Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ - Doktor í þvagfæra- skurð- lækningum •DOKTORSVÖRN Ársæls Kristjánssonar fór fram 15. nóv. sl. við Háskólasjúkrahúsið í Lundi, þar sem hann hefur verið þvagfær- askurðlæknir í 9 ár. Hefur doktors- ritgerðin komið út á bók og nefnist „Urinary Diverti- on; Long-term re- nal function and morphology and consequences for metabolism.“ Andmælandi var prófessor Jens Christian Djurhuus frá Skejby sjúkrahúsinu í Árósum. Dr. Ársæll Kristjánsson Sími 555-1500 Höfum kaupanda að 200—250 fm einbhúsi á stór- Reykjavíkursvæðinu. Engin skipti. Sumarbústaður Tii sölu góður ca 50 fm sumarbústað- ur í landi Jarðlangsstaða í Borgarfirði. Eignarland hálfur hektari. Verð: Til- boð. Kópavogur Digranesheiði Gott ca 120 fm einbýli auk ca 35 fm bílskúrs á þessum vinsæla stað. Áhv. húsbr. ca 2,4 millj. Verð 11,5 millj. Garðabær - Stórás Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm bíl- sk. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv. Skipti möguleg á 3ja herb. íb. Baughús Glæsileg ca 90 fm 3ja herb. íb. í tvíb. með góðu útsýni. Ahv. ca 2,8 millj. húsbréf. Verð 8,5 millj. Skipholt Góð ósamþ. einstaklíb. ca 48 fm í fjölb. Verð 2,7 millj. Hafnarfjörður Gunnarssund Til sölu er góð 3ja herb. ib. á jarðh. Breiðvangur Mjög góð 5 herb. ca 112 fm íb. á 2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj. Álfaskeið Einbýlishús á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið endurn. Ath. skipti á litilli íb. Reykjavíkurvegur Glæsileg 2ja herb. íb. á.3. hæð. Litið áhv. Verð 4,3 millj. Vantar eignir á skrá If Fasteignasala, Strandgötu 25, Hfj. Árni Grétar Finnsson, hrl. Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl. Nýmyndun á þvagfærum er nauðsynleg þegar fjarlægja þarf hluta af eða alla þvagblöðru. Að- gerðin er framkvæmd við sjúk- dóma í þvagblöðru eða nálægum líffærum, t.d. við æxli, truflun á starfsemi þvagblöðru oft samfara þvagleka eða hjá börnum með vansköpun á þvagfærum. Við nýmyndun þvagfæranna er notast við smágirni og digurgirni úr sama einstaklingi og þvagblaðr- an fjarlægð. Kostir nýmyndunar þvagblöðru framyfír eldri aðferðir eru að ekki er þörf á poka á kviðn- um til uppsöfnunar þvags og það hefur oftast í för með sér betri andlega líðan og aukið fijálsræði fyrir einstaklinginn. Eftir nýmynd- un þvagveganna verður breyting á eðlilegri líffærafræði og lífeðlis- fræði þvagfæranna. Görnin sem nú er stöðugt í snertingu við þvag viðheldur upprunalegum eiginleik- um sínum og uppsog á efnum t.d. elektrolytum og sýru frá þvagi fer fram. Meginviðfangsefni doktorsrit- gerðarinnar var að kanna, eftir að ofangreindri aðgerðartækni hafði verið beitt, afleiðingarnar fyrir nýmastarfsemi og áhrif sýk- inga á nýru. Einnig að rannsaka þýðingu skertrar nýrnastarfsemi fýrir þróun efnaskiptabreytinga í líkamanum. Rannsókir voru gerð- ar á einstaklingum sem gengust undir aðgerð og í dýratilraunum var þvagblaðran nýmynduð úr görn og áhrifin könnuð. Helstu niðurstöður voru m.a. að nauðsynlegt er að hindra að sýkt þvag frá nýmyndaðri blöðru úr görn nái til nýmanna. Þetta er gert við aðgerðina með því að þvagleiðaramir eru saumaðir í hina nýmynduðu blöðru með ákveðinni skurðtækni sem hindrar bakflæði þvags til nýma. Tíðni örmyndana og sýkinga í nýrum var aukið þegar slíkri tækni var ekki beitt. Nokkrar breytingar urðu á efnaskiptum hjá einstaklingum með skerta nýmastarfsemi. Mun- ur fannst á sým-basa og kalsíum jafnvægi hjá þeim borið saman við einstaklinga með eðlilega nýrna- starfsemi. Lægri gildi fyrir kals- ium í blóði fundust hjá einstakling- um með skerta nýrnastarsemi. Líkleg ástæða fyrir því er að sam- tímis og basi losnar í auknum mæli úr beinum til að bindasst sýra í líkamanum losnar einnig kalsíum sem tapast í þvagi. Þess- um einstaklingum gæti því verið hættara