Morgunblaðið - 09.11.1996, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Staðhæfingar fyrrverandi blaðafulltrúa Kennedys forseta
Segir flotann hafa grandað
TWA-þotu fyrir slysni
Cannes, Washington. Reuter.
PIERRE Salinger, sem var blaðafull-
trúi Johns Kennedys Bandaríkjafor-
seta á sjöunda áratugnum fullyrti í
gær að flugskeyti sem liðsmenn
Bandaríkjaflota hefðu skotið á loft
í tilraunaskyni, hefði fyrir slysni
grandað þotu TWA-flugfélagsins við
Long Island í júlí. 230 manns fórust
með þotunni. Salinger telur hugsan-
legt að málið hafi verið þaggað nið-
ur af ótta við að það gæti komið sér
illa fyrir Bill Clinton í forsetakjör-
inu. Að sögn Jíeuíers-fréttastofunn-
ar hefur lengi verið hægt að fínna
ijölda greina á alnetinu þar sem fjall-
að er um kenningar af því tagi sem
Salinger nefnir.
Talsmaður Bandaríkjaflota sagði
í gær að ekki kæmi til mála að liðs-
menn hans hefðu verið að verki og
hefðu rannsóknarmenn fyrir löngu
komist að þeirri niðurstöðu, engin
vopn af þesu tagi hefðu verið á svæð-
inu. „Við höfum kannað búnað flot-
VEXTIR í Svíþjóð hafa hækkað lítil-
lega að undanförnu, á sama tíma
og vextir hafa lækkað á Ítalíu og
Spáni. Vaxtastigið í löndunum þrem-
ur hefur lengi verið svipað. Að sögn
Svenska Dagbladet ber þessi þróun
vott um að sænski fjármálamarkað-
urinn hafí búið sig undir að Svíar
muni hafna aðild að Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu (EMU),
a.m.k. fyrst um sinn.
í skýrslu framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins um þróun efna-
hagsmála í aðildarríkjunum, sem
gerð var opinber fyrr í vikunni, eru
Svíþjóð, Spánn og Italía öll talin eiga
möguleika á að uppfylla skilyrði
Maastricht-sáttmálans fyrir aðiid að
EMU. Engu að síður hafa vextir
staðið í stað í Svíþjóð í vikunni en
á Spáni og Ítalíu hafa þeir lækkað.
Þetta rekja sænskir sérfræðingar
ans á svæðinu og ekkert kom í ljós.
Það var ekkert þarna sem hefði get-
að valdið þessu og meira er ekki um
málið að segja,“ sagði Susan Haeg
undirsjóliðsforingi. Banda-
rískur embættismaður gerði
gys að fullyrðingum Salin-
gers, sagði mjög vel fylgst
með vopnabirgðum flotans
og siglingum herskipanna.
Skýrsla
leyniþjónustumanns
Fyrst sagðist Salinger
hafa upplýsingar sínar frá
bandarískum ieyniþjónustumanni
en í viðtali við franska sjónvarps-
stöð nokkru síðar viðurkenndi hann
að hann hefði fyrir fimm vikum
komist yfir þær fyrir milligöngu
Frakka sem hann nafngreindi ekki.
„Ég komst reyndar að því í gær-
kvöldi að þetta hafði verið á alnetinu
í tvo mánuði," sagði hann í gær.
til þess að væntingar sænska fjár-
málamarkaðarins séu þær að Svíar
fylgi ráðum Calmfors-nefndarinnar,
sem einnig skilaði skýrslu í vikunni
og ráðlagði sænskum stjórnvöldum
að bíða með aðild að EMU. Talið
er að niðurstaða nefndarinnar muni
gera ríkisstjórn-
inni erfiðara fyr-
ir að sannfæra
almenning — og
Jafnaðarmanna-
flokkinn — um
ágæti skjótrar
EMU-aðildar.
Spánn og ítal-
ía stefna hins vegar eindregið að
aðild og hafa bæði Jacques Chirac,
forseti Frakklands, og Helmut Kohl,
kanzlari Þýzkalands, sagt að þeir
vonist til að löndin tvö verði í hópi
stofnríkja EMU.
„Fulltrúi CNN [sjónvarpsstöðvarinn-
ar bandarísku], sem sagði mér að
þeir hefðu fundið þetta á alnetinu,
las þetta fyrir mig og það voru skjöl-
in sem ég var með.“ Um-
ræddur Frakki væri „tengd-
ur ýmsum stjórnsýslustörf-
um og hann hitti mann frá
bandarísku leyniþjón-
ustunni sem hafði skrifað
skýrslu um TWA-slysið.“
Að sögn Salingers gerði
flotinn tilraun með flug-
skeyti í tæplega 4.000
metra hæð í þeirri trú að
engin flugvél yrði þar á ferð á þess-
um tíma neðar en í 6.400 metra
hæð. Vegna „hræðilegra mistaka" í
flugturni hafi flotanum ekki verið
skýrt frá flugi Boeing-þotu TWA
sem hafi farið seinna af stað en
áætlað var og flogið neðar til að
forðast að rekast á aðra vél.
„Það eru margar sannanir í skjal-
Vinarborg. Reuter.
FULLTRÚAR sextán ríkja Mið-
og Austur-Evrópu munu koma
saman til fundar í borginni Graz
í Austurríki í dag og ræða evr-
ópskt samstarf og endurreisn
Bosníu. Talið er að þrettán
stjórnarleiðtogar muni sækja
fundinn.
