Morgunblaðið - 21.08.1996, Page 26

Morgunblaðið - 21.08.1996, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR MIIMNINGAR Samtökin Borgir án bíla SAMTÓKIN Borgir án bíla (Car Free Citi- es) voru stofnuð í Amsterdam í mars 1994 af fulltrúum frá 34 borgum víðsvegar í Evrópu. Reykjavík var ein af þeim. Samtökin voru stofnuð á lokadegi ráðstefnu sem bar heit- ið Borgir án bíla? Þar •temu saman fulltrúar 113 borga í Evrópu til að ræða neikvæð áhrif umferðar á umhverfið og hvað væri til ráða við þeim. Ekki var talað um að banna bíla í borgum heldur að spyma við fótum eða eins og einn fyrirlesari á ráðstefnunni orðaði það, „að hætta að láta borgina aðlagast bílnum en þess i stað láta bílinn aðlagast borginni." Ráðstefnan var haldin að frumkvæði Umhverfis- máladeildar Evrópusambandsins. Hugmyndina að ráðstefnunni má m.a. rekja til Ríó-ráðstefnunnar 1992. '' •«? Markmið í stofnskrá samtakanna kemur m.a. fram að til þess að öðlast heil- næmara umhverfi í þéttbýli verði að hvetja menn til þess að draga úr notkun einkabílsins og efla um- hverfisvænar samgöngur, þ.m.t. al- menningssamgöngur og hjólreiðar. Jafnframt þurfí að auka umferð gangandi vegfarenda og samnýt- ingu einkabíla. Borgunum er uppá- _Jagt að vinna að því að draga i áföng- 'um úr notkun einkabíla í þéttbýli. Samtökunum Borgir án bfla er ætlað að vera alþjóðlegur vettvangur þar sem hægt er að skiptast á hug- myndum, greina frá reynslu borg- anna og leggja drög að milliríkja- verkefnum. Jafnframt er unnið að því að þróa hagkvæmustu aðferðir á sviði tækni og stjómunar til þess að ná ofangreindum markmiðum. Nokkur styrr hefur staðið um nafn samtakanna þar sem það þótti of einstrengingslegt og mætti mis- skilja. Heppilegra nafn hefur þó ekki fundist en borgum í samtökun- um hefur nú verið gefinn kostur á að heimfæra á eigið tungumál und- irtitil þess sem í lauslegri þýðingu "mljóðar „Samstarfsnet fyrir sam- göngur/aðgengi“. Hverjir geta verið með? Allar borgir sem hafa lýðræðis- lega kjörna borgarstjórn geta sótt um aðild að samtökunum Borgir án bíla sem fullgildir aðilar. Borgir geta einnig orðið óformlegir aðilar í eitt ár og fá þá að fylgjast með því sem gerist innan samtakanna. Samtökunum hefur vaxið ásmegin á þessum tveimur árum sem þau hafa starfað og er fjöldi borga í þeim nú milli 50 og 60. Fulltrúar Reykja- víkur í samtökunum eru borgarstjóri og forstöðumaður Borg- arskipulags Reykja- víkur. Hvað gera samtökin? Á vegum samtak- anna eru haldnar ráð- stefnur, fundir og safn- að og miðlað upplýs- ingum sem lúta að umferðar- og umhverf- ismálum borganna sem aðild eiga að samtök- unum. Um er að ræða stefnu, stjórnun og ástand í þeim málum á hveijum stað og reynslu sem unnist hefur. Aðalstarf sam- takanna fer þó fyrst og fremst fram í vinnuhópum sem í byijun voru þrír en eru nú orðnir sex. Vinnuhóp- arnir, sem hittast þrisvar á ári, miðla m.a. af reynslu hver til ann- ars, standa saman að tillögum um verkefni og að sækja um fjármagn til Evrópusambandsins. Reykjavíkurborg, sem hefur ver- ið virk innan samtakanna, á full- trúa í tveimur vinnuhópum; vinnu- hóp sem fjallar um úrbætur fyrir hjólandi og gangandi og vinnuhóp sem leitar raunhæfra leiða til mót- Mikilvæg tengsl, segir Ingibjörg Guðlaugs- dóttir, hafa myndast