Morgunblaðið - 13.08.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 39
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Stórikarl
Vaðbrekka, Jökuldal.
. STÓRIKARL, stór stakur
I klettadrangur, stendur undir
Skoruvíkurbjargi á Langanesi. A
Stórakarli er eitt af fjórum
HEILBRIGÐISEFTIRLIT
Reykjavíkur hefur veitt kjúkl-
ingastaðnum Suðurveri viður-
kenningu fyrir að hafa komið á
GÁMES kerfinu við innra eftirlit
með matvælavinnslu og mat-
reiðslu. Kjúklingastaðurinn Suð-
urveri er einn fyrsti íslenski
skyndibitastaðurinn sem öðlast
j þessa viðurkenningu.
„GÁMES kerfinu er ætlað að
stærstu súluvörpum á íslandi, en
þar hafa líka búsetu aðrir bjarg-
fuglar, svo sem langvía, rita og
fýll.
tryggja að öllum heilbrigðisþátt-
um í framleiðslu matvæla sé full-
nægt og hefur Kjúklingastaður-
inn Suðurveri starfað samkvæmt
þessum reglum frá áramótum.
GÁMES merkir greining
áhættuþátta og mikilvægra eftir-
litsstaða í framleiðslunni (á ensku
HACCP, Hazard Analysis Critical
Control Points) og tekur á öllum
þáttum matvælaframleiðslunnar.
Sýning á
norrænni
gullsmíði
SJÖ skartgripahönnuðir/gullsmiðir
frá Gullsmíðaskólanum í Kaup-
mannahöfn sýna lokaverkefni sín í
Gullsmiðjunni Pyrit G15, Skóla-
vörðustíg 15 þessa dagana en sýn-
ingunni lýkur 25. ágúst.
I fréttatilkynningu segir: „Gull-
smiðirnir nýútskrifuðu hafa leitast
við að skapa nýjungar í danskri
skartgripahönnun með því að vinna
á óhefðbundinn hátt með form,
efnivið, notkun og annað. Eðli verk-
anna hefur í för með sér að maður
kemst ekki hjá að taka afstöðu til
hvers og eins skartgrips og til þess
boðskapar sem sá sem skartgripinn
ber sendir frá sér.
Nemarnir sjö frá Gullsmíðaskól-
anum sóttu vorið 1996 um styrki
til að fara með sýningu á lokaverk-
efnum sínum í Danmörku til Is-
lands og Finnlands. Þau fengu
bæði ferða- og sýningarstyrki frá
Norrænu ráðherranefndinni,
Sleipni og Norræna menningar-
sjóðnum. Þannig var sýnendum
gert kleift að taka þátt í uppsetn-
ingu og opnun sýningarinnar í
Gullsmiðjunni, Pyrit G15.“
Fyrirlestur um
breytingaskeið
kvenna
SÁLFRÆÐISTÖÐIN mun standa
fyrir fyrirlestri um breytingaskeið
kvenna þriðjudagskvöldið 13. ágúst
kl. 20 í Norræna húsinu. Aðeins
er um þennan eina fyrirlestur að
ræða.
I fréttatilkynningu segir: „Varp-
að verður ljósi á hvernig þetta lífs-
skeið markar tímamót í ævi flestra
kvenna. Hvaða áhrif getur það haft
á einkalíf og starf að vera á miðjum
aldri? Er þörf á endurmati og breyt-
ingum til að njóta sín betur og
hvaða svör getur kvensjúkdóma-
læknirinn gefið konum?
Anna Inger Eydal, íslenskur sér-
fræðingur í kvensjúkdómum, fjallar
um líkamlegar hliðar breytinga-
skeiðsins. Hún starfar nú á einka-
stofnun í Lundi í Svíþjóð. Anna
hefur um langt árabil veitt konum
á breytingaaldri fræðslu og meðferð
og hefur fylgst með nýjum vísinda-
legum rannsóknum _á þessu sviði.
