Morgunblaðið - 13.11.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 17
Það sem af er árinu 1996, eins og á síðasta ári, ber séreignarsjóður
Kaupþings hf., Lífeyrissjóðurinn Eining, höfuð og herðar yfir keppinauta sína með
hæstu raunávöxtun allra frjálsra lífeyrissjóða í landinu.
12,6% ávöxtun umfram verðbólgu
gerir 1996 að frábærum árgangi hjá Einingu
— og það besta við góðan árgang er að hann
batnar með hverju árinu sem líður. Uppskera
ársins safnar fyllingu og þroska hjá okkur þangað
til rétti tíminn kemur fyrir þig að njóta hennar.
Hlutdeild í árangrinum '96 tryggir afbragðs
eign til frjálsrar ráðstöfunar á efri árum.
Heilt ár til umhugsunar
Val á lífeyrissjóði byggist ekki eingöngu á
sparnaði til starfsloka. Traust og áreiðanleiki
sjóðsins og árangur í ávöxtun hans eru lykilatriði.
Skattamál, aðgangur að hagstæðum trygginga-
iðgjöldum o.fl. eru einnig þættir sem
skipt geta miklu.
Réttar ákvarðanir krefjast gjarnan rækilegrar
umhugsunar. Því býður Kaupþing hf. þér að
greiða í Lífeyrissjóðinn Einingu í eitt ár og
kynna þér alla þá möguleika sem fyrir hendi
eru. Líki þér ekki þjónustan eða horfumar eftir
árið endurgreiðir Kaupþing hf. inneign þína
með vöxtum og þér að kostnaðarlausu.