Morgunblaðið - 05.12.1996, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Olís opnar þrjár sjálfvirkar bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu
Fleiri stöðvar áætlaðar
LIÐNA viku hafa starfsmenn Olís reynt búnað sjálfvirkra bensínstöðva undir heitinu ÓB,
meðal annars við Fjarðarkaup í Hafnarfirði.
OLÍS opnar í dag þijár nýjar sjálf-
virkar bensínstöðvar undir heitinu
ÓB, sem stendur fyrir Ódýrt bens-
ín. Stöðvamar eru staðsettar við
Hólshraun og Melabraut í Hafnar-
firði og við Starengi í Grafarvogi.
Thomas Möller framkvæmdastjóri
markaðssviðs Olís segir að fyrir-
tækið hyggist opna fleiri slíkar
stöðvar innan skamms.
„Við viljum mæta kröfum mark-
aðarins um ódýrara bensín og
bregðast við greinilegum áhuga
hjá stórum hluta viðskiptavina á
að afgreiða sig sjálfir gegn lægra
verði,“ segir Thomas.
Þróun til sjálfs-
afgreiðslu
Olís hefur tæplega 30% mark-
aðshlutdeild á eldsneytismarkaði
hérlendis og hefur haldið henni
um talsvert skeið. Thomas segir
að miklar hræringar hafa orðið á
eldsneytismarkaði á undanfömum
misserum og bendir á í því sam-
bandi að í fyrra hófu olíufélögin
að bjóða allt að tveggja krónu
afslátt á bensínlítra, þegar við-
skiptavinir afgreiða sig sjálfir.
„Sjálfsafgreiðslan er orðin stór
þáttur í okkar rekstri, og allt að
helmingur viðskiptavina okkar vel-
ur þá leið fremur en að fá fulla
þjónustu. Þama er t.d. um að
ræða yngra fólk og aðra sem vilja
spara og telja þjónustuna ekki
skipta höfuðmáli með hliðsjón af
sparnaði.
Þegar fyrirtækið Bensínorkan
kom fram á sjónarsviðið með sjálf-
virkar bensínstöðvar undir nafninu
Orkan urðum við vitni að viðtökun-
um sem þær fengu og erum með
opnun stöðvanna nú að svara
þeirri samkeppni að hluta til. Við
sjáum hver þróunin er og teljum
hlut sjálfsafgreiðslu eiga eftir að
aukast enn frekar í náinni fram-
tíð. Við viljum vera framarlega að
þessu leyti,“ segir hann.
Hann segir kostnað við sjálf-
virka stöð um fjórðung af kostn-
aði við fullbúna bensínstöð með
starfsmönnum. Einn maður mun
hafa með höndum allt eftirlit og
umsjón við sjálfvirku stöðvarnar,
en öryggisfyrirtæki annast hins
vegar flutning fjármuna frá þeim.
„Til samanburðar má nefna að á
hefðbundinni bensínstöð starfa allt
að 16 manns. Við gætum samt
fyllsta öryggis, bæði hvað varðar
eldsneytið og stöðvarnar sjálfar,“
segir Thomas.
Aðspurður um hvort Olís óttist
ekki að sjálfvirkar bensínstöðvar
skerði hlut annarra stöðva félags-
ins í nágrenni þeirra kveðst Thom-
as gera ráð fyrir að svo verði í
einhveijum mæli en menn búist
við að skerðingin verði meiri hjá
öðrum samkeppnisaðilum.
Því til viðbótar sé vert að minna
á að á höfuðborgarsvæðinu séu
um 4.000 íbúar á hverja bensín-
stöð, en víða erlendis sé algengt
að þetta hlutfall nemi 2-3.000 íbú-
um á hveija stöð.