Sálfræðingarnir Álfheiður Stein-
þórsdóttir og Guðfinna Eydal taka
til umfjöllunar ýmsa þætti sem hafa
áhrif á andlega líðan og heilsu
kvenna í þessu lífsskeiði."
Sumarnám-
skeið Dóm-
kirkjusafnaðar
SEINNA sumarnámskeið Dóm-
kirkjusafnaðar fyrir börn á aldrin-
um 6-10 ára hefst mánudaginn 19.
ágúst. Námskeiðið stendur frá kl.
13-17 þá viku til föstudagsins 23.
ágúst og lýkur formlega með messu
í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnu-
daginn 25. ágúst kl. 11.
I fréttatilkynningu segir: „Hvern
dag er komið saman í Safnaðar-
heimili Dómkirkjunnar að Lækjar-
götu 14a þar sem eru samveru-
stundir með fræðslu, söng, bæn og
föndri. Frá Safnaðarheimilinu er
svo farið í skoðunar- og skemmti-
ferðir með leikjum og nesti. Loks
er hin hefðbundna Viðeyjarferð á
föstudeginum með grilli fyrir alla
fjölskylduna."
Þátttökugjald er 1500 kr. og er
allt innifalið í því, nesti, ferðir og
grill. Umsjónarmaður námskeiðsins
er sr. María Ágústsdóttir. Skráning
fer fram í Safnaðarheimili Dómkirkj-
unnar alla virka daga frá kl. 10-12.
Perú ferðalag
kynnt
UNNUR Guðjónsdóttir mun kynna
ferð til Perú í kvöld, þriðjudags-
kvöld, kl. 21 að Reykjahlíð 12 en
ferðin verður farin á vegum Kína-
klúbbs Unnar 21. nóvember til 15.
desember á hausti komandi.
Kynningin er opin öllum sem hug
hafa á að ferðast um Perú og kom-
ast í snertingu við forna menningu
inka og njóta stórkostlegrar náttúru
landsins.
Gestakennari í
Heimsijósi
JÓGAKENNARINN Tom Gillette
verður gestakennari hjá Jógastöð-
inni Heimsljósi í ágúst.
Gillette mun halda jóganámskeið
í Kripalujóga og Asthangajóga
(Power Yoga) á vegum Jógastöðv-
arinnar Heimsljóss helgarnar
17.-18. og 24.-25. ágúst og einnig
kenna jóga í stöðinni þriðjudaginn
20. og fimmtudaginn 22. ágúst.
Nánari upplýsingar fást í Jóga-
stöðinni Heimsljós, Ármúla 15.
■ FÍSN telur hátt í hundrað félaga
og hefur aðsetur í Guðrúnarstofu
á Sogn studentby. Starfsemin mið-
ar að því að tengja saman þá fjöl-
mörgu íslensku námsmenn sem eru
á svæðinu. Blaðakvöld eru haldin
hvern mánudag, þar sem ný Morg-
unblöð eru lesin og kaffi og með
því er á boðstólum. Auk þess eru
á dagskránni vídeókvöld, sauma-
klúbbar, fótbolti og 1. des.-hátíð svo
eitthvað sé nefnt. Félagar FÍSNar
gerast sjálfkrafa félagar í SÍDS og
SINE. Nýir félagar eru velkomnir
og fyrsta blaðakvöldið er 19. ágúst
nk. Nánari upplýsingar fást hjá
Hrund í síma (0047-)22187947.
LEIÐRÉTT
Hagnaður
Skeljungs
í FRÉTT um rekstarafkomu Skelj-
ungs sem birtist á viðskiptasíðu
Morgunblaðsins á laugardag var
skekkja í töflu þar sem helstu lykil-
tölur úr milliuppgjöri fvrirtækisins
voru birtar. Þar var rekstarhagnað-
ur fyrir fjármagnsliði og skatta
fyrstu sex mánuði síðasta árs sagð-
ur 118 milljónir en hið rétta er 126
milljónir. Þar af leiðandi er breyt-
ingin ekki 35% heldur rúmlega 21%
á milli ára.
