Morgunblaðið - 09.11.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAVGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 43
FRÉTTIR
Kynning á
kennsluflugvél
FLUGSKÓLINN Flugtak hefur fest
kaup á nýrri kennsluflugfvél af gerð-
inni Diamond Aircraft HOAC DV-20
KATANA. Kynning verður á vélinni
á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn
9. nóvember milli kl. 14.-19.
Vélin er hönnuð og smíðuð af svif-
flugframleiðandanum Diamond í
Austurríki. Hún er smíðuð úr trefja-
efnum og plasti og er yngsta vélin
í íslenska flugflotanum.
LEIÐRÉTT
Ekki starfsmaður
Viðlagatryggingar
ÞAÐ VAR á misskilningi byggt sem
fram kom í frétt um Viðlagatrygg-
ingu íslands í blaðinu á fimmtudag
að Freyr Jóhannesson væri starfs-
maður Viðlagatryggingar. Hann er
tjónamatsmaður. Einnig vat rang-
hermt í fréttinni að iðgjöld Vegagerð-
arinnar vegna brúnna á Skeiðarárs-
andi hefðu numið 2 milljónum króna.
Sú tala á við um öll iðgjöld vegagerð-
arinnar til Viðlagatryggingar. Þá
láðist að geta þess að sú fjárhæð sem
greidd var úr Viðlagasjóði á síðasta
ári var ekki einvörðungu vegna snjó-
flóðanna á Flateyri og í Súðavík.
Einnig segir Freyr Jóhannesson að
síma- og fjarskiptamannvirki séu
ekki tryggð hjá Viðlagatryggingu.
Það var fullyrt í fréttinni en í lögum
um Viðlagasjóð segir að skylt sé að
tryggja síma- og fjarskiptamannvirki
í eigu hins opinbera.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Grunvatn, ekki grunnvatn
í RITDÓMI um ljóðabók Gyrðis
Elíassonar, Indíánasumar, í blaðinu á
miðvikudag var leið innslátttarvilla.
Orðið Grunvatn, sem kemur fyrir í
ljóðinu Vatnsljóð, var ritað grunn-
vatn. Um leið og beðist er velvirðing-
ar á þessum mistökum skal máls-
greinin sem orðið birtist í skrifuð hér
eins og hún átti að vera: „Stundum
minna þessi hús mann á drauma-
heima bernskunnar en svo læðist að
manni grunur um eitthvað allt annað,
kannski myrkrið inni í þeim sem birt-
an er alltaf að reyna að vinna á,
kannski eitthvað sem við sjáum aldrei
eins og grunvatnið sem „rennur/ um
hraunin": „Það streymir í myrkri/ eins
og blóð/ um æðar landsins// Niður
aldanna/ niður þess“ (Vatnsljóð).“
Ómar ekki fertugur
í dómi um breiðskífu Ómars Dið-
rikssonar var svo frá sagt að hann
væri að hefja tónlistarferil sinn eftir
fertugt. Þett er ekki rétt því Ómar
er 33 ára gamall. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.
Ekkert„karaoke"
í KYNNINGU á útgáfutónleikum
hljómsveitarinnar Stjörnukisa var
þess getið að Svala Björgvinsdóttir
myndi hita upp fyrir hljómsveitina
og flytja nokkur „karaoke“-lög.
Þetta var á misskilningi byggt, því
Svala hefur ekki og hyggst ekki
syngja „karaoke“-lög. Beðist er vel-
virðingar á þessari missögn.
Panorama varð Botnleðja
í myndatexta í blaðinu í gær var
missagt að hljómsveitin sem var á
myndinni hafi verið hljómsveitin
Botnleðja. Hið rétta er að hljómsveit-
in heitir Panorama. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.
Málþing um íslenskt
bændasamfélag
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær um
málþing er fjallar um íslenskt bænda-
samfélag, og er haldið í dag kl. 13.30
í Þjóðarbókhlöðunni, datt niður nafn
á einu erindanna, sem Örn Hrafn-
kelsson flytur, og einnig féll niður
nafn Eiríks Páls Jörundarsonar, fra-
mögumanns. Birtist það hér með:
Örn Hrafnkelsson, sagnfræðingur,
flytur erindið Veraldarsýn íslensks
embættismanns í upphafi 19. aldar,
Eiríkur Páll Jörundsson, forstöðu-
maður Sýslusafns Austur-Skafta-
fellssýslu: Útgerð og bændasamfélag
á upplýsingaöld. Beðist er velvirðing-
ar á mistökunum.
