Morgunblaðið - 13.09.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.09.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1996 19 Reuter NOKKRIR sjómenn efndu til mótmæla fyrir utan japanska vega- bréfsskrifstofu í Taipei á Tævan í gær. Köstuðu þeir að henni úldnum fiski og brenndu japanska fánann. Heitt í koiunum í deilunni um Diaoyu-eyjar Vilja að Kín- verjar sendi herskip Peking. Reuter. HÓPUR þingmanna frá Hong Kong skoraði í gær á kínversk stjómvöld að senda herskip til að gæta um- deildra eyja á Austur-Kínahafi en Kína, Tævan og Japan gera tilkall' til þeirra. Talsmaður japanska utan- ríkisráðuneytisins hvatti hins vegar til stillingar í deilunni. Sex Hong Kong-búar, þar á með- al þrír þingmenn, komu fyrir mikl- um borða fyrir utan kínverska utan- ríkisráðuneytið í Peking í gær og mátti á honum lesa áskorun til kín- versku stjórnarinnar um að sýna Japönum fulla hörku og senda her- skip á vettvang. Var áskorunin und- irrituð af 17.000 manns, allt íbúum í Hong Kong, sem hverfur aftur undir Kína um mitt næsta ár. Voru kínverskar „Við eigum Dyaoyu-eujar,“ sagði Frederick Fung, þingmaður í Hong Kong, pn á japönsku kallast þær Senkakus. Eyjarnar, sem eru óbyggðar, tilheyrðu áður Kína en eftir ósigur Kínvetja fyrir Japönum 1895 neyddust þeir til að láta þær af hendi ásamt Tævan. í Taipei, höfuðborg Tævans, köst- uðu sjómenn úldnum fiski að jap- anskri vegabréfsskrifstofu og ýmsir stjórnmálamenn kröfðust þess, að Japanir hættu að gera tilkall til eyjanna. Lengi hefur kraumað undir í þess- ari deilu en hún biossaði upp í júlí þegar hægrisinnuð ungliðasamtök í Japan komu fyrir vita á eyjunum og minnismerki um þá landa sína, sem féllu í stríðinu. Kynti svo japanska stjórnin enn undir henni í síðustu viku þegar hún studdi í raun þetta framtak með því að senda varðskip ti! eyjanna og stugga við Tævönum, sem ætluðu að ganga þar á land. Talsmaður japanska utanríkis- ráðuneytisins neitaði þó í gær, að ríkisstjórnin og ungliðasamtökin hefðu eitthvert samstarf í þessu máli og hvatti stjórnir allra ríkjanna til að sýna stillingu. ERLENT Reiptog sænsku stjórnarinnar og alþýðusambandsins Persson hopar hvergi Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. REIPTOG sænska alþýðusambands- ins og stjórnar Jafnaðarmanna kom glögglega upp á yfirborðið á þingi sambandsins í gær. Þótt sambandið hafi harðlega mótmælt lagafrum- varpi stjórnar jafnaðarmanna um breytingar á vinnulöggjöfinni hörf- aði Göran Persson ekki hænufet í ræðu sinni, heldur minnti á sam- ábyrgð sambandsins í efnahags- kreppu landsins. Á þinginu hefur því verið fieygt að rétt væri að draga til baka framlag við Jafnaðarmanna- flokkinn er nemur rúmum 200 millj- ónum íslenskra króna á ári. Carl Bildt formaður Hægriflokksins lét þau ummæli falla að sú umræða hljómaði eins og framjagið væri mútur, sem hægt væri að hóta að draga til baka. Þótt ætlunin hefði verið að þingið, sem haldið er fimmta hvert ár, vís- aði veginn til framtíðarinnar þá hafa átökin um vinnulöggjöfina skyggt á grundvallarmál. Alþýðusambands- menn hafa tekið það óstinnt upp að stjórnin tilkynnti í síðustu viku að náðst hefði samkomuiag við Mið- flokkinn um nýtt vinnulöggjafar- frumvarp án samráðs við samband- ið. Það þykir varla tilviljun að stjórn- in skyldi tilkynna um samkomulagið einmitt þegar alþýðusambandsþing var að hefjast. Göran Persson sýndi vel að orð- spor það sem af honum fer, að vera harður í horn að taka, er rétt, því hann hikaði hvergi í ræðu sinni, sem var að mestu endurtekning margra fyrri ræðna um efnahagsvanda Svía. Hann hvatti alþýðusambandsmenn til að standa með stjórninni í barátt- unni við atvinnuleysið og sagði stjórn- ina hafa í hyggju að beina átta millj- örðum sænskra króna til bygginga stúdentagarða víðs vegar um landið til að efla atvinnu. Hann minnti á ábyrgð sambandsins og sagði athug- anir sýna að launamyndun væri enn sú sama í Svíþjóð og hún hefði verið á áttunda áratugnum. Ræðu Perssons var þunglega tek- ið á þinginu og Bertil Jonsson for- seti sambandsins svaraði með til- finningaþrunginni ræðu, þar sem hann minnti á að sameinað sigraði sambandið. Um vangaveitur um að hætta fjárframlögum til flokksins sagði Persson á blaðamannafundi í gær að það þýddi aðeins samdrátt í flokksstarfseminni. Vinnulöggjöfm sænska er af mörgum talin vera dragbítur á at- vinnulífið og viðhalda atvinnuleys- inu, sem nú nemur rúmum 13 pró- sentum. OECD hefur bent á að heppilegt væri að gera vinnulöggjöf- ina sveigjanlegri og sama hefur sænska vinnuveitendasambandið gert. í nýja frumvarpinu eru ákvæði um aukið svigrúm fyrirtækja til að semja beint við launþega og eins að uppsagnir bitni ekki sjálfkrafa á þeim sem eru með stystan starfsaid- ur. Breytingarnar draga úr vægi alþýðusambandsins, sem ýmsir gagnrýnendur segja ekki lengur gæta hagsmuna allra launþega, heldur sé það í hagsmunagæslu fyr- ir þá sem hafi vinnu á kostnað hinna atvinnulausu. 160x200 með náttborðum, dýnum og kelidýnu 40 Dögg rúm á frábæru tilboðsverði út Septembermánuð eða á meðan birgðir endast OPIÐ: Mánud - föstud 9-18 Laugardaga 10-14 Gott rúm betri heilsa Póstsendum um land allt Grensásvegi 3, 108 Reykjavík. Sími: 568 1144. Fax: 588 8144. HEFST EFTIR 4 DAGA HEIMSVIÐBURÐUR ^ í LAUGARDALSHÖLL A'-' 'f Alþjóðlega sjávarútvegssýningin 18.-21. sept.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.