Morgunblaðið - 22.08.1996, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Veitingar í fjósinu
íslandsmót í raftsiglingum á Jökulsá vestari í Skagafirði
Steinullarverksmiðjan sigraði
Morgunblaðið/Björn Björnsson
SIGURSVEIT Steinullarverksmiðjunnar, f.v.: Frosti Frostason,
Hólmar L. Sigmundsson, Agnar Gíslason, Brynjar O. Sigmunds-
son, Jóhann Hjaltason, Guðmundur R. Benediktsson og Guð-
mundur Örn Guðmundsson liðsstjóri. Kristján V. Sigurðsson og
Rögnvaldur Ólafsson voru ekki viðstaddir myndatöku.
Laxamýri - Mjög gestkvæmt var
í Aðaldal um helgina þegar
bændur buðu gestum og gang-
andi heim, en þrír bæir hér tóku
þátt í þessu verkefni að þessu
sinni. I Fagranesi sýndi Stefanía
Guðmundsdóttir mjaltir og bauð
auk þess upp á veitingar í fjós-
inu.
Vaðbrekka, Jökuldal - Bændur á
fimmtíu og fimm bæjum á landinu
buðu gestum til sín sl. sunnudag.
Hér á Austurlandi, á svæðinu frá
Vopnafirði tii Hornafjarðar voru sjö
bændur er buðu til sín gestum af
þessu tilefni.
Klaustursel á Jökuldal var einn
þessara bæja en þar búa hjónin Ólav-
ía Sigmarsdóttir og Aðalsteinn I.
Jónsson. I Klausturseli er sauðfjárbú
og vísir að dýragarði þar sem meðal
Margt var sér til skemmtunar
gert, en jafnframt því að skoða
ýmsar tegundir af búsmala var
boðið upp á veiði og bátsferðir
auk veitinga af ýmsu tagi. Þetta
er þriðja árið í röð sem boðið
er heim með þessum hætti og
hefur þessi tegund af sunnu-
dagsbíltúr mælst mjög vel fyrir.
annars eru hreindýr, tófur, minkar,
og heiðagæsir. Að sögn Ólavíu heim-
sóttu þau nær tvö hundruð manns
þennan dag.
Ólavía sagði að meira en helming-
ur fólksins hafi verið af Austurlandi
en annars alls staðar að af landinu.
Fólkið skoðaði búskapinn, dýrin og
þeir sem vildu fengu kaffi og með
því, þetta var þess vegna með eril-
sömustu sunnudagseftirmiðdögum,
sagði Ólavía aðspurð.
Sauðárkróki - Skemmtileg keppni
í raftsiglingum niður Jökulsá vest-
ari í Skagafirði fór fram á dögun-
um og var það fyrirtækið Hesta-
sjjort - Ævintýraferðir ásamt
Aningu, ferðaþjónustu á Sauðár-
króki, sem voru aðalframkvæmda-
aðilar keppninnar.
Magnús Sigmundsson, sem
hafði veg og vanda af framkvæmd-
inni, sagði að þetta væri meira til
gamans gert, en samt einnig til
þess að vekja á því athygli að í
Skagafirði og í Húnavatnssýslum
væri auðvelt að finna vatnsföll til
bátasiglinga af öllum erfiðleika-
stigum og gæfi þetta svæði meiri
möguleika til iðkunar þessarar
íþróttagreinar en flest önnur hér-
lendis.
Þá sagðist Magnús vilja kalla
þessa keppni: „íslandsmót í raft-
siglingum / opinn flokkur áhuga-
rnanna", enda væri hér á ferðinni
ný keppni sem ekki hefði verið
reynd. Steinullarverksmiðjan á
Sauðárkróki gaf glæsilegan far-
andbikar til keppninnar, en auk
þess hlutu þrjár fyrstu sveitir eign-
arbikara til viðurkenningar.
Magnús Sigmundsson sagði að
markmiðið væri að festa þessa
keppni í sessi og halda hana ár-
lega, fyrri hluta ágústmánaðar ár
hvert. Sagði hann að helmingur
af skráningargjöldum þátttakenda
stæði undir kostnaði við keppnina,
en markmiðið væri að alltaf mundi
hinn hlutinn renna til einhvers
þess félagsskapar sem ynni að
líknarmálum og góðgerðarstarf-
semi á landsvísu, og í fyrstu keppn-
inni væri það félag Krabbameins-
sjúkra barna sem fengi framlag
mótsins.
Siglt um Jökulsárgljúfur
Keppnin fór þannig fram að
keppt var í tveim riðlum og lagt
af stað af eyrunum framan Goð-
dala, róin um tíu kílómetra leið og
komið í mark við Villinganes. Sagði
Magnús þetta vera einn allra fal-
legasta og skemmtilegasta kaflann
í Jökulsárgljúfrum vestari, og þann
langvinsælasta meðal þeirra sem
um gljúfrin færu.
Upphaflega voru átta lið skráð
til keppninnar, en fimm sveitir
mættu og kepptu í tveim riðlum.
Svo skemmtilega vildi til að lið
Steinullarverksmðjunnar sigraði
örugglega og varðveitir því Stein-
ullarbikarinn fram í ágúst að ári,
að minnsta kosti.
í þremur efstu sætum urðu:
Steinullarverksmiðjan Sauðár-
króki, 42,28 mínútur. Pizza 67,
Akureyri: 47,13 mínútur. Loð-
skinn, Sauðárkróki, 53,26 mínút-
ur.
Mæta til leiks að ári
Verðlaunaafhending fór síðan
fram á Hótel Áningu í Varmahlíð
á sunnudagskvöldið, þar sem allar
áhafnirnar og aðstandendur
keppninnar hittust og áttu saman
góða stund. Var það samdóma álit
allra að keppnin hefði verið sér-
staklega skemmtileg og lýstu allir
áhuga á því að mæta til leiks að
ári og það er að minnsta kosti
fullljóst, að lið Steinullarverksmiðj-
unnar undir forystu Guðmundar
Arnar Guðmundssonar mun ekki
láta bikarinn af hendi átakalaust.
Tvö hundruð manns
heimsóttu Klaustursel
Vörugeymslur • Kælilagerar • Frystilagerar
Matvælageymslur • Bókasöfn
Skjalasöfn • Bílskúrar
LagerM
hillnr og hillurekkar
Bjóöum allskonar lager og hillukerfi lyrir
stœrri vörugeymslur sem minni lagera.
Endalausir möguleikar. Smávöruhillur sem brettarekkar.
Aðeins vönduö vara úr spænsku gæðastáli. Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SÍMI564 4711 • FAX 564 4725