„Sjálfvirku stöðvamar eru í sam-
ræmi við þróunina erlendis og einn-
ig aukið vöruframboð á þjónustu-
stöðvum, eins og nýja stöð Olís við
Sæbraut er dæmi um. Upp úr
næstu áramótum munu tíu stærstu
þjónustustöðvar Olís bjóða svipað
vöruval og stöðin við Sæbraut, sem
þýðir margvíslegan vaming fyrir
heimili, ferðalög og bifreiðar,“ seg-
ir hann.
Aðeins verður selt blýlaust 95
oktana bensín á sjálfvirku stöðvun-
um og díselolía. Mun lítrinn af
bensíni kosta svipað og hjá Ork-
unni, en þar var verðið í gær 72
krónur á hvern bensínlítra og 27,30
á dísellítra.
Frost í nóvember sjald-
an verið meira í 120 ár
Kulda- og
sólskins-
met sett í
Reykjavík
NÓVEMBER hefur ekki mælst
jafn kaldur í Reykjavík frá því
samfelldar hitamælingar hófust
árið 1871 en frost mældist að
meðaltali tæplega tvær gráður
sem er þremur stigum lægra en
vanalega á sama árstíma.
Mánuðurinn var jafnframt sá
sólríkasti í höfuðborginni frá upp-
hafí sólskinsmælinga árið 1923 en
sólin skein samtals í um 80
klukkustundir, að sögn Trausta
Jónssonar veðurfræðings á Veður-
stofu íslands.
Að sögn Trausta er ekki unnt
að reikna út meðalhitann fyrir
nóvember þar sem tölur liggja
ekki fyrir alls staðar að af land-
inu. „Öhætt er þó að segja mánuð-
inn vera með fimm köldustu nóv-
embermánuðum undanfarin 120
ár.“ Á Akureyri var frostið að
meðaltali tæp fímm stig sem eru
mestu kuldar þar frá árinu frá
1973.
Mesta frost 30,4 gráður
Við Mývatn mældist frost 30,4
stig sem er það mesta sem mælst
hefur í íslenskri veðurathugunar-
stöð á þessari öld, að sögn Trausta
en tölur eru ekki sambærilegar
þar sem um nýja sjálfvirka veður-
athugunarstöð er að ræða.
Norðanátt var ríkjandi í nóvem-
ber sem Trausti segir vera skýr-
inguna á kaldri veðráttu en al-
gengast er að vindar blási úr vest-
suðvestri á þessum árstíma. Veður-
far hefur ekki farið hlýnandi hér-
lendis eins og víða annárs staðar
undanfarin ár.
Þingflokkar stj órnarflokkanna fjalla um veðsetningu aflaheimilda
Ákvæði um að aflalieimild
megi aldrei veðseija eina
Búist við að þingflokkar
afgreiði málið I næstu viku
Áreitti börn
á Akureyri
Gamla
málið tekið
upp aftur
VEGNA nýrra upplýsinga sem
eru komnar fram verður tekið
upp mál það frá árinu 1992,
sem ekki þótti tilefni ákæru á
hendur manninum, sem nú situr
í gæsluvarðhaldi vegna gruns
um kynferðislega áreitni við
böm á Akureyri. Verður málið
sent RLR til meðferðar að nýju
allra næstu daga, að sögn Jóns
Erlendssonar, saksóknara.
Jón segir að mæður tveggja
telpna sem maðurinn var á sín-
um tíma talinn hafa misnotað
hafi skrifað ríkissaksóknara
bréf með ósk um að málið yrði
tekið upp að nýju. „Þær telja
sig vera með nýjar upplýsingar
í málinu og vegna þess er verið
að vísa málinu aftur til RLR,“
sagði Jón Erlendsson. Hann
sagðist búast við að málið yrði
komið í hendur RLR í dag eða
næstu daga.
Jón sagðist í gær ekki hafa
upplýsingar um hve mörg börn
talið hefði verið að maðurinn
hefði misnotað þegar kæran frá
1992 var lögð fram, en þar
hefði a.m.k. verið um þessar
tvær telpur að ræða. Hann
kvaðst ekki minnast þess að til
gæsluvarðhaldsvistar mannsins
hefði komið meðan á þeirri
rannsókn stóð.
