Morgunblaðið - 05.12.1996, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C
279. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Lögregluyfirvöld óttast að ný sprengjuherferð sé í uppsiglingu í Frakklandi
• •
Oryggisgæsla stórefld
vegna sprengjutilræðis
París. Reuter. Morgunblaðið.
Rauter
ÖRYGGISVARSLA var stórefld í Frakklandi í gær, daginn eftir sprengjutilraæði í neðanjarðar-
lestarstöð í París. A myndinn skoða franskir lögreglumenn skilríki bílstjóra í Strassborg.
VARALIÐ lögreglu og hersveitir
voru kallaðar út til öryggisgæslu í
stórborgum Frakklands í gær í
framhaldi af sprengjutilræði á neð-
anjarðarlestarstöð í París á háanna-
tíma í fyrrakvöld. Tveir biðu bana
og 88 særðust, en lögreglan fékk
staðfest í gær, að sprengiefnið hefði
verið sömu tegundar og notað var
í sprengjum er hryðjuverkamenn
alsírskra bókstafstrúarsamtaka
efndu til sprengjuherferðar í Frakk-
landi í fyrrahaust.
Öryggisvarsla var stórefld á lest-
arstöðvum, flugvöllum, við skóla,
söfn og stórverslanir í París og
öðrum frönskum stórborgum af ótta
við að í uppsiglingu væri sprengju-
herferð. Um 8.000 ruslatunnum á
götum úti verður lokað og skoðað
í töskur fólks í jólagjafaleiðöngrum.
Auk þess sem lögregla og hermenn
fylgdust grannt með samgöngum
fjölguðu stórverslanir öryggisvörð-
um og treystu gæslu við innganga.
Óttuðust verslunareigendur að fólk
færi ekki til miðborga nema í brýn-
ustu erindum og verslaði þess í stað
í úthverfum. Af þessum sökum
lækkuðu m.a. hlutabréf margra
verslunarhúsa í verði í frönsku
kauphöllinni.
Fólk var hrætt og tortryggið í
París, þögn ríkti í neðanjarðarlest-
unum og farþegar skimuðu í kring-
um sig eftir töskum og pokum án
eigenda. Lestarstarfsmenn dreifðu
miðum með beiðni um árvekni. Þrír
rannsóknardómarar, sérhæfðir í
hryðjuverkamálum, hófu rannsókn
tilræðisins. Talið er, að sprengjan
hafi átt að springa á hinni fjölförnu
Trump
vann
átakalaust
New York. Reuter.
BOXARARNIR Evander Holy-
field og Mike Tyson höfðu
stórtekjur af því að lumbra
hvor á öðrum í Las Vegas fyr-
ir mánuði, í einvígi um heims-
meistaratitilinn í þungavigt,
sem lauk með sigri Holyfields.
Aðrir græddu einnig ríku-
lega á einvíginu án þess að
þurfa að beita hnefum og hnú-
um. Meðal þeirra var banda-
ríski auðkýfingurinn Donald
Trump. Öfugt við veðmangar-
ana hafði hann tröllatrú á
Holyfield og veðjaði einni millj-
ón dollara á að hann sigraði.
Fékk hann því tuttugu milljón-
ir borgaðar út, jafnvirði 1,3
milljarða króna, að því er hann
tjáði blaðinu DailyNews í New
York. Fulltrúar veðmangara í
Las Vegas vildu hins vegar
ekki kannast við að hann hefði
lagt umrædda milljón undir.
lestarstöð St.Michel í Latínuhverf-
inu.
„Allt sem í mannlegu valdi stend-
ur verður reynt til þess að hafa upp
á tilræðismönnunum og refsa
þeim,“ sagði Alan Juppe forsætis-
ráðherra er fjallað var um sprengju-
tilræðið i Port Royal-lestarstöðinni.
Belgrad, London. Reuter.
DÓMSTÓLL í Serbíu hafnaði í gær
kröfu stjórnarandstöðuflokka í land-
inu um nýjar kosningar. Mikil mót-
mæli hafa verið haldin gegn Slobod-
an Milosevic, forseta Serbíu, undan-
farna 17 daga eftir að hann lýsti
kosningar í Sarajevo og nokkrum
öðrum borgum ógildar. Sósíalista-
flokkur Milosevic beið ósigur í þeim.
Lýðræðisflokkurinn, sem er í
Zajedno, samtökum stjórnarand-
stöðunnar, sagði að dómstóllinn
hefði hafnað staðhæfingum stjórnar-
andstæðinga um að sósíalistar hefðu
rænt þá kosningasigrinum.
