Morgunblaðið - 14.11.1996, Side 23

Morgunblaðið - 14.11.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996 23 MEST KEYPTU ULLARNÆRFÖTIN Á ÍSLANDI FÁST NÚ í ÞREMUR GERÐUM... Stillongs® Nú eru liðin 30 ár frá því að Ellingsen hóf innflutning á norsku Stillongs ullarnærfötunum sem allir þekkja. Fyrsta gerðin og jafnframt sú vinsælasta enn í dag er framleidd úr 85% ull og 15% nælonefni til styrkingar. Þessi nærföt hafa einmitt verið mest keyptu ullarnærfötin í Noregi í 40 ár og á íslandi í 30 ár. Tvöfalt Stillongs® Árið 1990 kom á markaðinn tvöfalt Stillongs sem er fóðrað með mjúku Thermax-efni sem flytur rakann í ytrabyrðið. Mjúka Thermax-efnið er mjúkt og þægilegt næst húðinni, einmitt fyrir þá sem þola ekki ullina næst sér. Ysta lagið er úr 85% ull og 15% nælonefni til styrkingar. NÝTT - Aquaduct tveggja laga Nýjasta gerðin heitir AQUADUCT og er úr mjúkri 100% ull. „Tveggja laga vefnaðurinn hefur einstakan eiginleika sem flytur rakann úr innsta laginu í það ytra og nær því að anda í gegn og eingangra vel“, segir Einar Torfi Finnsson eftir leiðangur yfir Grænlandsjökul í AQUADUCT nærfötum í maí 1996. AQUADUCT eru hlýjustu ullarnærfötin frá Devold. ELLINGSEN Stillongs fæst minnst í barnastærð 4 sem hentar 2ja til 3ja ára. Stærsta unglingastærð er 16. Stærðir fullorðinna eru 46-58. Stillongs ullarnærfötin eru slitsterk, falla vel að líkamanum og veita náttúrlega einangrun. Stillongs halda vel hita, eru hlý þótt blotni eða verði rök og eru fljótþornandi. Þau þarf sjaldnar að þvo en gerviefni (má þvo í þvottavél). Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855. og umboðsmenn um allt land. „Þetta eru bestu nærfötin" Segir Einar Torfi Finnsson eftir leiðangur yfir Grænlandsjökul í maí 1996 t«««su j m LONGS - mest keyptu ullarnærfötin á íslandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.