Mynd speglaðist
Mistök í myndvinnslu ollu því að
mynd sem birtist í Morgunblaðinu á
laugardag af Sænautaseli á Jökul-
dalsheiði speglaðist og snéri því
öfugt. Er beðist velvirðingar á þessu.
ÁGÚST Thorsteinsen heilbrigðisfulltrúi, t.v., afhendir Alfreð
Ómari Alfreðssyni viðurkenninguna.
; Kjúklingastaðurinn Suður-
í veri fær viðurkenningu
R AÐAUGL YSINGAR
:
:
Gott íbúðarhúsnæði
Raðhús, einbýlishús eða 5 herbergja íbúð
óskast á leigu í 6-12 mánuði.
Upplýsingar í síma 552 2223 eftir kl. 19.00.
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, bókasöfn, myndir,
málverk, silfur, silfurborðbúnað, jólaskeiðar,
■ Ijósakrónur, bollastell, gömul póstkort,
íslensk spil og húsgögn, stór og smá.
Upplýsingar í síma 567 1989.
Geymið auglýsinguna.
Til sölu
er hlutur þrotabús Jakobs Arnars Sverrisson-
ar í Hafróti hf., Reykjavík, að nafnvirði kr.
4,0 millj. Þeir, sem þess kunna að óska,
geta fengið send gögn varðandi hlutinn hjá
undirituðum skiptastjóra þrotabúsins sem
gefur nánari upplýsingar í síma 552 4753.
Tilboð þurfa að berast fyrir 21. ágúst nk.
Ingi Ingimundarson, hrl.,
sími 552 4753.
1
I
I
Eitt blab
fyrir alla!
- kjarni málsins!
Hótel á hálfvirði
3ja og 4ra stjörnu í Evrópu frá
kr. 680 pr. mann á dag. Hótel-
skrá: s. 587 6557 kl. 19-21.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almennar samkomur falla niður
í ágúst. Bænastundir verða á
þriðjudagskvöldum kl. 20.30 í
umsjón Sigrúnar og Ragnars.
Sumarmót verður haldið 23.-25.
ágúst að Varmalandi í Borgar-
firði. Allir velkomnir.
Upplýsingar í síma 554 0086.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Miðvikudagur 14. ágúst
Kl. 08.00 Þórsmörk, dagsferö
eða til lengri dvalar.
Kl. 20.00 Síðsumarskvöld á
Álftanesi. Auðveld kvöldganga.
Brottför frá BS(, austanmegin
og Mörkinni 6.
Helgarferð 16.-18. ágúst
Árbókarferð um svæðið milli
Hvítár og Þjórsár. Brottför
föstud. kl. 18.00. Fararstjóri:
Ágúst Guðmundsson jarðfræð-
ingur og höfundur árbókar
Ferðafélagsins 1996 (Ofan
Hreppafjalla) sem ferðin er til-
einkuð. Gist í húsum í Kisubotn-
um og Leppistungum. Fróðleg
og fjölbreytt ferð. Farmiðar á
skrifstofunni.
Ferðafélag íslands.
Dagsferð 18. ágúst
kl. 9.00 Fjallasyrpan, 7. ferð,
Högnhöfði.
Kl. 9.00 Nytjaferö, sveppir.
Helgarferðir
14.-15. ágúst Fimmvörðuháls,
i miðri viku
kl. 8.00 Verð 5.100/5.600.
16.-18. ágúst Básar
kl. 20.00 Fjölskyldusvæði í gróð-
urvin undir jöklum. Gönguferðir
við allra hæfi. Verð 4.300/4.900.
16.-18. ágúst Skaftárdalur,
Leiðólfsfell
kl. 20.00 Gist í Skaftárdal, geng-
ið að Leiðólfsfelli þar sem hópur-
inn verður sóttur. Ný gönguleið
um einstaklega failegt svæði.
Verð 7.800/8.400.
Netfang:
http://www.centrum.is/utivist