Ríkin, sem
tilheyra hinu
svokallaða
Frumkvæði
Mið-Evrópu,
sem sett var á
laggirnar árið
1989, eru Al-
banía, Austurríki, Bosnía, Búlgar-
ía, Hvíta-Rússland, Ítalía, Króatía,
Makedónía, Pólland, Rúmenía,
Slóvakía, Slóvenía, Tékkland,
Ungverjaland og Úkraína. Búizt
er við að Moldóvu verði veitt að-
inu,“ sagði Salinger. „Sjálfur hef ég
rætt við nokkra menn sem taka
undir með leyniþjónustumanninum.
Segja verður allan sannleikann í
þessu máli.“ Lögmaður 45 Frakka
sem fórust með TWA-vélinni sagðist
hafa beðið rannsóknardómara í
Frakklandi að leita frekari upplýs-
inga hjá Salinger.
„Ekki rétti tíminn"
Salinger, sem nú er 71 árs, var
árum saman yfirmaður útibús ABC-
sjónvarpsstöðvarinnar bandarísku í
París. Hann segir að fyrir skömmu
hafi tímaritið París Match birt ljós-
mynd sem tekin hafi verið í einka-
samkvæmi á Long Island um sama
leyti og farþegaþotan fórst. Á mynd-
inni sjáist hlutur er líkist flugskeyti
fljúga yfir. Hann sagðist hafa skýrt
fulltrúum ABC frá málinu en svarið
hafi verið: „Það er ekki rétti tíminn
núna“.
ild að samstarfinu á fundinum um
helgina.
„A dagskrá fundarins er að
ræða hlutverk Mið-Evrópuríkj-
anna í samrunaferlinu í Evrópu,
framlag þeirra til framkvæmdar
Dayton-friðarsamkomulagsins og
framlag þeirra til endurreisnar í
Bosníu og Króatíu," segir í yfir-
Iýsingu, sem Franz Vranitzky,
kanzlari Austurríkis, sendi frá sér
í gær.
Að sögn austurrískra stjórn-
valda hafa bæði Jacques Santer,
forseti framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, og Hans van den
Broek, sem fer með utanríkismál
í framkvæmdasljórninni, hafnað
boði um að sækja fundinn. I gær
var enn verið að reyna að fá ein-
hvern úr framkvæmdasljórn ESB
til að silja fundinn í Graz.
Jeltsín á
annað
sjúkrahús
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, var fluttur á annað
sjúkrahús í Moskvu í gær,
þremur dögum eftir að hafa
gengist undir hjartaskurðað-
gerð. Læknar forsetans sögðu
að hann tæki miklum framför-
um og byði þess með óþreyju
að geta hafið störf að nýju.
„Forsetinn styrkist nú mjög
hratt,“ sagði Viktor Tsjerno-
myrdín forsætisráðherra og
kvað læknana og aðstoðar-
menn forsetans leggja mikla
áherslu á að „forða honum frá
of miklu álagi“.
ILIESCU ávarpar verka-
menn á fundi í gær.
Iliescu varar
við kreppu
og óstjórn
FORSETI Rúmeníu, Ion Ili-
escu, sem er fyrrverandi
kommúnisti, ávarpaði í gær
starfsmenn skipasmíðastöðvar
og skoraði á þá að hafna mót-
frambjóðanda hans í forseta-
kosningunum, miðjumanninum
Emil Constantinescu, til að af-
stýra enn meiri efnahagsþreng-
ingum og algjörri óstjórn.
Hann sagði að Constanti-
nescu, sem vill koma á róttæk-
um efnahagsumbótum, hefði
enga reynslu af stjórnmálum,
hvorki verið á þingi né í ríkis-
stjórn, og því væri það glap-
ræði að fela honum að halda
um stjórntaumana á miklum
erfiðleikatímum í sögu lands-
ins. Auk þess kynni Constanti-
nescu að endurreisa konung-
dæmið og krýna Mikjál, fyrr-
verandi konung Iandsins, að
nýju.
Rushdie fær
verðlaunin á
miðvikudag
BRESKI rithöfundurinn Salm-
an Rushdie tekur við bók-
menntaverðlaunum í Kaup-
mannahöfn á miðvikudag en
ekki verður skýrt frá því hvar
athöfnin fer fram fyrr en á síð-
ustu stundu af öryggisástæð-
um. Áður hafði danska stjórnin
aflýst Danmerkurferð rithöf-
undarins og borið því við að
ekki væri hægt að tryggja ör-
yggi hans en hún féll frá þeirri
ákvörðun eftir að tveir vinstri-
flokkar hótuðu að fella stjóm-
ina vegna málsins.
At sönnunar-
gögnin
FANGI í Argentínu var í gær
dæmdur í árs fangelsi fyrir að
eyðileggja sönnunargögn, rífa
málsskjöl, stinga þeim upp í sig
og kyngja. Áður hafði hann
verið dæmdur í átta ára fang-
elsi fyrir ótilgreint afbrot.
Reuter
Klippt við kertaljós
ÞÆR deyja ekki ráðalausar, hárgreiðslukon- og síðan haldið áfram við að klippa og kemba. slæmt og orkuskorturinn svo mikill, að fólk
urnar í Tbilisi í Georgíu, þótt rafurmagnið Eins og í mörgum sovétlýðveldanna fyrrver- hefur ekki rafmagn nema með höppum og
bregðist þeim. Þá er bara kveikt á kertum andi er efnahagsástandið í Georgíu afar glöppum.
Væntingar um EMU- Mið-Evrópuríki
aðild hafa áhrif á vextina funda í Graz
Pierre Salinger