Talið er að þessi úrskurður komi
í veg fyrir að takist að miðla málum
milli Milosevic og Zajedno. Hefði
úrskurðurinn verið Zajedno i hag
hefði verið hægt að halda kosning-
arnar á ný og hefði þrýstingur Vest-
urlanda á Milosevic þá sennilega
minnkað.
Þeir sem biðu bana voru kanadísk
kona og 41 árs franskur karlmaður.
Leiðtogi Islömsku frelsisfylking-
arinnar (FIS), Rabah Kebir, for-
dæmdi sprengjutilræðið. FIS hefur
háð vopnaða baráttu gegn alsírsk-
um stjórnvöldum en eru hófsamari
samtök en Hersveitir íslams (GIA),
Það var hins vegar ekkert lát á
gagnrýni í gær. Nú stendur yfir þing
í London til að fara yfir stöðu friðar-
mála í Bosníu, en ástandið í Belgrad
yfirskyggði önnur mál þar.
John Kornblum, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, sagði að
ástand lýðræðis í Serbíu væri
„hörmulegt" og kalt yrði á milli
Bandaríkjamanna og ráðamanna í
Belgrad þar til ráðin yrði bót á því.
Evrópusambandið lýsti einnig yfir
áhyggjum vegna ástandsins.
Útvarpsstöðin Voice of America,
sem bandarísk stjórnvöld reka, til-
kynnti í gær að hún mundi endur-
varpa dagskrá sjálfstæðu útvarps-
stöðvarinr.ar B-92, sem serbnesk
stjórnvöld lokuðu á mánudag, til
Serbíu frá og með deginum í dag.
■ Bildt lætur af/20
sem lýstu á hendur sér ábyrgð á
sprengjutilræðum í Frakklandi í
fyrra sem kostuðu átta manns lífið
og 160 særðust. Sprengjan sem nú
var notuð bar þess glögglega merki,
að hún hafi komið úr sömu vopna-
verksmiðju og þær sem brúkaðar
voru í tilræðunum í fyrra.
STJÓRN sósíalista í Grikklandi
hefur brugðist af hörku við kröf-
um bænda, sem hafa staðið fyrir
mótmælaaðgerðum, lokað veg-
um og jámbrautum í viku. Bænd-
ur krefjast hærra afurðaverðs,
lægi’a bensínverðs og skuldbreyt-
inga á Iánum.
Bændurnir hafa sett upp vega-
tálma og hefur víða myndast
mikið umferðaröngþveiti. Þá
óttast menn að vöruskortur fari
Rússland
Reynt að
leysa
námu-
verkfall
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, skipaði í gær sérstakan
sendimann til að semja við
kolanámamenn, sem hafa ver-
ið í verkfalli í tvo daga og
hótað að knýja rússnesku
stjómina til afsagnar verði
hún ekki við kröfum þeirra.
Námamennirnir hafa ekki
fengið greidd laun í marga
mánuði.
Jeltsín ræddi við Viktor
Tsjernomyrdín forsætisráð-
herra og þeir ákváðu að senda
Vladímír Potanín aðstoðarfor-
sætisráðherra til náma í Kuz-
bass. Embættismenn verða
einnig sendir til annarra
svæða í Rússlandi til að út-
skýra efnahagsstefnu stjórn-
arinnar fyrir þjóðinni.
Talsmaður námafyrirtækis-
ins Rosugol, sem rekur flestar
námanna, sagði að 61.000
námamenn af 445.000 hefðu
lagt niður vinnu. Vitalí Búdko,
leiðtogi sambands rússneskra
kolanámamanna, sagði hins
vegar að 400.000 manns, eða
80% allra starfsmanna nám-
anna, hefðu tekið þátt í verk-
fallinu í gær. Vinna hefði leg-
ið niðri í 169 námum af 189.
Verkfallsmennirnir hafa
krafist þess að stjórn Tsjerno-
myrdíns segi af sér vegna
launaskuldanna. Kennarar í
Kuzbass efndu einnig til verk-
falls í gær og rafvirkjar á
svæðinu sögðust ætla að
leggja niður vinnu í dag.
að gera vart við sig. Bændurnir
eru vígreifir og segjast munu
halda aðgerðunum áfram fram
yfir jól gangi ekki stjórnvöld að
kröfum þeirra en Costas Simitis,
forsætisráðherra, sagðist í gær
ekki hafa neitt nýtt að bjóða
bændum. Á myndinni gengur
grískur bóndi fram hjá brenn-
andi vegartálma á þjóðveginum
á milli Aþenu og borgarinnar
Patras.
17. dagur mótmæla 1 Belgrad
Kröfu um nýjar
kosningar hafnað
Grískir bændur mótmæla