Bangsa-
leikur í
Ævintýra-
Kringlunni
SJÓNLEIKHÚSIÐ verður með
barnaleikritið Bangsaleikur í
Ævintýra-Kringlunni í dag kl.
14.30.
Leikstjóri sýningarinnar er
Sigrún Edda Björnsdóttir. Höf-
undur tónlistar er Guðni Franz-
son. Búningarhönnuður er Helga
Rún Pálsdóttir. Leikarar eru þeir
Stefán Sturla Sigurjónsson og
Jakob Þór Einarsson. Sýningar-
tími er rúmar 30 mín. og er miða-
verð 500 kr.
Flóamarkaður í
Kattholti
FLÓAMARKAÐUR verður haldinn
í Kattholti, Stangarhyl 2, í dag og
á morgun sunnudag og hefst báða
dagana kl. 14.
A boðstólum er alls konar dót
og fatnaður og rennur allur ágóði
til óskilakatta í Kattholti sem eru
margir um þessar mundir.
Handverkssýn-
ing á Garðatorgi
ÍSLENSKT handverksfólk sýnir
framleiðsluvörur sínar á Garðat-
orgi í Garðabæ um helgina. Um
fjörutíu manns sýna þar fram-
leiðsluvörur sínar og Kvenfélagið
sér um kaffisölu. Opið er frá klukk-
an 10 á laugardag og frá klukkan
12 á sunnudag.
Paul Hanssen í
heimsókn hjá
Krossinum
PREDIKARINN Paul Hanssen
verður um helgina í heimsókn hjá
Krossinum í Kópavogi.
Samkomurnar með Paul Hanss-
en verða á laugardagskvöldið kl.
20.30 og sunnudaginn kl. 16.30.
Haustsamvera
ÆSKR
ÆSKULÝÐSSAMBAND kirkj-
unnar í Reykjavíkurprófastsdæm-
um (ÆSKR) gengst fyrir í dag,
laugardag, fyrir árlegri haustsam-
veru sambandsins. Yfirskrift
haustsamverunnar í ár er sótt til
Martein Luther King „Ég á mér
draum ...“
Unglingar úr æskulýðsstarfi
kirkjunnar hittast í safnaðarheim-
ili Háteigskirkju kl. 14 og vinna
að margvíslegum verkefnum sem
tengjast mannréttindum. Klukkan
19.30 verður æskufýðsmessa í
Háteigskirkju og síðan verður
gengið í blysför að Sundhöll
Reykjavíkur. I Sundhöllinni verður
stutt minningarathöfn um fórn-
arlömb mannréttindabrota.
Haustsamveran er unnin í sam-
starfi við Mannréttindaskrifstofu
íslands, URKÍ, Hjálparstofnun
kirkjunnar, íslandsdeild Amnesty
International og Samband ís-
lenskra kristniboðfélaga.
Basar Hringsins
HRINGURINN heldur sinn árlega
handavinnu- og kökubasar í Perl-
unni sunnudaginn 10. nóvember
kl. 13. Á boðstól-
um verða hand-
unnir munir og
auk þess heima-
bakaðar kökur.
I fréttatilkynn-
ingu segir að Hringskonur hafi af
miklum dugnaði unnið að mann-
úðarmálum í marga áratugi og lagt
sérstaka rækt við Barnaspítala
Hringsins og allan búnað hans.
Aðalkappsmál þeirra nú sé fyrir-
huguð bygging sérhannaðs Barn-
aspítala.
Munir frá Ind-
landi á uppboði
HALDIÐ verður uppboð á morgun,
sunnudag, á munum sem börn og
fullorðnir á Indlandi hafa framleitt
fyrir Njarðvíkursöfnuð.
