Morgunblaðið - 22.08.1996, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.08.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996 11 Norðurland vestra Fjórða ársþingið FJÓRÐA ársþing Sambands sveitarfélaga í Norðurlands- kjördæmi vestra verður haldið að Löngumýri í Skagafirði og hefst það á morgun, föstudag- inn 23. ágúst. Málefni grunnskólans og atvinnumál verða í öndvegi, Siguijón Pétursson hjá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga, flytur framsögu um tekjutil- færslu frá ríki til sveitarfélaga vegna yfirfærslu grunnskól- ans, nýja reglugerð jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga og fjár- hagsleg áhrif af sameiningu. Framsöguerindi um atvinnu- mál í kjördæminu hafa þeir Sigurður Tómas Björgvins- son, Kynningarmiðstöð Evr- ópurannsókna, Lárus Jóns- son, formaður atvinnumála- nefndar félagsmálaráðherra i kjördæminu, og Jón Magnús- son, Byggðastofnun. A laugardag flytja Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra og Páll Pétursson félagsmála- Þjóðveiji í Gallerí+ GALLERÍ+ í Brekkugötu 35 á Akureyri verður opnað aftur eftir sumarleyfi, næstkom- andi sunnudag kl. 16 með sýningu þjóðveijans Knut Eckstein. Hann stundaði nám í skipa- smíðum og myndlistarnám í Hochschule fúr Kúnste í Bremen í Þýskalandi. Hann hefur tekið þátt í ijölmörgum samsýningum og haldið sjö einkasýningar í Frakklandi og Þýskalandi. Hefur hann hlotið nokkrar viðurkenningar fyrir verk sín en nýverið hlaut hann DAAD styrk til árs dvalar í New York og kemur hann við í Gallerí+ á leið sinni vestur um haf þannig að hann verður viðstaddur opnun sýningar- innar. Knut Eckstein vinnur gjarnan með umhverfi sitt með innsetningum og notar efni eins og pappa, plast, gler, myndbönd, hljóð og ljós en verk hans eru um hluti og aðstæður sem fólk kannast vel við. Næstu sýningar í haust og vetur eru með Astu Ólafsdótt- ur, Þorvaldi Þorsteinssyni, Joris Rademaker, Pétri Erni Friðrikssyni og Jóni Laxdal Halldórssyni. Gallerí+ er opið á laugar- dögum og sunnudögum frá kl. 14 til 18, en sýning Knuts stendur til 8. september næst- komandi. Djass í Deiglunni TÚBORGDJASS Listasumars og Café Karolínu er nú á loka- spretti. Aðsókn hefur verið einkar góð i sumar sem og undirtektir, enda valinkunnir djassarar sem fram hafa kom- ið. í kvöld leiða saman hesta sína Stokkhólmsbúarnir Ari Haraldsson á tenórsaxafón og Sebastian Notini á trommur, en með þeim spila Tómas R. Einarsson á bassa og Ómar Einarsson á gítar. Þeir byija að spila kl. 21.30 í kvöld, fimmtudagskvöldið 22. ágúst. AKUREYRI Umferðarfræðsla fyrir þau yngstu UMFERÐARRÁÐ, skipulagsnefnd Akureyrar og lögreglan, efndu til umferðarfræðslu í vikunni fyrir börn fædd árin 1990 og ’91, í sam- vinnu við leikskóla og grunnskóla Akureyrar. Fjölmörg börn sóttu umferðarfræðsluna, svo og fjöldi foreldra. í umferðarfræðslunni er farið yfir nokkrar mikilvægar um- ferðarreglur og sögð sagan um „Rauðhettu og úlfinn í umferðinni," eftir Guðrúnu Helgadóttur, rithöf- und, í leikmyndagerð Ernu Guð- marsdóttur, myndlistarkennara. Einnig voru sýndar fróðlegar og skemmtilegar kvikmyndir. Senn líður að hausti og þá hefja 6 ára börn skólagöngu sína og um leið eykst slysahætta verulega. Mörg börn slasast í umferðinni ár hvert og er markmið umferðar- fræðslunnar að vera stuðningur við foreldra og því er lögð mikil áhersla á að börn sem eru að hefja skóla- göngu komi í umferðarfræðsluna. Á myndinni eru áhugasamir krakkar að fylgjast með sögunni um Rauðhettu, í Síðuskóla í gær. Morgunblaðið/Kristján JePP' kr./m2 Merbau parket Verð áður 4.337 kr./m2 Verðnú^ kr./m2 FUn-flOtli samlímt gólfefni, parketlíki Verð áður 2.611 kr./m2stgr. Verð nú í .358 kr./m2 stgr. stgr. stgr. frá FLISAR 20-55% as, 5% staðgreiðsluafsláttur 1 TEPPI15-6yVoafs + 5% staðgreiðsluafsláttur -----------------^ ~s JK. llP.r~/Zjí + afsl. ! 1 nr I 1 TEPPAAFGANGAR |®ll afsláttur i imw' \ \1frá 291 / \ krJm* / r 1 i afsláttur i 5% staðgreiðsluafsláttur W'- Teppalandsútsalan um allt land afsl. aðgreiðsluafsláttur ■HHbHEIBHhBBBHHHB | OP\Ð LAUV3 Teppaland Mörkinni 4 • Pósthólf 8735 • 108 Reykjavík Sími: 588 1717 & 581 3577 • Fax: 581 3152

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.