Morgunblaðið - 03.09.1996, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
1.100 manns
í Esjuhlaupi
Afleiðingar uppsagna heilsugæslulækna
Landlæknisembættið
rannsakar dauðsfall
NÆR 1.100 manns tóku þátt í
Esjuhlaupinu svonefnda á sunnu-
daginn sem Hjálparsveit skáta í
Reykjavík gengst fyrir á ári
hverju. Þar af fóru 5-600 manns
alla ieið á toppinn og sá sem fljót-
astur var að fara upp eftir var
rúmar 30 mínútur á leiðinni.
Fóik á öllum aldri tók þátt í
hlaupinu, sem nú er haldið í
fimmta sinn og tókst í alla staði
vel að sögn Ingimars Ólafssonar,
formanns Hjálparsveitar skáta í
Reykjavík.
Húsaleigu-
bætur
greiddar
út 5. hvers
mánaðar
GREIÐSLU húsaleigubóta í
Reykjavík hefur verið breytt á
þann veg að bæturnar verða
greiddar út 5. hvers mánaðar
í stað fyrsta virka dag hvers
mánaðar eins og verið hefur.
Ef 5. ber upp á laugardag eða
sunnudag verða bæturnar
greiddar út á föstudegi, sam-
kvæmt upplýsingum Guð-
munds Sigmarssonar, deildar-
stjóra húsaleigubótadeildar
Félagsmálastofnunar Reykja-
víkur.
Guðmundur sagði að þessi
háttur á greiðslum væri í sam-
ræmi við fyrirmæli laga, en
þau kvæðu á um að húsaleigu-
bætur væru greiddar út í síð-
asta lagi 5. hvers mánaðar.
Ástæða breytingarinnar væri
sú að með þessu móti gæfist
betri tími til úrvinnslu vegna
greiðslu bótanna, en þær eru
greiddar út fyrirfram fyrir
hvern mánuð.
Aðspurður sagði Guðmund-
ur að talsvert bærist af fyrir-
spurnum vegna þessarar
breytingar, en hann hefði hins
vegar ekki orðið var við mikla
óánægju vegna hennar.
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ hefur
hafið rannsókn á því hvort rekja
megi dauðsfall manns í heimahúsi
til þess ástands sem skapast hefur
eftir uppsagnir heilsugæslulækna.
Ólafur Ólafsson landlæknir stað-
festir að 6-7 önnur alvarleg mál
hafi komið upp.
Að sögn landlæknis voru málsat-
vik þau að aðstoðar var leitað á
heilsugæslustöð vegna sjúklings í
heimahúsi. Viðkomandi heilsu-
gæslulæknir hafi ekki verið á staðn-
um en nánum aðstandanda eindreg-
ið ráðlagt að flytja sjúklinginn á
sjúkrahús. Ólafur segir að það hafi
ekki verið gert og sjúklingurinn
hafi látist skömmu síðar.
6-7 mál í rannsókn
Landlæknir segir að málið sé til
rannsóknar og að beðið sé eftir
nánari skýrslum um málið. Atvikið
varð i síðustu viku ágústmánaðar.
Landlæknir segir að 6-7 önnur
alvarleg mál hafi komið upp sem
hugsanlega megi rekja til ástands-
ins vegna uppsagna heilsugæslu-
lækna. í umræddum tilvikum kann
alvarlegt heilsutjón að hafa hlotist
af. Landlæknir segir þó ekki vitað
með vissu hvaða skaði hafi hlotist
af, en tekist hafi að bjarga lífi.
Flutningsmiðlarar eru ósáttir við fraktflutninga Pósts og síma
Morgunblaðið/Þorkell
Oeðlilegt og býð-
ur heim misnotkun
SAMKEPPNISAÐILAR Pósts og
síma í fraktflutningum eru ekki
sáttir við innkomu stofnunarinnar
á þennan markað og telja það
ekki vera tryggt að þessi starfsemi
verði aðgreind fjárhagslega frá
hefðbundnum póstflutningum
stofnunarinnar.
Eins og fram kom í fréttum
Morgunblaðsins á sunnudag hefur
Póstur og sími samið við alþjóð-
lega flutningsmiðlunarfyrirtækið
Dan Transport um að dreifa frakt
frá fyrirtækinu hér á landi. Var
m.a. haft eftir Rafni Júlíussyni,
forstöðumanni póstflutningasviðs
P&S, að til greina kæmi að nota
póstflutningabíla og pósthús
stofnunarinnar undir þessa starf-
semi.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri
TVG-Zimsen, sem er að stærstum
hluta í eigu Eimskips og rekur
m.a. flutningsmiðlun, segist hafa
sínar efasemdir um hvernig að
þessari starfsemi verði staðið.
Árni Pétur segir að hér sé á
ferðinni starfsemi sem sé allt ann-
ars eðlis en hefðbundnir póstflutn-
ingar. „Maður hlýtur því að velta
fyrir sér hvernig kostnaður vegna
þessa sé aðgreindur frá núverandi
starfsemi,“ segir Árni Pétur.
Steinn Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Flutningsmiðlunar-
innar Jóna, segist ekki telja eðli-
legt að opinbert fyrirtæki fari út
í almenna flutningsmiðlun í flug-
og skipafrakt, þar sem það geti
augljóslega misnotað aðstöðu sína.
■ Aðgreining póstburðar/19
MORGUNBLAÐINU í dag fylg-
ir fjögurra síðna auglýsingablað
frá Tómstundaskólanum.
