Morgunblaðið - 05.12.1996, Page 6

Morgunblaðið - 05.12.1996, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Fjársöfnun á Omega Vilja sýna fjölskyldu- myndir og barnaefni KRISTILEGA sjónvarps- stöðin Omega hefur staðið fyrir söfnun undanfarna daga og er markmiðið að afla fleiri stuðningsmanna svo hægt sé að fækka endur- sýningum,. sýna fjölskyldu- myndir og bjóða upp á barna- efni. Um 350 manns styðja við bakið á Omega nú þegar og segir Eiríkur Sigurbjörnsson sjónvarpsstjóri að tekið verði upp beingreiðslukerfi eftir áramót svo stuðningsmenn geti látið draga tiltekna upp- hæð af reikningum sínum mánaðarlega í stað þess að greiða með gíróseðli. Safnast hafa um 300 þúsund krónur. Söfnunin hefur verið gerð kvöld og kvöld undanfarna fimm daga og verður safnað í viku til tíu daga að Eiríks sögn. Omega er svo til ein- vörðungu rekin með fijálsum framlögum og kostar rekstur stöðvarinnar um eina milljón króna á mánuði eins og út- sendingum er háttað nú. „Margt smátt gerir eitt stórt og fólk þarf ekki að leggja háar upphæðir af mörkum. Við viljum fækka endursýn- ingum, sýna fjölskyldumynd- ir á laugardagskvöldum og bjóða upp á barnadagskrá. Ef vel ætti að vera þyrftum við rúmar tvær milljónir á mánuði,“ segir Eiríkur. Nýbyrjaðir að senda út á örbylgju Utsendingar Omega nást á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum og uppi á Skaga og stendur til að stuðningsmenn úti á landi geti fengið kristilegt efni á myndbandsspólum að Eiríks sögn. „Við erum nýbyijaðir að senda út á örbyglgju og jafnframt er stöðin með stór- an sendi sem gæti farið til Vestmannaeyja eða Akur- eyrar,“ segir Eiríkur jafn- framt. Um 20 manns koma að rekstri Omega á einn eða annan hátt og eru margir þeirra í sjálfboðavinnu. Augnlækn- ingadeildin á Landspítala NÝ augnlækningadeild Landspít- ala tók til starfa í gær og tók jafn- framt á hádegi við bráðavakt af augnlækningadeild Landakots- spítala. í gær voru þeir fáu sjúkl- ingar sem enn lágu á augndeild- inni á Landakoti fluttir með sjúkrabílum milli sjúkrahúsa. Einar Stefánsson, prófessor og yfirlæknir augnlækningadeildar- innar, segir að flutningunum ljúki í dag og fyrsta aðgerðin er ráð- gerð á föstudag „og síðan væntum við þess að reglubundin starfsemi komist í fullan gang í byijun næstu viku,“ sagði Einar. Hann sagðist vonast til að í næstu viku kæmist jafnvægi á starfsemina og að sá biðlisti sem til varð þá viku sem FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn ÞINGMENNIRNIR Ágúst Einarsson, Hjálmar Jónsson, Svávar Gestsson, Guðjón Guðmundsson og Ólafur G. Einarsson og Bjarni Jóhannsson þingvörður sýndu nýja Alþingismannatalinu mikinn áhuga. Upplýsingar um 604 þingmenn ÚT ER komið Alþingismannatal með upplýsingum um 604 al- þingismenn sem setið hafa á Al- þingi frá 1845-1995. Þetta er í fjórða sinn sem Alþingismannatal er gefið út,en síðast kom það út árið 1975. Alþingismenn fengu bókina afhenta í Alþingishúsinu í gær. Forsætisnefnd Alþingis ákvað haustið 1994 að minnast 150 ára afmælis hins endurreista Alþingis með því að hefja undirbúning að útgáfu nýs Alþingismannatals. Nokkur nýmæli eru í þessu tali frá hinu síðasta. Til dæmis er í æviágripum greint frá því fyrir hvaða flokk alþingismenn hafa setið á þingi og bætt er í æviágrip- in upplýsingum um félags- og sveitarstjórnarstörf þingmanna, auk upplýsinga um börn þeirra. Einnig er í talinu m.a. grein um flokkaskipun á Alþingi fyrr á öldinni oggreinar um aðstöðu þmgsins í húsi Menntaskólans í Reykjavík óg um Alþingishúsið. Óánægja meðal slökkviliðsmanna með vinnutilhögun hjá Neyðarlínunni Aforma að óska lausn- ar frá yfirmannastöðum UM TUGUR slökkviliðsmanna hef- ur áformað að óska eftir lausn undan yfirmannastöðum sínum sökum óánægju með samstarfið við Neyðarlínuna, og hafa tveir þeirra sent sökkviliðsstjóra í Reykjavík bréf með slíkri beiðní. Væri hún tekin til greina, hefði það í för með sér að þeir létu af stöðu varðstjóra og sömuleiðis töluverða launa- lækkun. Tveir slökkviliðsmenn starfa á Neyðarlínunni á hverri vakt, og er annar innivarðsstjóri og hinn