Morgunblaðið - 13.09.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1996 23
Ráðstefna
um bækur
og fólk
UM HELGINA verður haldin nor-
ræn ráðstefna um bókmenntir og
almenning, bóklestur fólks, al-
menningsbókasöfn o.þ.h. Ráð-
stefnan verður haldin í húsakynn-
um Bændasamtakanna við Hagat-
org í Reykjavík.
Að ráðstefnunni standa samtök-
in „Förbundet Nordisk Vuxenupp-
lysning", en innan þeirra eru
margvíslegir námsflokkar og nám-
skeiðasamtök á Norðurlöndum,
einkum á landsbyggðinni, þ. á m.
Bændasamtök íslands og UMFÍ.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni
má nefna Þórdísi Þorvaldsdóttur
borgarbókavörð, Einar Má Guð-
mundsson rithöfund og prófessor-
ana Þorbjörn Broddason og Njörð
P. Njarðvík.
♦ ♦ ♦-----
Grænlenskt
kvöld
GRÆNLENSKT kvöld verður í
Norræna húsinu laugardaginn 14.
september kl. 20.30. Dagsráin er
í tengslum við þing sem stendur
yfir í Reykjavík 13.-16. september
og ber yfirskrfitina „Norden, litt-
eraturen och lásandet". Að dag-
skránni stendur Förbundet Nor-
disk Vuxenupplysning og Nor-
ræna húsið.
Grænlenski kennarinn og ljóð-
skáldið Adam Nielsen frá Sisimiut
mun kynna grænlenska menn-
ingu. Dagskráin er á dönsku. All-
ir eru velkomnir, aðgangur er
ókeypis.
-----♦--♦--♦---
Kvikmynda-
sýningar MIR
hefjast að nýju
REGLUBUNDNAR kvikmynda-
sýningar í bíósalnum á Vatnsstíg
10 hefjast aftur á sunnudag, 15.
september, kl. 16. Þá verða sýndar
fjórar heimildarmyndir um rússn-
eska kvikmyndagerðarmenn og
tónskáld; kvikmyndaleikstjórana
Sergei Eisenstein (1898-1948) og
Mikhaíl Romm (1910-1971) og
tónskáldin Sergei Prokofief (1891-
1953) og Smitri Shostakovits
(1906-1975).
Fjórar af frægustu kvikmynd-
um leikstjóranna verða síðan sýnd-
ar í september og október, ásamt
myndum tveggja annarra rúss-
neskra kvikmyndaleikstjóra,
þeirra Eldars Rjazanovs og Iosifs
Kheifítz.
Aðgangur að kvikmyndasýn-
ingum er ókeypis og öllum heimill.
-----♦ ♦ ♦
Sýningu Grétu
lýkur í
Gallerí Fold
SÝNINGU Grétu - Elsu Margrét-
ar Þórsdóttur í Gallerí Fold við
Rauðarárstríg á vatnslitamyndum
og myndum unnum með blandaðri
tækni lýkur á sunnudag.
Sýninguna nefnir Gréta „Got-
land og önnur ævintýri“. Gréta
hefur búið í Gotlandi undanfarin
ár og sækir hún meðal annars í
náttúru Gotlands.
Á sama tíma lýkur kynningu á
vatnslitaþrykkum eftir Þórdísi Jó-
elsdóttir í kynningarhorni gallerís-
ins.
Opið er í Gallerí Fold daglega
frá kl. 10-18, laugardaga frá kl.
10-17 og sunnudaga frá kl. 14-17.
Nafn Capa hreinsað
HINN heimsþekkti bandaríski ljós-
myndari, Robert Capa, hefur nú
verið hreinsaður af ásökunum um
að hafa sett á svið eina af þekkt-
ustu Ijósmyndum sínum, en hún sýn-
ir mann sem barðist í spænsku
borgarastyrjöldinni falla. Deilt hefur
verið um myndina í hálfa öld en nú
hefur sagnfræðiáhugamanni, sem
tók þátt í borgarastyijöldinni sem
unglingur, tekist að bera kennsl á
manninn á myndinni, svo og stað
og stund.
