Morgunblaðið - 05.12.1996, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
1
FRETTIR
Jóladansinn stiginn
Morgunblaðið/Ásdís
KRINGLAN er komin í jólabún-
ing og Sara Dögg Eiðsdóttir, litla
hnátan sem ljósmyndari Morgun-
blaðsins hitti í verslunarmiðstöð-
inni, var komin í jólaskap. Hún
dansaði þar af hjartans Úst í takt
við tónlistina en nú eru jólaböllin
á næsta leiti.
Ný könnun gerð á frá-
kasti afla hjá fiskiskipum
„OF MIKIÐ er um það að fiski sé
hent,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra á Alþingi í gær,
er hann svaraði fyrirspum sem
Magnús Stefánsson alþingismaður
beindi til hans um frákast á afla
fískiskipa. Þorsteinn greindi frá því,
að niðurstaðna nýrrar könnunar
Hafrannsóknastofnunar á frákasti
afla væri að vænta eftir áramótin.
Fyrirspumin snerist um hvort
sjávarútvegsráðuneytið hefði látið
gera úttekt á því, hve miklum veidd-
um afla sé kastað úr fiskiskipum,
og hvort ráðherra hafí uppi áform
um að leggja mat á magn frákasts.
Einnig var spurt hvort fiskifræðing-
ar taki tillit til áætlaðs frákasts við
ákvörðun tillagna um leyfílegan
heildarafla einstakra físktegunda.
Þorsteinn sagði að á undanfömum
árum hefði mjög margt verið gert,
bæði af hálfu stjómvalda og þeirra
sem starfa í sjávarútveginum, til
þess að tryggja góða umgengi um
fiskimiðin; samþykkt laga um um-
gengni við fískimiðin á síðastliðnu
sumri væri m.a. til marks um það.
Nýjasta könnun gerð 1992
Þorsteinn sagði ráðuneytið ekki
hafa staðið sjálft fyrir könnun á
umfangi frákasts á físki; aftur á
móti hefðu á síðustu árum tvær ráð-
herraskipaðar nefndir gert tilraun
til að leggja mat á það. Nýjustu nið-
urstöðumar úr þessum könnunum
hefðu legið fyrir í janúar 1993, en
þær væm ekki yfírfæranlegar beint
á ástandið eins og það sé nú. í þeim
niðurstöðum kom fram, að hlutfall
frákasts væri áætlað að meðaltali
um 4% af heildarafla, en þetta hlut-
fall væri mjög mismunandi eftir físk-
tegundum. Til að leggja mat á
ástandið eins og það væri nú sagði
ráðherra nauðsynlegt að bíða niður-
staðna nýrrar könnunar. Hann
greindi frá því, að nú ynni Hafrann-
sóknastofnun einmitt að slíkri könn-
un í samstarfi við trúnaðarmenn um
borð í fiskiskipum, og væri niður-
staðna úr henni að vænta eftir ára-
mótin.
Varðandi spurninguna um hvaða
áhrif frákast hefði á fiskveiðiráð-
gjöfína sagði ráðherra það vera mat
Hafrannsóknarstofnunar, að þau
kæmu fyrst og fremst fram í því ef
verulegar breytingar yrðu á mældri
stærð fiskistofna frá einu ári til
annars, þar sem ráðgjöfín byggðist
á slíkum hlutfallslegum breytingum.
Frumvarp til laga um bamaklám
Gildistöku verði flýtt
ALLSHERJARNEFND hefur skilað
áliti um frumvarp til laga um vörslu
barnakláms með tveimur breyting-
um. Leggur nefndin til að öðrum
málslið 1. greinar þess verði breytt
á þann veg að refsingu varði að sýna
böm á klámfenginn hátt. í frumvarp-
inu stendur á grófan klámfenginn
hátt og er mælst til að orðið grófur
verði fellt út. Þá leggur nefndin til
að lögin taki gildi 1. janúar 1997 í
stað 1. júlí. Nefndin var einróma í
afstöðu sinni. í áliti segir jafnframt
að nokkur umræða hafí orðið í nefnd-
inni um hvort setja ætti aldursmörk
í frumvarpið en þar er talað um böm
án þess að aldur þeirra sé tilgreindur
nánar. Varð niðurstaðan sú að að
eðlilegast væri að miða við 16 ár,
eða sjálfræðisaldur.
Frumvarpið verður tekið til ann-
arrar umræðu í þinginu næstu daga.