að- stoðarvarðstjóri, og starfa þeir ásamt neyðarvörðum. Fimm eru á dagvakt og fjórir á næturvakt. Fagleg niðurlæging Guðmundur Vignir Óskarsson formaður Landssambands slökkvi- liðsmanna segir að í vor hafi verið gerð sátt á milli slökkviliðsmanna og Neyðarlínunnar fyrir milligöngu borgarstjóra, um hvernig fyrir- komulagi samstarfs þessara aðila yrði háttað. „I sumar unnum við að útfærslu þessara sátta, sem fólst í gerð starfslýsingar fyrir okkar menn og hvernig fyrirkomulagið væri inni í Neyðarlínunni. Seint í haust fékkst niðurstaða í málið að því menn töldu, en síðan hefur verið að kom- ast reynsla á það og hefur risið óánægja þeirra einstaklinga úr röðum slökkviliðsmanna sem þarna vinna og sú óáanægja hefur farið vaxandi. Þeir telja ríkja ósamræmi á milli starfslýsingarinnar og fram- kvæmdar hennar hjá fyrirtækinu, og upplifa faglega niðurlægingu undir þeim kringumstæðum sem þeir starfa við nú,“ segir Guðmund- ur. Hann segir Landssambandið skoða nú meint misræmi í þessum þáttum og muni hann funda með slökkvililðsstjóra, fulltrúa starfs- manna og aðstoðarframkvæmda- stjóra Neyðarlínunnar í dag. „Við munum gera kröfur um tafarlausar lagfæringar að lokinni skoðun á málinu, en það er ljóst að við getum ekki sætt okkur við að farið sé með fagþekkingu slökkviliðsmanna af geðþótta. Við höfum miklar áhyggjur af þróun mála,“ segir hann. Samkomulag verið virt Eiríkur Þorbjörnsson fram- kvæmdastjóri Neyðarlínunnar kveðst ekki skilja óánægju slökkvi- liðsmanna og hann telji áðurnefnt samkomulag við slökkviliðsmenn hafa verið virt að öllu leyti. „Slökkkviliðsmenn felldu verk- lýsinguna á fundi sínum, en hún var samt sem áður unnin á sam- vinnu við þá og slökkviliðið í Reykjavík. Ég tel okkur hafa fullan rétt á að segja til um vinnutilhögun innan Neyðarlínunnar, en markmið- ið með að fá slökkviliðsmenn til starfa var að nýta þekkingu þeirra, og það er rangt að svo sé ekki gert. Þeir hafa fundið að því að þurfa að þjóna öryggisfyrirtækjunum, en rök okkar fyrir því eru að allir starfsmenn hjá Neyðarlíiiunni búi yfir sameiginlegri kunnáttu til að geta leyst hvern annan af hólmi. Með því næst fram öryggi og hag- kvæmni,“ segir Eiríkur. Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri í Reykjavík segir framkvæmda- stjóra Neyðarlínunnar njóta fullan stuðnings yfirmanna slökkviliðsins í Reykjavik. Búið hafi verið að ná sátt við fulltrúa starfsmanna, og því sé miður að einstakir starfs- menn lýsi yfir óánægju. Hefur trú á lausn „Það er mismunandi hvað slökkviliðsmenn eru óánægðir með. Til dæmis hefur verið hefð að þeir gætu sofið í vinnutímanum, en þessu hefur verið breytt og sumum hugnast það ekki eða lengri viðvera en áður. Vinnan fyrir öryggisfyrir- tækin hefur valdið óánægju annarra og aðrir telja rangt að hafa ekki aðgang að sjónvarpi á vaktinni," segir Hrólfur en kveðst hafa fulla trúa á að málið leysist í friðsemd. FYRSTI sjúklingurinn var lagður inn á nýju augndeildina skömmu eftir hádegi í gær. starfsemin var undirlögð af flutn- ingunum ynnist þá upp. Þetta er í þriðja skipti sem augnlækningadeildin á Landakoti flytur á þessu ári; fyrst flutti hún af jarðhæð Landakots á aðra hæð, þá á þriðju hæð og nú á Landspít- alann. Andlát KNUTUR SKEGGJASON KNÚTUR Skeggja- son, fyrrverandi tæknimaður hjá Rík- isútvarpinu, er látinn, 75 ára að aldri. Knútur fæddist 21. apríl 1921 á ísafirði. Foreldrar hans voru Skeggi Samúelsson, bóndi og síðar bústjóri á Seljalandsbúi á ísafirði, og Vilborg Magnúsdóttir. Knútur stundaði sjómennsku 1941- 1945 en tók loft- skeytapróf 1946. Knútur hóf störf hjá tæknideild Ríkisútvarpsins sama ár og starf- aði þar óslitið til ársins 1984. Fyrst fólst starf hans í tæknilegum undirbúningi og út- sendingu dagskrár, en síðar æ meir í hljóðrit- un dagskrárefnis. Hann hljóðritaði flest- ar þær hljómplötur sem gefnar voru út á árunum 1950-1965. Síðustu árin fyrir starfslok sá Knútur um segulbandasafn Útvarpsins. Eftirlifandi eigin- kona Knúts er Inge- borg G. Skeggjason. Þau áttu eina dóttur, Ásu Kristínu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.