Capa lét lífið í Víetnam árið 1954
er hann steig á jarðsprengju. Bróðir
hans, Cornell Capa, sem er 78 ára,
fagnaði fréttum um að hermaðurinn
hefði loks verið nafngreindur, þar
sem ásakanir um að myndin væri
fölsuð, hefði valdið fjölskyldunni
miklum sárindum.
Mario Brotons, sem var aðeins
íjórtán ára er borgarastyrjöldin
braust út, komst að því að maðurinn
á myndinni hét Federico Borell
Garca og var 24 ára verkamaður frá
Alcoy. Tilkynnt var um lát hans 5.
september 1936, fyrir réttum sextíu
árum. Brotons er nú látinn, en hann
lét eftir sig skjöl um niðurstöður
sínar. Hann var mikill áhugamaður
um borgarastyijöldina og er hann
leitaði heimilda í sögubókum, rakst
hann oftar en ekki á hina þekktu
mynd Capa. Rétt eins og ljósmyndar-
inn var hann við Cerro Muriano-víg-
iínuna fyrstu dagana í september
1936, þegar borgarastyijöldin hafði
staðið í sjö vikur.
Sá eini sem féll
Brotons var sannfærður um að
hann gæti þekkt aftur staðinn sem
myndin var tekin á, og það tókst
að endingu. Þá veitti klæðnaður
mannsins og vopn nokkrar upplýs-
ingar en fatnaðurinn var dæmigerð-
ur fyrir verkamenn. Einu mennirnir
sem ekki voru atvinnuhermenn og
börðust þennan dag á þessum stað,
var hópur námuverkamanna frá Lin-
ares, svo og um 300 menn frá Alcoy.
Námuverkamennirnir höfðu aðeins
sprengiefni en mennirnir frá Alcoy
voru alvopnaðir, búnir beltum undir
skot, sem gerð voru sérstaklega fyr-
ir þá. Maðurinn á myndinni var með
slíkt belti um sig miðjan og axlabönd
til að styrkja það. Því hlaut hann
að vera úr hópnum frá Alcoy. Og
þrátt fyrir að margir hafi særst í
átökum þennan septemberdag, féll
aðeins einn úr hópnum frá Alcoy,
Borrell Garca. Hann hafði verið einn
af stofnendum ungmennahreyfingar
vinstrimanna í Alcoy.
Blaðamenn Observer ræddu ný-
lega við Maríu, ekkju yngri bróður
Federicos, en hún er nú 78 ára.
Maður hennar heitinn, Everisto, fór
með bróður sínum á vígvöllinn 5.
september en kom einn til baka.
Hann hafði ekki séð þegar bróðir
hans var drepinn en honum var sagt
að hann hefði baðað út handleggjun-
um og fallið til jarðar, skotinn í
höfuðið. Og María þekkir Federico
af myndinni.
Sex skáldverk frá Bjarti
Skurðir
og styttri leiðir
BJARTUR gefur út þijú íslensk
skáldverk fyrir jólin.
Kviksetning er nýtt skáldverk eft-
ir Braga Ólafsson sem áður hefur
sent frá sér fjórar ljóðabækur en
heldur með Kviksetningu inn á nýjar
brautir.
Skurðir í rigningu er skáldverk
eftir Jón Kalman Stefánsson, frum-
raun hans sem prósahöfundar. Eftir
Jón Kalman hafa áður komið tvær
ljóðabækur. Sögusvið nýja skáld-
verksins er íslenskt bændasamfélag
á síðasta áratug.
Silfurkrossinn er barna- og ungl-
ingabók eftir Illuga Jökulsson. Sag-
an segir frá systkinum sem flytja
ásamt foreldrum sínum í nýreist hús
í nýju hverfi í Reykjavík. Fjölskyld-
unni mæta óvæntir erfiðleikar á
nýjum stað.
Óhuggandi
Að auki gefur Bjartur út þijú
þýdd skáldverk. Nýjasta skáldsaga
hins víðkunna japanska höfundar
Kazuo Ishiguru, sem skrifar á ensku
og samdi Dreggjar dagsins, nefnist
Óhuggandi í íslenskri þýðingu Elísu
Bjargar Þorsteinsdóttur.
