Morgunblaðið - 14.11.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.11.1996, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR rMiba-B sala V Fljúgum hærra SEGA Leiktækjasalur Habitat Gallerí Fold-/ Demanta- ~ihúsi6 larnakoj Verslunarrými Kringlunnar eykst um þriðjung með stækkuninni SALUR 3, 198 SÆTI KRINGLUBÍÓ opnar um jólin SALUR 2,120 SÆTI SALUR 1, 351 SÆTI 2. hæð 1. hæð Bíókjallarinn (f kjallara) INNGANGUR frá noröurhúsinu Suðurhús KRINGLUNNAR „MARKMIÐ stækkunarinnar er að festa Kringluna enn betur í sessi sem stærsta og fjölbreyttasta versl- unarsvæði landsins en jafnframt var haft að leiðarljósi að auka þátt afþreyingar með fleiri skemmti- og veitingastöðum en verið hefur,“ sagði Einar I. Halldórsson sem haft hefur yfirumsjón með samein- ingu húsanna, byggingu kvik- myndahúss og breytingum utan- dyra. Liðin eru 9 ár frá opnun Kringl- unnar en í byijun árs var ákveðið að sameina Kringluna og Borgar- kringluna í stað þess að reka þær sem tvær aðskildar verslunarmið- stöðvar. „Þegar frumtillögur um breytingar lágu fyrir hófust við- ræður milli eigenda húsanna um sameiningu og í janúar var sam- starfssamningur undirritaður," sagði Einar. Það er íslenska fasteignafélagið með 70 hluthöfum sem stendur að framkvæmdum en áætlaður heild- arkostnaður er hátt á 400 millj. króna, að sögn Einars. í suðurhúsi, hinum nýja hluta Kringlunnar sem áður var Borgar- kringlan, hafa 25 verslunar og þjónustufyrirtæki aðsetur á tveim- ur hæðum og starfsmenn þar eru um 300 talsins. Að viðbættum 8.000 fermetrum í suðurhúsi er Kringlan nú á um 38.000 fermetra Allsherjar verslunar- og skemmtimiðstöð Kringlan verður opnuð í dag um þriðjungi stærri en hún var í gær. Umfangsmiklar breyt- ingar hafa verið gerðar á umhverfi hennar og Borgarkringlan heyrir nú sögunni til. Hrönn Marinósdóttir ræddi við Einar I. Halldórs- son,framkvæmdastjóra verkefnisstjómar Kringlunnar. Morgunblaðið/Ásdís ÞAU standa í ströngu þessa dagana, f.v.: Sigurður Einarsson arkitekt, Erla Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Kringlunnar og Einar I. Halldórsson framkvæmdastjóri verkefnisstjórnar. svæði með samanlagt um 1.000 starfsmenn. Að sögn Einars hófust fram- kvæmdir í byrjun júlí og áætlað er að þeim ljúki endanlega um áramót þegar þriggja sala kvikmyndahús í sem Sambíóin munu reka verður tekið í notkun en byggingu þess lýkur á næstu vikum. Undanfarna fjóra mánuði hafa allt að 300 starfsmenn unnið hörð- um höndum að stækkuninni en Ármannsfell hf. hefur séð um fram- kvæmdir. Þijár arkitektastofur sáu um hönnunina; Richard Abrams skipulagsarkitekt og ensk arki- tektastofa sem ber heitið Bernard Eagle sáu um heildarskipulag og frumhönnun en það var Abrams sem lagði grunninn að hönnun Kringlunnar á sínum tíma, Teikni- stofa Halldórs Guðmundssonar hannaði viðbyggingu fyrir kvik- myndahúsið og breytingar í bíla- kjöllurum en Sigurður Einarsson hjá Batteríinu hannaði innganga og allar breytingar utandyra. Stærri verslanir og fleiri veitingastaðir Að sögn Einars eru verslanir í suðurhúsi margar hveijar stærri en þær í norðurhúsi. Búið er að leigja rými til verslana og þjónustu- aðila auk þess sem fímm veitinga- staðir eru þar til húsa. Kringlukráin er áfram á sínum stað en þess utan er þar matsölu- staðurinn Götugrillið, Nýja köku- húsið, ísbúð og í kjallara hússins opnar í desember veitingastaðurinn Bíókjallarinn þar sem áður var Amma Lú. Á 2. hæð er stór leik- tækjasalur, SEGA-tölvuleikir en stærstu verslanirnar eru bókaversl- unin Eymundsson, tískuverslunina Deres sem er dönsk verslunarkeðja með fatnað fyrir yngri aldurshóp- ana, Virgin margmiðlunarbúð með tölvuleiki og geisladiska en stærsta verslunin er Habitat á um 900 fm svæði. Einnig eru í suðurhúsi stór söluskrifstofa Flugleiða, útibú Is- landsbanka og fleira. Húsin hafa svipað yfirbragð Norður- og suðurhús eru tengd til bráðabirgða með skjólþaki en til stendur að byggja 4.000 fm tengi- byggingu á milli húsanna með verslunum og veitingastöðum. „Sú framkvæmd mun væntanlega vera tilbúin innan þriggja ára,“ sagði Einar. Útlit Kringlunnar hefur verið samræmt bæði að utan og innan. „í suðurhúsi var allt stokkað upp innandyra, einingar stækkaðar og sameignin minnkuð þannig að hús- ið er mun bjartara og opnara en áður. Að utan hafa byggingarnar svipað yflrbragð en sett hefur verið á suðurhúsið stálklæðning í sömu litum og er á norðurhúsi. Viðbygg- ingin sem verið er að reisa er stál- grindarhús sem síðan verður klætt svipað og aðrir hlutar hússins," sagði Einar. Um næstu mánaðamót mun rísa um 30 metra yfirbyggð göngubrú úr gleri og stáli, frá húsi Sjóvá- Almennra, Kringlunni 5 yfir á bíla- stæði á efri hæð Kringunnar í norð- urhúsi. Bílastæði húsanna hafa verið sameinuð Nýr aðalinngangur hefur verið settur á norðurhliðina en austan megin er sami inngangur og áður. Ný aðkeyrsla er að vesturhliðinni meðfram kvikmyndasölum og inn á aðra hæð bílapalls Kringlunn- ar. Bílastæði húsanna hafa verið sameinuð og tengd með fjórum römpum þannig að hægt er að aka á milli þeirra. Þannig fjölgar stæð- um um 240 en samanlagt eru þau við Kringluna tæp 2.000, að sögn Einars. Framtíðaráform eru um að stækka Kringluna til norðurs með myndarlegri viðbyggingu ásamt fleiri bílastæðum. „Slík áform tengjast fyrirhugum breytingum á Miklubrautinni en líklega verður ekki farið í framkvæmdir fyrr en eftir aldamót," sagði Einar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.