ÞINGFLOKKUR Framsóknar-
flokksins fundaði í gær um drög
að frumvarpi til laga um samn-
ingsveð, sem ríkisstjórnin hyggst
leggja fram á yfírstandandi þingi.
Málið var ekki afgreitt, en búist
er við að það verði í næstu viku.
í frumvarpinu er ákvæði, sem
heimilar veðsetningu aflaheimild-
ar með skipi, en jafnframt er kveð-
ið á um að aflaheimildina eina
megi aldrei veðsetja.
Þegar málið kom til kasta þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins fyrir
nokkru settu þrír þingmenn, Guð-
jón Guðmundsson, Guðmundur
Hallvarðsson og Kristján Pálsson,
fyrirvara við afgreiðsluna, m.a.
með vísan til þess að nytjastofnar
RAUÐRI vatnsmálningu var kast-
að yfír hús og lóð leikskóla KFUM
og K við Langagerði í fyrrinótt.
Skemmdarverkið uppgötvaðist
þegar starfsfólk kom til vinnu
á íslandsmiðum væru lögum sam-
kvæmt sameign þjóðarinnar.
Ákvæðið í þeim frumvarpsdrög-
um, sem þingflokkar stjómar-
flokkanna hafa haft til umfjöllun-
ar, kveður á um að réttindi til
nýtingar í atvinnurekstri, sem
skráð eru opinberri skráningu á
tiltekin fjárverðmæti (veðandlag)
og stjórnvöld úthluta lögum sam-
kvæmt, er- eigi heimilt að veðsetja
ein sér og sjálfstætt. Hafi fjárverð-
mæti það sem réttindin eru skráð
snemma í gærmorgun. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu komu
starfsmenn Reykjavíkurborgar á
vettvang til að skipta um sand á
lóðinni og tókst starfsmönnum leik-
á verið veðsett er eigi heimilt að
skilja réttindin frá fjárverðmætinu
nema með þinglýstu samþykki
þeirra sem veðréttindi eiga í við-
komandi fjárverðmæti.
Ákvæðið er skýrt svo í greinar-
gerð að átt sé við þau tilvik þegar
veðsett séu fjárverðmæti, til dæm-
is jarðir og skip, sem á séu skráð
réttindi til nýtingar í atvinnu-
rekstri og stjórnvöld úthluti lögum
samkvæmt og haldi skrár um. Sem
dæmi um slík réttindi megi nefna
skólans að hreinsa málninguna af
húsinu.
Engar skemmdir urðu, en ekki
er upplýst hveijir þama voru að
verki.
aflahlutdeild, sem úthlutað sé á
skip samkvæmt stjórn fískveiða
og greiðslumark sem úthlutað sé á
lögbýli.
Ekki sjálfstætt andlag
veðréttar
Af reglunni leiði að óheimilt sé
að veðsetja réttindi sem um ræði
ein sér og sjálfstætt, þótt aðila-
skipti geti orðið að þeim með öðr-
um hætti samkvæmt ákvæðum
laga og reglugerða. Þau geti því
ekki orðið sjálfstætt andlag veð-
réttar. Þá komi fram sú megin-
regla, að hafí slíkt fjárverðmæti,
til dæmis veiðiskip eða lögbýli,
verið veðsett sé óheimilt á gildis-
tíma veðsetningarinnar að skilja
hin úthlutuðu réttindi frá viðkom-
andi fjárverðmæti.
Nokkrir þingmanna Framsókn-
arflokksins hafa lýst sig andvíga
veðsetningu kvóta, en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins geta
þeir sætt sig við núverandi ákvæði,
þar sem veðsetning kvóta er bund-
in veðsetningu skips og skýrt
kveðið á um að aflaheimildina eina
megi aldrei veðsetja.
Skemmdarverk við leikskóla