Aðrar leiðir og styttri er safn
smásagna eftir bandaríska höfund-
inn Raymond Carver sem Sigfús
Bjartmarsson hefur valið og þýtt.
Carver, sem lést 1988 komst í sviðs-
ljósið í fyrra þegar Robert Altman
gerði kvikmyndina Short Cuts eftir
sögum hans.
Rainer Maria Rilke er eitt af höf-
uðskáldum þýskrar tungu á þessari
öld. Kristján Árnason hefur valið og
þýtt ljóð Rilkes.
„Eg laug“
Castberg safnstjóri Arken játar að
hafa logið um próf sín
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið.
ANNA Castberg safnstjóri Arken
játar í viðtali við danska blaðið Politi-
ken í gær að hafa logið til um próf-
gráður sínar. Til þessara heimsku-
bragða hafí hún gripið til að fá safn-
stjórastarfið, sem hún var viss um
að hún myndi geta leyst vel af hendi.
BA-próf í listasögu frá Kaupmanna-
hafnarháskóla segist hún hafa, en
enga doktorsgráðu. Mestu máli skipti
reynsla hennar, sem hafi nýst henni
vel og hún sé stolt yfir því verki, sem
hún hafí leyst af hendi í Arken.
Það eru þó ekki öll kurl komin til
grafar í máli Castberg, því hún hef-
ur enn ekki skýrt hvernig standi á
að stofnanir, sem hún segist hafa
unnið við, kannist ekki við hana.
Stjórn Arken hefur nú birt bréfa-
skipti sín við Castberg, þar sem
kemur fram að hún var í raun rek-
in, en sagði ekki upp sjálf. Ástæðan
var einkum að hún fór framhjá safn-
stjórninni og reyndi að semja beint
við borgarstjórn bæjarfélagsins um
að fá skrifstofuaðstöðu utan safnsins
og ráða fleiri starfsmenn en safn-
stjórnin sá ástæðu til. Þegar Cast-
berg frétti af því að safnstjórnin
hefði upplýst þetta sagði hún að
hluti af safnstjórninni hefi alla tíð
unnið gegn sér.
Þegar Castberg vék úr starfi fyrir
fjórum vikum fór virt dönsk lög-
fræðistofa með mál hennar. Stofan
birti í síðustu viku yfirlýsingu, þar
sem sagt er að Castberg sé ekki
lengur skjólstæðingur stofunnar.
Safnstjórnin segir að ekki komi til
greina að greiða henni þær 450
þúsundir danskra króna, sem hún
átti að fá fyrir að láta á störfum á
samningstíma, en Castberg segist
vilja láta lögfræðinga athuga málið.
Castberg er nú í London, þar sem
hún hefur búið mest allt sitt líf. Hún
á tvö stálpuð börn frá fyrra hjóna-
bandi og er 48 ára.
HIN heimsþekkta mynd Roberts Capa af dauðastund 24 ára
verkamanns, sem féll í spænska borgarastríðinu.
Fullt verö kr. 29.900
Útsöluverð kr. 17.940
Hilltopper
, Fullt verð kr. 46.851
Útsöluverð kr. 32.795
30% afsláttur
Sycamore
Fullt verð kr. 39.900
Útsöluverð kr. 27.930
30% afsláttur
Sycamore SX
, Fullt verð kr. 55.950
Útsöluverð kr. 39.165
30% afsláttur
$sig m
Maneuver
Fullt verð kr. 25.556
Útsöluverð kr. 17.889
30% afsláttur
Jago
sertilboð a fylqihlutum
30% afsláttur af öilum fylgihlutum s.s. brettum,
dekkjum, hraðamælum, hnökkum, bögglaberum,
brúsahöldurum, demparastömmum, táklemmum ofl.
m
&
smmnrm ^Jcripshift-
G.Á.PÉTURSSON ehf
Faxafeni 14 • Sími 568 5580
fjallahjólabúðin