Aðstoðar póst- og símamálastjórí um breytingar á upphringinúmerí
Enginn máti að kynna breytingar
„OKKUR þykir þetta vægast mjög
léleg kynning. Það átti að tilkynna
um breytinguna 14. ágúst en það
misfórst. Þetta er alveg ófært og
enginn máti að kynna viðskipta-
vinum breytingar sem gerðar eru,“
segir Guðmundur Björnsson, að-
stoðar póst- og símamálastjóri.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
sl. sunnudag olli fyrirhuguð breyt-
ing á upphringinúmeri röskun hjá
fyrirtækjum sem tengd eru há-
hraðaneti Pósts og síma. Þar kom
fram í máli Karls Benders, yfír-
verkfræðings Pósts og síma, að
skýrt hafi verið frá breytingunni
fyrir þremur vikum í aðsendri
grein í Morgunblaðinu.
í aðsendu greininni sem birtist
13. ágúst sl. segir m.a. að til að
leggja áherslu á jafnan aðgang
hafi verið ákveðið að opna sér-
staka númeraröð á hverju gjald-
svæði fyrir fyrirtæki sem reka
þjónustu af þessari tegund, þannig
að hvert fyrirtæki fái númer sem
eru með fjóra síðustu stafina eins
á öllum stöðum.
„Því miður verða mistök hjá
okkur eins og mörgum öðrum.
Þetta eru mjög slæm mistök og
ég vil nota tækifærið og biðja
okkar viðskiptavini afsökunar á
þessu,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur sagði að sent hefði
verið bréf til allra viðskiptavina
háhraðanetsþjónustu Pósts og
síma sl. föstudag þar sem þeim
var skýrt frá því að upphringinúm-
erinu yrði lokað á mánudag. „Við
urðum varir við viðbrögð svo við
ætlum að hafa númerið opið einn
dag til viðbótar og verður því lok-
að síðdegis á þriðjudag,“ sagði
Guðmundur.
Tólf líkamsmeiðing-
ar um helgina
Barin niður
við útitaflið
LÖGREGLAN í Reykjavík
þurfti að hafa afskipti af tólf
líkamsmeiðingarmálum um
helgina, þar á meðal var ráðist
á konu við útitaflið í Lækjar-
götu aðfaranótt sunnudags og
hún skilin þar eftir. Konan var
flutt á slysadeild til aðhlynning-
ar.
Nokkrar róstur voru í mið-
borginni þessa nótt, og var
meðal annars lögð fram kæra
vegna líkamsárásar sem maður
varð fyrir á veitingahúsi við
Austurstræti.
Harður ágreiningur
um akstur
Einnig barst lögreglunni í
Reykjavík tilkynning um mann
sem hafði verið sleginn á öðrum
skemmtistað í miðbænum. Ann-
ar var fluttur á slysadeild með
áverka á höfði sem hann hafði
orðið fyrir á Lækjartorgi.
Um nóttina voru tveir menn
handteknir fyrir að veitast að
öðrum tveimur á Hverfisgötu.
Fórnarlömb árásarinnar voru
flutt á slysadeild. Undir morgun
voru síðan fjórir menn hand-
teknir í Austurstræti og færðir
í fangageymslu eftir að hafa
veitt manni áverka í andliti.
Aðfaranótt laugardags var
ennfremur tilkynnt til lögreglu
að maður væri að misþyrma
konu sinni utan við hús á Grett-
isgötu.
■ Dagbók lögreglunnar/47
Grunur um
afbrigðilega
hegðun
ÍBÚI í Rimahverfi í Grafarvogi
tilkynnti Iögreglunni í Reykja-
vík á laugardagskvöld um að
hann hefði fylgt heim drengjum
sem voru óttaslegnir vegna
manns sem var á ferð á bifreið
um hverfið. Maðurinn var sagð-
ur hafa áreitt drengina og
stúlku.
Samkvæmt vitnisburði íbú-
ans sögðu drengirnin að maður-
inn hefði verið að taka á þeim.
Hann var sagður sniglast um
hverfið og fara laumulega, hafa
meðal annars ekið með ljósin
slökkt.
Verður krafinn skýringa
íbúinn gekk að bifreiðinni og
ræddi við manninn, sem var
rúmlega fimmtugur. Kvaðst sá
vera að bíða eftir fólki en virt-
ist fara umsvifalust í vörn yfir
því sem börnin höfðu sagt að
sögn þess sem tilkynnti um at-
burðinn. Lögreglan í Reykjavík
hefur upplýsingar um númer
bílsins og skráðan eiganda og
mun viðkomandi aðili verða
kallaður til og inntur eftir nán-
ari skýringum. Málið hefur ekki
verið kært til lögreglu.
Ómar Smári Armannsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn segir
menn líta tilvik sem þessi mjög
alvarlegum augum og fái þau
meðhöndlun í samræmi við það.
Afbrigðileg háttsemi af þessu
tagi sé ekki sérlega algeng en
þó komi upp tilvik reglulega,
bæði þar sem um er að ræða
grunsamlega hegðun eða"þá að
menn séu að fletta sig klæðum
eða leita á börn.
Stundum sé vitað hveijir eiga
hlut að máli og ekki sé óal-
gengt að sömu menn komi ítr-
ekað við sögu í málum sem
þessum. Fylgst sé sérstaklega
með mönnum og svæðum sem
um ræðir og þótt mönnum tak-
ist sjaldan að vinna alvarlegan
miska sé ávallt fyllsta ástæða
til að vera á varðbergi.