við margar brýr. vægis við einkabílinn. Reykjavík er einnig óvirkur aðili, enn sem komið er, að þriðja vinnuhópnum, Almenningssamgöngur, þ.e. fær og miðiar upplýsingum til hópsins en tekur ekki þátt í starfi hans að öðru leyti. Hver er ávinningurinn? Ávinningur Reykjavíkur af því að taka þátt í samtökunum Borgir án bíla er m.a. að mikilvæg tengsl hafa myndast við margar borgir. Þessi tengsl hafa komið Reykjavík til góða í því hvað er hægt að gera til að reyna að draga úr sívaxandi umferð og neikvæðum áhrifum hennar á umhverfið. Má þar nefna að hugmyndin um hvíldardag bíls- ins 22. ágúst nk. er tilkomin vegna aðildar Reykjavíkurborgar að sam- tökunum Borgir án bíla og veita þau styrk til dagsins. Höfundur er skipulagsfræðingur og dcildarstjóri á Borgarskipulngi Reykjavíkur og formaður verkefnishóps um hvíldardag bílsins, 22. ágúst 1996. Ingibjörg Guðlaugsdóttir PCIlímogfúguefni í\ ¥> Stórhöfða 17, við Gullinbrú. sími 567 4844 werzalitr í glugga SÓLBEKKIR Þola fyrirliggjandi vatn PP SENDUM I PÓSTKRÖFU Þ. ÞORGRÍMSSON &CO &CO Ármúla 29 • Reykjavík • Sími 553 8640 MAGNÚS ÞORBJÖRNSSON + Magnús Þor- björnsson var fæddur á Gríms- staðarholtinu í Reykjavík 17. febr- úar 1924. Hann lést á heimili sínu á Kleppsvegi 62 í Reykjavík 12. ágúst síðastliðinn. For- eldrar Magnúsar voru Þorbjörn, verkamaður í Reykjavík, f. 20. maí 1900, d. 20. ágúst 1978, Sig- urðsson _ bónda í Króki í Ölfusi Þorbjörnssonar, og kona hans Bjarnþrúður, f. 12. október 1902 að Gestsbæ, Eyrarbakka, d. 2. október 1983, Magnúsdóttir verkamanns í Reykjavík Magnússonar. Tvær systur átti Magnús, Vigdísi Jan- ger, f. 1. desember 1925, gift Gunnari Janger prentara f. í Oslo, Noregi, 24. desember 1927, eru þau búsett í Connecticut í Bandaríkjunum, og Solveig Margrét f. 19. febr- úar 1933, gift Krisljáni Jens Guðmundssyni járnsmið, f. á Patreksfirði 18. júlí 1930. Fóst- ursystur átti Magnús, Sigrúnu Ólafsdóttur, f. í Hafnarfirði 30. janúar 1945, gift Guðmundi Karlssyni kerfisfræðingi. Árið 1949 kvæntist Magnús eftirlifandi eiginkonu sinni Halldóru, f. 16. júní 1927, Aðal- steinsdóttur Guð- mundssonar, f. í Reykjavík 8. ágúst 1903 d. 13. júní 1994, og konu hans Vilborgar Jóns- dóttur, f. á Bíldudal 24. febrúar 1908. Börn Magnúsar og Halldóru eru Magn- ús, rafsuðumaður f. 29. júlí 1954, kvæntur Kristínu Helgu Valdimars- dóttur, kennara f. í Hrísey 10. nóvem- ber 1956, eiga þau þrjú börn og búa í Reykjavík, og Vilborg, f. 13. júní 1956, gift Árna J. Hannessyni kenn- ara, f. á Grund í Borgarfirði eystra, eiga þau þrjú börn og eru búsett á Höfn I Horna- firði. Magnús bjó allt frá fæð- ingu á Fálkagötu 22 á Gríms- staðarholtinu og fram til ársins 1995 að hann ásamt Halldóru flutti að Kleppsvegi 62 í Reykjavík. Hann hóf nám í Prentsmiðjunni Hólum árið 1942 og lauk þar námi og tók sveinspróf í setningu árið 1946. Vann þar allt til ársins 1986 er hann hóf störf hjá Hverfis- prenti, en árin 1994 og 1995 starfaði Magnús hjá Plast- prenti hf. Útför Magnúsar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30 Að leiðarlokum langar mig að minnast mágs míns Magnúsar Þor- björnssonar. Kynni okkar spönn- uðu hátt í hálfa öld. Ég var aðeins 7 ára gamall er hann kvæntist systur minni í nóvember 1949. Þá hafði Magnús ásamt Þorbirni