Opið í dag
10-18:30
Sumar verslanir opnar lengur
KRINGMN
frd morgni til kvolcls
j
Jólagestur
Morgunblaðið/Kristinn
ÞETTA rauða og græna skordýr,
sem Erling Ólafsson skordýra-
fræðingur segir að heiti einitíta,
skaut upp kollinum á ritstjórn
Morgunblaðsins í gær, nánar til-
tekið á síma blaðamanns. Erling
segir að einitítan birtist stundum
hér á landi í desember og leynist
þá í greni sem flutt er til lands-
ins fyrir jólin. „Á síðasta ári var
töluvert um einitítu, en þetta er
sú fyrsta sem ég frétti af í ár.
Einitítan býr víða í Evrópu og
lifir á einibeijum, eins og nafnið
Allur afli
verði
seldur á
markaði
SEX þingmenn úr þingflokki jafn-
aðarmanna hafa lagt fram á Al-
þingi þingsályktunartillögu um
sölu afla á fiskmörkuðum. Gengur
tillagan út á að Alþingi álykti, að
allur sjávarafli sem seldur sé inn-
anlands skuli seldur á fiskmörkuð-
um. Fyrsti flutningsmaður er
Svanfríður Jónasdóttir.
í greinargerð með tillögunni er
þess getið, að miklar breytingar
eigi sér nú stað í íslenzkum sjávar-
útvegi, sem rætur eigi að rekja
m.a. til tæknibreytinga á sviði fjar-
skipta og upplýsingastreymis,
bættra samgangna og möguleika
til skjótra flutninga. Einnig er
fiskveiðistjórnunarkerfið nefnt,
markaðsvæðing veiðanna og sú
staðreynd, að fiskmarkaðimir hafi
haslað sér völl á síðastliðnum ára-
tug. Á fiskmörkuðum séu nú ár-
íega seld um 100 þúsund tonn af
bolfiski fyrir um 10 milljarða
króna. Þannig sé tæknilega ekkert
því til fyrirstöðu að allur afli sem
seldur sé hérlendis fari á markað,
en það hefur um nokkurt skeið
verið krafa sjómanna.
Einnig mikilvægt
hagsmunamál vinnslunnar
Sala alls afla sem seldur er inn-
anlands um fiskmarkaði er sögð
vera ekki aðeins réttlætismál fyrir
sjómenn „heldur einnig mikilvægt
hagsmunamál vinnslunnar svo að
hún geti sérhæft sig enn frekar
og gert betur."
Tekið er fram í greinargerðinni,
að þingsályktuninni sé ætlað að
fela í sér stefnumörkun Alþingis,
og vonast til að samþykkt hennar
verði til þess að sjávarútvegsráð-
herra flytji frumvarp til breytinga
á viðeigandi lögum til að fylgja
henni eftir.
gefur til kynna. Þetta er aðlað-
andi og ágætt skordýr.“
í Skordýrabók Fjölva segir að
25 þúsund tegundir af títum séu
nú þekktar og skiptast þær í
nokkur hundruð ættir, sem eru
ákaflega ólíkar. Sjúga sumar
þeirra blóð úr dýrum, en flestar
sjúga safa úr jurtum. Títur líkj-
ast sumar bjöllum, enda myndast
þykkildi ofan á bol þeirra, nokk-
urs konar skel við vængrætur,
sem gengur aftur í brodd og
myndar eins konar skjöld.
GSM-símkerfið
Endur-
varps-
stöðvum
fjölgað
PÓSTUR og sími er að láta
koma fyrir nýrri endurvarps-
stöð fyrir GSM-símkerfið á
mótum Þrengsla og Hellisheið-
ar. Sendir þessi mun ná yfír
brekkuna við Skíðaskálann í
Hveradölum og yfir Þrengslin,
að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur
blaðafulltrúa P&S.
Sambandið hefur verið nokk-
uð gloppótt á þessu svæði, seg-
ir Hrefna, og er jafnframt verið
að reisa endurvarpsstöð í Blá-
Qöllum, sem bæta á sambandið
í Bláfjallafólkvangi, Þrengsla-
vegi til Þorlákshafnar og á
Hellisheiði, að Hrefnu sögn.
Framkvæmdum gæti lokið inn-
an tíu daga.
Þá á að reisa tvær endur-
varpsstöðvar í janúar, að Hrefnu
sögn, en ekki búið að ákveða
staðsetningu endanlega. Nú eru
82 endurvarpsstöðvar fýrir
GSM-símkerfið um landið og
segir Hrefna endurvarpið í stöð-
ugri uppbyggingu.
Þingsályktunartil- (
lagajafnaðarmanna