við að fá beinþynningu í framtíðinni. Meðferð með natr- iumbikarbonat í töfluformi kemur í veg fyrir þessar breytingar og er í sumum tilfellum nauðsynleg. Nánari rannsóknir á efnaskiptum beina hjá þessum einstaklingum standa nú yfír. Dr. Ársæll er sonur Kristjáns Benediktssonar fyrrv. borgarfull- trúa í Reykjavík og Svanlaugar Ermereksdóttur kennara. Kona hans er Ásdis Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari og eiga þau þijú börn. Skýrsla námsmanna um LÍN rædd utan dagskrár á Alþingi Ráðherra segir tölur rangtúlkaðar SKÝRSLA námsmannahreyfíng- anna um Lánasjóð íslenzkra náms- manna, sem lögð var fram á dögun- um, var rædd utan dagskrár á Al- þingi s.L þriðjudag. Málshefjandi, Kristín Ástgeirsdóttir, beindi þeirri spumingu til menntamálaráðherra, hvernig hann hygðist bregðast við skýrslunni og þeim upplýsingum sem fram kæmu í henni, ekki sízt þeim er snúa að einstæðum foreldr- um, barnafólki og fækkun náms- manna erlendis. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra sagði fjölmörg atriði í skýrslu námsmanna vera gagnrýn- isverð; tölur væru rangtúlkaðar í henni. Vakti hann athygli á því, að frá því hin umdeildu lög um LÍN tóku gildi árið 1992 hefði virkum nemendum í Háskóla íslands fjölg- að, þó lánþegum lánasjóðsins hafí fækkað á tímabilinu. Að mati ráð- herrans er ekkert gagnrýnisvert við að færri taki lán er fleiri stundi nám. „Þetta sýnir fyrst og fremst, að í hinu eldra kerfí tóku fjölmargir námsmenn námslán sem höfðu ekki þörf fyriri það,“ sagði ráðherra. Einnig sagði hann það mikla rang- túlkun á tölum, að halda því fram að barnafólki hafí fækkað verulega í námi eftir breytingarnar á reglum LÍN 1992. Það hafi lengi verið mjög sveiflukennt, hve hátt hlutfall námsmanna væra barnafólk. Stór hópur barnafólks stundi nám án þess að taka námslán og hann fari stækkandi eftir breytinguna. Sigríður Anna Þórðardóttir, for- maður menntamálanefndar Alþing- is, talaði um „rangfærslur náms- manna við undirleik stjórnarand- stöðunnar". Neikvæð umræða afdrifarík Menntamálaráðherra sagði um- ræðuna um þungbær lánakjör lána- sjóðsins hafa verið neikvæðari en réttmætt sé. „Er ekki ólíklegt að þessar neikvæðu umræður hafi jafnvel ráðið meiru um ákvarðanir manna um að fara ekki í nám vegna reglna um lánasjóðinn en efni regln- anna sjálfra. Slík umræða er ekki til þess fallin að hvetja ungt fólk til að hefja háskólanárn," sagði ráð- herrann. Lúðvík Bergvinsson sagði einn stærsta gallann á lögunum frá 1992 vera of víðtækt framsal valds frá Alþingi til menntamálaráðherra og stjórnar LÍN, sem „setur nánari reglur um úthlutun námslána", eins og segir orðrétt í lögunum. Að þessu j leyti séu lögin eins og „óútfyllt ávís- un“, sem Lúðvík dregur í efa að standist ákvæði stjórnarskrár. | Menntamálaráðherra tók undir þessa gagnrýni þingmannsins og sagði „óeðlilega mikið vald“ vera á hendi stjórnar LÍN. Einnig ítrekaði ráðherra vilja sinn til að fjárveiting- ar verði auknar til sjóðsins með það aðallega fyrir augum að létta end- urgreiðslubyrði námslána. Svavar Gestsson og fleiri þing- menn stjórnarandstöðuflokkanna, sem til máls tóku í umræðunni, . lýstu furðu sinni á því að allir þing- menn Framsóknarflokksins skyldu halda sig fjarri umræðunni, í ljósi hinna afdráttarlausu yfirlýsinga sem þeir hefðu haft uppi um mál- efni námsmanna. Morgunblaðið/Guðlaugur Wíum FAXABORGIN í Rifshöfn. Nýr bátur á Rifi. Morgunblaðið. NÝR bátur, Faxaborg SH-207, í eigu Kristjáns Guðmundssonar hf. kom til hafnar í Rifi á Snæfells- nesi 1. desember sl. Báturinn er 200 tonna stálbátur áður í eigu Tálknfirðinga og hét þá Sigurvon Ýr og var byggður árið 1964 en hefur verið mikið endurbyggður síðan. Báturinn hefur um 800 tonna þorskígildi. Er hann útbúin eingöngu til línu- veiða með beitningavél. Fullkomið frystikerfi er um boð og verður