föður sínum byggt hæð ofan á gamla húsið á Fálkagötu 22 sem foreldrar hans reistu árið fyrir fæðingu hans. Þar bjuggu þau síðan Halldóra og Magnús nær allan sinn hjúskap eða fram á lok síðasta árs er þau fluttu á Kleppsveginn þar sem Magnús endaði sitt lífshlaup. Á Fálkagöt- unni á þessum árum bjuggu marg- ar kynslóðir stóríjölskyldunnar, Þorbjörn og Þrúða á miðhæðinni, Solveig Margrét með sína fjöl- skyldu í kjallaranum og Magnús og Halldóra á efri hæðinni. Hjá Þorbirni og Þrúðu bjó lengi faðir hennar Magnús Magnússon fædd- ur að Skúmsstöðum á Eyrarbakka árið 1873. Minnist ég þess hversu skemmtilegt var fyrir lítinn snáða að sitja hjá gamla manninum í herberginu hans þar sem hann sat löngum og hnýtti net. Hann sótti út á grásleppu úr Grímsstaðarvör- inni fram á gamalsaldur. Þetta heimili á Fálkagötu 22 var annálað rausnarheimili þar sem var mikill gestagangur. Minnist ég margra skemmtilegra stunda á æskuárum mínum er ég með foreidrum mínum og systrum sat þar marga veisl- una. Var þá mikið sungið og spil- Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- Waðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGUEIÐIR ÍIÓTEL MIFTLiilllH að. Magnús var mjög elskur að æskustöðvum sínum sem sjá má af því hversu lengi hann bjó á Holtinu. Hann sagði mér þegar hann flutti þaðan á síðasta ári að hann teldi sig elsta manninn núlif- andi sem enn byggi þar frá fæð- ingu. Eftir fermingu starfaði Magnús um tíma sem sendill hjá Símanum og kynntist hann þá vel Reykjavík kreppuáranna. Sagði Magnús mér margar sögur frá þessum árum. í stríðsbyijun hóf hann síðan störf hjá Bretanum. Er hann var eitt sinn að störfum í Öskjuhlíðinni ásamt föður sínum við ruðning efn- is fram af gryfjubrún barst hann með niður í gryfjuna einar þrjár mannhæðir. Engir bílar eða önnur flutningstæki voru til staðar til að flytja Magnús stórslasaðan á sjúkrahús. Tók Þorbjörn son sinn á bakið og bar hann langa leið yfir grýtta hæðina allt niður á Reykjavíkurflugvöll. Magnús slas- aðist mjög illa í baki og lá eina sex mánuði á Landakoti i umsjá Matt- híasar Einarssonar læknis. Taldi Magnús að þetta hefði verið mikill reynsluskóli. Eftir slys þetta var talið að hann gæti ekki unnið erfið- isvinnu, lá því prentverkið vel við. Árið 1942 hóf Magnús nám í setjaraiðn hjá Prentsmiðjunni Hól- um. Meistari hans var Hafsteinn Guðmundsson, taldi Magnús það mikla gæfu að komast í læri hjá þeim manni. Hann brýndi fyrir honum nákvæmni með íslenskt mál og setningu. Eftir að Magnús lauk sveinsprófi árið 1946 starfaði hann óslitið hjá Hólum fram til ársins 1986 er fyrirtækið hætti starf- semi. Hann vélsetti ótal bækur og gekk frá til prentunar á ferli sín- um, er það altalað að vart fyndist vandvirkari maður í hans iðngrein. Fékk hann ótal viðurkenningar fyrir störf sín af útgefendum og má þar nefna er Björn Th. Björns- son þakkaði honum sérstaklega í eftirmála að bókinni Haustskip. Árin 1986 til 1993 starfaði Magnús hjá fyrirtækinu Hverfis- prenti og síðustu tvö ár starfsævi sinnar hjá Plastprenti hf. Magnús var einstaklega tryggur maður í lund og frændrækinn. Var hann sérstaklega ræktarsamur við gam- alt fólk og sótti það heim og aðstoð- aði. Reyndist hann foreldrum sín- um einstakur sonur og hjálparhella er þau áttu í erfiðum