonardóttir, Sverrir Sigurðsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
RANNVEIGAR G. ÁGÚSTSDÓTTUR,
Kleppsvegi 48,
Reykjavík.
Loftur Loftsson,
Valgerður S. Gunnarsdóttir, Bjarni Daníelsson,
Guðriður Loftsdóttir, Matthías Hjálmtýsson,
Inga Rósa Loftsdóttir,
Loftur Loftsson, Guðrún Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega alla þá vinsemd og
virðingu sem okkur hefur verið sýnd við
fráfall ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ELÍSABETAR KARLSDÓTTUR,
Skipasundi 76,
Reykjavik.
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunar-
fólki og læknum deildar A-7 á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur fyrir frábæra umhyggju og hlýhug.
Sigtryggur Flóvent Albertsson,
Sigríður Sigtryggsdóttir, Hreinn Björnsson,
Sigrún Sigtryggsdóttir, Samúel Oskarsson,
Sigurður Sigtryggsson, Sigrún B. Geirdal,
Karl Sigtryggsson, Kristjana Rósmundsdóttir,
Elsa Sigtryggsdóttir, Oddur Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.