aflinn lausfrystur. Faxaborgin Snæfellsnesi verður eingöngu gerð út á aðrar fisktegundir en þorsk og þá aðal- lega grálúðu. Skipstjóri verður Óli Ólsen og stýrimaður Ingólfur Aðalsteins- son og verða 13 menn í áhöfn. Þessi bátur kom í staðinn fyrir Sólborgina sem seld var til Eyr- arbakka. Kristján Guðmundsson hf. gerir nú út Tjald og Eldborgina og eru báðir þessir bátar útbúnir sérstak- lega til línuveiða. Menntamálaráðherra um kennaramenntun Aherzla á kennslu- tækniá kostnað fag- þekkingar BJÖRN Bjarnason menntamálaráð- herra tæpti á því í umræðum utan dagskrár á Alþingi á þriðjudag um stöðu raungreinakennslu í landinu, að skoða þurfi inntak kennara- menntunar. Meðal hugmynda um aðgerðir til úrbóta sé að athuga „hvort aðstæður hér á landi séu hvetjandi eða letjandi fyrir fag- mennsku í störfum kennara," og að lögverndun kennarastarfsins verði gerð sveigjanlegri en nú er. Aðspurður um hvað ráðherra ætti nánar við með þessum orðum, sagði hann að hann teldi við menntun kennara hér á landi hafa verið lagða of mikla áherzlu á kennslutækni og þ.u.L, á kostnað sérfræðiþekkingar kennara í hveiju kennslufagi fyrir sig. Þetta ástand ætti að hans mati sinn þátt í því að eins illa sé komið fyrir þekkingu íslenzkra nemenda í raungreinum og tíðrædd könnun bendi til. I : l l ? I \ I i 1 SELJENDUR — STAÐGREIÐSLA ★ Einbýli, raðhús, sérhæð - Smáíbúðahverfi - Fossvogur - Kópavogur - Garðabær. Fjársterkan kaupanda vantar eign á verðbilinu 10-15 millj. Hafið samband. Einbýli, raðhús - Ártúnsholt - Grafarvogur - Selás. Traustur kaupandi að eign á veröbili 11-17 millj. Upplýsingar veitir Bárður eða Þórarinn. ★ Sérhæð - stór íbúð - Austurbær - Háaleiti - Kópavogur. Verðbil 7-11 millj. ★ 3ja-4ra - staðgreiðsla - Fossvogur - Háaleiti - miðbær - vesturbær. Verðhugmynd 7-10 millj. ir 2ja-3ja herb. - Reykjavík. Verðbil 5-7,0 millj. Má vera í risi eða þarfnast standsetningar. Staðgreiðsla í boði. VALHÖLL, Mörkinni 3, sími 588 4477. Reykjavíkurborg svarar Miðskólanum í Reykjavík Ekki frekari fjárstuðningur í DRÖGUM að svarbréfi borgar- stjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, til stjórnar Miðskólans í Reykjavík segir að Reykjavíkurborg telji ekki fært að veita frekari fjár- stuðning til skólahalds en samningur frá liðnu sumri kveður á um. Þorkell St. Ellertsson, formaður stjómar Miðskólans, ritaði bréf til borgarstjóra þann 27. nóvember og fór þess meðal annars á leit að Reykjavíkurborg greiði 4,9 millj. kr. kostnað vegna flutninga skólans sl. sumar, til viðbótar þeim 4 millj. kr sem borgin er þegar búin að greiða. Til vara er þess óskað að borgin láni upphæðina til 5-10 ára. Helstu röksemdir skólastjómar Miðskólans, sem er sjálfseignarstofn- un, fyrir frekari íjárstuðningi eru samningar sem gerðir voru um að borgin tryggði skólanum húsnæði og eru forsenda þess að menntamála- ráðuneytið veitti skólanum starfsleyfi. Fjármálastjórn skólans óviðunandi í drögum að svarbréfí borgarstjóra stendur ennfremur að Reykjavíkur- borg sé sammála því sem fram kem- ur í bréfí skólastjórnar frá 15. nóv- ember sl. að „fjármálastjóm skólans hefur verið óviðunandi undanfarin misseri og iíklega alveg frá upphafi skólastarfsins." Þessari afstöðu borg- arinnar ræður ijárhagsstaða skólans eins og hún blasir við, rekstrarhorf- umar og tillit til jafnræðissjónarmiða sem hafa verður í heiðri í viðskiptum borgarinnar og einkaskólanna. í nóvember hafði stjórnendum Miðskólans verið tilkynnt bréfleiðis að Reykjavíkurborg sé reiðubúin að tryggja áframhaldandi kennslu reyk- vískra barna sem nú eru í skólanum með því að annast hana á eigin ábyrgð, ef núverandi rekstraraðilar treysta sér ekki til að halda rekstrin- um áfram. Núverandi nemendaljöldi skólans mun vera 31 þar af 24 bú- settir í Reykjavík. I \ I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.