Um er að ræða handsaumaða
dúka, útskorið tré og skó, indverskt
te o.fl. Einnig verða kökur frá ferm-
ingarbörnumboðnar upp. Ágóði
rennur til fósturbarna Njarðvíkur-
safnaða og í hjálparstarf á Indlandi.
Austurlandaferð
að ljúka
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Heimsklúbbi Ingólfs:
„„SVONA ferð gefur lífinu nýtt inni-
hald,“ sögðu farþegar í kveðjuhófi á
Royal Meridien hótelinu í Bahrain í
gærkvöldi. 40 þátttakendur eru bún-
ir að vera þijár vikur á ferðinni á
ógleymanlegum stöðum í Tælandi,
Burma og Bahrain. „Sumir reyndu
að letja okkur til fararinnar og
hræða með því að hætta gæti verið
á innanlandsófriði, óveðrum og hvers
kyns óáran, en þetta var besta ferð
okkar á ævinni og eigum við þó
margar að baki,“ sögðu miklir
heimsborgarar í hófínu sem haldið
var hér í Nirvana veitingasalnum.
Við höfum alls staðar mætt mik-
illi gestrisni og alúð, ekki síst í
Burma, sem heillaði alla með fegurð
sinni og látlausri kurteisi fólksins.
Fjölbreytni þessarar 16. heimsreisu
hefur verið með ólíkindum og allur
aðbúnaður og þjónusta í hæsta
gæðaflokki. Kanadawgyi Palace hót-
elið í Rangoon líður okkur seint úr
minni þar sem fullvaxinn fíll stóð
við hóteldyrnar og rétti okkur blóm
með rananum við komuna en allt
umhverfið við Kóngsvatnið töfrandi
fagurt svo að ævintýri er líkast.
Svo héldum við „On the Road to
Mandalay" og bjuggum á nýju hót-
eli undir Mandalay Hill, þar sem
ijölda mustera bar við loft, svo lík-
ara var draumi en veruleika. En
svona var ferðin öll. Ekki mun sigl-
ingin um Andaman hafið út í James
Bond eyju gleymast neinum, né
BÚDDAMUSTERIÐ Shwe-
dagoh í Rangoon, höfuðborg
Burma.
gististaður okkar í heila viku á Phu-
ket eyju, Mandarin Yacht Club, sem
valið var besta „resort" hótel heims-
ins fyrir nokkru.
Hér í Bahrain skín sólin frá upprás
til sólarlags og hitinn afar þægilegur
í þessari nýtískulegu og háþróuðu
perlu Austurlanda í einu minnsta ríki
heimsins hér í Persaflóa, þar sem
allt er einnig svo vinsamlegt og frið-
sælt. „Þetta er toppurinn á því sem
við höfum kynnst,“ sögðu farþegar
um hið glæsilega Royal Meridien
hótel. Við höldum heim í kuldann á
Fróni í kvöld en minningarnar eiga
eftir að ylja okkur lengi.““
Að skrifa bók - Frá
hugmynd að bók
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands mun þann 12.-14.
nóvember nk. gangast fyrir kvöld-
námskeiði um það hvernig bók skuli
byggð upp. Námskeiðið er ætlað
þeim sem gætu hugsað sér að skrifa
bók um tiltekið málefni, með
áherslu á fagbækur fremur en fag-
urbókmenntir.
Á námskeiðinu verður farið yfir
hagnýtar ábendingar um það sem
þarf að hafa í huga þegar sett er
saman bók. Mest áhersla verður
lögð á sjálfa hugmyndavinnuna,
byggingu verks og framsetningu
en einnig verður rætt um álitamál
við frágang og útgáfu verka. Tekin
verða dæmi og hugmyndir frá þátt-
takendum ræddar.
Leiðbeinandi verður Halldór Guð-
mundsson mag. art., útgáfustjóri
Máls og menningar.
Verð i vsk.-útfærslu kr. 660.000.
Verð aðeins frá 795.000 kr.
» cc vél, styrktarbitar i hliðarhurðum, höfuðpúðar i fram- og aftursætum, barnalæsingar.
Skoda Felicia Þýsk gæði - frábært verð
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600
Opið laugardaga kl. 12 -16.