veikindum í ellinni. Hann naut þess að vera með börnum sínum og barnabörnum og brýndi sérstaklega fyrir þeim vand- virkni í meðferð móðurmálsins. Prúðmenni var Magnús að eðlisfari en mjög grínsamur og kátur í hópi. Það var von okkar allra í fjölskyld- unni að Magnús næði sér eftir erfiðan uppskurð í nóvember á síð- asta ári. Veturinn var Magnúsi erfiður, en þegar voraði var hann að hressast og trúðum við því öll að þau Halldóra gætu átt góða tíma framundan á nýja fallega heimilinu þeirra á Kleppsvegi 62. Þegar kom fram á sumarið tóku veikindin sig upp að nýju. Ég hitti mág minn oft síðasta mánuðinn sem hann lifði, hann gerði sér grein fyrir að hverju stefndi og tók örlögum sín- um af æðruleysi og bjó sig undir lokin af sinni meðfæddu prúð- mennsku. Ég og fjölskylda mín þökkum fyrir samleiðina og biðjum góðan Guð að blessa og styrkja systur mína, börnin og barnabörnin sem voru honum svo kær. Guðmundur Aðalsteinsson. í júní 1957, tveimur árum eftir að ég gekk að eiga Vigdísi Þor- bjarnardóttur í Bandaríkjunum, komum við hjónin í heimsókn til Islands. Þar hitti ég fjölskyldu hennar í fyrsta sinn og þar á með- al bróður hennar Magnús Þor- björnsson. Við Magnús vorum báðir prentarar. Þrátt fyrir að ég kæmi frá Noregi sem er þó „það næst besta á eftir því að verða Islending- ur“ kom okkur mjög vel saman. Um tíma unnum við hjá sömu prentsmiðju á íslandi, þar hefði ég ekki getað eignast betri vinnufé- laga og vin. Magnús var frábær handverksmaður og jafnvel þótt hann hefði ekki háskólamenntun gerði hann móðurmáli sínu betri skil en margur lærðari. Magnús hafði góða kímnigáfu og átti gott með að umgangast fólk. Hann var sannur fjölskyldu- maður og það var sem hann þekkti öll skyldmenni sín. Það var honum eðlilegt að taka sér á hendur það vandasama verk að safna saman upplýsingum og skrifa bækurnar tvær um ættir sínar, niðjatal Sig- urðar Þorbjörnssonar og Ingigerð- ar Björnsdóttur frá Króki í Ólfusi og niðjatal Magnúsar Ormssonar og Gróu Jónsdóttur frá Gróubæ, Eyrarbakka. Magnús var einstaklega hrifinn af ættjörðinni. Honum þótti ekkert skemmtilegra en að fara með er- lenda gesti að Þingvöllum, Gull- fossi eða Geysi og sýna þeim feg- urð landsins. Dæmigert fyrir hann, því aðeins mánuði fyrir andlátið fór hann með tvo ættingja sína frá Bandaríkjun- um til Þingvalla í slíka ferð. Þetta sýnir best hversu heitt hann unni ættjörðinni. Ég og fjölskylda mín þökkum Magnúsi vináttuna, við heiðrum minningu hans. Gunnar Janger. í dag er móðurbróðir minn Magnús Þorbjörnsson kvaddur í hinsta sinn. Maggi frændi bjó lengst af ævi sinnar að Fálkagötu 22 í Reykja- vík, þar sem hann var fæddur og uppalinn. En síðar kom að því að hann sjálfur stofnaði fjölskyldu. I þá daga var ekki leitað langt yfir skammt, þeir feðgar Magnús og Þorbjörn byggðu þá aðra hæð of- aná Fálkagötu 22. Heimili hans var því jafnsjálfast heim að sækja og til afa og ömmu. Foreldrum sínum var hann umhyggjusamur og sam- búðin þeim því kærkomin. En sl. haust flutti hann ásamt konu sinni í nýtt hús á Kleppsvegi 62, þar sem þau bjuggu sér yndislegt heimili. Maggi frændi var mjög fróður og víðlesinn maður. Hann var orð- heppinn og sérlega pennafær. Sem barni fannst mér hann forvitinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.